Tíminn - 02.07.1994, Side 7

Tíminn - 02.07.1994, Side 7
Laugardagur 2. júlí 1994 7 Ný vitneskja um áhrif ósoneybingarinnar Washington, Reuter Síðustu tvo áratugina hefur ósonlagiö stöbugt verið að þynnast, en vísindamenn eru þó ekki á eitt sáttir um hvort þetta sé aðeins tímabundin sveifla. Ósónlagið gleypir, sem kunn- ugt er, í sig skaðvaenlega út- fjólubláa geisla og myndar þannig verndarhjúp um jörð- ina. Vísindamenn á vatnarann- sóknarstofnun Kanada birtu síðastliöinn föstudag í tímarit- inu Science greinargerð um nýjar rannsóknir á áhrifum út- fjólublárra geisla á vistkerfi vatna. Niðurstöðurnar benda til þess að aukning á skaðvæn- legustu gerð útfjólublárra geisla geti skaðað fiska og valdið truflunum á fæðukeðju í vötnum. Skammtímarannsóknir höfðu áður sýnt fram á að út- fjólublátt ljós hægir á vexti þörunga, sem eru mikilvægur liður í fæðukeðjunni, bæði í sjó og ferskvatni. Rannsóknin fór fram sumrin 1991-1993. Rannsakaður var vöxtur þörunga og vatnamýs í og við South Thompson-ána í Bresku Kólumbíu. Á sýnin voru settar síur, sem hleypa í gegnum sig ljósi af mismun- andi bylgjulengd. Auk þess voru þau þakin pólýstýren- froðu, sem átti að gera það að verkum að lífverurnar fjöl- guðu sér jafn mikið og þær hefðu gert í ánni. Fyrstu þrjár vikurnar virtust útfjólubláir B-geislar hafa lítil áhrif á þörungavöxtinn, en út- fjólubláu A-geislarnir drógu úr vaxtarhraöanum. Eftir 35 daga var lítið um þör- unga í sýnum sem höfðu orðið fyrir A-geisiunum eingöngu, en þau sýni, sem fengu enga útfjólubláa geislun, voru full af þörungum. Mest kom þó á Norska dagblaöið Aftenpost- en greindi frá því í gær ab ný- skipaður sendiherra íraks í Noregi hefði ábyrgst að dauða- dómar tengdir máli rithöfund- arins Salmans Rushdie giltu ekki fyrir Norðmenn í Noregi. Sendiherrann kom þessu til skila í bréfi til Björns Tore Godal, utanríkisráðherra Nor- egs. Þetta framtak Iraka er svar vib kröfu norska utanríkisráðu- neytisins um að lífi norskra borgara verbi ekki ógnað vegna aftökuskipunar Kho- meinis erkiklerks, þegar hann lýsti Rushdie réttdræpan þar sem til hans næðist, vegna bókarinnar Söngvar satans. óvart að þörungamagnið í sýnum, sem höfðu orðið fyrir báðum tegundum útfjólu- blárra geisla, var hvorki mjög lítið né mjög mikið. Vatnamýið varð þó fyrir miklu skaðvænlegri áhrifum af B-geislunum en þörungarn- ir. Og eftir því sem mýinu fækkaöi, fjölgaði þörungun- um. Það virðist því sem útfjólu- Norskum yfirvöldum þykja bob sendiherrans tvíræð. Út- gefandinn William Nygaard, sem varð fyrir árás eftir að hafa gefið út norska þýðingu Söngvanna, segir ab það væri rangt að álíta vandamálið leyst þrátt fyrir yfirlýsingu ír- akanna. Næsta mál Norðmenn hafa áhyggjur af því að líf annars rithöfundar sé í hættu. í dag gengur Odd- var Lægreid, fyrsti sendiráðs- ritari norska sendiráðsins á Indlandi, á fund utanríkisráð- herra Bangladesh til að fá upp- lýsingar um mál rithöfundar- blátt ljós geti haft skaðvænleg áhrif á vistkerfi vatna, jafnvel þótt þörungavöxturinn sé eðlilegur. Aukning útfjólu- blárra B-geisla, sem fylgir í kjölfar ósonþynningarinnar, getur valdið keðjuverkun, sem gengur í gegnum fæðukeðjuna og gæti á endanum valdið fækkun í fisktegundum sem lifa á vatnamýi. ins Taslima Nasrin, sem farið hefur