Tíminn - 17.03.1994, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.03.1994, Blaðsíða 4
4 WMttUWtl Fimmtudagur 17. mars 1994 Páll Pétursson, bóndi á HöUustöbum og alþingismaöur, segir ríkjandi neyö á mörgum heimilum til sveita: Leggur til útflutn- ingsbætur á kjöt að nýju Páll Pétursson alþingismabur leggur til ab sauöfjárbændum verði heimilab ab framleiba til útflutnings og ab útflutnings- bætur verbi teknar upp ab nýju. Þetta sé einfaldasta og ódýrasta leibin út úr þeirri kreppu sem ríki í landbúnabin- um. Hann útilokar ekki ab pól- itískur vilji gæti myndast fyrir þessari stefnubreytingu. Núver- andi ástand sé óbærilegt. Páll segir að stjómvöld verbi aö grípa til einhverra ráöa til að koma í veg fyrir hmn til sveita áöur en þaö veröi of seint. Hann leggur til að útflutnings- bætur veröi ákveðin prósenta af skilaverði á kjöti, þannig aö þær virki sem hvatning á sölu- aöilann til þess að fá sem hæst verö á erlendum markaði. „Þaö horfir í neyð á fjölda- mörgum heimilum til sveita," segir Páll. „Skerðingin hjá sauö- fjárbændum er geigvænleg. Þeir sem máttu hafa 400 fjár viö upphaf búvömsamningsins veröa komnir niöur í 260 viö næstu áramót. Það lifa augljós- lega engar fjölskyldur af svo- leiðis búum. Menn em sem óö- ast aö éta upp eigur sínar og safna skuldum. Fólk til sveita hefur ekki aö neinu ööm að hverfa á meöan atvinnuástand í landinu er jafti slæmt og raun ber vitni. ís- lenskir sauðfjárbændur kunna að framleiða kjöt og geta aukið framleiösluna með litlum til- kostnaöi. Fjárfestingamar em fyrir hendi. Það sem á vantar er að fjölga sauðfé aftur, sem hægt er að gera víöa án þess að ganga of nærri beitilandi." Of margir í feröaþjónustu? Hvaö með nýjar búgreinar? „Það hafa átt sér stað mistök viö uppbyggingu nýbúgreina. Afkoman í loðdýraræktinni hefur að vísu batnaö vemlega. Ógæfan þar var sú ab stofn- kostnaöur varð of mikill til þess aö þessi bú gætu borið sig. Síð- an hrapaöi skinnaverðið og greinin hrundi. Nokkrir bænd- Páll Pétursson, alþingismaður og bóndi á Höllustööum. ur þraukuðu sem betur fer. Loðdýraræktin getur þróast smám saman og orðið land- búnaðinum til styrktar, en það er ekki hægt að treysta á að hún gæti orðið eitthvert bjargráð til frambúðar. Litla/stóra alvöru Vacuumpökkunarvélin fyrir minni framleiöendur Ýmsir hafa komiö meö litlar ódýrar vélar fyrir minni framleiöendur og stór heimili. Flestar þessara véla hafa veriö án lofttæmihólfs og meö um eöa innan viö 90% lofttæmingu sem er gagnslaus! Henkelman sem er einn stærsti og virtasti framleiöandi vacuumpökkunarvéla, hefur nú komiö meö litla og ódýra alvöruvél. Henkovac Junior, sem lofttæmir 99,5% sem þýöir geymsluþol eins og stóru vélarnar. Nokkrar vélar til á kynningarverbi 75.000.- + vsk. Krókhálsi ó • Simi: 67 1900 fgggSBSSSMM—M BB "" 1 mb "”i— „Eigi oð afla markaöa edendis þarfaö tryggja stööugt framboö." Hrossaræktin hefur gefið dá- lítið af sér, en hún skilar bænd- um ekki nægilega miklu. Milli- liðir hafa haldið veröi á líf- hrossum niðri. Menn hafa ver- ið að láta sæmileg hross fyrir sáralítið verð. Einstaka menn hafa komist upp á lag með að selja sjálfir og hafa sæmilega af- komu. Feröaþjónusta hefur verið vaxandi atvinnugrein meðal bænda og allmargir hafa fjár- fest verulega í henni. Ég óttast hins vegar að framboðiö sé orð- ið of mikið til þess aö hún geti gefið hverjum og einum nógu mikið af sér. Ég held ab eina leiðin út úr þeirri kreppu sem ríkir í land- búnaðinum sé að leyfa sauð- fjárbændum að framleiða til út- flutnings. Nú hefur það sýnt sig að það er hægt að fá tölu- vert verb fyrir íslenskt lamba- kjöt erlendis. Söluaöilar hafa tekið kjöt sem er framleitt um- fram kvóta í svokallaða um- sýslusölu. Fyrir