Tíminn - 24.12.1993, Side 3
Föstudagur 24. desember 1993
túulnn
3
Tvöhundruð
króna móðurást
á jólum
✓
Idag er háu'ð birtu og bama. Jólin
eru helgistund um heimsbyggð
alla og fólkið velur friðinn í
faðmi fjölskyldunnar. Gömlu gildin
eru efst á baugi um jólin og einkum
þegar fjölskyldan á undir högg að
sækja í þjóðfélagjnu. Harðnað hefur
í heimi og Kka á dalnum hér heima
og bömin fara ekki varhluta af hör-
kunni. Mannúð og mildi eiga í vök
að verjast og á jólum leitar hugurinn
til bamanna. Þau eru gestgjafar
landsins í kvöld.
Sókn í lífsgæði hefur bitnað á
samvistum bama og foreldra og alls-
nægtir síðustu áratuga hafa ekki
náð að milda velferðarríkið. Gjald-
þrot og atvinnuleysi setja mark sitt á
margt æskufólk og við þúsundum
blasir annars flokks líf í skugga fá-
tæktar. Sorglegar sögur úr miðborg
Reykjavíkur hcifa vakið fólk af vær-
um blundi og margir foreldrar vilja
nú meta stöðu fjölskyldunnar á nýj-
an leik. Ekkert afl kemur þó í stað
móðurástar. Ekki einu sinni Dagvist
bama í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn gaf bömum
Reykjavíkur fögur fyrirheit í síðustu
byggðakosningum og lofaði að
greiða foreldmm peninga fyrir að
gæta þeirra heima. Loforðinu var
slengt fram á elleftu stundu og nán-
ar var ekki farið út í þá sálma fyrir
kjördag, en kjóséndum heitið efnd-
um von bráðar. Málið náði athygli
borgarbúa og kveikti von í bijóstum
foreldra. Nýtt kjörfylgi sópaðist að
D-listanum og skóp mesta kosn-
ingasigur frá tímum dr. Gunnars
heitins Thoroddsen.
Að vísu var hér ekki um nýjan
sannleika að ræða frekar en hjólið,
og sjálfstæðismenn supu þama úr
hófspori Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. Jónas er einn af örfáum al-
hliða stjómmálamönnum landsins
Ásgeir Hannes
og talaði fyrir greiðslum til foreldra á
sínum tíma. Enda valdi Jónas móð-
urástina umfram Dagvist bama í
Reykjavík. Framsóknarflokkurinn
hreyfði svo baráttumáli gamla leið-
togans í byggðakosningum árið
1982 og að sjálfsögðu fyrir daufum
eyrum íhaldsins í borgarstjóm
Reykjavíkur.
Sjálfstæðismenn gerðu svo þenn-
an gamla draum Framsóknar að sín-
um málflutningi og vöktu vonir
barna og foreldra í Reykjavík. Síðan
hefur íhaldið hikstað á loforðinu og
talað út og suður þangað til í síðustu
viku að gjaldskrá meirihlutans var
lögð fram á aðventu jóla. Nú er ljóst
að vonir borgarbúa vom tálvonir.
íhaldið hefði betur setið heima og
grátið en meta móðurástina á tvö
hundmð krónur á dag.
Verkin lofa meistarann og fallin
kosningaloforð sjálfstæðismanna í
höfuðborginni lofa meistara sína
um ókomin ár. Jólin halda Scunt
, sínu striki og verða áfram hátíðartil-
efni fólks um allan heim. Fjölskyld-
an mun enn safnast saman á jólum
og fagna afmæli frelsarans með niðj-
um áf Adamsætt. Bömin verða
áfram gestgjafar heimsins og þeirra
er ríki föðurins. Gömul gildi falla
ekki í verði, hvað sem líður gjald-
skrám borgarstjómar Reykjavíkur.
Pistilhöfundur óskar lesendum
gleðilegra jóla á hátíð birtu og bama.
LESENDUR SKRIFA
Hugleiðing um Hugleiðingar Erlu
Maðurinn er alltaf að leita.