huldu höfði undan- förnu vegna morðhótana. Það þykir til marks um þab hve Norðmenn líta málið al- varlegum augum, að þetta háttsettur diplómat skuli vera settur í að kanna það. Norska stjórnin vill að stjórn- völd í Bangladesh tryggi ör- yggi Nasrin, en lífi hennar hef- ur verið ógnab eftir að hún lýsti því yfir að íslömsk trú væri kvenfjandsamleg. Læ- greid mun óska eftir því að Nasrin fái leyfi til að fara úr landi, til að geta tekið þátt í ráðstefnu í Stafangri um tján- ingarfrelsi. Mikill vill meira: Eigandi Sky vill kaupa Vox Dusseldorf, Reuter Rupert Murdoch vill eignast tæpan helming hlutabréfa í þýsku sjónvarpsstöðinni Vox, sem hefur átt í fjárhagserfið- leikum og farið fram á greiðslustöðvun. Tilkynning þessa efnis barst frá eftirlitsmönnum um eign- arhald fjölmiðla í Þýskalandi í gær. í tilkynningunni er sagt að Vox-sjónvarpsstöðin hafi sótt um leyfi til að selja 49.9% hlutafjár fyrirtæki í eigu Ru- perts Murdoch. Verið er að fara yfir umsókn- ina og óvíst hvenær endan- legrar ákvörðunar er að vænta. Aðrir hluthafar í Vox eru meðal annarra Bertelsmann AG, umsvifamesta fjölmibla- fyrirtæki Þýskalands. ■ Flugslys í Máritaníu Nouakchott, Reuter Flugvél í eigu Flugfélags Máritaníu fórst í lendingu innanlands á föstudag. Vélin, sem var af gerðinni Fokker 28 í eigu Air Maurit- anie, var í innanlandsflugi, á leið frá höfuðborginni Nou- akchott til Tidjikja þar sem hún fórst í lendingu árla morguns á föstudag. Fyrstu fréttir herma að allir sem með vélinni voru, 80 far- þegar og áhöfn, hafi farist þeg- ar eldur gaus upp í vélinni eft- ir að hún brotlenti. ■ Daubadómar tengdir Salman Rushdie ógildir í Noregi Bridge UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Noröurlandamótiö í bridge: Glæsilegur sigur íslenska landslibið í opnum flokki sýndi svo sannarlega hvers þab er megnugt á Norburlandamótinu sem fór fram í vikunni og lauk í Vasa, Finnlandi, í gær. íslendingar sigrubu glæsilega og fengu 186,5 stig en Norbmenn urbu abrir meb 167 stig. Spiluð var tvöföld umferð og unnu íslendi'ngarnir alla leiki sína í fyrri umferð, Dani 19-11, Færeyinga 23-7, Finna 18,5: 10,5 og Norðmenn 20-10. í seinni umferð byrjuðu þeir hins vegar fremur illa og sigr- ubu Færeyinga aðeins 16-14 en síðan fylgdi sigur á Dönum, 17-13 og stórsigur á Finnum, 25-5. Tveir síðustu leikirnir fóru fram í gær og voru þá Sví- ar teknir 25-5 en leikurinn gegn Norömönnum tapaðist 14-16. Árangur liðsins er sérlega glæsilegur því Norðurlanda- þjóðirnar hafa verið í mikkil sókn undanfarið og þá einkum Norðmenn sem hafa meðal annarra norska "undrabarnib" Helgemo í sínum röðum. Sigurliðið var skipaö Jóni Baldurssyni, Sævari Þorbjörns- syni, Matthíasi Þorvaldssyni, Jakobi Kristinssyni og Karli Sigurhjartarsyni fyrirliða sem spilaði ekki. Kvennalandslibinu gekk hins vegar illa og fékk liðið aðeins 82 stig tapaði öllum sínum leikjum nema einum. Danir sigruöu eins og búist var viö í kvennaflokki með 183 stig, Finnar urðu aðrir og Svíar í þriðja sæti. Tímanum hefur ekki borist spil úr NM 1994 en Þórður Sig- fússon gaukaði spili að um- sjónarmanni úr „Bridgetidn- ingen" '92 þar sem Sven- Olaf Flodquist skrifaöi um eitt fal- legasta spil mótsins. „Á NM 1992 „völtuðu" ís- lendingar hreinlega yfir Dani í sjöundu umferð. Eftir 14 