þetta kjöt hafa bændur verið að fá 160-200 krónur á kíló. Þetta verð er of lágt, en það er þó styrkur af því. Uflutningsbætur eru ódýrasti kosturinn. Þjóðin myndi ekki sætta sig við að bændafólk og aðrir sem byggja afkomu sína beint eða óbeint á landbúnaði yrði látið drepast úr hungri. Ef landbúnaðurinn kæmist í þrot lentu þeir sem af honum lifa á framfæri þess opinbera með einum eða öörum hætti." Fimm milljöröum lægri framlög „Framlög ríkisins til landbún- aöarmála eru fimm milljörðum lægri á fjárlögum núna heldur en þau voru þegar búvöru- samningurinn var geröur. Þessi skeröing er mun meiri en á öðr- um liðum fjárlaganna og eðli- legt að hún veröi að einhverju leyti leiðrétt. Þá er einnig athugandi hvort því fé sem varib er til landbún- aðarmála sé rétt varið. Hluta þess er rennur í Framleiðnisjóð mætti t.d. nota til útflutnings- bóta. Bændur eru látnir greiða í Atvinnuleysistryggingasjóð en eru nánast útilokaðir frá því að fá bætur úr honum. Hingað til hafa einungis fimm bændur fengið atvinnuleysisbætur. Ef útflutningsbætur yrðu teknar upp mætti líta á að þær kæmu í stab atvinnuleysisbóta til bænda." Er nokkur vilji til þess að hefja greiðslu útflutningsbóta að nýju? „Mönnum kann að þykja þessi hugmynd nokkuð fram- andi. Fólk var búib ab bíta það í sig að þab væri ekkert vit í að flytja út dilkakjöt, en það er bara allt annað viðhorf í dag heldur en þegar útflutnings- bætumar vom afnumdar. Nú höfum við von um nýja mark- aði sem gætu skilað betra verði en áöur og við höfum fengið vottorð frá Bandaríkjamönn- um um að íslenska kjötið sé vistvænt og heilbrigt. Þama liggja vafalaust einhverjir möguleikar, það hafa margir unnið stórmerkilegt starf á sviði markaösmála. Ég nefni þar sem dæmi Erlend Garöars- son, hjá Kaupsýslunni hf. og Félag matreiðslumanna. Þá er rétt ab leggja áherslu á að ekki er nóg að flytja út einhvern umframleiðslukúf. Eigi að afla markaða þarf að tryggja stöð- ugt framboð." Svartsýni og vonleysi Vceri ekki eðlilegra að krafa um úrbcetur í málefnum bœnda vceri að frumkvoeði baenda fremur en stjómmálamanna? „Ég er vel að merkja sjálfur bóndi. En það er eölilega ríkj- andi afar mikil svartsýni og vonleysi meðal margra bænda út af ástandinu í greininni. Mér finst eins og menn séu hættir að þora að gera kröfur, eða fara yfirleitt fram á einhverja hag- ræöingu og fyrirgreiðslu. Það er hins vegar mjög hættulegt ef stéttin berst ekki fyrir sínum hagsmunum. Það er veriö að opna fyrir innflutning land- búnaðarafurða í stómm stíl, með EES og GATT. Aðrar þjóðir hika ekki við að greiöa sína landbúnaðarframleiöslu niöur. Einn af brestunum í okkar landbúnaöarpólitík er að hún tekur ekkert mið af því sem er að gerast í löndunum í kring- um okkur." Nú hefur þú aldrei stutt núver- andi búvörusamning á þingi, en er pólitískur meirihlutavilji fyrir einhverjum breytingum á stjóm landbúnaðarmála? „Ég hef alla tíb haft efasemdir um núverandi landbúnaðar- pólitík og það er nauösynlegt að falla frá henni áður en það verður of seint. Pólitískur vilji fyrir breytingum gæti hæglega myndast. Eg greiddi ekki búvömsamn- ingnum atkvæði á sínum tíma og treysti mér ekki heldur til að styðja búvömlögin 1985 vegna þess ab þau buðu upp á að þró- unin yrði sú sem raun hefui oröib, þ.e.a.s. að skerðingin yröi svo sár að hún yrbi óbæri- leg. Þab gat aldrei gengið upp að setja framleiðslutakmarkan- ir á eina kjöttegund. Það væri allt annaö ef hægt hefði verið aö koma framleiðsustjómun á alla kjötframleiðslu. Markaðs- hlutdeild lambakjöts hefui hrapað miðað við aðar kjötteg- undir, skerðingin hefur orðið meiri og það er alls ekki séð fyr- ir endann á henni." -ÁG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.