Tíminn - 02.12.1993, Page 1
STEINLÁGUM
GEGN KRÓÖTUM
-sjá sí&u 7
HITAVEITAN
FIMMTUG
-sjá síðu 5
FRAMTIL
FULLVELDIS
-sjá baksíðu
HÁLFGERÐ
SÁPA
-sjá síðu 3
BARÁTTA
LÁRU
EKKI TIL
EINSKIS
-sjá síðu 9
HÆKKANIR
STRÍÐA GEGN
MANNELDIS-
STEFNU OKKAR
-sjá síðu 4
RÚSSAFISKUR
í SALTIÐ
-sjá síðu 5
DREGIÐ ÚR
VERÐMIÐLUN
ÁMJÓLK
-sjá síðu 4
LAUN
BANKASTJÓRA
SKOÐUÐ
. -sjá síðu 5
ÞJÓÐARSÁTT
FÓRNAÐ
-sjá baksíðu
SAMÚTGÁFAN
ÓSKAR
GJALDÞROTS
-sjá baksíðu
Tímamótadómur
en vægur
Fulltrúi Kvennaathvarfsins um dóm yfir manni sem misþyrmdi konu
sinni og börnum
Fertugur Reykvíkingur hefur verið dæmdur í héraðsdómi í tólf mánaða
óskilorðsbtmdið fangelsi fyrir að hafa beitt konu sína og þijú böm and-
legu og líkamlegu ofbeldi. Misþyrmingamar áttu sér stað í um sautján ár.
Guðrún Ágústdóttir, fræðslu- og
kynningarfulltrúi Kvennaathvarfs-
ins, segir að dómurinn marki
tímamót, þótt hún sé þeirrar skoð-
unar að hann sé vægur. Hún
gagnrýnir harðlega íslenska rann-
sóknaraðiia og réttarkerfið og segir
það vera andsnúið konum og
bömum sem verða fyrir misþyrm-
ingum og kynferðislegu ofbeldi.
Böm hins dæmda manns em nú
13, 15 og 19 ára gömul. Hið
yngsta þeirra er vistað á bama- og
unglingageðdeild Landspítalans.
Sálarástand þess er slæmt vegna
barsmíðanna. Móðirin lést úr
krabbameini árið 1992.
í vitnaleiðslum kom fram að
maðurinn réðst oft að bömum sín-
um og barði þau með hnefum,
leðurbelti, hömrum og priki, auk
þess sem dæmi eru um að hann
hafi brotið brauðbretti og disk á
höfði eins þeirra. Elsta bami sínu
misþyrmdi hann uns það lærði
sjálfsvamaríþrótt tii að veijast föð-
ur sínum. Maðurinn réðst marg-
oft að konu sinni, barði höfði
hennar í gólf, stappaði á líkama
hennar og höfði og sparkaði í
hana.
Guðrún Ágústdóttir segir, að
miðað við þá möguleika sem
hegningarlögin skapa dómskerf-
inu, finnist henni dómurinn væg-
ur.
,Mér finnst fangelsisvistin stutt
miðað við svo alvarlegan glæp. En
miðað við það sem við þekkjum er
þetta hins vegar tímamótadómur.
Úr þessu má búast við að fleiri
kærur um heimilisofbeldi gangi
alla leið í gegnum dómskerfið og
að þeir sem fremja þessa glæpi
verði dæmdir. Þar með rennur það
upp fyrir ýmsum, t.d. RLR, að það
stendur hvergi í lögum að það sé
minni glæpur að misþyrma eigin-
konu sinni en öðrum.' Aðeins
einn dómur hefur áður fallið í
máh sem þessu að sögn Guðrúnar
Ágústdóttur, en í fyrra var maður í
Vestmannaeyjum dæmdur fyrir að
misþyrma konu sinni. -PS
Manns sakn-
að eftir að bát
hvolfdi
Hátt í tuttugu bátar og þyrla
Landhelgisgæslunnar leituðu í
gær manns sem saknað er eftir
eftir að fimm tonna plastbátur
fórst í mynni Hvammsfjarðar við
Breiðafjörð. Báturinn var á ígul-
keraveiðum þegar honum hvolfdi
og er talið að það hafi gerst á milli
klukkan 10 og 12 í gærmorgun.
