Tíminn - 02.07.1994, Side 2
2
Laugardagur 2. júlí 1994
Kínverskir sérfrœbingar um nýtingu sjávarfangs sýna Islendingum fram á ýmsa nýja möguleika:
Vilja fá íslendinga
til að borða þörunga
Xin jia Chen kynnir niburstöbur íslandsheimsóknarinnar. Tímamynd cs
Verði skylt
aö geyma
eggíkæli
Efla ber til muna eftirlit meö
því að ákvæðum reglugerðar
um merkingu, kynningu og
auglýsingu matvæla sé fram-
fylgt á almennum neysluvör-
um, innlendum sem erlendum.
Þetta var samþykkt á 30. lands-
þingi Kvenfélagasambands ís-
lands sem haldið var fyrir
skömmu. Landsþingskonur
telja brýnt að lögfesta að ná-
kvæm vörulýsing á íslensku
skuli fylgja öllum matvörum
þ.m.t. grænmeti og ávöxtum.
Þá kemur fram í samþykktinni
að skylda beri framleiðendur
brauðs til að merkja umbúðir
með framleiðsludagsetningu.
Að skylda beri þá sem selja kjöt-
vörur til að gefa neytendum
upp rétta innihaldslýsingu á
um hvaöa vöru sé að ræöa og
þá sem framleiða, dreifa og
selja egg til að geyma þau í
kæli. ■
Uppsagnir
hjá Heklu
Hekla hf., sem lengi hefur verið
einn umsvifamesti bílainnflytj-
andi landsins, hefur sagt upp
um 20 starfsmönnum, aö því er
fram kemur í fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu.
Helstu umboö Heklu eru
Volkswagen og Mitsubishi.
Með breytingum í rekstri er fyr-
irtækið að bregðast við sam-
drætti í sölu bíla, þungavinnu-
og bátavéla sem komið hefur
niöur á fyrirtækinu.
Þá hefur deildum í fyrirtækinu
verið fækkað auk þess sem
ákveðiö hefur verið að lækka
laun stjórnenda fyrirtækisins
og komast þannig hjá frekari
uppsögnum, að því er segir í til-
kynningunni. ■
íslandsheimsókn tveggja kín-
verskra sérfræbinga í nýtingu
sjávarfangs, sem staðið hefur í tvo
mánuði, hefur opnað augu ís-
lenskra sérfræðinga fyrir ýmsum
möguleikum sem hafa ekki þekkst
hér áður. Kínverjarnir Xin Jia
Chen og Yun Zhi Zhou hafa ferð-
ast um landiö aö undanförnu og
heimsótt fyrirtæki í sjávarútvegi.
Mennirnir eru staddir hér á landi
á vegum Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins og Háskólans á Ak-
ureyri. Þeir komu hingað á sumar-
daginn fyrsta og hafa farið um
landið í fylgd með Gunnari Ólafs-
syni þörungafræbingi. Grímur
Valdimarsson, forstjóri R.F., segir
að Chen og Zhou hafi opnab
augu íslendinga fyrir ýmsum
möguleikum varðandi nýtingu
sjávarfangs sem þeir hafi ekki
þekkt áður. Meðal fyrirtækja sem
þeir hafa heimsótt er Skelfiskur
hf. á Flateyri en þar vakti kúfiskur
athygli þeirra. Kúfiskurinn er gott
dæmi um hvernig hægt er aö líta
á ólíkan hátt á sama hráefnið. Kú-
fiskur getur orðiö yfir 200 ára
gamall. Hér á landi hefur gamall
kúfiskur þótt lítils virði enda tal-
inn verba seigur meb aldrinum. í
Kína eru dýr sem verða mjög
gömul hins vegar talin búa yfir
sérstökum krafti og afurbir þeirra
eru mjög verðmætar. Kúfiskurinn
er eitt þessara dýra.
