Tíminn - 03.12.1993, Síða 5

Tíminn - 03.12.1993, Síða 5
Föstudagur 3. desember 1993 5 Ábyrgð ekki framseld með kjarasamningum TV2 biðst afsökunar á dagskrár- kynningu í umsögn Verslunarráðs íslands til Alþingis vegna skattafrumvarps ríkisstjómar er m.a. bent á að öll ábyrgð á skattabreytingum og skil- virkni skattkerfisins sé á ábyrgð ríkisstjómar og þingmanna og því verði slík ábyrgð ekki framseld með kjarasamningum. í umsögn ráðsins er mótmælt fyrirhugaðri lækkun virðisauka- skatts á matvælum og fyrirhug- uðum tollahækkunum á feiti og olíur. Fagnað er áformum um að falla frá skattlagningu fjármagns- tekna, en lýst yfir vonbrigðum með hækkun tryggingagjalds. Verslunarráðið telur að fyrir- huguð breyting á matarskattin- um muni veikja virðisauka- skattskerfið og auka möguleika á undanskotum. Samhliða því verði allt eftirlit mun Qóknara og muni krefjast meiri mannafla með tiiheyrandi útgjöldum fyrir ríkissjóð. Jafnframt telur ráðið rétt að kanna hvort ekki sé ástæða til að lækka almenna skattahlutfallið í Breyttar strætóleiðir Næstkomandi mánudag taka gildi breytingar á leiðakerfi Strætisvagna Reykjavíkur. Breytingar verða á leiðum 1, 2, 8, 12, 14, 15 og 17. Tvær mikilvægar breytingar verða á leið 1. Hún mun eftir- leiðis annast þjónustu við Loft- leiðahótelið og nágrenni í stað leiðar 17, sem leggst af. í stað þess að aka mánudaga til föstu- daga frá kl. 07- 19, verður ekið alla daga vikunnar á hálftíma fresti frá kl. 07-24 (nema sunnu- daga, frá kl. 10). Á leið 2, Grandi-Vogar, verður brottför frá Lækjartorgi flýtt um tvær mínútur til þess að skapa öruggari tengsl við Árbæjar- og Breiðholtsleiðir á Hlemmi. Brott- för á leið 8, Hægri hringleið, verður sömuleiðis flýtt um þrjár mínútur í öllum ferðum frá Hlemmi til þess að auðvelda tengingu við leið 11 á Grensás- stöð. Sjá mynd. Á leið 12 hefur orðið að breyta akstursleið vegna nýs umferðar- skipulags við Breiðholtsbraut. Vagnamir aka í annnarri leiðinni Miðskóga/Seljabraut, en í hinni um Breiðholtsbraut. Tímaáætlun leiðarinnar er óbreytt frá því sem áður var. Leið 15 færist til fyrra horfs, þ.e. ekur rakleitt um Gagnveg og Völundarhús að Víkurvegi í Leið 1: Hlíðar-Eiðsgrandi framhaldi af Fjallkonuvegi og sömu leið til baka. Tengsl milli Hamra- og Foldahverfa aukast. Leið 15 hefur hingað til þjónað Rima- og Hamrahverfi ásamt Grafarvogi. Frá og með mánu- deginum mun ný leið, leið 14, þjóna nýju byggðinni í Rima- og Engjahverfi. í fyrstu þarf sú Ieið einnig að þjóna Gylfaflöt vestan- megin á svæðinu. Gert er ráð fyrir 30 mín. tíðni og þjónustu frá kl. 07-24 alla daga (nema sunnudaga frá kl. 10). Vagnamir aka rétt- og rangsælis á víxl um Fjallkonuveg. 23% og stefna að því á næstu einu til tveimur ámm að skatt- þrepið verði aðeins eitt og þá e.t.v. 20%. Bent er á að nú þegar valda niðurgreiðslur á kjöti, fiski og mjólkurvörum því að þessar brýnustu lífsnauðsynjar bera ígildi 14% virðisaúkaskatts. Ráð- ið tekur undir með fjármála- ráðuneyti og forystu BSRB þess efnis að heppilegra væri að fara aðrar leiðir en að lækka matar- skattinn og bendir m.a. á hækk- un persónuafsláttar eða greiðslu á tekjutengdum fjölskyldubót- um. Þá er hætt við að fyrirhugaðar tollahækkanir á feiti og olíur muni valda allt að 14% hækkun á innlendu smjörlfld. Verslunar- ráðið telur varasamt að ráðast í jafn umdeildar breytingar fyrir ekki meiri ávinning en sem nemur 20 milljón króna tekju- auka fyrir ríkissjóð. -GRH Danska sjónvarpsstöðin TV2 biðst afsökunar á ásökunum á hendur David McTaggart, fv. formanni Greenpeace Interna- tional, sem fram komu í fréttatil- kynningu stöðvarinnar vegna sýningar á myndinni „Maðurinn í regnboganum", sem Magnús Guðmundsson blaðamaður tók þátt í að gera. í tilkynningu stöðvarinnar var McTaggart m.a. sakaður um að múta ráðamönn- um