Tíminn - 02.12.1993, Blaðsíða 7

Tíminn - 02.12.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 2. desember 1993 Umsjón: Kristján Grímsson 7 Evrópudraumurinn fjarlægist fslenska karlalandsliðið í hand- knattíeik beið stóran ósigur í gær- kvöldi fyrir Króatíu, 18-26. Leik- urinn var liður í undanriðli Evr- ópukeppninnar og var leikinn í Zagreb í Króatíu. Staðan í hálfleik var 14-11 fyrirKróata. Tapið gerir það að verkum að ís- lenska liðið fellur í þriðja sæti rið- ilsins á eftir Króötum og Hvít- Rússum. Það er því líka ljóst að tapið gerir drauminn um að kom- ast í úrslitakeppni Evrópukeppn- innar í Portúgal á næsta ári fjar- lægari en áður. Ástæðan fyrir því er sú að tapið fyrir Króötum var alltof stórt og markatalan því óhagstæð þegar tekið verður á móti Hvít-Rússum í tveimur leikj- um hér á landi í janúar. Leikimir gegn Hvít-Rússum verða því báðir að vinnast ef komast skal í úrslita- Valdimar Grímsson stóS sig best í íslenska liðinu í gær og skoraSi 7 mörk. r keppnina. Geir Sveinsson, fyrirliði landsliðs- ins, var að vonum ekki hress eftir leikinn. „Tapið var alltof stórt. Við lékum vel í 45 mínútur í leiknum en eftir það fór allt að ganga á aft- urfótunum hjá okkur. Geir sagði að mistökin hefðu verið of mörg og leikmenn hefðu ætlað að gera hlutina upp á sínar eigin spýtur í sókninni sem ekki gekk. „Það er ljóst að við verðum að vinna Hvít- Rússa í báðum leikjunum hér heima,' sagði Geir í samtali við Bylgjuna eftir leikinn í Zagreb. íslendingar léku mjög vel í byij- un og þijú mörk Valdimars Gríms- sonar í röð komu landanum í 1-3 og vonin um góðan árangur glæddist. En Króatar komu smátt og smátt meira inn í leikinn og komust yfir um miðbik hálfeiksins og náðu mest fjögurra marka for- ystu í hálfleik, 14-11. íslendingar héldu í við Króatana, sem voru vel hvattir af 4 þúsund áhorfendum, og munurinn hélst í 3-4 fjórum mörkum þar til 10 mínútur voru eftir af leiknum. Þá skoruðu íslendingar ekkert mark það sem eftir lifði af leiknum en Króatar bættu um betur og skor- uðu mörg dýrmæt mörk og loka- staðan varð því 26-18 fyrir Króata. Slök varkmarsla hafði sitt að segja í þessum leik og hefði Þor- bergur Aðalsteinsson landsliðs- þjálfari átt að setja Bergsvein mun fyrr inn á en raunin varð á. Berg- sveinn lék síðustu tíu mínútumar en fann sig ekki á þeim tíma og varði ekki skot. Valdimar Gríms- son stóð sig vel fyrri hálfleik en var slakur í þeim seinni. Júlíus Jónasson gerði það sem hann gat en var tekinn nánast úr umferð allan leikinn og tóku dómararnir alltof lint á brotum Króatanna á Júlíusi. Geir stóð sig ágætlega og var með 100% nýtingu. Aðrir leik- menn íslenska liðsins léku undir getu. Hjá Króatíu var Patric Cavar langbestur og skoraði átta mörk og réð Einar Gunnar ekkert við hann. Vinstrihandarskyttan Zarazevic var einnig öflugur. Gangur leiksins, Kró.-fsL: 1-0, 1- 3, 3-3, 5-6, 8-7, 10-8, 12-8, 12-10, 14-11 — 15-11, 17-14, 20-17, 22- 17, 26-18. Mörk íslands: Valdimar Grímsson 6/3, Geir Sveinsson 3, Júlíus Jón- asson 3, Einar Gunnar Sigurðsson 2, Gunnar Beinteinsson 2, Dagur Sigurðsson 2. Guðmundur Hrafnkelsson varði 8 skot í leiknum, 5 utan teigs og 3 af línu. Utan vallar: ísland 6 mínútur og Króatía 14 mínútur. Dómarar: Thomas-bræðurnir frá Þýskalandi. Mjög slakir. Keegan líklegastur Veðbankar í Englandi velta nú mikið fyrir sér hver verður eftir- maður Grahams Taylors sem sagði nýlega af sér sem landsliðs- þjálfari Englendinga. Nú er svo komið að Kevin Keegan, fram- kvæmdastjóri Newcstle, þykir líklegasti arftakinn og telja veð- bankar