Tíminn - 14.01.1994, Side 16

Tíminn - 14.01.1994, Side 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland, Faxaflói: Gola eba kaldi og léttir til í dag. • Breibafjörbur og Breibafjarbarmib: Norbaustan átt, víbast kaldi og léttir til i dag. • Vestfirbir og Vestfjarbamib: Norbaustan kaldi og smá él nyrst en bjart vebur sunnan til. • Strandir og Norburland vestra: Lægir smám saman og minnkandi él í dag. Gola eba kaldi og úrkomulítib til landsins í kvöld. • Norburland eystra, Austurland ab Glettingi: Minnkandi norb- austanátt og dregur úr úrkomu. Gola eba kaldi og dálítil él á annesjum meb kvöldinu. • Austfirbir oq Austfiarbamib: Lægir í dag og dregur úr úrkomu. Léttir til sybst á Austfjörbum. • Subausturland og Subausturmib: Norbaustan kaldi, léttir smám saman til. Arnmundur Backmann fékk Seölabankann dœmdan bótaskyldan í Ávöxtunarmálinu: Bankaeftirlitiö dæmt ábyrgt fyrir síbustu vikum Ávöxtunar „Þetta er stefnumarkandi dómur aö því leyti aö meö honum er lögö bótaskylda á opinberan eftirlitsaöila. Hann þýöir einfaldlega þaö, aö Bankaeftirlitiö ber mjög ríka ábyrgð gagnvart almenningi og getur bakaö sér skaöabóta- skyldu ef hann stendur sig ekki. Lærdómurinn af þessu er sá aö hér eftir hefur Banka- eftirlitib mjög víötækar skyld- ur viö almenning. Við ríkjandi aöstæöur veröur fólk að gæta þess aö bankaeftir- lit í landinu sé í lagi — sem þaö sem þaö reyndist ekki í þessu máli," sagöi Ammundur Back- mann hæstaréttarlögmaöur. Hann var spuröur um þýðingu þess að Seðlabankinn heföi ver- iö dæmdur til aö greiða bætur til manns sem lagði fé í verð- bréfasjóöi Ávöxtunar hf. Am- mundur sótti þetta prófmál. „Niðurstaöa dómsins er sú að, að Bankaeftirlitið sé ábyrgt fyrir 'þeim bréfum sem umbjóðandi minn kaupir eftir 12. júlí 1988 — þ.e. frá þeim degi þegar alveg var ljóst að þetta var allt hmnið og Bankaeftirlitið hafði fengið svo mikil gögn í hendur að það vissi að það átti skilyröislaust að loka fyrirtækinu, en gerði samt ekkert í hálfan annan mánuð til viðbótar — þangað til í septem- ber að það stöðvaði loks starf- semi Ávöxtunar." Ávöxtun varð gjaldþrota í október 1988. Lýstar kröfur vom um 300 milljónir króna. Kröfuhafar hafa einungis fengið greidd um 40% af nafnverði bréfa sinna, sem þeir höfðu keypt fyrir meira en skráð nafn- verð. Mörg hundmð manns urðu því fyrir verulegu fjárhags- tjóni. Málshöfðandi í þessu prófmáli fór fram á kringum einnar millj- ónar króna bætur. En honum em aðeins dæmdar 100 þúsund króna bætur, auk vaxta, þ.e. ein- ungis vegna þeina veröbréfa- kaupa sem hann gerði eftir um- rædda tímasetningu, 12. júlí 1988. Ammundur segir fjár- upphæðina ekki aðalatriði málsins. Aðalatriðið sé að hann sé áfellisdómur yfir Bankaeftir- liti fyrir mjög alvarlega van- rækslu. „Dómurinn er sigur, því hér er fengin stefnumarkandi afstaða til afstaða til opinberrar stofn- unar sem fer ekld að lögum eða reglum í þessu efni. Það er svo sérkennilegt með þessi verð- bréfafyrirtæki, að þar verða menn að treysta á Bankaeftirlit- ið, að það gæti hagsmuna al- mennings og beri þar ábyrgð," sagöi Ammundur. Með þessum dómi sé viður- kennt að kaup bréfa í verðbréfa- sjóðunum séu ekki eins og hver önnur kaup. „Það er búið að reyna málsókn á Bifreiðaeftirlit, Oryggiseftirlit og Skipaeftirlit fyrir vanrækslu, sem allt hefur tapast. En þessi dómur þýðir að Bankaeftirlitið á að bera ábyrgð á því ef það stendur sig ekki, vegna þess að fólk hefur ekkert annað að snúa sér. Það getur ekki treyst á neinn annan í viðskiptum sínum við þessa verðbréfasjóði — getur ekkert skoðað, sest niður og reiknað, eða á annan hátt kann- að réttmæti þeina útreikninga og vísitalna sem sjóðimir birta". Hvort þessi héraðsdómur verð- ur endanleg niðurstaða er enn óljóst. En Ammundur taldi þaö ekki sjálfgefið að Seðlabankinn mundi áfrýja til Hæstaréttar. -HEI Fulltrúaráö minnihlutaflokka í borgarstjórn taka af- stöbu til sameinaös framboös á morgun: Yfirgnæfandi líkur á sam- komulagi lón Gunnlaugsson gefandi, Margrét Hallgrímsdóttir borgarminjavörbur og Markús Örn Antonsson borgarstjóri. Tímamynd GS. til Djúpavogs Yfirgnæfandi líkur eru taldar á aö flokksráö