Tíminn - 14.06.1994, Qupperneq 6
6
Þribjudagur 14. júní 1994
Mikil
framför í
HEJTA-
MOT
KARI
ARNORS-
SON
lag. Hann er undan Anga frá
Laugarvatni og Hrafnhettu frá
Vestra-Geldingaholti, einn af
mörgum dóttursonum Hrafns
frá Holtsmúla sem komu fram
á landsmótinu. Annar var Vík-
ingur frá Voömúlastööum með
aðaleinkunn 8.04 og þar af
8.10 fyrir hæfileika. Víkingur
er undan Sögublesa frá Húsa-
vík, sem er Kirkjubæjarhestur
að ætt.
Hæsta kynbótaein-
kunn í sögunni
Gífurlegur fjöldi hryssna
kom til dóms að þessu sinni.
Hvorki meira né minna en 30
hryssur 6 vetra og eldri nábu
einkunn inn á landsmótið. Ein
hryssa skar sig þó alveg úr í
undan Hrafnfinni frá Kvíarhóli
Hrafnssyni frá Holtsmúla og
Stjörnu frá Kvíarhóli, sem er
undan Borgfjörð 909 frá
Hvanneyri. Dísa frá Ingólfs-
hvoli fékk hæsta einkunn fyrir
sköpulag í þessum flokki 8.30.
í flokki 4ra vetra hryssna
náðu 7 hryssur landsmótsein-
kunninni 7.80, en 20 komust
inn í ættbók. Efst í þessum
flokki var Snælda frá Bakka í
Svarfaðardal, sem náði afburða
góðum árangri. Snælda fékk
fyrir sköpulag 8.20 og fyrir
hæfileika 8.30, abaleinkunn
8.25. Mig rekur ekki minni til
ab 4ra vetra tryppi hafi ábur
náð svo langt. Snælda er und-
an Gáska frá Hofstöðum og
Söndru frá Bakka Hrafnsdóttur
frá Holtsmúla, en Sandra er að
sanna sig sem ein mesta gæb-
ingamóbir landsins. Önnur var
Glás frá Votmúla með aðalein-
kunn 8.05. Glás er undan
Baldri frá Bakka, sem er sonur
Söndru og Náttfara 776, en
móbir Glásar er gæðingshryss-
an Garún frá Stóra-Hofi. Þriðja
hryssan var Prinsessa frá Úlf-
ljótsvatni með aðaleinkunn
7.92 og var hún meb hæsta
einkunn fyrir sköpulag 8.28.
Prinsessa er undan Anga frá
Laugarvatni, en hann virðist
ætla að verða drjúgur í því ab
bæta bygginguna. Fjórða hryss-
an var svo Leista frá Kirkjubæ
með 7.90 í aðaleinkunn.
Það er mjög gaman að fylgj-
ast meb því hvernig ræktunin
er aö skila sér í þessum ungu
hrossum.
Athygli vakti á þessari sýn-
ingu hve hryssur frá Kirkjubæ
komu vel út. Kirkjubæjarbúið
kom með 7 hryssur í dóm og
nábu þær allar inn á landsmót-
ið og áttunda hryssan frá
Kirkjubæ, nú í annarra eigu,
náði líka inn á mót. Markviss
þjálfun og tamning hefur verið
í Kirkjubæ í vetur í höndum
Þórðar Þorgeirssonar og kemur
þá í Ijós hve feikna árangri Sig-
urður Haraldsson hefur náð í
sinni ræktun, sem synir hans
hafa nú tekið við. Hér er mjög
verbmætur stofn á ferðinni og
ekki ólíklegt að hrossaræktend-
ur líti til þessara hrossa þegar
þeir velja sér hross til fram-
ræktunar. Það er greinilega í
vændum mikil veisla í hesta-
kosti á landsmótinu. Á næst-
unni verður reynt ab gera grein
fyrir niðurstööum forskoðunar
annars staðar á landinu.
Snillingurinn Raubhetta frá Kirkjubœ. Knapi Þórbur Þorgeirsson.
þessum hópi, en þab var
djásnið Rauðhetta frá Kirkjubæ
á Rangárvöllum. Rauðhetta er
einstakt dýr, bæbi að fegurð og
gæbum. Hún hlaut í aðalein-
kunn 8.79 og er talin hæst
dæmda kynbótahross sem
nokkru sinni hefur komið til
dóms. Fyrir sköpulag hlaut
hún 8.40, fyrir hæfileika 9.17
og hefur sem fyrr segir ekkert
hross áður fengið svo háan
dóm fyrir hæfileika. Rauðhetta
er undan Þætti 722 frá Kirkju-
bæ og Brönu frá sama stað, en
hún var undan Glóblesa 700
frá Hindisvík.