að líkumar á að hann hljóti starfið vera fimm á móti tveimur. Forráðamenn Newcastle em þó ekkert á þeim buxun- um að láta Keegan fara. „Það er tímaeyðsla að reyna að ná í Ke- egan. Við sleppum Keegan ekki og hann Iangar ekki til að fara frá okkur," sagði John Hall, stjómarformaður hjá Newcastle. Keegan undinitaði þriggja ára samning við Newcastíe nú í októ- ber og er því samningsbundinn til 1996. MQLAR ... Mo Johnston, framherjinn sem nýlega gekk úr rö&um Everton til liðs við skoska liðið Hearts, meiddist illa ó miðvikudaginn í leik Hearts og Kilmamock og er óttast að hann hafi kinnbeinsbrotn- að sem þýðir að hann ieikur ekki knattspyrnu meira ó þessu tímo- bili. Þá fótbrotnaði Graeme Hogg, varnarmaður Hearts, í sama leik og verður frá í álta vikur. ... Oidham heldur áfram að bæta á sig mönnum til að styrkja liðið í botnbaráttu ensku úrvals- deildarinnar. Í gær var Tore Ped- ersen, norski landsliðsmiðvörður- inn, keyptur frá norska liðinu Brann og er kaupverðið 500 þús- und steriingspund. Pedersen er 24 ára. ... Maixo van Basten, er spilar með AC-Milan, leikur ekki með Hollendingum í úrslitakeppni HM í knattspyrnu á næsta ári ef marka má fréttir hollenskra blaða. Þau segja að Antonio Viladot, læknir Barcelona, hafi tilkynnt Basten það að hann þyrfti að fara í þriðja uppskurðinn á hnénu og yrði þvi frá næstu sex mánuði. Van Basten sem er 29 ára hefur ekki leikið knattspyrnu siðan í des- ember á síðasta ári vegna þess- ara hnémeiðsla. ... Valur sigraði Akurnesinga naumlega í Visadeildinni eins og við greindum frá blaðinu i gær. I stigaupptalningunni gleymdust stig Ragnars Þórs Jónssonar hjá Val sem gerði 29 stig og Dwayne Price hjá ÍA er gerði 22 stig. J Torben Frank í svindlmáli Danski landsliðsmaðurinn í knattspymu Torben Frank situr nú undir ásökunum í Frakklandi um að hafa verið mun meira meiddur í hné þegar hann var seldur frá danska liðinu Lyngby til Lyon í Frakkalandi en gefið var upp. Lögfræðingur Lyon seg- ir að forráðamönnum liðsins finnist að þeir hafi verið sviknir og þær upplýsingar sem fylgdu um heilsufar Franks hafi verið falsaðar. Dómarinn í þessu máli hefur ákveðið að senda Frank í læknisskoðun til að skera endan- lega úr um meiðsli hans. Daninn hefur enn ekkert leikið með Ly- on síðan hann kom til liðsins í júh' í fyrra. Cantona áfram meá landsliáinu Eric Cantona ætlar að leika áfram með landsliði Frakka. Eric Cantona, framheiji enska meistaraliðsins Manchester United og Frakklands, gaf frá sér þá yfirlýsingu í gær að hann ætlaði sér að leika áfram með franska landsliðinu fram yfir heimsmeistaramótið 1988 sem fer fram einmitt í Frakk- landi. Eins og kunnugt er þá töpuðu Frakkar síðustu tveim- ur heimaleikjum sínum í und- ankeppni HM í Bandaríkjun- um, fyrir Búlgaríu og ísrael, sem kostaði þá sæti í úrslita- keppninni. Cantona fetar því ekki í fótspor Jean-Pierres Pap- in og Fracks Sauzee sem ákváðu að leika ekki meira með Iandsliðinu eftir tapleik- inn gegn Búlgaríu í nóvember. Daum hættur hjá Stuttgart Christoph Daum sagði upp starfi sínu hjá VfB Stuttgart sem þjálfari liðsins í gær en eins og kunnugt er leikur Eyjólfur Sverrisson með Stuttgart. Eyjólfur var reyndar bú- inn að spá þessu í samtali við Tím- ann í október. Daum komst á forsíð- ur íþróttablaða á síðasta keppnis- tímabili þegar hann notaði of marga útlendinga í leik gegn Leeds í Evr- ópukeppni meistaraliða. Þurfti að spila aukaleik vegna þessa sem end- aði með sigri Leeds, 2-1, og datt Stuttgart þar með út. Eftir tapið hef- ur Stuttgart gengið illa í þýsku