Tíminn - 26.01.1994, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 26. janúar 1994
Landbúnaður
á norðurslóðum
Bcendur í norburhérub-
um Finnlands, Noregs
og Svíþjóbar eru
áhyggjufullir vegna
vœntanlegrar abildar
landanna ab Evrópu-
bandalaginu
Þegar Jacques Delors, forseti
framkvæmdastjómar Evrópu-
bandalagsins, heimsótti sænska
bændur í Norburbotni, noröur
við heimskautsbaug, hafði
hann á orði að ábúendur í fjalla-
héruðum Frakklands ættu ekki
heldur sjö dagana sæla. Sá sam-
anburður á þó varla rétt á sér.
Þegar Delors var á ferðinni í
Norður-Svíþjóð í fyrravor, var
enn snjór yfir öllu. Ekki er hægt
ab byrja að sá fyrr en í lok maí
og ræktimartíminn nær aðeins
fram í september. í suðurhluta
Svíþjóðar og í Danmörku er
þessi tími tvöfalt lengri.
Ef ekki væri fyrir stuöning
stjómvalda, er hætt við að lítið
færi fyrir búskap á þessum slóð-
um. Eins og er kemur einn
þriðji hlutí tekna hvers bænda-
býlis úr ríkissjóði og bændur
óttast að á því gæti orbið breyt-
ing, ef Svíþjóð gerðist aðili ab
Evrópubandalaginu.
Áhyggjur af
áhyggjum
í Ósló, Stokkhólmi og
Helsinki hafa ráöamenn áhyggj-
ur af áhyggjum bænda, því ab
þær virðast ná ab smita út frá
sér og draga úr líkunum á að
Evrópubandalagsaðild fáist
samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu í löndunum þremur.
Ekki má mikib út af bera, því ab
ríkin þrjú, ásamt Austurríki,
stefna að því að vera orðin aðil-
ar ab bandalaginu 1. janúar
1995. Ef það tekst ekki, þá er
markið sett á að komast inn fyr-
ir áður en kemur að ríkisstjóm-
arfundi EB, en hann á að hefjast
árið 1996. Á fundinum á ab
endurskipuleggja bandalagið og
sum EB-ríkin vilja ab tækifærið
verði notað til að draga úr valdi
smáríkja, en fátt óttast umsækj-
endumir meira.
Evrópubandalagib hefur
ákvebiö að samningum við
EFTA-ríkin fjögur skuh lokið fyr-
ir 1. mars. Ef það tekst, má búast
við ab þjóðaratkvæðagreiðslur
verbi í þessum löndum seinna á
árinu.
Þaö er bandalaginu ekki síð-
ur en löndunum fjómm mikils
virði að samningar takist. Evr-
ópubandalagsríkin 12 þafa ít-
rekað lýst því yfir, þegar leið-
togafundir hafa verið haldnir,
að það sé einlægur ásetningur
þeirra aö fá EFTA-ríkin í banda-
lagiö.
Ástæbur
andstöbunnar
Ástæðumar fyrir andstöbu
fólks í Finnlandi, Svíþjóð og
Noregi vib EB-aðild em misjafn-
ar og veik staöa heimskauta-
landbúnaðar er bara ein af
mörgum. Þab breytír því ekki ab
sænska stjómin telur andstöb-
una kristaUast í afstöðu íbúa
Norburbotns í málinu. Sam-
kvæmt nýgerðum skoðana-
könnunum em aðeins 13 af
himdraði þeirra fylgjandi abild,
en hátt í 60% em á móti henni.
Á landsvísu em fylgjendur aftur
á mótí rúmlega 30 af hundraði
og andstæöingamir í kringum
40%.
Þegar litið er til þess aö
mörgum Svíanum, sem býr í
suburhluta landsins, finnst
hann búa á hjara veraldar, þá er
ekki skrítið þó að 260.000 íbú-
um í Norburbotni líði eins og ís-
lendingum í slæmu árferbi.
Samninganefnd Evrópubanda-
lagsins hefur faUist á að þetta
landsvæði fari í hæsta styrkja-
flokk, ef Svíar verða abilar að
bandalaginu. Þetta tilboö hefur
enn sem komib er ekki náð að
sannfæra þann fjölda Svía, sem
telja ab EB eigi eftir ab hola að
innan þá samstöðu sem ríkt hef-
ur í landinu um jöfnub og
stuöning viö þá sem minna
mega sín. Andstæðingar og
fylgjendur abildar virbast sam-
mála um að ótti fólks við að Evr-
ópubandalagiö þurrki hreinlega
út það, sem Svíum finnst flokk-
ast undir sænskan lífsstíl, sé
meginástæöan fyrir andstöð-
unni við aðild landsins að
bandalaginu. Ursula Berge,
stjómmálafréttaritari Norr-
landska Socialdemokraten, segir
að andstaðan vib Evrópubanda-
lagið snúist um: hlutleysi Svía
og sjálfstæða utanríkisstefnu
þeirra, jafnréttí karla og kvenna,
atvinnuleysi, byggöastefnu og
fullveldi ríkisins. Dagblaðið,
sem er í eigu Sósíaldemókrata,
fylgir ekki stefnu eigenda sinna
í Evrópumálum og berst hat-
rammri baráttu gegn Evrópu-
bandalagsaöild.