Hryssurnar, sem næst komu,
voru einnig góbar, þó þær féllu
í skuggann við hlið Rauðhettu.
Önnur í röb var Vaka frá Arnar-
hóli með 8.23 í aðaleinkunn.
Vaka er undan Kjarval frá
Sauðárkróki og Flugu frá Arnar-
hóli, sem er dóttir Ljóra frá
Kirkjubæ. Þriðja hryssan var
Löpp frá Hvammi með 8.22 í
aðaleinkunn og 8.76 fyrir hæfi-
leika. Löpp er undan Gáska
920 frá Hofstöðum, en mörg
afburba afkvæmi undan Gáska
hafa komið fram í dómum nú í
vor. Móðir Lappar er Fríða frá
Hvammi undan Sleipni 785 frá
Vatnsleysu. Þessar þrjár efstu
hryssur eru allar undan heið-
ursverðlauna-stóbhestum og
endurspegla þannig ræktun-
ina. Það vekur þó athygli, þeg-
ar skoðaður er allur hópur 6
vetra hryssnanna, hve ein-
kunnir fyrir sköpulag eru til
muna lakari en einkunnir fyrir
hæfileika. Við þessu þarf að
bregðast í ræktuninni. Alls
komust 135 hryssur í þessum
flokki inn í ættbók og þar af
náðu 81 hryssa 7.75 eöa meira
í aðaleinkunn, sem telst æski-
legt ræktunarmarkmið.
I flokki 5 vetra hryssna náðu
14 hryssur lágmarkseinkunn
inn á landsmótið, sem er 7.90.
í þessum flokki náðu 67 hryss-
ur inn í ættbók. Margar þessara
hryssna eiga vafalaust eftir að
koma fyrir dóm seinna meir.
Efst í þessum hópi var Hrefna
frá Vatnsholti með aðalein-
kunn 8.04. Hrefna er undan
heimahrossum í Vatnsholti, en
móðurafi hennar var Fáfnir
747 frá Laugarvatni. Önnur var
Eva frá Kirkjubæ, einnig meb
8.04 í aðaleinkunn. Eva er und-
an Dagfara frá Kirkjubæ og Rut
frá sama stað. Þriðja hryssan
var Freyja frá Kvíarhóli með
8.01 í aðaleinkunn. Hún fékk
8.20 fyrir hæfileika. Freyja er
ræktun
Dagana 28. maí til 4. júní
stóbu yfir dómar á kyn-
bótahrossum á Gadd-
staðaflötum við Hellu. Þessa
daga komu til dóms fleiri hross
en nokkru sinni fyrr á sama
stað, eða 463 hross. Þessi mikli
fjöldi hrossa sýnir gífurlegan
áhuga og metnað í ræktun
reiðhrossa, sem bæði á sér stað
hjá bændum og þéttbýlisbú-
um. Útkoman í dómum á þess-
um sýningum var til muna
betri nú en áður og mun hærra
hlutfall sem komst inn í ætt-
bók en á fyrri sýningum. Þab er
vísbending um miklar framfar-
ir í hrossarækt, en einnig aö
hrossaeigendur vanda sig betur
með þau hross sem koma til
dóms. Vonandi er einnig að
þeir vandi sig með þær hryssur
sem þeir setja í folaldseign.
✓
Urval stóbhesta
Framboð á stóðhestum er
orðið mikið. Á þessari sýningu
voru dæmdir 29 stóðhestar 6
vetra og eldri og af þeim fengu
fjórtán 8.05 eba meira í aðal-
einkunn og þar með fararleyfi
á landsmót. Dæmdir voru 28
hestar 5 vetra og fengu 26
fullnaðardóm og þar af tíu
hestar með einkunn 7.90 eða
meira, sem er lágmark fyrir
þennan aldur inn á landsmót-
ib. í 4ra vetra hópnum voru
dæmdir 28 hestar og þar af
fengu fullnaðardóm 22 hestar
og af þeim nábu 8 landsmóts-
einkunn 7.80. Auk þessa fengu
6 ungfolar byggingardóm.
