Tíminn - 02.12.1993, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.12.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 2. desember 1993 9 f Blaðbera^ vantar AÐALLAND - ÁLFALAND - ÁRLAND • SLÉTTUVEGUR • BJARMALAND - BÚLAND - DALALAND BRÚARÁS • DEILDARÁS - FJARÐARÁS - GRUNDARÁS - HEIDARÁS - KLEIFARÁS - LÆKJARÁS • NÆFURÁS Hverfisgötu 33 sími 618300 Reykrör - Loftræstingar Smíöa og set upp reykrör, samþykkt af brunamálastofnun frá 1983 fJSVV Smíöa og sett upp loftræstingar SfJ? ' Er viöurkenndur af bygginga- fulltrúa Reykjavlkur frá 1983 VllPBLIKKSMIÐJA skúlagötu34 IDbenma RAUTT LjÓS k^ ' RAUTT L,ÓS!' \___________________®2í£__________________^ Félagsvist á Hvolsvelli Félagsvist veröur ( Hvolnum sunnudagskvöldiö 12. desember W. 21 Góð kvöld- verölaun. Framsóknarfélag Rangælnga Aðalfundur Aöalfundur fulltnjaráös Framsóknarfélaganna I Reykjavlk veröur haldinn mánudaginn 6. desember 1993 I fundarsal A. Hótel Sögu, og hefst kl. 17.00. Dagskrá: KI. 17.00 Setning. Valdimar K. Jónsson formaöur. Kosning starfsmanna fundarins. Skýrsla stjómar a) formanns, b) gjaldkera. Kosningar a) Formaöur. b) Aöalmenn I stjóm (5) og varamenn (3). c) Tveir endurskoöendur og einn til vara. d) Aöal- og varamenn i miðstjóm (8). e) Áöal- og varamenn I stjóm Húsbyggirtgasjóösins (3). Kl. 18.30 Borgarmál, frummaelendur Sigrún Magnúsdóttir og Alfreö Þorsteinsson. Kl. 19.00 Matarblé. Kl. 20.00 Almennar umræöur um borgarmál. Kl. 21.00 Önnur mál. Stjóm fulltrúaráðslns Framsóknarvist veröur spiluö sunnudaginn 5. desember n.k. I Hótel Lind kl. 14.00. Veitt veröa þrenn verölaun karia og kvenna. Jón Kristjánsson alþingismaöur ftytur stutt ávarp I kaffihléi. Aögangur kr. 500,- (kaffiveitingar innifaldar). Framsóknarfélag Reykjavikur Hér mó sjó Lóru litlu með foreldrum sínum og yngri bróður skömmu óður en hún þurfti að fara í seinni aðgerðina. Barátta Láru litlu er öðrum hvatning Nýlega lést lítil, hugrökk fimm ára stúlka, Lára Davies, eftir að hafa háð harða baráttu fyrir lífi sínu. Átta vikum áður hafði hún gengist undir læknisaðgerð þar sem skjpt var um fjölda líffæra, en áður hafði Lára þurft að gangast undir sams konar aðgerð. Lára þurfti að taka öflug lyf til að spyma gegn höfnun líkamans á nýju líffærunum, en því miður urðu þau til þess að ónæmiskerfi litlu stúlkunnar skaðaðist og krabbameinsfrumur náðu sér á strik. Fjölskylda hennar varð að lok- um að sætta sig við að ekki yrði við neitt ráðið og vélar, sem héldu lífi í Láru litlu, voru teknar úr sambandi. Lára hafði frá fæðingu verið undir handaijaðri lækna á spítal- anum í Manchester á Englandi. Á síðasta ári gekkst hún undir lífs- nauðsynlega líffæraaðgerð í Bandaríkjunum þar sem skipt var um lifur og þarma. Hún þótti sýna óvenjugóðan bata og snéri brátt aftur til Bret- lands. Snemma á þessu ári byijaði hkami hennar hins vegar að hafna ígræddu hffærunum og hún þurfti að gangast undir aðra aðgerð í Bandaríkjunum, eins og áður er komið fram. Þessar aðgerðir voru óhemju dýrar og Lára litla hefur notið mikils velvilja almennings, sem hefur safnað miklu fé til að standa straum af kostnaðinum. Þá kom einnig til sögunnar konungur Saúdí-Arabíu, sem bauðst til að greiða ahan lækniskosmað. Talsmaður sendiráðs Saúdí-Ar- abíu í London lýsti yfir djúpri hryggð vegna fráfalls Láru litlu. Hann sagði að hugrekki hennar og baráttuvilji yrði öllum ógleyman- legur. „Hún var mjög sjálfstæð og varð sjálf til að hafa orð á öllu sem hana snerti. Hún hefur ekki þurft neinnar sérstakrar hvatningar við,“ var haft eftir föður Láru fyrir nokkru, en fyrir eiga þau hjón tvö böm. Lóra litla beiS ósigur fyrir manninum með Ijóinn, en barótta hennar og lífsþróttur lifir enn í hjörtum allra sem þekktu til hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.