Frá því að bamið fálmar í
fyrsta sinn með vörunum
eftir nærandi bijóstinu og þar til
gamlinginn tekur síðustu andköfin
er líf mannsins stöðug leit, ein enda-
laus kynnisför um jörðina til að leita
svölunar á þrám sínum. Við leitum
líkamlegrar slökunar af ýmsu tæi,
við reynum á margvíslegan hátt að
skapa okkur öryggiskennd og slökk-
va óttann sem fylgir okkur eins og
skugginn á ferð okkar; við sækjumst
ákaft eftir ást og virðingu samferða-
mannanna og flest okkar hafa auk
þess meðfædda þrá til að skapa eitt-
hvað á eigin spýtur, yrkja lífinu ein-
hvem óð, eins og til að þakka skap-
aranum fyrir þann lífsanda sem
hann blés í vit okkar í upphafi vega.
Sambýli mannanna á jörðinni er
undirlagt af þessari leit. Sölukerfi
okkar, peningakerfið, samgöngum-
ar, heilbrigðiskerfið, framleiðslan,
uppfinningamar, bækumar, plöt-
umar, auglýsingamar, iðnaðurinn,
lögreglan, herinn og stríðið, allt kem-
ur þetta af því að maðurinn er í stöð-
ugri leit til að slökkva eitthvað sem
ólgar innra með honum.
Hér á Vesturlöndum höfum við
kosið að gera jólin að mestu söluhá-
tíð ársins. Þá auglýsa þeir, sem em
að selja leitandi fólki eitthvað til að
svala þrám sínum. Þá kemur mikill
fjörkippur í verslunina, framleiðend-
umir losna við lagerana, neytend-
umir eignast fullt af hlutum sem þeir
áttu ekki áður og kaupmennimir
hagnast á því að hafa milligöngu um
viðskiptin.
Og allt er þetta sjálfsagt gott og
blessað úr því að við viljum hafa
þetta svona. Gallinn er bara sá að
stundum hef ég á tilfmningunni að
það séu ekki alltaf bestu hlutimir,
sem mest em auglýstir, og neytand-
inn fái því örlítið skekkta mynd af
því hvað sé til og þó einkum og sér í
lagi hvað sé honum fyrir bestu.
Ég hef til dæmis fundið einn hlut,
sem ég veit ekki til að sé nokkurs
staðar auglýstur, en hefur engu að
síður orðið mér kærari en flest ann-
að af því, sem ég hef getað keypt.
Það em spólumar hennar Erlu Stef-
ánsdóttur.
Þær em fjórar og heita Hugleið-
ingar Erlu 1-4. Undirtitlar em Slök-
un jarðlíkama, Temjum tilfinn-
ingar, Vekjum hugann og Styrkj-
um hugann. Á spólunum má heyra
til þessarar skyggnu konu þar sem
hún leiðbeinir við að slaka á og kyrra
hugann, hlý og gefandi röddin leiðir
hlustandann burt frá áreitum þessar-
ar ókyrm efnisveraldar.
Tvær þær fyrstu em tengdar á
þann hátt að þær byggja á sama efn-
inu. Erla leiðir þann, sem hlustar,
með sér í ferð burt frá líkamanum
yfir f nýjan heim þar sem hugleiðsl-
an felst svo í því að byggja musteri til
að hugleiða í. Musterið er byggt í
fjórum áföngum, einn á hvorri hlið
hvorrar spólu. Eftir að hlýða á báðar
spólumar er húsið fullbúið.
Á hinum tveimur em leiðbeining-
ar um það hvemig eigi að slaka á
efnislíkamanum og kyrra hugann og
tílfinningalffið.
Oft hefur því verið haldið fram,
bæði í gamni og alvöru, að maður-
inn sé það sem hann hugsar og segir.
