Tíminn - 07.01.1994, Síða 9
Föstudagur 7. janúar 1994
9
Norburlöndin og
Evrópubandalagib
Svokallaöur heimskautaland-
búnaður er eitt helsta vandamál-
iö í viöræöum fulltrúa Noregs,
Svíþjóöar og Finnlands viö emb-
ættismenn Evrópubandalagsins
um fyrirhugaða aðild aö banda-
laginu. Stjórnvöld landanna
þriggja eru ákveöin í aö verja
bændur 1 norðurhéruöunum fyr-
ir offramleiöslu bandalagsríkj-
anna á landbúnaðarafuröum.
Noröurlöndin þrjú vilja geta
haldið áfram aö niðurgreiða
háan feröakostnaö á þessu svæði
og styöja við bakiö á íbúum
norðurhéraðanna meö beinum
og óbeinum hætti. Eikka Kon-
sonenn ein, finnsku samninga-
mannanna í Brussel, segir aö
stefna stjórnar sinnar sé aö
tryggja að fólk geti búiö þar sem
þaö er fætt.
Ef Norðurlöndin þrjú verða að-
ilar aö Evrópubandalaginu
stækkar bandalagiö um helming
aö flatarmáli. íbúum þess fjölgar
aftur á móti ekki nema um
fimm af hundraöi. í bandalags-
löndunum 12 em nú 146 íbúar á
ferkílómetra. í Noregi eru þeir
14 og í Lapplandi em ekki nema
tveir íbúar á svo stóm svæöi.
Með aðild Norðurlandanna að
EB skýtur nýtt vandamál upp
kollinum. Ef af verður kemur
bandalagið til meö að eiga sam-
eiginleg landamæri meö Rúss-
landi í fyrsta skiptiö frá því aö
það var stofnaö. Vegalengdin er
heldur ekkert smáræöi, því að
Finnland og Rússland liggja
saman á tæplega 13 hundruö
kílómetra löngum kafla og
landamæri Noregs og Rússlands
em tæpir 200 kílómetrar. Svæðið
er aö auki mjög strjálbýlt.
Hingaö til hefur ekki veriö
mikiö um aö Rússar séu gripnir
viö aö reyna að komast með ó-
Iöglegum hætti yfir landamærin
til Finnlands. En ástandiö í fyrr-
verandi lýöveldum Sovétríkj-
anna gæti átt eftir að valda
breytingu þar á. Ef slys yröi í
kjarnorkuveri í norövesturhluta
Rússlands gæti það leitt til þess
aö fólk reyndi að flýja vestur á
bóginn í stórum stíl. Og þá
mundi þaö aö sjálfsögöu leggja
leið sína þangaö sem
landamæraeftirlit er lítið við hin
óralöng landamæri Finnlands og
Rússlands.
Norðurlöndin þrjú sem vilja
gerast aöilar aö EB telja öryggis-
málakafla Maastrichtsamkomu-
lagsins einn stærsta ávinning
hugsanlegrar aöildar. Samkvæmt
honum eiga utanríkis- og örygg-
ismál að vera á einni könnu.
Gro Harlem Brundtland segir að
jafnvel höröustu EB-andstæöing-
ar hafi séö aö þaö sé til mikilla
bóta fyrir Noröurlönd aö taka
þátt í mótun sameiginlegrar
stefnu EB-landanna í öryggis-
málum.
Carl Bildt forsætisráöherra Svía
neitar því aö hlutleysi Svía og
Finna geti ógnaö stjómmálalegri
samstööu bandalagsríkjanna.
Hvorug þjóöin vill samt breyta
út af þeirri stefnu aö standa utan
hemaðarbandalaga. Aöild þeirra
aö Atlantshafsbandalaginu gæti
valdið því að Rússum fyndist
þeir innikróaöir og ýtt undir
stórveldiskröfur rússneskra þjóö-
Carl Bildt forsœtisrábherra svía og Cro Harlem Brundtland ab eiga vib þann gula.
UTLÖND
Abild Norburland-
anna oð Evrópu-
bandalaginu gœti
valdib spennu viö
noröurlandamœri
Rússlands
Sarajevo
Barist vib grafreit gybinga
Formælandi friöargæsluliös Sam-
einuðu þjóðanna í Bosníu sagöi í
gær aö margir íbúa landsins væru
nær dauöa en lífi af hungri. Hann
sakaöi stríðandi fylkingar um aö
koma í veg fyrir matarsendingar
til almennings. Til haröra átaka
kom í gær milli Bosníu-Serba og
Múslima við grafreit gyöinga í
Sarajevó sem er mjög mikilvægur
frá hernaöarlegu sjónarmiði. Að
minnsta kosti 17 manns særðust í
átökunum. Sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóöunum,
sem í gær var staddur í Vukovar í
Króatíu, krafðist þess aö þeir sem
vinna aö rannsókn meintra stríös-
glæpa í styrjöldinni á Balkanskaga
fengju aö kanna fjöldagröf þar
sem talið er aö jarðneskar leifar
200 Króata sé aö finna.
Moskva
Leyft ab greftra
Gamsakúrdía
Eduard Shevardnadze leiötogi
Georgíu sagöi í gær aö hann
myndi leyfa aö lík Gamsa-
kúrdía fyrsta lýöræðislega
kjörna forseta landsins yröi
grafiö í Tbilisi ef fjölskylda hins
látna óskaði þess. Ekkja
Gamsakúrdía tilkynnti um frá-
fall eiginmanns síns í gær, en
stuðningsmenn Shevardnadze
komu forsetanum frá völdum á
sínum tíma. Shevardnadze seg-
ir aö hann óskaði þess að fjand-
maður sinn væri enn á lífi, því
að hann hefði fyrir löngu verið
liðið lík í pólitískum skilningi
og því hefði engin hætta stafaö
af honum.
emissinna.
