Tíminn - 24.08.1994, Blaðsíða 1
SIMI
631600
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
78. árgangur
Miðvikudagur 24. ágúst 1994
156. tölublað 1994
Svar viö fyrirspurn um sumarfrí borgarstjóra:
Hefur sama rétt og
fyrri borgarstjórar
„Gera veröur ráð fyrir að launa-
deild og starfsmannahald borg-
arinnar sé fullfært um að af-
greiða orlofsmál þessara tveggja
einstaklinga í samræmi við þær
reglur og venjur um þau mál
sem gilda í borgarkerfinu," segir
í svari borgarstjóra við fyrir-
spurn borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um sumarleyfi
borgarstjóra og aðstoðarmanns
hans.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
spurðu hvort borgarstjóri og aö-
stoðarmaður hans hefðu sent
skriflega tilkynningu um launa-
laust leyfi til starfsmannahalds
borgarinnar þann tíma sem þær
voru í sumarleyfi. í svarinu kem-
ur fram að slík tilkynning hafi
ekki verið send, enda hafi starfs-
mannastjóra, sem öðrum, verið
ljóst að umræddir starfsmenn
voru í sumarleyfi. Borgarstjóri
hafi væntanlega sama rétt og
fyrrverandi borgarstjórar og að-
stoðarmaður hans sama rétt og
aðrir opinberir starfsmenn. ■
Landssamband sauöfjárbœnda á aöalfundi:
Óbreyttur kvóti
Frá |óni Danielssyni, fréttaritara Tím-
ans í Hrútafirbi:
Aðalfundur Landssambands
sauðfjárbænda að Reykjum í
Hrútafirði samþykkti í gær
Vel gengur aö ráöa
kennara alls staöar á
landinu:
Leiðbein-
endum
fækkar
enn
Tiltölulega vel hefur gengið
að ráða í kennarastöður fyrir
skólaárið sem hefst í næsta
mánuði alls staðar á landinu.
Hlutfall kennara meö réttindi
hefur hækkað undanfarin ár
og ber flestum saman um að
það veröi svipaö eöa hærra í
ár en það var í fyrra.
Á fræðsluskrifstofum landsins
fengust þær upplýsingar að bú-
ið væri að ráöa í flestar kennara-
stöður þótt víða eigi enn eftir
að ganga frá ráðningu stunda-
kennara í einstakar greinar.
Hlutfall kennara með réttindi
hefur víðast hvar hækkað und-
anfarin ár og þótt nákvæmar
tölur liggi ekki fyrir varðandi
næsta skólaár telja flestir að það
verði svipað eða hærra en í
fyrra. Hlutfallið er lægst í Vest-
fjarðaumdæmi eöa um 65-70%
en þar hefur það samt hækkað
mikið frá því fyrir nokkrum ár-
um þegar um helmingur var
með réttindi. Á Norðurlandi
vestra er hlutfalliö um 72-73%
og hefur verið það frá árinu
1991 þegar það hækkaði um
heil tíu prósent á milli ára. Á
Austurlandi, Suburlandi og
Vesturlandi er hlutfall kennara
með réttindi á bilinu 80-90%
og alls staðar hefur leiðbein-
endum fækkað ár frá ári. Á
Reykjanesi manna kennarar
með réttindi flestar stöbur í öllu
umdæminu. ■
að mæla með óbreyttum
framleiðslurétti fyrir haustið
1995, þrátt fyrir þá hækkun
greiðslumarks sem Tíminn
greindi frá í gær.
Fari landbúnaðarráðherra að
tillögum fundarins verður
þannig úthlutað alls 7.400
tonna framleiðslurétti til
bænda fyrir verðlagsárið 1995-
1996.