spil höfbu þeir meira en 80 impa yfir og enn jókst munurinn og þar meb varð sigurinn í mót- inu nánast rábinn. Sævar og Karl fengu fegurðarverölaun mótsins fyrir eftirfarandi spil úr fyrri hálfleik, (sjá til hægri). Suður varð sagnhafi í fjórum spöðum og Sævar og Karl sátu í AV. Sævar silaði út lauftvisti, átta, nía, gosi. Sagnhafi fór í blindan á hjartaás og spilaði * 972 y ÁT8 * 53 * ÁT865 A C6S N A ÁK V KD76432 V A V G5 ♦ 87 S 4 DT642 * 2 * D974 + DT843 V 9 4 ÁKG9 + KG3 trompi sem Karl fékk á kóng- inn. Karl vissi að hann gæti gefið makker stungu í laufi, en sýndist sem það væri bara ekki nóg, svo hann spilaði tígli. Suöur tók á ás og kóng og meiri tígul. Nú gat Sævar aubvitað tromp- að, en hann sá einfaldlega ekki nema einn slag í viðbót, trompásinn, þannig að hann henti hjarta. Suður hélt nú að spilið væri unnið og trompaði í borði, trompaði síðan hjarta heima til að spila aftur tígli. En nú var komið að Sævari að taka á trompgosann, því nú gat hann sent makker inn á trompásinn með hjartatromp- un og þá loks tekið stunguna í laufi. Bráðsnjallt!" (Söguskýring Þórðar fylgir spilinu en hann telur ab for- senda þess að Flodquist fari svo fögrum orðum um spila- mennsku íslendinganna, sé að Danir fengu á baukinn í þessu spili. Annars hefbi máliö verið öðruvísi vaxið.) Bikarkeppni BSÍ Fyrstu umferð Bikarkeppni BSÍ jón Baldursson fremstur á mebal jafningja og nýkrýndur Norburlandameistari í bridge. er nú lokið. Áður óbirt úrslit eru eftirfarandi: Sveit Roche, Reykjavík, vann sveit Halldórs Aspar, Sand- gerði, 127-63. Sveit Karls G. Karlssonar, Sandgerði, vann sveit Þrastar Ingimarssonar, Kópavogi, 89- 60. Sveit Ólafs Steinasonar, Sel- fossi, vann sveit Brynjars Ol- geirssonar, Tálknafirði, 120-67. Sveit Estherar Jakobsdóttur, Reykjavík, vann sveit L.A. Ca- fé, Reykjavík, 93-33. Sveit Sigmundar Stefánssonar, Reykjavík, vann sveit Gunnars P. Hallgrímssonar, Höfn, 152- 52. Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar vann sveit Haraldar Sverisson- ar, Reykjavík, 176-58. Sveit Georgs Sverrissonar, Reykjavík, vann sveit Þórólfs Jónssonar, Húsavík, 144-78. Búið er ab draga í abra umferb og spila eftirtaldar sveitir sam- an: Georg Sverrisson, Rvík,- Gubmundur Ólafsson, Akranes Sparisjóður Keflavíkur, Subur- nesjum- Karl. G. Karlsson, Sandgerði Sigmundur Stefánsson, Rvík,- Jósep smiður, Reykjavík Anna ívarsdóttir, Rvík.-Glitnir, Reykjavík óuðjón Stefánsson Borgar- nesi-Magnús Magnússon, Ak- ureyri Björn Theódórsson, Rvík- Landsbréf Rvík. FBM, Rvík-Ólafur Steinason, Selfossi SPK, Rvík.-S. Ármann Magnús- son, Rvík VIB, Rvík-Sparisjóður Siglu- fjarðar Dan Hansson, Rvík- Trygg- ingamibstöbin, Rvík. Halldór Sverrisson, Rvík-Birgir Ö. Steingrímsson, Rvík. Hjólbarbahöllin Rvík-Roche, Reykjavík Ragnar T. Jónsson, ísafirði- BSH, Húsavík Gunnarstindur, Stöbvarfirði- Kjöt og fiskur, Hafnarfirbi Esther Jakobsdóttir, Rvík-Eb- varb Hallgrímsson, Bessastaba- hr. Halldór Svanbergsson, Rvík- Agnar Arason, Rvík. Úrslit silfurstiga- móts BSÍ Laugardaginn 25. júní var fyrsta silfurstigamót sumarsins haldib í Sigtúni 9. Staba efstu para: 1. Óli Gunnars.-Eyjólfur Magnús. 293 2. Ragnh. Nielsen-Hjördís Sigurj.d. 292 3. Björn Theódórs.-Sig. Þorsteins. 284

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.