Tíminn - 02.07.1994, Síða 3
Laugardagur 2. júlí 1994
3
Spáö í hross á landsmóti hestamanna ígcer.
Leibrétting
I umfjöllun um landsmótið í
gær var Sigríður Pétursdóttir,
sem var í fyrsta sæti í for-
keppni unglinga, sögð hafa
hlotið 8,36 í einkunn. Hið
rétta er að hún hlaut einkunn-
ina 8,63. Einnig misritaðist
einkunn Hnokka frá Húsanesi
hann fékk 8,59 í einkunn en
ekki 8,99 eins og sagt var í gær.
Þá er einnig beðist velvirð-
ingar á því aö stóðhesturinn
Galsi frá Sauðárkróki er í
myndatexta sagöur vera á
fljúgandi tölti, en eins og þeir
vita sem til gangtegunda
þekkja, var Galsi þarna á fljúg-
andi brokki. ■
Síöari hluti forkeppni í úrvalstölti:
Hafliöi heldur
forystunni
Hafliði Halldórsson, á hryss- l.Hafliði Halldórsson
unni Nælu frá Bakkakoti, /Næla/Fákur 104,76
hélt forystunni í úrvals- 2. Sigurbjörn Bárðarson
tölkeppni Flugleiöa á lands- /Oddur/Fákur 103,56
mótinu á Gaddstaðaflötum. 3.Vignir Siggeirsson
Forkeppninni lauk á /Þyrill/Geysir 98,04
fimmtudagskvöld. Nokkrar 4. Halldór Q. Viktorsson
breytingar urðu frá röðun í /Hörður/Gustur 92,76
efstu sæti á þriðjudag. Á eftir 5. Sveinn Jónsson
Hafliða og Nælu er Sigur- /Tenór/Sörli 92,40
björn á Oddi, en Sveinn og 6. íris Björn Hafsteinsdóttir
Tenór eru í fimmta sæti. /Gleði/Gustur 90,84
Úrslitakeppnin fer fram á 7. Sigvaldi Ægissson
íþróttavellinum í kvöld, en /Börkur/Fákur 89,64
verðlaunaafhending fer fram 8. Höskuldur Jónsson
strax að henni lokinni. Mikill /Þytur/LéttFr 88,44
áhugi hefur verið fyrir úrvals- 9. Kolbrún Jónsdóttir
töltinu, en þetta er í fyrsta /Vaka/Geysir 87,60
skiptið sem keppt er í þessari 10. Erling Sigurðsson
grein hérlendis. /Össur/Fákur 87,24
Engin verb-
lækkun í
Skaftafelli
„Ég býst viö ab næturgestum
hér í Skaftafelli geti fækkab um
eitthvab á annab þúsund
manns meb tilkomu ódýrari
þjónustu í Svínafeili," segir
Stefán Benediktsson, þjóbgarb-
svörbur í Skaftafelli, Öræfum,
um þá frétt Tímans í gær ab
tvær íslenskar ferbaskrifstofur
hafi flutt bækistöbvar sínar í
sveitinni ab Svínafelli, ekki síst
vegna þess ab þjónustan þar sé
ódýrari en í Svínafelli.
„Þab stób til ab hafa gjaldib fyr-
ir gistinguna óbreytt á milli ára
en þegar virbisaukaskatturinn
bættist vib um síbustu áramót
ákvaþ, Náttúruyyndarráb ab
hækka gistinguna úr 400 í 450
krónur," segir Stefán sem býst
ekki vib ab gjaldib í Skaftafelli
verbi lækkab í kjölfar þess ab gist-
ing á tjaldstæbi í Svínafelli kostar
350 krónur.
„Hingab hafa komib um 30 þús-
und manns yfir sumarib og í
sjálfu sér er þab ekkert endanlegt
markmib þjóbgarbsins ab selja
gistingu, starfsemin hér mibast
fyrst og fremst vib náttúruvernd
og fræbslu. Þótt næturgestum
fækki dálítib hér í Skaftafelli kem-
ur þab ekki mjög ab sök, þótt
auðvitað sé enginn ánægbur meb
ab tapa vibskiptum," segir Stefán
Benediktsson þjóbgarbsvörbur. ■
Landsvirkjun og lcenet:
Samið um könn-
un á hagkvæmni
Samningur milli Landsvirkj-
unar og Icenet-hópsins um
athugun á hagkvæmni út-
flutnings raforku um sæ-
streng til Hollands var und-
irritaður í gær. Skal athug-
uninni og mati á niöurstöð-
um hennar vera lokið innan
15 mánaða og má útlagður
kostnaður vegna hennar
ekki fara fram úr 78 milljón-
um íslenskra króna miöaö
viö núverandi gengi. Heild-
arkostnaður viö athugunina
veröur mun hærri, eöa allt
aö 234 milljónir króna, aö
því er haft er eftir fram-
kvæmdastjóra Icenet-hóps-
ins.
