Tíminn - 18.03.1994, Blaðsíða 7

Tíminn - 18.03.1994, Blaðsíða 7
Föstudagur 18. mars 1994 sat’—t.---- 7 Listi Schindlers hlutverki hrottans Amon Goeth. Túlkun hans á þessu ill- menni er ógleymanleg og til- nefning hans til Óskarsverö- launa fyrir hana er auðskiljan- leg. Steven Spielberg hefur tekist aö gera mjög áhrifaríka og eftir- minnilega kvikmynd. Hann hefur hingaö til verið þekktari fyrir afþreyingu og ævintýri en sýnir með Lista Schindlers getu sína í aö gera alvarlegri verk af listfengi. ■ KVIKMYNDIR ÖRN MARKÚSSON (Neeson) og gyöinga, sem unnu fyrir hann. Schindler kemur til Kraká í Póllandi eftir hemám nasista, tekur yfir verksmiöju og ræöur gyðinga í vinnu viö aö framleiöa potta fyrir þýska her- inn. Hann ræöur bókhaldarann Itzhak Stem (Kingsley) til aö stjóma öllu saman og græöir á tá og fingri. Schindler vingast viö helstu forkólfa nasista á staðnum og greiöir þeim mútur fyrir að fá að starfrækja verk- smiðjuna. Einn þeirra er morö- óöa skrímslið Amon Goeth (Fiennes), yfirmaður Plaszow vinnubúöanna. Þegar Schindler sér aö leysa á „gyðingavanda- máliö" fyrir fullt og allt semur hann viö Goeth um aö fá aö færa verksmiöju sína og starfs- menn til Brinnlitz. Schindler og Stem skrifa á lista nöfnllOO gyðinga, „Schindlerjuden", sem flytja skuli til Brinnlitz en það gengur síður en svo áfallalaust fyrir sig. Schindler leggur sig í gríöarlega hættu til að reyna bjarga starfsmönnum sínum, sem að öðram kosti era allir á leið til Auschwitz. Spielberg segir þessa sögu af miklu raunsæi og dregur ekkert úr hrottaskapnum sem gyðing- um var sýndur. Hún er tekin í svart/hvítu og tökuvélinni beitt líkt og um heimildarmynd væri aö ræða, sem gerir frásögnina trúveröugri og beinskeittari. Þetta virkar eins og maður sé að horfa á myndir, sem raunvera- lega vora teknar á tímum seinna stríös. Öll umgjörö myndarinnar er frábærlega unnin, allt frá búningum til leikmynda af ýmsum stæröum og gerðum. Greinilegt að vand- að hefur veriö til verka í hví- vetna. Dæmi um þetta era at- riöin, sem gerast eiga í Auschwitz, sem era mjög áhrifa- rik og ógleymanleg hverjum sem þau sjá. Eini eftirtektar- verði löstur myndarinnar er helst til mikið tilfinningaflóö í enda hennar en þaö er léttvægt þegar á heildina er litib. Liam Neeson leikur Oskar Schindler mjög vel ef á heildina er litiö en hann virkar stöku sinnum dálítiö stiröur í túlkun sinni. Ben Kingsley gerir Itzhak Stem mjög góð skil enda ekki við öðra aö búast frá þeim frá- bæra leikara. Það er hins vegar Ralph Fiennes sem slær í gegn í (Schindler's List) *-★*-*- Handrít: Steven Zaillian. Byggt á bók Thomas Keneallys. Framleibendur: Steven Spielberg, Cer- ald R. Molen og Branko Lustig. Leikstjóri: Steven Spielberg. Abalhlutverk: Liam Neeson, Ben Kingsley, Ralph Fiennes, Caroline Goodall, jonathan Sagalle og Embeth Davidtz. Háskólabíó. Bönnub innan 16 ára. í þessu magnaða verki Steven Spielbergs er saga helfararinnar sögö frá sjónarhóli stríösgróða- braskarans Oskar Schindlers Dreggjar dagsins (The Remains of the Day) **r-*1/2 Handrít: Ruth Prawer Jhabvala. Byggt á samnefndri skáldsögu Kazuo Ishiguro. Framleibendun Mike Nichols, john Calley og Ismail MerchanL Leikstjórí: James Ivory. Abalhiutverk: Anthony Hopkins, Emma Thompson, james Fox, Christopher Reeve, Peter Vaughan og Hugh Crant. Stjömubíó. Öllum leyfb. Hr. Stevens (Hopkins) hefur haft það aö höfuö- markmiði í