Athuganir vísindamanna benda til
að margt sé til í þessu. Sumir sál-
fræðingar (t.d. Albert Ellis) hafa
haldið því fram að afstaða manna til
h'fsins fari að miklu leyti eftir því
hvað þeir segi sjálfum sér, eða hvers
konar hugsanir þeir tengi daglegum
viðburðum. Nú er víða (t.d. í félags-
sálfræðinni) verið að kanna áhrif
hugsana á líkamlegt og andlegt
heilsufar og bendir margt til að
tengslin þarna á milli séu miklu
meiri en áður hafði verið haldið.
Samkvæmt þessu skiptir máli hvað
við hugsum og segjum. Ferð með
Erlu Stefánsdóttur um heim sem
maður skapar sjálfur, sjálfum sér til
heilla, er því ekki einhver einskis-
verð ímyndun, heldur fullkominn
raunveruleiki sem orkar á líf okkar,
heilsufar og hamingju.
Tónlistin, sem leikin er undir og á
milli talþáttanna, er eftir Hilmar Öm
Hilmarsson. Hún er yndisleg, minn-
ir á sjávamið eða kliðandi læk upp
til flalla.
En ég kann ekki að ritdæma tón-
list. Ég ætla heldur ekki að ritdæma
þetta verk Erlu að öðm leyti. Til þess
skortir mig faglega kunnáttu. Með
þessum greinarstúf vil ég aðeins
þakka þessari góðu konu fyrir
hennar verk. Og mér fyndist ósann-
gjamt, þegar ég hef fundið slíkar
perlur, að segja ekki frá því öðrum,
sem kynnu að vera að leita svipaðra
hluta og ég.
Ragrnr Itigi Aðalsíáttssoti
MEÐ JÓLAKVEÐJU
FRÁ RÍKISÚTVARPINU
RÁS 1
Jóladagur kl. 14:00
HÁTÍÐ BER AÐ HÖNDUM BJARTA
Dagskrá um ævi Þorláks biskups helga á
800 ára ártíð hans.
Jóladagur kl. 16:35
VIÐ JÓLATRÉÐ: JÓLABALL
ÚTVARPSINS
Jólatrésskemmtun í Dalvíkurskóla.
Jóladagur kl. 20:00
ÓRATÓRÍAN „MESSÍAS"
eftir G.F. Hándel
Hljóðritun Útvarpsins frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands árið 1963.
Stjómandi er dr. Róbert Abraham Ottósson.
Nýársdagur kl. 13:30
NÝÁRSGLEÐI ÚTVARPSINS
Fjölbreytt dagskrá með Söngskólanum í
Reykjavík.
Umsjón: Jónas Jónasson.
Sunnudagur 2. jan. kl. 13:00
JÓLALEIKRIT ÚTVARPSINS: 1
„UTAN VIÐ DYRNAR" — sígild perla
þýskra leikbókmennta eftir Wolfgang Borc-
hert. Bæklaður hermaður, sem hefur dvalið í
rússneskum fangabúðum, snýr heim þremur
árum eftir stríðslok og kemst að því að eng-
inn hefur þörf fýrir hann lengur.
RÁS2
Jóladagur kl. 13:00
FYRSTU ÁRIN — HAUKUR MORTHENS
Trausti Jónsson veðurfræðingur velur til
flutnings lög úr safni Útvarpsins.
Þetta eru upptökur með Hauki Morthens frá
árunum 1947-1958, sem sumar hverjar hafa
aldrei heyrst í útvarpi áður.
Jóladagur kl. 15:00
BUBBI MORTHENS — STIKLAÐ Á
STEINUM ÚR SÖGU ALÞÝÐULISTA-
MANNSINS ÁSBJARNAR KRISTINSSON-
AR MORTHENS.
„Bubbi Morthens og augun“. Lísa Páls heim-
sækir Bubba og ræðir m.a. um augun í text-
um hans.
Annar í jólum kl. 13:00
DRÖG AÐ UPPRISU
Megas og Nýdönsk á tónleikum í Hamra-
hlíðarskólanum í nóvember sl. Á undan tón-
RÍK/SÚTVARP/Ð
ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA