Tíminn - 17.11.1993, Síða 10

Tíminn - 17.11.1993, Síða 10
Miðvikudagur 17. nóvember 1993 18 FRAMSÓKNARFLOKKURINN Reykjaneskjördæmi Kjördœmisþing haidið I Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafnarfirði, 17. rtóvember 1993. Dagskrá: Kl. 18:00 Formaður KFR setur þingið. Kl. 18:05 Kosnir þingforsetar og ritarar. Kosin kjörtxéfanefnd. Kl. 18:10 Flutt skýrsla stjóman a) formanns, b) gjaldkera. Umræður og afgreiðsla. Ki. 18:40 Avörp gesta: a) SUF b) LFK c) Ftokksskrifstofan. Kl. 19:00 Stjómmáianefnd — tillaga milliþinganefndar — umræður. Kl. 19:30 Kjörbrófanefnd skilar áliti. Kl. 19:40 Kosnir aöalmenn I miðsyóm. Kaflihlé Kl. 20:20 Stjómmál: Steingrímur Hermannsson alþingismaður. Almennar umræður. Kl. 22:20 Stjómmálaályktun afgreidd. Kl. 22:50 Kosning varamanna I miöstjóm. Kl. 23:10 SQómarkosning: a) Formanns. b) Fjórir I stjóm KFR og tveggja til vara. c) Uppstillinganefnd. d) Stjómmálanefrid. e) Tveir endurskoðendur. Kl. 23:30 Önnur mái. Kl. 24:00 Þingslit Akranes — Bæjarmál Bæjarmáiafundur veröur haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 20 nóv n k Id. 10.30. Dagskrá: 1. Farið verður yfir þau mál sem efst eru á baugi i bæjarstjóm. 2. Málefni hitaveitunnar. Allir velkomnir. Bæjarfulltrúamir AUGLÝSINGAFAX TÍMANS Guðjón Jónsson járnsmiður MINNING Þegar ég var að alast upp á árun- um eftir heimsstríðið mikla, var horft með mikilli virðingu til þeirra manna, sem af fómfýsi og brennandi hugsjón höfðu hafist til forystu í verkalýðsfélögunum. Pessir menn vom fremstir meðal jafningja og litu á það sem sína köllun að bæta h'fskjör alþýðunn- ar á íslandi og skapa réttlátara þjóðfélag. Sú barátta var þeirra h'f. Þannig maður var Guðjón Jóns- son. Þótt hann væri af annarri kynslóð en þeir, sem ég er að vitna til hér að ofan, bar hann öU sömu einkenni. Guðjón var ekki þeirrar gerðar að vilja fara fyrir öðmm, en félagar hans vom fljótir að finna hvem mann hann hafði að geyma og treystu honum fyrir forsjá sinna mála. Hann var ungur valinn í forystusveit jám- iðnaðarmanna og meðan þrek entist stóð hann í stafni í kjarab- aráttu íslenskra erfiðismanna. Ég átti því láni að fagna að kynnast Guðjóni á þingi Alþýðu- sambandsins árið 1966. En sam- starf okkar varð fyrst náið, þegar Menningar- og fræðslusamband alþýðu var endurvakið og tók um 1970 að standa fyrir margháttaðri fræðslustarfsemi, þótt ekki væri geyst farið í byrjun. Ég var um þær mundir ráðinn tU MFA sem fræðslustjóri. Fáir, ef nokkrir, for- ystumenn verkalýðsfélaganna þá höfðu jafn ríkan skilning á gildi þessa starfs og Guðjón. Enda var hann boðinn og búinn til að tak- ast á hendur kennslu- og leið- beiningastörf, sem honum fómst afar vel úr hendi. Guðjón var á þessum árum alveg sérstakur áhugamaður um hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, en ástandið í þeim málum var væg- ast sagt tU háborinnar skammar mjög víða. Fáir þekktu þetta bet- ur en Guðjón og engir lögðu meira á sig en hann tU að fá úr þessu bætt, enda var hann óþreytandi að opna augu jafnt fé- laga sinna og atvinnurekenda fyrir