Maður í Stykkishólmi sá hvar
maðurinn sat á kili bátsins um
eittleytið og var sendur björgunar-
bátur á staðin með kafara, sem
kafaði undir bátinn, en fann ekk-
ert.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom
á staðinn skömmu síðar og var
gerð víðtæk leit að manninum en
án árangurs. Leit var hætt þegar
skyggja tók, en henni verður
haldið áfram í dag. -PS
Áhugalitlir
stúdentar
Fáir voru viðstaddir hátíðarhöld
stúdenta í Háskólabíói í gær í til-
efni 75 ára afmælis fullveldis fs-
lands. Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, háskólarektor,
Sveinbjöm Björnsson og formað-
ur Stúdentaráðs, Páll Magnússon,
sátu ein á fremsta bekk á meðan
Flosi Ólafsson leikari flutti hátíð-
arræðu. Aðrar sætisraðir voru illa
nýttar.
Blómsveigar voru lagðir á leiði
Jóns Sigurðssonar en hátíðardag-
skráin í Háskólabíói var sett af PáH
Magnússyni, formanni Stúdenta-
ráðs, en auk Flosa futti Sveinbjöm
Bjömsson rektor ávarp. - ÁG
Af sem áður var. Hvorki fullveldisfagnaðurinn né Flosi Ólafsson drógu
stúdenta að í Háskólabíói í gær. Timamynd Ámi Bjarna
Hagræðingu í mjólkur-
iðnaði frestað um ár
Ekkert verður af breytingum á verðmiðlunarsjóði mjólkuriðnaðarins um áramót vegna ágrein-
ings í stjórnarflokkunum um breytingu á búvörulögum
Flest bendir til að tillögur Sjömannanefndar um að breyta verðmiðl-
unarsjóði mjólkuriðnaðarins í úreldingarsjóð mjólkurbúa frestist um
eitt ár vegna ósamkomulags í ríkisstjóminni um breytingu á búvöru-
lögum. Tilraunir stjómarflokkanna til að ná samkomulagi hafa enn
ekki skilað árangri og heimildarmenn Tímans telja sáralitlar líkur á
að samkomulag náist fyrir áramót.
Einn veigamesti þátturinn í
tillögum Sjömannanefndar um
hagræðingu í mjólkuriðnaði var
að verðmiðlun á mjólk yrði hætt
og það fé sem er í verðmiðlunar-
sjóði yrði notað til að hagræða í
mjólkuriðnaðinum. Þessar tillög-
ur geta ekki komið til fram-
kvæmda nema um áramót og
forsenda þeirra er að búvörulög-
um frá árinu 1985 verði breytt.
Ríkisstjórnin lagði fram frum-
varp um slíka breytingu í vor, en
frumvarpið fékk ekki afgreiðslu
vegna ágreinings í stjómarflokk-
unum um hvaða ráðuneyti ætti
að hafa forræði með innflutningi
á landbúnaðarvömm.
Ágreiningurinn um þetta atriði
er enn til staðar og tilraunir
stjórnarflokkanna til að leysa
hann hafa engum árangri skilað.
Heimildarmenn Tímans telja
engar líkur á að samkomulag
náist fyrir áramót.
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra hefur sagt að EES-
samningurinn geti ekki tekið
gildi nema búvörulögum hafi
verið breytt áður. Það mun hins
vegar almennt viðurkennt að
þetta sé ekki rétt. Breytingin á
búvörulögunum snerti ekki
samninginn sjálfan heldur við-
auka við hann. Gildistaka EES-
samningsins um áramót rekur
þannig ekki á eftir stjómvöldum
að leggja fram búvörulagafrum-
varp.
Ágreiningurinn um forræði á
innflutningi búvara kemur hins
vegar niður á áformum um að
breyta verðmiðlunarsjóðnum
sem er þó sæmileg sátt um. Kúa-
bændur og stjómendur mjólkur-
búa munu vera óánægðir með
þetta því að breytingin á sjóðn-
um var ein af veigamestu tillög-
um Sjömannanefndar. Breyting
á verðmiðlunarsjóði er talin geta
aukið mjög hagkvæmni mjólk-
uriðnaðarins og gert hann hæf-
ari til að takast á við þá erlendu
samkeppni sem framundan er.
Rætt hefur verið um að leggja
fram sérstakt frumvarp um verð-
miðlunarsjóðinn, en óvíst er
hvort af því verður. Formaður
landbúnaðamefndar, Egill Jóns-
son, er andvígur breytingunni á
sjóðnum og er andvígur því að
flutt verði sérstakt fmmvarp um
málið. Flest bendir því til að
áform um hagræðingu í mjólk-
uriðnaði frestist um eitt ár. -EÓ
ÁRÁS
SIÐA 2
rÚTVARP
SJÓNVARP
SIÐA8