flokkanna í minnihluta Reykjavíkur samþykki aö ganga til samstarfs um framboö á sam- eiginlegum lista fyrir borgar- stjómarkosningamar í vor. Óánægja er þó innan allra flokk- anna meö suma þætti þess sam- komulags sem nú liggur fyrir. a Það sem flokkamir munu að öll- um líkindum samþykkja um helg- ina er aö veita fulltrúum sínum um- boð til að ganga til samninga um gerð málefnasamnings og um skipt- ingu sæta á framboðslista. í fram- haldi af því má reikna með að flokkamir skipti mönnum niður í málefnahópa sem geri málefna- samning. Ekki er búist við aö hann liggi fyrir fyrr en um mánaðamót. Jafnframt er gert ráð fyrir að þá verði farið að skýrast hvaða menn flokkamir tilnefna í efstu sæti fram- boðslistans. Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, sagð- ist styðja heils hugar tillögu um sameiginlegt framboð. Hann sagði að stefna Framsóknarflokksins væri að bjóða fram sérstaka lista í nafni flokksins. Hann sagðist þó líta svo á að í Reykjavík hefðu skapast sér- stakar aðstæöur sem gerðu það að verkum aö Framsóknarflokkurinn ætti aö vera með í þessari tilraun. Hann sagði að það væri fráleitt fyrir flokkinn að hlaupast frá því sam- komulagi sem hefði tekist. Stein- grímur sagðist telja þetta sameigin- le§a framboð mjög sigurstranglegt. Olafur Ragnar Grímsson, formað- ur Alþýðubandalagsins, vildi ekki tjá sig opinberlega um afstöðu sína til sameiginlegs framboðs á þessu stigi. Hann sagði að formleg afstaða af hans hálfu myndi koma fram strax og fulltrúaráð Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík hefði tekið af- stöðu til málsins, en það mun ráðið gera nú um helgina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þing- maður Kvennalistans, sagði að hún myndi ekki taka opinbera afstöðu til hugmyndarinnar um sameigin- legt framboð fyrr en fyrir lægi mál- efnasamningur milli flokkanna og sá samningur myndi tæplega liggja fyrir fyrr en undir næstu mánaða- mót. Ekki náðist í Jón Baldvin Hanni- balsson, formann Alþýðuflokksins -EÓ Safnið Til stendur að flytja safn Rík- harðs Jónssonar til Djúpa- vogs, fæðingarstaðar lista- mannsins. Á næstu vikum veröxu- endanlega gengið frá samkomulagi milli afkom- enda Ríkharös og Djúpa- vogshrepps. Safninu verbur komið fyrir í Löngubúð. Langabúð ér gamalt verslun- arhús á Djúpavogi frá árinu 1790 sem verið er að gera upp. Ríkharður Jónsson var einn af þekktustu listamönnum þjóðarinnar. Eftir hann liggja mörg listaverk, höggmyndir, tiéskurðarverk og teikningar. Mörg verka hans em í eigu einstaklinga, fyrirtækja og stofnana, en stærstur hluti ævistarfs hans er þó varðveitt- ur í safni hans á Grundarstíg í Reykjavík. Nú hefur orðið að samkomu- lagi milli afkomenda Ríkharðs og forsvarsmanna Djúpavogs- hrepps að safninu verði komið fyrir á Djúpavogi þar sem Rík- harður var fæddur og uppal- inn. Safninu veröur komið fyrir í gömlu verslunarhúsi frá árinu 1790, Löngubúð, en undanfar- in ár hefur verið unnið að lag- færingum á því. Eftir er að ljúka endurbótum á húsinu að innan, en Hjörleifur Stefáns- son arkitekt vinnur nú aö hönnun þeirra með tilliti til þarfa safnsins. Fyrirhugað er að semja við Kvennasmiðjuna um að reka safnið, en aðstand- endur hennar fýrirhuga að vinna að handverki samhliða rekstri safnsins. Þetta þýðir að Langabúð verður í framtíðinni eins konar lifandi handverks- hús. Ekki hefur endanlega verið gengið frá því hvenær safnið flyst til Djúpavogs, en það verður einhvem tíma á þessu ári. -EÓ Árbæjarsafni færbar gjafir Afkomendur Sigvalda Kaldalóns hafa gefið Árbæjarsafni nokkra sögulega muni úr eigu tón- skáldsins. Markús Öm Antons- son borgarstjóri veitti munun- um viötöku fyrir hönd safnsins, en Jón Gunnlaugsson, læknir og tengdasonur Sigvalda, af- henti munina fyrir hönd fjöl- skyldu Sigvalda. Um er ab fimm merka muni. Þeir em flygill sem sveitvmgar Sigvalda vib ísafjarðardjúp gáfu honum árið 1919, útskorinn flygilbekkur eftir Ríkharð Jóns- son, göngustafur gerður af Gub- mundi frá Miðdal, hvaltönn út- skorin af Ríkarði Jónssyni og brjóstmynd af Sigvalda Kalda- lóns, gerð af Gubmundi frá Miðdal. -EÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.