Tíminn - 03.12.1993, Side 9

Tíminn - 03.12.1993, Side 9
Föstudagur 3. desember 1993 Skafti Jósefsson garðyrkjubóndi, Hveragerði t MINNING Fæddur 1. mars 1920 Dáinn 28. návember 1993 Þá er hann Skafti vinur minn horfinn yfir móðuna miklu. Vissu- lega kom það ekki á óvart, eins og heilsa hams var orðin, en söknuð- urinn er jafn mikill. Og vissulega hefði verið erfitt að hugsa sér Skafta þurfa að lifa lengi við at- hafna- og þrekleysi, slíkur ákafa- og dugnaðarmaður sem hann var alla tíð meðan heilsan entist, og hvað hann naut þess að sjá árang- ur ræktunarmannsins á öllum sviðum. Skafti var sonur merkishjónanna Hólmfríðar HaUdórsdóttur og séra Jósefs Jónssonar prófasts á Set- bergi á Snæfellsnesi. Að loknu barnaskólanámi var hann í hér- aðsskólanum í Reykholti. Síðar lá leiðin á Garðyrkjuskólann að Reykjum, hann útskrifaðist þaðan og þar með var brautin vörðuð að lífsstarfinu. Fljótlega eftir að eg settist að hér í Hveragerði árið 1954, hófust Jón Þ. Neðra-Dal t MINNING Fæddur 18. janúar 1916 Dáinn 5. nóvember 1993 Mér barst sú frétt þann 5. nóv- ember sl. að hatnn Jón í Neðra- Dal væri dáinn, að hann hefði dáið þá um morguninn. Hann var búinn að eiga við veikindi að strfða í nokkur ár og fór ástandið versnandi, en hvor- ki mig né aðra óraði fyrir því að kallið væri komið. Ég var smábam þegar ég dvald- ist fyrst hjá Jóni og Heiðu frænku í Neðra-Dal. Það var ekki ósjaldan sem ég fékk að sofa í millinu hjá þeim og kallaði ég þau lengi vel „hinnapabba og hinnamömmu'', enda voru þau mér sem slík. Ég man að oft sofnaði ég undir sögulestri hinnapabba míns. Ég átti svo mikið heima í Neðra- Dal að ég hélt því statt og stöðugt fram að þar ætti ég átta bræður. Þegar ég lít til baka og fer að hugsa um fortíðina, þá sé ég hve góðan vin ég hef átt þar sem Jón var og þá ekki síður eftir að ég fullorðnaðist og kynntist honum sem jafningja. Jón var fastur fyrir og stóð eins og klettur með þeim sem honum vom kærir. Hann var glaðvær og gamansamur og vildi helst hafa létt í kringum sig. Það var örugglega þessi kátína sem létti honum lífið í hans miklu veikindum og gerði hon- um kleift að halda reisn sinni til hinstu stundar. Elsku Heiða mín, „hinnabræð- urnir mínir 8' og fjölskyldur ykkar. Ykkur sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur á þessari sorgarstundu. Pjóla lngimundardóttir Sumir dagar em minnisstæðari en aðrir. Það var vor í lofti, ekki bara árstíðin, vor í víðum skiln- ingi. Það var fermingardagur okkar tvíhurasystra, á hvíta- sunnu 1942. kynni mín af þeim hjónum, Margréti og Skafta, og hafa aukist og varðveist alla tíð síðan. Það má segja að samskipti okkar Skafta hafi verið mest á þrem sviðum. Mest að sjálfsögðu í sambandi við okkar starf, garðyrkjuna, á meðan eg var í henni. Skafti var frábær ræktunarmaður og má með sanni segja að hann hafi fæðst með græna fingur, og ætíð var gott til hans að leita, hvort heldur var um aðstoð eða góð ráð að ræða, og á eg honum margt að þakka í þeim efnum. Hann var á margan hátt fastheldinn í sínum rekstri, en gat líka farið út á lítt troðnar slóðir með góðum árangri í þeim efnum, og minnist eg þess ekki að hann færi út í neitt slíkt sem hann réð ekki við. Frá okkar samverustundum hér á árum áður við stangveiði á eg margar og góðar minningar, sem eg ætla ekki að tíunda hér, en get þó ekki stillt mig um að