rflqa í Alþjóðlega hvalveiði- ráðinu til að styðja málstað Grænfriðunga. Magnús Guðmundsson segir að sér komi þetta mál ekki við, þar sem þessi ummæli hafi ekki komið fram í myndinni. Þau hafl komið frá kynningardeild sjón- varpsstöðvarinnar. Grænfriðungar krefjast nú í framhaldi af þessu afsökunar- beiðni fyrir allar ásakanir sem danska sjónvarpsstöðin hefur sett fram gegn þeim. -PS 1STOKKHÓLMUR Per Gyllenhammar, stjómar- formaður Volvo, hefur sagt sig úr stjórn fyrirtækisins ásamt fjómm meðreiðarsveinum sínum. Þar með er samruninn við frönsku Renault-verksmiðjurnar endanlega úr sögunni. Gyllen- hammar telur einnig að samstarfi fyrirtækjanna ljúki úr þessu. Gyll- enhammar gagnrýndi harðlega framkvæmdastjóra Volvo, Sören Gyll, sem hefur að undanförnu beitt sér gegn' samrunanum, en að sögn Gyllenhammars var hann fenginn að fyrirtækinu til að ganga frá samningi við Renault. Gyll er sakaöur um hallarbyltingu í Volvol Hlutir í Volvo hafa að undanfömu hækkað í verði, þeg- ar fréttir hafa borist af því, að samruninn við Renault færi út um þúfur. Hlutabréfin hækkuðu verulega í gær. BRUSSEL - Háttsettur ^^breskur embættismaður ÆKtL segir að Atlantshafsbanda- lagið hyggist útiloka Úkraínu frá áætluðu samkomulagi um sam- starf við ríki, sem áður áttu aðild að Varsjárbandalaginu, nema stjómvöld undimti samning gegn útbreiðslu kjamavopna. Hann ját- r E RtR E U1 p wF 1 U T er| aði því að vestræn samvinna myndi neita Úkraínu um aðild að „friðarbandalaginu' nema þar yrði fallist á að eyða öllum kjamavopnum, sem það fékk í arf frá Sovéttímanum. 3LUNDÚNIR - Ekilslaus neðanjarðarlest í Lundún- um tók í gær af stað með 150 farþega innanborðs og ók um tveggja kílómetra langa leið á 70 kflómetra hraða áður en sjálfvirk- um hemlabúnaði tókst að stöðva hana. Atburðurinn átti sér stað á álagstíma. Ekillinn hafði bmgðið sér út á King's Cross stöðinni í miðborg Lundúna til að athuga bilaða hurð, þegar lestin bmnaði af stað af sjálfu sér. Talsmaður neðanjarðarlestasamgangna í Lundúnum sagði að öryggisbún- aðurinn hefði virkað og engin hætta hefði verið á ferðum. Mannleg mistök og tæknibilun hefðu valdið því, að lestin hefði tekið af stað. Margir farþegar telja atburðinn þó enn eina staðfest- ingu á því að neðanjarðarlestir Lundúnaborgar, sem hafa verið starfræktar frá árinu 1863, séu að hmni komnar. í síðustu viku varð að bjarga alls 20 þúsund farþeg- um úr lestum, sem höfðu stansað í rökum og skítugum göngunum eftir að rafmagnstruflun lamaði stóran hluta brautarkerfisins. Það tók fimm daga að finna bilunina og opna allar leiðir á nýjan leik. Talsmenn neðanjarðarlestasam- gangnanna kenna áratugalöngu fjársvelti um. 4TEPELENE - Hörmulegar lýsingar berast af aðbúnaði geðsjúkra á geðveikrahæli í Tepelene í Albaníu um 200 kíló- metrum frá höfuðborginni Tírana. Böm og fullorðnir dvelja þar nakin eða tötraleg, sum þakin eigin saur, og í síðustu viku fraus fjórtán ára gömul telpa í hel. „Ástandið er fyrir neðan mannlega virðingu,' segir yfirhjúkrunarkonan á hælinu, „en við getum ekkert gert.' Albanía er fátækasta land Evrópu. Þegar fjöm- tíu ára langri Stalíns-einangrun lauk fyrir þremur árum kom í ljós hræðilegur aðbúnaður geðsjúkra og fatlaðra í landinu. Á þessum tíma hefur ekkert breyst til batnað- ar á hælinu í Tepelene. 5TÚNIS - Frelsissamtök ar- aba, PLO, biðja Bandaríkja- menn um aðstoð við að hefla eins konar takmarkaða sjálfs- sljóm á Gazasvæðinu hinn 13. des- ember. Þau segja að samningavið- ræðunar við ísrael séu í ógöngum. Rabin, forsætisráðherra ísraels, segir hins vegar að dagsetningin 13. des- ember sé ekki heilög tala. Hann sagði að það væri enginn harmleik- ur þótt sjálfsstjórnin hæfist síðar, mestu skipti að komast að góðu samkomulagi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.