Tíminn - 23.03.1994, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.03.1994, Blaðsíða 6
6 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Túskildingsóper- an frumsýnd Leikfélag Fljótsdalshéraðs frurasýndi Túskildingsóperuna eftir Berthold Brecht og Kurt Weill, 19. mars sl. Leikstjóri er Inga Bjamason. Leikritib er fyrst og fremst skemmtiverk um afskaplega rot- ið fólk, sem gerir hvað það get- ur til að klekkja hvert á öðru. Leikendur eru rúmlega 20 ásamt fjögurra manna hljóm- sveit. Með helstu hlutverk fara þau Baldur Grétarsson, Sigur- laug Gunnarsdóttir, Guðlaug Ólafsdóttir, Alfreð Alfreðsson og Einar Rafn Haraldsson. Sýnt er í Hótel Valaskjálf. Á myndinni gefur að líta leik- arana Kristján, Sigurgeir, Þráin og Jón Helga í hlutverkum sín- um. Björgunarsveitin ísólfur byggir slysavarnahús Björgunarsveitin ísólfur á Seyð- isfirði hefur tekið í notkun nýja björgunarstöö að Hafnargötu 41, fyrir starfsemi félagsins. Að sögn Guðjóns Jónssonar, félaga í björgunarsveitinni, er þö ekki stefnt að vígslu fýrr en á næsta ári, þar sem enn vantar fjár- magn til að fullklára húsið. Áður hafði sveitin ekki neinn fastan samastaö, en hafði feng- iö inni hjá ýmsum aðilum í bænum. Félagar í sveitinni hafa lagt fram mikla sjálfboðavinnu í húsið og Slysavarnafélag ís- lands hefur styrkt svéitina vegna byggingarinnar, en SVFÍ styrkir deildir í landinu árlega, vegna ýmissa verkefna. Að sögn Guðjóns er búiö að ganga frá húsinu að utan og einangra að innan. Stærö þess að gmnnfieti er u.þ.b. 190 rúmmetrar, en helmingur þess verður á tveim- ur hæðum. Uppi veröur salur, en búningsaöstaða, stjórnstöð o.fl. nibri. Sveitin hefur sótt um styrk til Atvinnuleysistryggingasjóðs að upphæð einnar milljónar króna, svo hægt verbi að halda áfram vib bygginguna. Stefnt er að því að ráða smiöi til að inn- Hús Björgunarsveitarinnar ísólfs stendur vib Hafnargötu á Seybis- firbi. Meb tilkomu hússins ætti starfsemi félagsins ab verba mun aubveldari en veríb hefur. rétta húsið. Ein helsta tekjulind sveitar- innar er að sjá um akstur sjúkrabílsins um kvöld og helg- ar, þegar þess er óskað. Önnur veigamikil starfsemi sveitarinn- ar fer í að aðstoða vegfarendur sem leið eiga um Fjarðarheiði yfir vetrarmánuðina, en til þess notar sveitin öflugan Unimokk trukk sem hún á. Úíkurtalafrcí HUSAVIK Gefur eina millj- ón til líknarmála Krabbameinsfélag S-Þingeyinga hefur ákveðið að færa sjúkra- deild Sjúkrahússins á Húsavík 500.000 krónur aö gjöf til kaupa á hjálpartækjum. Einnig hét félagið á norðlenska hesta- menn, sem söfnubu fé meö áheitareið frá Húnavatnssýslu til Reykjavíkur á dögimum. Fé- lagiö mun gefa búnað í eina af fjómm íbúbum Krabbameinsfé- lags íslands fyrir hálfa milljón króna. íbúðir félagsins eru í Reykjavík og ætlaðar sjúkling- um utan af landi, sem þurfa aö leita sér lækninga, og aðstand- endum þeirra. Safnahúsib fékk sædjöful og slím- ál ab gjöf Framhaldsskólinn vill byggja heima- vist Nú er ljóst ab Hótel Húsavík mun ekki endurnýja samning við Framhaldsskólann á Húsa- vík um leigu á hluta hótelsins undir heimavist fyrir nemendur skólans. Skortur á heimavistar- rými stendur skólanum fyrir þrifum, þörf er fyrir byggingu heimavistar við Framhaldsskól- ann. Stjóm skólans hefur sent sveit- arfélögúm í Þingeyjarsýslu bréf, þar sem bent er á aö tímabært sé að hefja undirbúninng að byggingu heimavistar fyrir a.m.k. 50 nemendur. Skólinn óskar eftir því að sveitarfélögin fjalli um þetta mál og knýi á um byggingu heimavistar á Húsavík með ályktunum til við- eigandi stjómvalda. Jttft 1 ■j B] VESTMANNAEYJUM Safnahúsinu á Húsavík eru stöðugt að berast gjafir. Oft em þetta gamlir gripir og hinir feg- urstu. En á dögunum fékk Safnahúsið aö gjöf fyrirbæri sem em ekki beinlínis fögur, en merkileg engu að síður. Þetta vom tveir uppsettir fiskar sem áhöfnin á Akureyrinni EA 110 gaf safninu, sædjöfull og slím- áll. Sædjöfullinn (Ceratias holbo- elli) er 116 cm langur, en fiskur- inn getur mest orðið 120 cm. Þetta er sérkennilega ljótur fisk- ur, hrygna og með hálfgerða veiðistöng á hrygg meö ljósfær- um. Þetta er einhver voðalegasti kvenréttindafiskurinn í veröld- inni, hængarnir lifa eins og sníklar á hrygnimni, og fleiri en einn á hverri. Slímállinn (Myxine glutinosa) fannst