minnast eins atviks, sem lýsir að nokkru hversu næmur og naskur veiði- maður hann var. Við fórum saman þrír félagar til veiða í ársprænu Biðin eftir að messan í Miðdals- kirkju hæfist veitti nægan tíma til umhugsunar um þá nýstár- legu hluti sem í vændum voru. Það átti einnig að vera hjóna- vígsla. Næstelsta systir mín, Að- alheiður, myndi giftast í dag. Viltu setja þig inn í hugarheim fermingarbamsins, sem hugsaði margt og um fleira en fermingar- athöfnina sjálfa. Þá rifjaði ég upp er fundum okkar, mín og tilvonandi eigin- manns Heiðu systur, bar fyrst saman. Þá var hún í fangi hans á afviknum stað í bænum heima. Trúlegt er að þá hafi ég verið skömmustuleg og lagt á flótta. En inn í hugsanir mínar þennan dag blandaðist þetta rómantíska ívaf um riddarann á hvíta hest- inum, er sótti brúði sína. Öll athöfnin í Miðdalskirkju fór fram með hefðbundnum hætti. Að henni lokinni var stigið um borð á vörubílspall og ekið sem leið lá út Laugardalinn, niður um Grímsnes, þá upp um Bisk- upstungur að Neðra-Dal, bæ brúðgumans, Jóns Þ. Einarsson- ar. Þar var haldin brúðkaups- veisla af mikilli rausn í þröngum húsakynnum, sem ég minnist ekki að bagaði neitt. Já, þetta var upphaf hjúskapar Jóns í Neðra-Dal, en svo vil ég nefna hann, og systur minnar Aðalheiðar. Þetta var líka fyrsta ferð mín á þennan stað, sem er að mér finnst fegursta bæjar- stæðið í Biskupstungum. Mikið starf hófst nú hjá þeim ungu hjónum, því víða þurfti að taka til hendinni fyrir ungan mann hlaðinn hugsjónum, bú- fræðingsmenntaðan frá Hvann- eyri. Því starfi er best lýst með því að líta heim að Neðra-Dal nú að hálfri öld liðinni. Það er skemmst frá að segja að táningsárum mínum eyddi ég á þessum stað hjá systur minni og mági. En þá þótti það við hæfi að vinnan tæki við að fermingu lokinni. Neðri-Dalur var mitt annað heimili fyrstu hjúskaparár Jóns og Heiðu. Margt væri hægt að rifja upp austur í Skaftafellssýslu. Skafti var að venju fyrstur að hafa sig til og hefja veiðina og lagði af stað niður með ánni. Er hann kom til baka að stundu liðinni án þess að hafa orð- ið var, höfðum við fengið eina eða tvær bleikjur. Hann leit á aflann með hálfgerðri vanþóknun og sagði: „Nú, eg hélt eg ætti að veiða sjóbirting.* Það stóð ekki á bleikju- veiðinni hjá honum á eftir. Skafti var ákaflega siðavandur í öllu sem við kom veiðiskap. Skafti var mjög góður bridgespil- ari af áhugamanni að vera, og varð eg þeirrar ánægju aðnjótandi að vera hans spilafélagi öðru hver- ju. Og þrátt fyrir yfir þrjátíu ára samveru í Bridgefélagi Hveragerðis minnist eg þess vart að hafa heyrt frá honum ónot eða styggðaryrði þó félagi hans gerði skyssur. Sem dæmi um baráttu og spilalag hans get eg nefnt, að í erfiðum sóknar- spilum var ekki fyrst og fremst hugsað um að vinna spilið, heldur var barist svo um hvern slag, að hann átti það til að spyrja í lok spilsins: „Og hvernig fór svo þetta?" frá þeim tíma, en minnisstæðust hlýtur samt að vera glaðværðin og hamingjan er drengirnir þeirra komu í heiminn, það er sagan um sigrana stóru. Hægt væri að bregða upp mynd af heimilinu þegar risið er nýtt íbúðarhús, holsteinsbygging með valmaþaki, sem mjög var í tísku þá. Miðstöðvarhitun, koksvél. Oft á kvöldin las Jón upphátt einhverja spennandi ástarsögu fyrir heimilisfólkið, því útvarpið bauð ekki oft upp á mikið skemmtiefni. Strákamir misjafn- lega