Þetta eru samtals 91 hestur, en
það þýöir litið til landsins alls
ab stóðhestar, sem koma til
dóms á þessu ári, skipta hundr-
uðum.
Tveir efstu hestarnir í flokki 6
vetra og eldri eru báðir undan
heiðursverðlaunahestinum
Ófeigi 882 frá Flugumýri. Þab
eru Geysir frá Gerðum meb að-
aleinkunn 8.39 og Reykur frá
Hoftúnum meb aðaleinkunn
8.37. Þriðji hestur var Oddur
Kjarvalssonur frá Selfossi meb
8.36 í aðaleinkunn. Það er
ánægjulegt að af þeim 14 hest-
um í þessum floldci, sem fara á
landsmótið, þá fengu 10 hestar
yfir 8 fyrir sköpulag og þar stóð
efstur Trostan frá Kjartansstöb-
um meb 8.30. En enn sem fyrr
eru það þrír þættir, sem ábóta-
vant er í sköpulaginu hjá
mörgum hestunum, en þab eru
höfub, fótagerð og réttleiki
fóta. Hæstu einkunn fyrir hæfi-
leika í þessum flokki hlaut Þyt-
ur frá Hóli 8,69. Þytur er undan
Feyki 962 frá Hafsteinsstöðum
og Blesu frá Hóli, Hrafnsdóttur
frá Holtsmúla.
Efsti hestur í flokki 5 vetra
var Jór frá Kjartansstöðum
undan Trostan, sem fyrr er get-
ið. Hann hlaut í aðaleinkunn
8.32. Jór var með hæstu ein-
kunn fyrir hæfileika í þessum
flokki 8.69. Annar var Kol-
skeggur frá Kjarnholtum, einn
af mörgum afburðastóbhestum
þaban. Hann fékk í aðalein-
kunn 8.29. Kolskeggur er und-
an Létti frá Sauðárkróki og Kol-
brá frá Kjarnholtum, dóttur
Hrafns frá Holtsmúla. Þriðji
hestur var Þorri frá Þúfu með
abaleinkunn 8.25. Hann hlaut
hæsta einkunn allra stóðhest-
anna fyrir sköpulag 8.40. Þorri
er undan Orra frá Þúfu.
í flokki 4ra vetra hesta var
efstur Nökkvi frá Vestra-Geld-
ingaholti með aðaleinkunn
8.14 og þar af 8.20 fyrir sköpu-
Saga Páls biskups
og kirkjustjóm hans
Ut er komið ritiö Páll Jónsson
Skálholtsbiskup. Nokkrar at-
huganir á sögu hans og kirkju-
stjóm eftir Sveinbjörn Rafnsson,
prófessor í sagnfræöi við Há-
skóla íslands. Það er 33. bindi í
ritröðinni Ritsafn Sagnfræði-
stofnunar, sem Sagnfræðistofn-
un Háskóla íslands gefur út, en
ritstjóri hennar er Guðmundur
Hálfdanarson dósent.
Páll Jónsson var biskup í Skál-
holti á árunum 1195-1211 og er
í fyrsta og lengsta kafla ritsins
fjallab um sögu hans, heimildir
hennar, ritunartíma, höfund og
tilefni. Sagan sjálf, Páls saga
biskups, er þar gefin út með ís-
lenskri nútímastafsetningu.
í öbrum kafla ritsins er fjallab
um skrá þá, sem Páll biskup lét
gera um kirkjur í Skálholtsbisk-
upsdæmi laust eftir 1200, varð-
veislu hennar, fyrri rannsóknir
og hugsanlegt tilefni. Skráin er
Fréttir af bókum
gefin út eftir öllum handritum
sem gildi hafa, en hana má telja
eitt elsta íslenska staðfræðiritið
sem varðveist hefur, fyrir utan
Landnámabók.
Þá er í ritinu þýðing á páfabréfi
til íslands frá árinu 1198, í bisk-
upstíð Páls, og loks er stuttur
kafli um bagal Páls biskups eða
biskupsstaf, sem fannst í gröf
hans við fornleifarannsóknir
1954. Hann er einn glæsilegasti
rómanski listgripur, sem til er
frá íslenskum miböldum, og er
fjallað um stílsögulegt sam-
hengi hans.
Ritið er 137 blaðsíður að stærð,
myndskreytt og meb útdrætti á
ensku. Dreifingu annast Sagn-
fræöistofnun Háskóla íslands. ■
■ • * ...... Bagall.Páls-biskups.