úrbótum á þessu sviði. Það vom margar ferðimar sem ég fór með Guðjóni að skoða að- stæður á vinnustöðum jámiðn- aðarmanna. Og minnisstæðar em mér þær ferðir sem við fómm um landið tíl að halda fræðslunám- skeið. Ég gerði mér þá grein fyrir því að verkalýðsbaráttan í breið- asta skilningi þess orðs átti huga hans óskiptan. Guðjón er nú fallinn í hörmu- legu slysi. Við kveðjum í dag dug- mikinn og fómfúsan baráttu- mann íslenskrar alþýðu, sem við eigum öU mikið að þakka. Fjöl- skyldu hans flyt ég mínar dýpstu samúðarkveðj ur. Baldur Óskarsson Leitiö nánarí upplýsinga. i i , Ingvar i I = j Helgason hf. vélasala ^ Sævarhöföa 2, SÍMI 91-674000. Heppilegur lendingarstaður? LESENDUR SKRIFA Um meinta og fyrirfram yfirlýsta lendingu geimvera á Snæfellsnesi mætti án efa rita langt mál, en verður ekki gert hér að sinni. En trúgimi landans — og fáeinna út- lendinga — virðast lítil takmörk sett. Þó var það nú svo, að nær alHr þeir, sem hæst höfðu látið mánuðum saman fyrir „stóra dagmn", 5. nóv., vom mjög fam- ir að draga í land undir það síð- asta. Hefur sennilega verið komið í skilning um það, að allt væri þetta tilstand í hæpnasta lagi og enda lfldega á sandi reist. En vegna þess, að fyrirtækið SnæfeUsás hf. er skráð að HeUn- um (og þar áttu stærstu viðburð- imir að gerast) og hlutafélagið hefur þar „miðstöð' samkvæmt skráningu, mætti minna á að þar var eitt sinn uppi kennimaður, er Ásgrímur hét og alþýða manna nefndi „hinn Ula'. Hefur Oscar Clausen rithöfundur sagt eitt og annað af honum í bókum sínum. Og fleiri kunna frá Ásgrími að segja, og ekki allt fagurt. T.d. er sagt, að þá er fátældinga bar að garði, hafi hann raðað góðgæti í kringum sig og sagt: Þetta borða ég nú, en þið getið snapað gams. Konu átti Ásgrímur, er Sigríður hét og var nefnd „kaka'. Sú var ástæðan, að hún átti að hafa heit- ið því að gefa fátækUngi köku, ef hún næði að giftast Ásgrími, en stóð svo ekki við fyrirheitið. Nú er vonandi, að „nýaldarsam- tökin', SnæfeUsás hf. og meintar geimvemr hafi eigi goldið fyrr- nefnds fólks að Hellnum. En kannski ættu samt þessir aðilar, að fenginni dapurlegri reynslu, að huga að nýjum lendingarstað, ef þessar geimvemr kynnu öðm sinni að hugsa sér til hreyfings. Kristín Bjömsdóttir Djöfull er hann drullugur LESENDUR SKRIFA Ágæti lesandi. Ég stunda nám í þjóðfræði við Háskóla íslands og er m.a. að rannsaka sögu vísu einnar, sem ég Iærði ungur. Ef þú kannast við hana og telur þig vita eitthvað um hana, þætti mér vænt um að þú skrifaðir mér, þar sem fram kæmi allt sem þú veist, eins og t.d. nafn höfundar (og helst eitt- hvað meir um hann), aðdragandi að gerð vísunnar, hvenær hún er samin og hvernig hún er „rétt'. Vmsamlegast láttu þess einnig getið hvar þú sást þessa fyrir- spum mína, því hún er birt í fleiri blöðum um landið. Ég lærði vísuna svona: Djöfull er hann drullugur. Duglega þarf að skafa' 'ann. Ljótur bæði' og lélegur, líkur þeim sem gaf 'ann. Með fyrirfram þökk. Sigurður Ægisson, postboks 146, 8770 Træna, NORGE -4

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.