Tíminn - 18.03.1994, Side 3
Föstudagur 18. mars 1994
Witmwn
3
Davíö undirbýr ferb til Brussel án samráös viö Jón Baldvin. Ólafur Ragnar:
„Ríkisstjórnin hætt að
starfa sem ríkisstjórn"
Leiötogar stjómarandstöö-
unnar telja mikilvægt aö ís-
lensk stjómvöld hefji sem
fyrst tvíhliöa viöræöur viö
Evrópusambandiö. Þeir lýsa
yfir undmn sinni á því aö for-
sætísráöherra hafi ekki undir-
búiö för sína til Bmssel í sam-
ráöi viö utanríkisráöuneytiö
og utanríkisráöherra.
Davíö Oddsson forsætisráö-
herra sagöi frá því í fyrirspum-
artíma á Alþingi í vikunni aö
veriö væri að undirbúa heim-
sókn hans til höfuðstööva ESB í
Brussel, þar sem hann muni
kynna vÚja íslendinga til tví-
hliöa samninga viö sambandiö.
Þaö vaktí athygli aö Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
frétti fyrst af fyrirhugaöri för
Davíðs Oddssonar úr ræöustóli
Alþingis. Steingrímur Her-
mannsson segist imdrast þetta
sambandsleysi ráðherranna.
„Ég tel nauösynlegt aö forsætis-
ráöherra fari tíl viöræöna til
Brussel. Þaö kemur hins vegar
undarlega fyrir sjónir að hann
skuli ekki fara í samráði viö ut-
anríkisráðherra, því þeir þurfa
auðvitað báöir aö leggjast á eitt.
Ég tel að það beri að leggja
áherslu á aö viðræöur um tví-
hliða samning hefjist strax
þannig aö hann geti verið tílbú-
inn ef hin Noröurlöndin sam-
þykkja í þjóöaratkvæðagreiðslu
aö ganga inn. Þaö hefði verið
ákaflega mikilvægt aö viö ís-
lendingar værum búnir að gera
okkur glögga grein fyrir hvað
viö viljum, ég tel þaö mun mik-
ilvægara en athugun á kostum
og göllum ESB aðildar. En ég
fagna því að forsætisráöherra
ætli aö fara út og koma þessu
strax af staö þótt mér sé ekki
ljóst að undirbúningur sé nógu
góöur."
Steingrímur Hermannsson
Ólafur Ragnar Grímsson tekur
í sama streng og Steingrímur.
Hann segir tímabært aö ESB sé
kynnt afstaöa íslands. „Mér
Ólafur Ragnar Grímsson
finnst í sjálfu sér ágætt að for-
sætisráðherra fari til Brussel. Al-
þingi ályktaöi í maí á síðasta ári
að stefna íslands væri aö gera
tvíhliða samning við Evrópu-
sambandiö og ríkisstjóminni
var faliö að undirbúa slíkan
samning. Hún hefur reyndar
ekki gert mikiö í því en betra er
seint en aldrei að forsætisráö-
herra fari og kynni afstöðu ís-
lands sem samþykkt var ein-
hljóða á Alþingi. Hitt er sér-
kennilegt aö utanríkisráöherra
skuli ekki vera kunnugt um
áform forsætisráðherra fyrr en
hann tilkynnti um þau á Al-
þingi. Forsætisráðherra geröi
jafnframt grein fyrir því aö
hann væri aö láta „sína menn"
undirbúa þessa heimsókn þann-
ig aö utanríkisráðuneytið hefur
greinilega ekkert komiö aö því.
Ríkisstjóm þar sem utanríkis-
ráðuneytið og utanríkisráöherra
vita ekkert um mikilvægustu
heimsókn forsætísráöherrans er
í raun hætt aö starfa sem ríkis-
stjóm." -GBK
ASÍ blaes til sóknar í atvinnumálum. Taliö er aö fjöldi atvinnulausra sé
12-13 þúsund og skapa þurfí 22 þúsund ný störffram aö aldamótum:
Fjölga þarf vel-
launuðum störfum
„Okkar verkefni er einfald-
lega aö breyta þeim efnahags-
legu forsendum sem í dag
liggja tíl gmndvallar fímm
ára spá Þjóöhagsstofnunar.
Þaö má ljóst vera aö þrátt fyr-
ir aö almenn efnahagsskilyröi
séu hagstæö þá duga þau okk-
ur ekki ein ef okkur á aö tak-
ast aö vinna bug á atvinnu-
leysinu," segir Benedikt Dav-
íösson, forsetí ASÍ, á fundi
samtakanna í gær, þar sem
lögö vom drög aö stefnumót-
un verkalýöshreyfingar í at-
vinnu- og kjaramálum fram
til aldamóta.
Þar er öllum frjálshyggjulausn-
um á atvinnuleysi vísað á bug,
bæöi í auknum sveigjanleika í
launamyndun og ráöningarskil-
yrðum. Þess í staö er lögö höf-
uöáhersla á aö skapa atvihnu-
legar forsendur fyrir því að
fjölga vellaunuöum störfum án
þéss að gengið sé á félagsleg
réttindi launafólks.
Gylfi Ambjömsson, hagfræð-
ingur ASÍ, segir aö samkvæmt
spá Þjóðhagsstofnunar sé áætl-
að að á þessu ári verði í boði á
vinnumarkaðnum um 123 þús-
und störf sem þýöir aö 12-13
þúsund manns verði aö jafnaði
án atvinnu í ár en ekki rúm 7
þúsund. Til aö halda í við íbúa-
fjölgunina frá 1988 til 1994
þyrftu á þessu ári að vera 135
þúsund störf á vinnumarkaði og
144 þúsund störf fram aldamót-
um.