lífi sínu að þjóna húsbónda sínum, Darlington lávarði (Fox), eftir bestu getu sem bryti á setri hans. Á millistríösárunum er lávarðurinn eitt helsta peð nasista á Englandi en það kemur Hr. Stevens ekki viö. í hans starfi er ekkert pláss fýrir skoöanir, tilfinningar eöa einkalíf. Ungfrú Kenton (Thompson) er ráöskona á setrinu í nokkum tíma, sem hrífst af Hr. Stevens og á erfiöara meö aö halda aftur af tilfinningum sínum en hann. Hún reynir hvað hún getur til að brjótast inn fyrir brynju hans en gefst að lokum upp. Sagan hefst einmitt á því að Hr. Stevens er aö hugsa til baka eftir lát lávarðarins og hyggst loksins reyna aö bæta fyrir mistök sín og sjálfsblekkingu. James Ivory, Ismail Merchant og Ruth Prawer Jhabvala hafa starfað saman aö kvikmyndagerö meö hléum í 30 ár. Þau hafa löngum einbeitt sér aö kvikmyndun fagurbókmennta eins og t.d. skáldsagna E.M. Forsters, Howard's End og A Room with a View. Myndir þeirra eru yfirleitt mjög vandaðar þótt ódýrar séu, a.m.k. á banda- rískan mælikvaröa. Dreggjar dagsins er engin undantekning. Erfítt er að koma svo margbrotnu verki í kvikmyndabúning svo vel fari en Jhabvala hefur reynsluna til að bera sem handritshöfundur og leysir verk sitt vel af hendi. Þeir fjölmörgu, sem lesiö hafa sögu Ishiguros, ættu ekki að veröa fyrir vonbrigöum. Þetta er áhrifarík og lítriö eitt sorgleg saga með persónum sem era ógleymanlegar í með- förum frábærra leikara, Anthony Hopkins og Emmu Thopipson, sem af.augljósum ástæöum era bæöi tilnefnd til Óskarsverölauna. Brytinn, Hr. Stevens, vekur upp trega hjá áhorfendum þar sem hann vinnur verk sín af kostgæfni fyrir húsbónd- ann en gefur sjálfum sér aldrei tækifæri á aö lifa sínu eigin lífi. Ungfrú Kenton er vorkunn jafnt í baráttu sinni við eigin tilfinningar og harðan skráp Hr. Stevens. í smærri hlutverkum era einnig góöir leikarar eins og Fox, Vaughan og Grant, sem gera allir vel, og sömu sögu er að segja af Christopher Reeve en hann hefur ekki fengið jafn bitastætt hlutverk í mörg ár. Dreggjar dagsins er mjög vönduö kvikmynd, þar sem listrænn metnaður er í fyrirrúmi hjá öllum aðstandendum hennar. LeiÚist á heimsmæli- kvarða og frábær umgjörö gerir þessa mynd veru- lega eftirminnilega. ERTU I ATVINNULEIT? ERTU I ATVINNULEIT? RJUJ ATVJNNULEJ i Ti yTgi:i íTTfiTTTi ri á aldrinum 16 til 25 ára? Notaðu tímann til að auka þekkingu þína Misstu ekki af lestinni Iþrótta- og tómstundaráð og Hitt Húsið bjóða ungum Reykvíkingum upp á tvö þriggja vikna námskeið 5. apríl - 22. aprfl og 25. apríl - 13. maí þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru sniðin að þörfum og áhugamálum ungs fólks og vel til þess fallin að auka hæfni þess á atvinnumarkaði. Hluti af þessum námskeiðum verður metinn til styttingar á biðtíma eftir atvinnuleysisbótum skv. lögum nr. 93 frá 30. júní 1993. Meðal þeirra námsgreina sem boðið verður uppá eru: íslenska, Félagsfræði daglegs lífs, Skyndihjálp, Hagnýt stærðfræði, Persónuleg viðskipti, Tölvunám, Listir og menning í dag, Tungumál, Hljóðversvinna, Myndbandagerð, Dulspeki oil. ofl. Einnig verða kynntar námsleiðir og atvinnulíf í samvinnu við sérskóla, verkalýðsfélög, fyrirtæki og stofnanir. Skráning frá 17. - 25. mars í Hinu Húsinu kl. 13-19. Uppl. í síma 62 43 20 Jg InlU' BRAUTARHOTI 20 SÍMI624320 IÞROTTA- OG TOMSTUNDARÁÐ REYKJAVIKUR NAMSKEIÐ FYRIR ÞIG!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.