Gunnar Ólafsson þörungafræð-
ingur segir að hvað þörunga varö-
ar sé helsti árangurinn af heim-
sókn þeirra Chen og Zhou að þeir
hafi sýnt fram á að hér við land
séu þörungategundir sem hægt sé
að nýta til manneldis. „Aðalatrið-
ið er að hér er mjög gott hráefni
og ég tel líklegt að það muni
borga sig að vinna þab. Það er
enginn markaöur fyrir þörunga til
manneldis hér á landi en viðtök-
urnar sýna að það er hægt að
byggja hann upp. Chen mælir
Bíódagar ★ ★★★
Leikstjóri: Fri&rik Þór Fri&riksson
Handrit: Fri&rik Þór Fri&riksson og Einar
Már Gu&mundsson
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
Kvikmyndataka: Ari Kristinsson
A&alhlutverk: Örvar jens Arnarsson, Orri
Helgason, Rúrik Haraldsson, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Jón Sigbjörnsson, Gu&-
rún Ásmundsdóttir
Framlei&endur: Fri&rik Þór Fri&riksson,
Peter Rommel og Peter Aaæbæk Jensen
Þá hefur Friörik Þór Friðriksson
enn sannaö ab hann er kvik-
myndaleikstjóri á heimsmæli-
kvarba, en kvikmyndin Bíódag-
ar var frumsýnd í Störnubíói í
fyrrakvöld. Bíódagar er ekki
síðri mynd en Börn náttúrunn-
ar, síðasta mynd Friðriks, en
myndir þessar eru um margt
líkar en þó ólíkar.
Bíódagar greina frá stuttu
tímabili í ævi Tómasar, tíu ára
íslensks drengs, árið 1964.
Sögusvið myndarinnar er ann-
ars vegar Reykjavík og hins veg-
ar sveitin í Skagafirði. Áhorf-
endur fylgjast með Tómasi, sem
á einu sumri gengur í gegnum
menningarleg átök milli borg-
arsamfélags í mótun annars
vegar og kyrrstæðs sveitasælu-
þjóbfélags hins vegar. Bíó og
Kanasjónvarpið er sú dýnamík
sem drífur áfram hugmynda-
flug og heimssýn Reykjavíkur-
drengjanna, en þegar Tómas
kemur í sveitina kynnist hann
drifkraftinum sem býr í þjóð-
sögum og ævintýraheimi sögu-
þjóöarinnar. í Bíódögum tekst
Friöriki að tefla þessu tvennu
saman með sérstaklega
skemmtilegum hætti, en kímni
og næmi fyrir hinu spaugilega í
tilverunni er mjög áberandi
einkenni á myndinni.
Þemað er gamalkunnugt, átök
sveitar og borgar, og gengur að
vissu leyti aftur frá því í Börn-
um náttúrunnar þar sem líka
verður vart við þessa trega-
blöndnu hlýju í garð sveitar-
meb því ab við byrjum á fram-
leiðslu fyrir innanlandsmarkað
og förum síðan fljótlega að reyna
fyrir okkur á heilsumörkuðum í
Evrópu og Bandaríkjunum. Mér
finnst þetta skynsamleg ráðlegg-
innar. Raunar gengur þetta
þema enn lengra aftur og Frið-
rik Þór gerir sér far um ab skír-
skota aftur til sögu Indriða G.
um Land og syni, en í þeirri
mynd lék Indriði einmitt prest,
rétt eins og hann gerir meö
ágætum líka í Bíódögum. Þetta
er því hið stóra samhengi í
söguþræðinum. Sjálf sagan er
hins vegar einföld og fjallar um
strák í Reykjavík sem á venju-
lega fjölskyldu og er sendur í
sveit til föburbróður síns í
Skagafiröi. Hann er sendur á
„ættaróðalið", að „kynnast stab
sem mér er kær" eins og pabbi
hans orðaði þab í myndinni.
Öll tilþrif, persónusköpun og
umgjörðin í lífi Tómasar mótast
af eins konar raunsæisstefnu,
sem gengur svo langt ab mynd-
in í heild sinni hlýtur að hafa
mikið gildi sem heimilda- og
kennslumynd um líf barna- og
unglinga á íslandi fyrir 30 ár-
um. En þab er líka þetta ofur-
raunsæi með óteljandi trúverö-
ugum og ljúfsárum myndum úr
fortíöinni, sem gefur myndinni
sjarma, stíl og tilgang.