Berge fullyrðir að samdrátt-
urinn í sænsku efnahagslífi
undanfarin þrjú ár stafi fyrst og
fremst af tilraun stjómvalda til
að samhæfa efnahagsstefnu
landsins markabshugmyndum
ráðamanna EB. Hún bendir á að
stefna sósíaldemókrata í efna-
hags-, félags- og atvinnumálum
hafi á undanfömum áratugum
komið í veg fyrir fjöldaatvinnu-
leysi og ekki sé vib öbru ab bú-
ast en sagan endurtaki sig, ef
horfið verður af leið mark-
aðshyggjunnar sem nú ræöur
feröinni.
Rétt fyrir jól fögnubu bæbi
stjóm og stjómarandstaða
áfangasigri í samningaviðræð-
unum vib EB.-Svíum var leyft að
halda eigin umhverfisvemdar-
löggjöf og áfengiseinkasölunni,
auk þess sem þeim tókst ab forb-
ast bann á sænska munntóbak-
ið, sem Svíar kalla snus.
Þetta telja fylgjendur abild-
ar að sýni velvilja og umhyggju
bandalagsríkjanna í garb Svía.
Þama hafi Evrópubandalagið
sýnt svo ekki verði um villst að
það ætli ekki að umtuma
sænsku samfélagi. Ef sænsku
samninganefndinni tekst að ná
ámóta hagstæbu samkomulagi í
landbúnaöar- og byggbamáliun,
má ætla að stjómvöldum reyn-
ist auðveldara ab vinna almenn-
ing til fylgis vib aðild að EB.
Hugsanleg
straumhvörf
Fjöldi bænda í norburhér-
uðunum hafa sagt þab bemm
orðum að þeir ætli að láta um-
fang styrkja frá bandalaginu
ráöa afstöðu sinni til aðildar.
Veikleikinn í áróðri fylgj-
enda abildar er aftur sá, aö þeir
hafa upp á fátt áþreifanlegt aö
bjóða, þegar kemur að efnahags-
málum almennt. Hvorki stjóm-
völd né atvinnurekendur - en
yfirgnæfandi meirihluti þeirra er
fylgjandi aöild - halda því fram
ab EB-aöild komi tíl meö að
hleypa nýju blóði í efnahagslífiö
- í ljósi þess ab Sviar njóta nú
þegar flestra þeirra gæða, sem
fylgja aðild, í gegnum Hib evr-
ópska efnahagssvæði.
Kjaminn í baráttu fylgjenda
aðildar er ab Svíar eigi þess ekki
kost að hafa bein áhrif á stefnu
bandalagsins nema að vera inn-
an þess. Ef þeir standa fyrir utan,
er hætta á ab tapa viðsíciptum.
Þab þarf væna gulrót til að
lokka Svía af leið. Þess er því að
vænta - ef ekki kemur verulegur
kippur í efnahagslíf Evrópu-
bandalagsríkjanna áður en þjób-
aratkvæðagreiðslan um aðild að
bandalaginu veröur - að Svíar
hafni aðild.
Fyrir tveimur árum bentu
skoðanakannanir til þess að
meirihlutí Svía væri fylgjandi
aðild. Nýgerðar skoðanakann-
anir benda til þess ab fylgjend-
um aðildar hafl fjölgað nokkuð
þó að þeir eigi langt í langt með
að ná svipuðu fýlgi og andstæð-
ingar hennar. Stjómin vonar að
batinn, sem er farinn að láta á
sér kræla í sænsku efnahagslífi,
auki Svíum þor og kjark. Þegar
þjóðin sé eins og hún á að sér,
vilji hún vera meö í leik hinna
stóm. Þannig getí efnahagsbat-
inn byggt upp laskað sjálfstraust
Svía og valdib straumhvörfum í
Evrópubandalagsumræðunni.
FT/ÁÞÁ
BLAÐBERA VANTAR
HÓLAHVERFI
iiiTrallPllHiy.w3*55?
Í!!í1!*Lr«Í/ '*»yÍ'i1" ''V*
Blaðburður
er holl og
góð hreyfing
! J !.I Í
mwm
STAKKHOLTI4 (Inng. frá Brautarholti) SÍMI631600