Bildt heldur því fram aö EB
hafi ekki síður hernaðarlegan
hag af aöild Noröurlandanna aö
bandalaginu en öfugt. Hann
minnir á að mestalla öldina hafi
Eystrasaltslöndin veriö spennu-
og átakasvæði. Saman gætu
Norðurlöndin stuölaö aö því aö
jafnvægi komist á austan megin
Eystrasalts og framlag þeirra
gæti jafnvel skipt sköpum fyrir
lýðræöisþróunina í Rússlandi.
Jacques Delors forseti fram-
kvæindastjórnar EB segist eiga
von á mikilsveröu framlagi
Norðurlandanna til sameiginlegs
öryggiskerfis bandalagsland-
anna. Delors bendir á að reynsla
landanna þriggja í þróunarað-
stoð viö lönd þriöja heimsins og
virk þátttaka þeirra í friöargæslu
á átakasvæðum geti komiö aö
góöum notum í uppbyggingu
slíks kerfis.
Enn er óvíst hvort takist aö
ljúka samningum um EB-aðild
Noröurlandanna þriggja fyrir 1.
mars eins og til stendur. Ekki er
þó talið aö öryggismál veröi þaö
sker sem samningaviöræðurnar
gætu strandaö á. Miklu frekar er
búist við að þaö veröi munntó-
bak eöa ríkiseinkasala á áfengi.
Norömenn hafa nokkra sérstööu
í þessum efnum, því að taliö er
að tilhögun fiskveiða muni ráöa
úrslitum um þaö hvort Norö-
menn geta sætt sig við aöild aö
EB. Þaö er því búist viö því aö ef
niðurstaða samingaviðræðn-
anna veröi Norömönnum and-
stæö muni Gro Harlem
Brundtland forsætisráöherra
leggja máliö í salt og ekki end-
urvekja þaö fyrr en Svíar og
Finnar eru orönir fullgildir aöilar
aö bandalaginu.
Der Spiegel/ÁÞÁ
REUTER
Allenby Bridge, Vesturbakka
Jórdanár
PLO og ísraelsmenn
taka upp vibræbur
Frelsissamtök Palestínu, PLO,
og ísrael hafa fallist á aö taka
upp viöræöur aö nýju um
tillhögun mála á herteknu
svæöunum eftir að herir ísraels
hafa horfið frá þeim. í Túnis til-
kynntu umbótasinnar innan
PLO aö þeim hefði mistekist að
draga úr völdum Yasser Arafats.
Andstæðingar friðarsamkomu-
lags PLO og ísraels samþykktu í
Damaskus ályktun þess efnis aö
slíta tengslin við forystu frelsis-
samtakanna sem staðið hafa í
eitt og hálft ár.
Sydney
Mestu skógareldar
í 50 ár
Mörg þúsund Ástralir hafa veriö
fluttir frá heimilum sínum
vegna mikilla skógarelda í aust-
urhluta landsins. Gífurlegir
þurrkar eru í Ástralíu og eru
þetta verstu skógareldar í 50 ár.
Óttast er aö eldarnir eigi enn
eftir að breiðast út og jafnvel að
þeir ógni byggö stærri borga.
Víöa hefur skólum og sumar-
dvalarstöðum veriö lokaö
vegna eldanna.
San Cristobal De Las Casas,
Mexíkó
Mannréttinda-
brot mexíkanska
hersins
Mexíkanski herinn viröist hafa
brotið á bak aftur uppreisn
smábænda sem hófst fyrir réttri -
viku. Sigurinn virðist þó dýru
verði keyptur, því aö alvarlegar
ásakanir hafa komiö fram um
mannréttindabrot mexíkönsku
hermannanna.
Na'ameh, Líbanon
Loftárásir á
nýju ári
ísraelski flugherinn geröi í gær
árásir á meintar stöövar palest-
ínskra skæruliða í grennd við
Beirút. Þetta voru fyrstu loft-
árásir ísraelshers á skotmörk í
Líbanon á nýja árinu.
Jóhannesarborg
Morb í Subur-
Afríku
Lögreglan í Suöur-Afríku hand-
tók í gær tvo blökkumenn
nærri heimalandinu Transkei.
Þeir eru grunaðir um að tengj-
ast morði á þremur konum og
einum manni á vertshúsi í
Höfðaborg.
Kabúl
Enn barist í
Afganistan
Orustuþotur afganska flughers-
ins geröu í gær árásir á vígi Bala
Hissars sem áður fór fyrir liði
kommúnista. Hissar hefur aö
undanförnu haldið uppi árás-
um á Kabúl í því skyni að koma
Burhanuddin Rabbani forseta
landsins frá völdum.
Lusaka
Fribarvibræbur í
Angóla
Búist er viö að friðarviöræður
skæruliðahreyfingarinnar
UNITA og fulltrúa stjómvalda í
Angóla hefjist innan skamms
eftir hálfsmánaðar hlé. Báðir
aðilar sögðust bjartsýnir árang-
ur.