Icenet-hópinn mynda
Reykjavíkurborg og þrjú hol-
lensk fyrirtæki, N.V. NUON,
N.V. EPON og NKF Kabel B.V.
og gerðu þessir aðilar með sér
samning um samstarf og at-
hugun á hagkvæmni útflutn-
ings á raforku um sæstreng og
einnig um að hrinda slíku
verkefni í framkvæmd, væri
slíkt talið hagkvæmt. Rúmu
ári eftir að sá samningur var
gerður, eða í desember sl., lágu
niðurstöður frumkönnunar
fyrir og var þá ákveðið að ráð-
ast í annan áfanga verkefnis-
ins, hina eiginlegu hag-
kvæmniathugun. Samkvæmt
þeim samningi sem nú liggur
fyrir tekur Landsvirkjun þátt í
hagkvæmniathuguninni
ásamt Icenet og lætur einkum
til sín taka rannsóknir á fram-
boði á vatnsafli á íslandi. Jafn-
framt mun Landsvirkjun eiga
fulltrúa í þeim vinnuhópum
Icenet sem fjalla um umbreyti-
stöðvar og flutningslínur, þró-
un, lagningu og rekstur sæ-
strengsins, svo og í vinnuhópi
sem fjallar um möguleika á
umbreytingu og aðlögun út-
fluttrar raforku að orkukerfi
Hollands og markaðssetningu
vistvænnar raforku í Hollandi
og Evrópu.
Landsvirkjun ber beinan og
óbeinan kostnað af þátttöku
eigin starfsliös í hagkvæmniat-
hugun þessari, á sama hátt og
aðilar Icenet-hópsins. Af út-
lögöum kostnaði greiðir
Landsvirkjun 20%.
Meöan á hagkvæmniathug-
uninni stendur er Landsvirkj-
un skuldbundin til að hefja
ekki samstarf við nýja aðila
um aðra möguleika er varöa
útflutning á raforku án sam-
þykkis Icenet-hópsins á meb-
an athugunin fer fram, og er
sú skuldbinding gagnkvæm.
Af hálfu Icenet-hópsins und-
irrituðu samninginn Tob
Swelheim, stjórnarformaður
N.V. NUON, og Jaap Sukkel,
framkvæmdastjóri Icenet, en
af hálfu Landsvirkjunar Jó-
hannes Nordal stjórnarfor-
maður og Halldór Jónatansson
forstjóri.
Viögerö ofnsins í Járn-
blendiverksmiöjunni
gekk samkvœmt áœtlun:
Aftur fram-
leitt á fullu
á Grundar-
tanga í næstu
viku
Cœöastjórnun felst í nákvcemri skráningu á öllum þáttum er áhrif hafa á
vörugœöin, þ.á.m. frágangi og merkingum.
Smásölupakkn-
ingar á neytenda-
markaö
HB hf. hefur haft forystu á meö-
al íslenskra frystihúsa í fram-
leibslu frystra fiskafurba fyrir
smásölumarkaöinn í V.-Evrópu.
Þessi vinnsla er vandasöm og
gerir miklar kröfur til vöru-
gæöa, tækni í vinnslu og réttra
vinnubragba í frágangi og allri
þjónustu vib vibskiptavinina.
HB framleibir hrabfrystar þorsk-,
karfa- og ufsaafurbir í 300 og 400
g pökkum. Mebal kaupenda hing-
ab til eru dótturfyrirtæki Unile-
ver, sem er stærsta matvælafyrir-
tæki í Evrópu. Nýlega er hafin
vinnsla á pakkningum undir ICE-
LANDIC merkinu og , mikil,
áhersla er lögb á markabssetningu
þessara afurba hjá dótturfyrirtæki
SH í Frakklandi.
Árib 1993 hóf HB vinnslu á laus-
frystum karfaflökum í eins kílós
plastpokum fyrir þýska kaupend-
ur og er sú vinnsla orbin fastur
libur í starfsemi fyrirtækisins.
Þessar vikurnar er verib ab mark-
abssetja lausfrystar afurbir á sama
hátt undir ICELANDIC merkinu í
Frakklandi. Fiskiskammtar, svo-
kallabir demantar, hafa verib
fluttir út til Hollands og Belgíu sl.
fjögur ár. Fyrsta sending af þess-
um afurbum er ab fara til Frakk-
lands um þessar mundir. ■
Vibgerb er nú lokib í öllum ab-
alatriðum á ofninum sem bilaöi
í Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga fyrir um tveim
mánuðum. Viðgerðin gekk að
segja má samkvæmt áætlun.
Bretarnir sem fengnir voru til
þess að hlaða upp fóðringuna
fóru fyrir viku og þessa dagana
er verið að þurrka hana. Áætlað
er að framleiðsla hefjist í ofnin-
um á ný í næstu viku, sam-
kvæmt upplýsingum Guðlaugs
Hjörleifssonar, verkfræðings á
Grundartanga.
Aðspurður hvort einhverjar
áætlanir væru um endurnýjun
hins ofnsins í Járnblendiverk-
smiðjunni, segir Guðlaugur
enga ákvörðun hafa verið tekna
þar um. „Enda ekkert sem segir,
að af því að annar ofninn hafi
bilað núna þá hljóti hinn aö
gefa sig eftir mánuð, eftir ár,
eöa eitthvað því um líkt." Auö-
vitað verði fylgst með báöum
ofnunum, eins og ávallt hafi
verið gert. En ekki hafi orðið
vart neinnar langtímaþróunar
sem bent gat til þessarar bilun-
ar. Óhapp eins og þetta veröi
bara fyrirvaralaust, og af ein-
hverjum ástæðum sem erfitt sé
um að segja.
„Svona hlutir geta gerst eftir
skamman tíma, ellegar að fóðr-
ingin endist áratugum saman.
Þetta er eins og með flesta hluti,
að þeir geta bilað. En það er
ekki neinn ákveöinn lífstími,
sem hægt er að fullyrða um.
Þetta er ekki neitt sem hægt er
að segja um; nú er ofninn orð-
inn þetta gamall og þá er fóðr-
ingin aö verða ónýt," sagði
Guðlaugur Hjörleifsson. ■