Umgerö myndarinnar er góð
og sama má segja um leik leik-
aranna. Sérstök ástæða er til aö
ing enda er erfitt að reyna fyrir sér
erlendis ef maður hefur ekkert í
höndunum." Gunnar segir að áð-
ur en Chen og Zhou haldi heim-
leiðis verði skrifað undir viljayfir-
lýsingu um frekara samstarf við
rannsóknir. Hann segir að Chen
telji æskilegt að næsta skrefib
verði ab íslenskir sérfræðingar
endurgjaldi heimsókn þeirra og
fari til Kína til að styrkja persónu-
leg tengsl og miðla upplýsingum.
„Hann tekur með sér ýmis sýni,
m.a. þörungasýni, bæði til að at-
huga gæði þeirra sem matvæla og
sýni af kvoðuefnum í þörungum.
Eins fer hann með ígulkerahrogn
til vinnslu á lyfjum, þorsk- og
lúöuheila, sundmaga, lýsi og
fiskimjöl. Þetta er sem sagt bæði
vannýtt sjávarfang eins og þör-
ungar og heilar úr fiskum og eins
hefðbundnar afurðir sem ætlunin
er að athuga hvort hægt sé að
finna nýjan markað fyrir." Gunn-
ar segir að Chen og Zhou hafi lýst
yfir áhuga á að stofna fyrirtæki á
Islandi sem yrði í eigu bæði ís-
lendinga og Kínverja. Hann segir
að viðræður um það muni halda
áfram þótt þeir fari af landi. ■
nefna góðan leik Örvars Jens
Arnarssonar, sem leikur Tómas,
þótt allir skili sínum hlutverk-
um vel, en atvinnuleikarar eru í
flestum þýöingarmiklum hlut-
verkum. Einnig má nefna, að
öbrum aðstandendum ólöstuð-
um, að handritsgerð þeirra Frib-
riks og Einars Más Guðmunds-
sonar afsannar að þar liggi veik-
leiki í íslenskum kvikmyndum
og tónlist Himars Arnar veldur
ekki vonbrigðum.
Veikleiki myndarinnar er e.t.v.
sá að atburðarásin er hægari en
gengur og gerist í bíómyndum
nú til dags, einkum framan af.
Hins vegar eykst dramað og
myndin nær sér vel á strik þeg-
ar Tómas er kominn í Skaga-
fjörðinn. Endirinn er sterkur
þar sem myndin frýs á mynd-
ramma þar sem Tómas hreint
og beint starir á hvíta tjaldið.
Baráttu menningarheimanna
um Tómas litla er lokið með
sigri bíósins og borgarinnar á
þjóðsögunum og sveitinni.
Myndin sem drengurinn er að
horfa á gefur fyrirheit um
menningu framtíðarinnar:
„The Crawling Hand" eða
„Höndin skríðandi".
Birgir Guðmundsson
Auglýsing
um starfslaun listamanna til 3ja ára
Þeir einir koma til greina við veitingu starfslauna sem
búsettir eru í Reykjavík og að öðru jöfnu skulu þeir
ganga fyrir sem ekki geta stundað listgrein sína sem
fullt starf. Listamennirnir skuldbinda sig til að gegna
ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfslauna.
Starfslaunin verða kunngerð á afmælisdegi Reykjavík-
ur, hinn 18. ágúst, og hefst greiðsla þeirra 1. septem-
ber eftir tilnefningu.
Umsóknum um starfslaunin skal skila menningarmála-
nefnd Reykjavíkurborgar, að Kjarvalsstöðum, fyrir 1.
ágúst n.k.
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar.
Laugardalshreppur
Staða skólastjóra við leikskólann á Laugar-
vatni er laus tíl umsóknar. Fóstrumenntunar
er óskað.
Ráðningartími er frá 1. september 1994.
Laun samkvæmt launakjörum Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga.
Skriflegar umsóknir berist oddvita Laugar-
dalshrepps fyrir 31. júlí 1994.
Oddviti Laugardalshrepps.
Bíódagar reynast bíósigur
Úr Bíódögum. Tómas klórar frænda sínum á bakinu í sveitinni.