Þessi tala er óbreytt frá þeim
framleiðslurétti sem gildir nú í
haust þótt reiknað greiðslu-
mark hafi hækkað um 150
tonn á milli ára. Ástæðan fyrir
þessari tillögu fundarins er
einkum sú að kjötbirgðir eru
enn of miklar, þótt þær hafi
minnkað um 100 tonn frá því
í fyrra. Fundurinn var raunar
ekki sammála um þessa niður-
stöðu. Karl Sigurður Björns-
son, bóndi í Hafrafellstungu í
Öxarfirði, lagði til að úthlutað
yrbi 7.500 ton'num, en breyt-
ingartillaga hans var felld með
8 atkvæðum gegn 19. ■
Um þessar mundir er veríb ab vinna vib dcelustöbina íÁnanaustum í Reykjavík, en eins
og kunnugt er hefur mikib átak stabib yfir f frárennslismálum borgarinnar undanfarin misseri. Hér má sjá Hösk-
uld Eyfjörb vib vinnu sína í góba vebrinu ígcer og ekki er annab ab sjá en honum faríst smíbin býsna vel úr
hendi. Tímamynd C S
Otvegsmenn og ráöherrar funda á Akureyri um framhald úthafsveiöa í Barentshafi. Fulltrúum sjómanna ekki boöiö:
Úthafsveiöar virðast
vera einkamál útgerba
Stjóm LIÚ, útgerðarmenn út-
hafsveiðiskipa ásamt utanrík-
isráðherra og sjávarútvegsráð-
herra hittast á sameiginlegum
fundi um framtíð fiskveiöa í
Barentshafi á Akureyri í dag,
klukkan 10. Athygli vekur aö
á fundinn var ekki boðaður
neinn fulltrúi frá hagsmuna-
samtökum sjómanna.
Óskar Vigfússon, formabur Sjó-
mannasambands íslands, segir
að það sé hálfskrýtið, svo ekki sé
meira sagt, að forystumönnum
sjómanna skuli ekki hafa verið
bobiö ab fylgjast meb úthafs-
veiðifundinum sem fram fer á
Akureyri í dag. Hann segir ab
samkvæmt því virðist sem sjó-
menn eigi engra hagsmuna að
gæta varðandi úthafsveiðarnar,
en hátt í 500 sjómenn eru í
áhöfnum úthafsveiðiskipanna
þar nyrðra. Óskar segir ab þegar
á reyni, virðist sem það séu að-
eins útgerðarmenn sem standi í
eldlínunni í Barentshafi, þótt
stjórnmálamenn og aðrir láti
einatt í veðri vaka ab þar séu
líka sjómenn.
Sveinn H. Hjartarsson, hag-
fræbingur LÍÚ, segir ab fundur-
inn á Akureyri sé stjórnarfundur
LÍÚ og á þann fund hafi verið
boðaðir fulltrúar útgerða út-
hafsveiðiskipa til skrafs og ráða-
geröa ásamt ráðherrum utanrík-
ismála og sjávarútvegar. Hann
býst við að fundinn muni sitja
40 - 50 manns, en hann verbur
haldinn í Alþýðuhúsinu þar
nyrðra.
Á þessum fundi munu útvegs-
menn krefja ráðherrana m.a.
svara um hvers sé ab vænta af
hálfu stjórnvalda varöandi út-
hafsveiðarnar, réttarstöðu ís-
lendinga á Svalbarðasvæðinu og
hvort vísa eigi fiskveiðideilunni
til Alþjóðadómstólsins í Haag
eða reyna enn frekar að fá Norð-
menn að samningaboröinu.
Auk þess er viðbúið að menn
muni skiptast á skoðunum um
það hvort Islendingar eigi að
marka sér ábyrga fiskveiðistefnu
í Barentshafi með því að ákveða
einhliða hversu mikið þeir eigi
að veiða þar af þorski til að
koma í veg fyrir ofveiöi. Þá er
líklegt að meðal útgerbarmanna
úthafsveiðiskipa veröi rætt
hvort hagsmunum þeirra sé bet-
ur borgib með stofnun sérstakra
samtaka. Ab sama skapi er vib-
búið að á fundinum verbi reifuð
sú hugmynd hvort reyna eigi
enn frekar á réttarstöðu Norð-
manna á Svalbarðasvæðinu
með því að senda þangað togara
til þess eins að láta Norðmenn
taka hann og færa til hafnar. ■