Gylfi segir að miöað viö mann-
fjöldaspá Hagstofu íslands þurfi
aö skapa allt að 22 þúsund ný
störf fram að aldamótum til
þess aö takast á við núverandi
atvinnuleysi og væntanlega
fjölgun landsmanna.
Aöalskýringin á þessum mikla
mun á fjölda atvinnulausra, eöa
sem nemur 5-6 þúsimd manns,
er að atvinnuþátttaka lands-
manna hefur minnkað verulega
á liönum ámm og þá einkum
meöal kvenna og hjá ungu fólki
sem áður vann með námi. Gylfi
segir að þessir hópar séu ýmist
farnir af vinnumarkaöi eöa
hættir aö leita sér aö vinnu
vegna atvinnuástandsins. Bene-
dikt Davíösson, forseti Alþýöu-
sambands íslands, segir að aöal-
verkefni verkalýöshreyfingar í
þessum málum sé aö skapa for-
sendur fyrir fjölgun góöra starfa
sem tryggja hátt launastig.
Hann hafnar frjálsri launa-
myndun og svokölluöum
sveigjanleika að bandarískri fyr-
irmynd sem þar hefur alið af sér
töluverðan fjölda illa launaöra
starfa meö tilheyTandi launa-
misrétti, fátækt og félagslegu
óöryggi.
Forseti ASI segir aö atvinnu-
leysisvandi íslensks launafólks
tengist hmni fiskistofna, skipu-
lagi veiða, vinnslu og fjárfest-
ingum fremur en skipulagi
vinnumarkaöarins. Hann segir
verkalýöshreyfinguna engan
áhuga hafa á því að fóma félags-
legum réttindum og öryggi
launafólks í skiptum fyrir mörg
en illa launuö störf í keppni við
asísk launakjör.
Til að snúa vöm í sókn telur
forseti ASÍ að þurfi m.a. að
byggja stööugt á meiri fram-
Benedikt DavíÖsson í rœbustóii í gœr.
leiðni meö betri menntun og
þjálfun starfsmanna, stjóm-
enda, eflingu nýsköpunar og
aukinni notkun nýrrar tækni og
orku á sem hagkvæmastán hátt.
í þessu sambandi þarf einnig aö
leggja þunga áherslu á aö fram-
leiða stööugt verömætari vörur
en áður.
En til að takast á viö núverandi
atvinnuleysisvanda telur forseti
ASÍ að verkalýöshreyfingin
Tímamynd: CS
þurfi aö þrýsta á stjómvöld til
aö grípa til beinna aðgeröa. í því
sambandi þurfa stjómvöld að
standa viö þaö samkomulag
sem gert var við gerð síðustu
kjarasamninga sl. vor og við
endurskoðun samninga í nóv-
ember sl. En síðast en ekki síst
þarf aö nýta vel þaö mikla svig-
rúm sem árangur í stjóm efna-
hagsmála hefur gefiö í staö að-
gerðaleysis. -grh
Átta prestar sóttu um prestsstööu í Cautaborg:
Séra Jóni Dalbú hefur verib
veitt staðan í Gautaborg
Sérajóni Dalbú Hróbjartssyni,
sóknarpresti í Laugames-
kirkju, var í gær veitt staöa
prests í Gautaborg. Átta prest-
ar höföu sótt um þegar um-
sóknarfrestur rann út þann
15. mars. Biskup íslands aug-
lýsti stööuna og veitti hana í
samráöi viö forstjóra Trygg-
ingastofnunar ríkisins, sem
greiöir hluta af kostnaöinum.
í fréttatilkynningu frá Biskupi
íslands segir aö starf séra Jóns
Dalbú í Gautaborg felist í þvi aö
annast sálgæslu og aðstoð við
íslendinga, sem bíöa líffæra-
flutninga
á Sahlgrenska sjúkrahúsinu þar
í borg, auk þess sem hann muni
annast þjónustu við fjölmenna
íslendingabyggð í Gautaborg og
nágrenni og einnig líkum störf-
um í Osló. Reiknaö er með aö
hann taki viö þessu nýja starfi í
haust og mim þá fá launalaust
leyfi frá embætti sínu viö Laug-
ameskirkju.
Séra Jón lauk prófi frá guð-
fræðideild HÍ áriö 1973 og var
vígður til prestsþjónustu 1974.
Hann hefur stundaö framhalds-
nám við Modum Bads stofnim-
ina í Noregi, þar sem séö er um
sjúklinga og aöra þá sem að-
stoðar þurfa við og er sálgæslan
stunduð bæöi af læknum og
prestum. Og áriö 1983 lauk
hann námi frá þessari stofnun í
prestsþjónustu viö sjúkrahús og
aðrar stofnanir.
Aörir umsækjendur um stöö-
una vom séra Ágúst Sigurðsson
á Prestsbakka, séra Baldur Krist-
jánsson á Höfn, séra Hannes
Bjömsson á Patreksfiröi, séra
Flosi Magnússon prófastur á
Bíldudal, séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson á Útskálum, séra Ing-
ólfur Guðmundsson héraös-
prestur og séra Þórhallur Heim-
isson framkvæmdastjóri Æsku-
lýðssambands kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmum.
-HEI
Séra jón Dalbú Hróbjartsson.