úr- valsdeildinni og missti m.a. af Evr- ópusæti f vor. Nú er staðan sú að Stuttgart nálgast fallsvæðið óðfluga í þýsku úrvalsdeildinni og er orðið langt síðan liðið hefur unnið sigur og reyndar hafa aðeins áunnist tvö stig úr síðustu fimm leikjum. Daum sagði á blaðamannafundi að hann væri að hlýða kalli áhangenda Stuttgart sem vildu hann burtu vegna slaks árangurs liðsins enda var Stuttgart spáð góðu gengi í vet- ur. Einnig nefndi Daum það sem ástæðu uppsagnar sinnar að fjöl- miðlar hefðu gagnrýnt hann mjög fyrir árangur Stuttgart og breytt honum úr hetju í skúrk en það eru aðeins 18 mánuðir síðan Stuttgart varð Þýskalandsmeistari. Handknatrieikur 2. deild karla UBK-Grótta ..........kl. 20 Fjölnir-ÍH ..........kl. 20 V___________________________/ URSUT Handknatriéikur Evrópukeppni landsliða Króatía-fsland.26-18 (14-11) Staðan Hvíta-Rússl. ..5 4 1 0 163-110 9 Króatía ....6 4 1 1 157-127 9 ísland .....5 3 1 1 123-106 7 Finnland ...4 0 1 3 100-118 1 Búlgaría ...6 0 0 6 104-187 0 1. deild kvenna Fram-Valur ..........19-18 Grótta-Stjaman.......8-16 Haukar-ÍBV ....22-28 (10-14) Vfkmgur-Ármann .23-16 (10-9) Staðan 10 9 0 1 221-162 18 10 8 0 2 220-171 16 10 8 02 203-175 16 107 0 3 249-220 14 10 5 2 3 198-177 12 ..94 1 4 147-165 9 104 0 6 199-224 8 102 26 208-207 6 102 1 7 184-217 5 102 0 8 196-226 4 .90 0 9 162-243 0 2. deild karla Fram-Fylkir..........29-25 Körfuknatrieikur Visadeildin SnæfelI-ÍBK ...71-79 (27-43) Stjaman .... Víkingur.... Fram ..... ÍBV....... Grótta.... KR ........ Haukar ... Valur .... FH ....... Ármann .... Fylkir..... Þetta var spennandi leikur. ÍBK hafði yfirburði í fyrri hálfleik en fljótlega í þeim seinni náðu heimamenn að minnka muninn í 5 stig en komust ekki nær. Kristinn Friðriksson í ÍBK var vikið útaf fyrir að mótmæla dómgæslu. Stig Snæfells: Bárður Eyþórsson 30, Chip Entwistle 19, Sverrir Sverrisson 8, Kristinn Einarsson 6, Hreiðar Hreiðarsson 6. Stig ÍBK: Kristinn Friðriksson 20, Jón Kr. Gíslason 13, Albert Óskarsson 12, Sigurður Ingi- mundarson 11, Guðjón Skúla- son 10, Jonathan Bow 10, Böðvar Kristjánsson 2, Ólafur Gottskálksson 1. Staðan A-riðlll ÍBK........12 7 5 1171-1031 14 Snæfell ...12 5 7 977-1029 10 SkaUagr. ...11 4 7 884-916 8 Valur .....11 2 9 940-1073 4 ÍA.........11 2 9 887-1036 4 B-riðill Njarðvík... 11 10 1 1033-880 20 Haukar.... 11 8 3 945-837 16 Grindavík .11 8 3 969-929 16 KR.........11 6 5 1018-984 12 Tindastóll .11 4 7 815-914 8 NBA körfubolrinn Philadelphia-Seattle.....80-92 Miami-Portland ........109-123 Atlanta-Boston ........122-114 Cleveland-Detroit .......92-74 Chicago-Phoenix .......132-113 Houston-MUwaukee.......102-91 Utah Jazz-Denver........103-92 Golden State-Dallas ....103-91 Knattspyma Enski deildarbikarinn 4. umferð Liverpool-Wimbledon ....1-1 Forest-Man.City.........0-0 QPR-Sheff.Wed...........1-2 Tottenham-Blackbum .....1-0 Skotland Raith-Dundee ...........2-1 Rangers-Aberdeen .......2-0 Staðan Rangers....20 9 7 4 30-21 25 MotherweU 19 10 5 4 24-16 25 Aberdeen ...19 7 9 3 24-14 23 Celtic ....20 7 9 4 25-16 23 Hibemian ...20 7 7 6 24-23 21 Kilmamock 20 6 9 5 19-18 21 Dundee Utd 19 4 11 4 19-22 19 Hearts ....19 5 8 6 13-15 18 Partick ...20 4 9 7 23-26 16 St.Johns...20 4 8 8 17-25 16 Raith......19 3 9 7 22-35 15 Dundee.... 19 4 3 12 17-26 11 Evrópukeppni meistarliöa B riðill AC MUan-Porto .........3-0 ítalska bikarkeppnin þribja umferb, fym leikir Ancona-Avellino ... Sampdoria-Roma 2-1 Parma-Bresda 1-1 Cesena-Foggia 1-0 Atalanta-Torino 0-3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.