færir á leikvelli lífsins í þá daga, því þegar einn þurfti að skríða gat annar sprett úr spori og sá elsti jafnvel svarað fyrir sig. Já, þetta var í gamla daga, það var gaman að lifa og sjá fram- vindu lífsins. Árin hafa liðið. Drengirnir í Neðra-Dal hlusta ekki lengur á sögur frænkunnar, sögur um skessuna í fjallinu sem reyndi stundum að góma óþæga stráka. Eða um stelpuna í pappakjóln- um sem grét perlutárum. Alvara lífsins kveður dyra hjá okkur öllum, hjá mér og þér. Þótt vistum mínum lyki hjá þeim Neðra-Dalshjónum, var ég þar mjög handgengin. Þau björguðu mér og mínum á erfiðum stund- um og voru boðin og búin að hlaupa til þegar með þurfti, það er of langt mál að rekja. Fyrir okkur, sem eftir stöndum, voru umskiptin of snögg. En þetta er framvinda lífsins og allt æskufólkið sorgbitna, sem fylgdi afa sínum seinasta spölinn, það á minninguna um hann, traustan og ráðhollan. En það er eins og Davíð segir í einu kvæða sinna: „Sorgin gleymir engum'. En sorgin þroskar okkur líka, unga æskufólk. Elsku Heiða mín, ég veit að þú hefur misst, en þú ert rík, rík af góðum minningum um góðan mann. Ég votta mági mínum virðingu mína og við hjónin biðjum Guð að blessa ykkur öll. Lilja Guðmundsdóttir Einarsson 9 Eg hef minnst hér aðeins fáeinna atvika úr samskiptum okkar Skafta, en eg vona að þau gefi nokkra mynd af því, hvemig þessi öndvegisdrengur kom mér fyrir sjónir og reyndist mér. En í þessu sambandi má ekki gleyma eftirlif- andi konu hans, Margréti Jóns- dóttur, sem ætíð stóð við hlið manns síns, og samhent unnu þau að því, að gera garðyrkjustöðina og heimilið að Heiðmörk 39 arð- vænt og ávallt hlýlegt heim að sækja. Að lokum vil eg ítreka þakkir mínar til þín og fjölskyldu þinnar fyrir öll okkar kynni og votta konu þinni og öðrum aðstandendum samúð mína. Þórður Snæbjömsson Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar. Reykrör - Loftræstingar Smíða og set upp reykrör, samþykkt af brunamálastofnun frá 1983 Smíöa og sett upp loftræstingar * Er viöurkenndur af bygginga- fulltrúa Reykjavlkur frá 1983 'flflfBLIKKSMIBJA skúlagötusí IÍ6ENNA ÖNNUMST ALLAR ALMENNAR VIÐGERÐIR Vetrarskoðun kr. 4.950,- m.vsk. fyrír utan efni. SÍÐUMÚLA 3-£ j • SÍMI 681320 Félagsvist á Hvolsvelli Félagsvist veröur I Hvolnum sunnudagskvöldiö 12. desember Id. 21 Góö kvöld- verölaun. Framsóknarfélag Rangælnga Aðalfundur Aöalfundur fulltrúaráös Framsóknarfélaganna I Reykjavlk verður haldinn mánudaginn 6. desember 1993 I fundarsal A Hótel Sögu, og hefst kl. 17.00. Dagskrá: 10. 17.00 Setning. Valdimar K. Jónsson fbrmaöur. Kosning starfsmanna fundaríns. Skýrsla stjómar a) formanns, b) gjaldkera. Kosningar a) Formaöur. b) Aöalmenn I stjóm (5) og varamenn (3). c) Tveir endurskoöendur og einn til vara. d) Aöal- og varamenn I miöstjóm (B). e) Aöal- og varamenn I stjóm Husbyggingasjóösins (3). Kl. 18.30 Borgarmál, frummælendur Sigrún Magnúsdóttir og Alfreö Þorsteinsson. Kl. 19.00 Matarhlé. Kl. 20.00 Almennar umræöur um borgarmál. Kl. 21.00 Önnur mál. Stjóm fulltniaráðslns Framsóknarvist veröur spiluö sunnudaginn 5. desember n.k. I Hótel Lind kl. 14.00. Veitt veröa þrenn verölaun karta og kvenna. Jón Kristjánsson alþingismaður (lytur stutt ávarp I kaffihléi. Aögangur kr. 500,- (kaffiveitangar innifaldar). Framsóknarfélag Reykjavlkur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.