Tíminn - 17.11.1993, Síða 7

Tíminn - 17.11.1993, Síða 7
Miðvikudagur 17. nóvember 1993 4V'^\ Innlen* \ 7 Myndir Sigfúsar Menningarmiðstöðin á Eyrarbakka Nú stendur yfir sýning í Menning- armiðstöðinni á Eyrarbakka á Suð- urlandsmyndum Sigfúsar Ey- mundssonar. Sýningin er opin virka daga kl. 15-18 virka daga, en kl. 14-20 um helgar. Sýningin er sett upp af Ingu Láru Baldvinsdóttur deildarstjóra í Pjóð- minjasafninu og er samstarfsverk- efni Menningarmiðstöðvarinnar á Eyrarbakka, Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka og Þjóðminjasafnsins. Myndimar eru úr hinu merka Ijósmyndaplötusafni Sigfúsar, sem nú er í eigu íjóðminjasafnsins. Sumar þeirra hafa birst í bók, sem út kom hjá AB árið 1969 og er löngu uppseld. Sigfús var fyrsti ljós- myndari sem tók rnyndir utandyra að einhveiju marki. Eins og flestir ljósmyndarar á síðustu öld tók hann einkum mannamyndir og ferðaðist um sveitir landsins í þeim tilgangi. Á myndinni eru, taldir frá vinstri: Filippía I. Elísdóttir, Ólafur Þ. Þórðarson fræðslustjóri Iðnnemasambands íslands, Bima Jónsdóttir, Ingibjörg Þóra Helgadóttir, Sigríður Einarsdóttir, Soffía Weisshappel og Benedikt Geirsson aðstoðarsparisjóðsstjóri SPRON. Iðnnemar styrktir Nýlega voru veittir verkefna- styrkir úr styrktarsjóði Iðnnema- sambands íslands og sparisjóð- anna. Styrkina hlutu Filippía I. Elísdóttir fataiðnaðamemi til þátttöku í alþjóðlegri fatahönn- uðakeppni, Sigríður Einarsdóttir og Soffía Weisshappel hár- greiðslunemar og Ingibjörg Þóra Helgadóttir og Bima Jónsdóttir hársnyrtinemar allar til þátttöku í Norðurlandakeppni hársnyrti- fólks. í>á var veittur styrkur til Félagsmálaskóla Iðnnemasam- bands íslands til útgáfu á kennsluefni um réttindi og skyldur iðnnema, meistara og iðnfyrirtaekja. Styrkur til hvers verkefnis var fjömtíu þúsund krónur. Lögum breytt, en gamla reglu- gerðin gildir Ný reglugerð um tannréttingar á leiðinni Tryggingaráð hefur sent frá sér nýjar reglur um styrk til tann- réttinga vegna alvarlegra afleið- inga slysa eða sjúkdóma og mun heilbrigðisráðuneytið gefa út reglugerð um þetta á næstu dög- um. Óhóflegur dráttur hefur orðið á útgáfu reglugerðarinnar, en lögum um tannréttingar var breytt í upphafi siðasta árs. Ekki er búist við að nýju regl- umar breyti miklu varðandi end- urgreiðslu á kostnaði við tann- réttingar frá þeim reglum, sem fylgt hefur verið fram til þessa. Það sérstaka við þetta mál er að lögum um tannréttingar var breytt í upphafi árs 1992, en þá ákvað Alþingi að hætta að end- urgreiða kostnað við tannrétt- ingar, nema um sé að ræða alvar- legar afleiðingar slysa eða sjúk- dóma. Lögin kváðu á um að reglugerð um þessar endur- greiðslur skyldi setja að fenginni tillögu Tryggingaráðs. Nú, tæp- Iega tveimur ámm síðar, em þessar reglur loksins að fæðast. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir al- þingismaður gagnrýndi þetta á AJþingi og spurði hvort það geti talist eðlilegt að notast sé við gamla reglugerð, þegar sjálfum Iögunum hefur verið breytt í gmndvallaratriðum. Heilbrigðisráðherra upplýsti að stuðst sé við reglugerð um tann- réttingar frá árinu 1991. Þar sé að finna ákvæði um endur- greiðslu vegna tannréttinga til sjúklinga sem þarfnast tannrétt- inga vegna slysa eða sjúkdóma. Við útgáfu nýrrar reglugerðar verði stuðst við þessa gömlu reglugerð. -EÓ Nýr ráðu- neytisstjóri Halldór Blöndal samgönguráð- herra hefur sett Jón Birgi Jóns- son aðstoðarvegamálastjóra í stöðu ráðuneytisstjóra í sam- gönguráðuneytinu frá og með 14. nóvember til 14. maí 1994. Ólafur Steinar Valdimarsson hef- ur fengið leyfi frá störfum ráðu- neytisstjóra sama tíma. Ólafur mun vinna að sérstökum verk- efnum hjá ráðuneytinu á tíma- bilinu. Jón Birgir er verkfræðingur frá Danmarks Tekniske Höjskole 1962 og stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum, Danmörku og Bretlandi. Hann hefur starfað hjá Vegagerð ríkisins síðan 1962 og verið aðstoðarvegamálastjóri frá 1. febrúar 1992. ALÖ er eini ámoksturstækjaframleiðandinn sem framleiðir einnig rúllugreipar. Greiparnar eru af tveimur geröum, önnur staflar böggunum liggjandi, hin upp á endann. Greiparnar passa á hraðlæsingarbúnað ámoksturstækjanna og þurfa eigendur ALO ámoksturstækjanna ekki að standa í dýrari breytingum til að tengja greiparnar á ámoksturstækin. Með greipinni, sem staflar rúllunum liggj- andi, fylgja einnig rúllubaggatindar, sem auðvelda notkun greiparinnar við meðhöndlun á rúlluböggum sem geymdir eru úti yfir veturinn. Globus? Lágmúla 5, s:681555 Öllum aðgerðum ámoksturstækjanna er stjómað með einni stjórnstöng. Einnig vökvaúttökum fyrir rúllubaggagreip o.fl. ALO QUICKE 600 á aflar aeröir dráttarvéla Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið ALÖ 620 ámoksturstæki með öllum búnaði á að- eins kr. 390.000,- án vsk. NÝTT! Nýtt skófluhraðtengi með fjöl- tengibúnaði og sjálfvirkri læs- ingu, sem gerir kleift að tengja aukahluti frá ALÖ og flestum öðrum framleiðendum ámokst- urstækja. T.d. skóflur, rúllu- baggagreipar, lyftigaffla o.fl.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.