fyrst við ísland árið 1977. Slímállinn er tvíkynja. Hann er illræmdur fyrir að sníkja á fiskum, t.d. í netum. Borar hann sig þá inn um rauf- ina á t.d. ýsu eba þorski og étur innyfli eða vööva. Safnahúsið er nú komið með vísi að fiskasafni, því auk þess- ara tveggja þá á safnið albínóal- ax og urriða, metfisk sem Gúst- af Guðmundsson veiddi í Litluá í Kelduhverfi. Höfubkúpa í trollib Fyrir viku fékk Baldur VE höf- ubkúpu af manni í trollið inn af Eyjum. Baldur var að toga umjjrjár mílur frá Bjamarey. Höfuðkúpan var send til Reykjavíkur til rannsóknar. Lögreglan telur ómögulegt aö segja hvort nokkurn tímann upplýsist af hverjum höfuðkúp- an er. Hópslagsmál framan vib Höfb- ann Um næstsíðustu helgi kom til hópslagsmála fyrir utan skemmtistabinn Höfðann. Að sögn lögreglu lenti áhöfn á aökomubáti í slagsmálum við hóp heimamanna. Lögreglan kom á staðinn og skakkaöi leik- inn. Fjarlægbi hún einn heima- manninn og fékk hann að gista fangageymslu lögreglunnar um nóttina. Einu eftirmálar lögregl- unnar voru að vélarhlíf á leigu- bíl dældaðist, en aðilar gengu ósárir frá orrustuvellinum. Sædjöfullinn er ekki par fríbur. M Iðvikuíagur ^STmars 'f$$4 Ökuskírteini gildir sem „grœnt kort" dagana 28.-30. mars í strœtó á Reykjavíkursvcebinu og Akureyri: Ótrúlegt en satt: frítt í strætó með ökuskírteini Gegn framvísun ökuskírteinis getur fólk ferbast frítt í öllum strætisvögnum á höfuðborgar- svæðinu og Akureyri í páska- vikunni, dagana frá 28. til 30. mars, þ.e. síbustu þrjá virka daga fyrir páskafríið. „Tilgangurinn með þessari til- breytingu er ab freista þeirra, sem að stabaldri aka í einkabílum, að sannreyna hagkvæmni og þæg- indi strætisvagnaþjónustunnar. Fyrir fjöldamarga er þetta spurn- ing um að losna úr viðjum van- ans og prófa eitthvað nýtt. Ótrú- legt en satt," segir í tilkynningu frá Almenningsvögnum bs., SVR hf. og Strætisvögnum Akureyrar. Þessa þrjá daga getur því ökuskír- teinið verib lykill að nýjum ferðamáta fyrir marga. -HEI Hœstaréttardómur í máli Þýsk- íslenska gegn ríkissjóbi: Ríkissjóöur greiöi 900 þús. í skaöabætur Hæstiréttur hefur dæmt ríkis- sjób til að greiba fyrirtækinu Þýsk-íslenska 900.000 krónur í skaðabætur, þar sem beitt hafi verið röngum abferbum við stöbvun atvinnurekstrar fyrir- tækisins 19. júní 1989. Hæsti- réttur staðfesti þann úrskurö Héraðsdóms að ríkissjóði bæri ekki aö endurgreiöa Þýsk-ís- lenska 22,5 milljóna króna söluskatt. Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu síðastliðinn fimmtudag. Aðdragandi málsins er að á árinu 1985 kom upp grunur um ab skattskyldar tekjur og eignir fyrir- tækisins væru rangt taldar fram og misfellur væru á bókhaldi þess. Mál fyrirtækisins vom enn í rannsókn, þegar ákvebib var í fjármálaráðuneytinu ab hefja hertar innheimtuaðgerðir vegna vanskila á söluskatti um allt land þann 19. júní 1989. Skyldi fyrir- tækjum skuldara lokaö fyrirvara- laust og lögtak gert um leib. í samræmi við þessa ákvöröun var Þýsk-íslenska lokað meb lög- regluvaldi ab morgni hins 19. júní 1989 meb því að húsnæði þess var innsiglað. Forsvarsmenn fyrirtækisins greiddu umkrafið sölugjald tveim dögum síbar og var innsiglið þá numib brott. Þýsk-íslenska fór fram á það fýr- ir dómi að fá endurgreiddan söluskatt sem það greiddi eftir ab rannsókn málsins hófst, þar sem lögmæt ákvörðun skattayfirvalda hafi ekki legib fyrir. Hæstiréttur hafnaði þessari kröfu og staðfesti þar meö úrskurb Héraðsdóms. í öðru lagi gerði Þýsk-íslenska kröfu um skababætur fyrir fjár- tjón og miska vegna lokunar fyr- irtækisins dagana 19.-21. júní 1989. Hæstiréttur samþykkti þessa kröfu, en Héraösdómur hafði áöur hafnab henni. í dómnum er bent á að rannsókn málsins hafi staðið yfir á fjórða ár, þegar gripið var til lokunar- innar. Eins og samskiptum aðila hafi veriö háttað heföu forsvars- menn fyrirtækisins mátt vænta þess að fá tilkynningu um lokun, ef ákveðið yrði að beita henni. Þá hafi yfirvöld brotib þá grundvall- arreglu stjómarfarsréttar ab gæta hófs í vali milli úrræða og velja vægasta úrræðið sem geti komið að gagni. Hæstiréttur taldi að hæfilegar bætur væm 900.000 kr. og var ríkissjóöi einnig gert að greiða málskostnab Þýsk-íslenska fyrir Hæstarétti. -GBK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.