Tíminn - 03.09.1994, Qupperneq 4

Tíminn - 03.09.1994, Qupperneq 4
4 ttMmi STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 105 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmi&ja Frjálsrar fjölmiölunar hf. Mána&aráskrift 1400 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 125 kr. m/vsk. Samskipti ríkis og sveitarfélaga Þaö vakti nokkra athygli á þingi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga sem nú er nýlokiö aö félags- málaráöherra lýsti yfir þeirri stefnumörkun aö al- mennt eigi tekjustofnar sveitarfélaga aö vera rúm- ir. Ráöherra sagöi m.a. um þetta mál í ræöu sinni á þinginu: „Þar er engin þörf á gólfi, og þakiö á aö liggja hátt. Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum eiga aö hafa svigrúm til skattlagningar og bera ábyrgö á þjónustu og framkvæmdastigi og standa og falla meö þeim ákvöröunum á fjögurra ára fresti. Valdi fylgir ábyrgö, þannig er lýöræöiö." Þessi orö ráöherrans bera vott um stefnubreyt- ingu í félagsmálaráðuneytinu. Þaö eru ekki nema nokkrir mánuöir síðan lágmarksútsvarsálagning var lögfest á Alþingi aö frumkvæöi Jóhönnu Sig- uröardóttur, forvera Guðmundar Árna. Væntan- lega hefur sú lagasetning átt að samræma nokkuð útsvarsálagninguna hjá einstökum sveitarfélögum og koma í veg fyrir mikið misræmi. Þetta mál snertir almennt samskipti ríkis og sveit- arfélaganna og er þaö álitamál hvað ríkið á aö reka mikla forsjárhyggju gagnvart sveitarfélögunum. Þaö er æskilegt að svigrúm sveitarfélaganna sé sem mest, en þó verður ekki hjá því komist að ríkis- valdiö setji ákveðnar viðmiðanir í hinum ýmsu málaflokkum til þess aö koma í veg fyrir mjög mis- munandi kjör þjóðfélagsþegnanna. Þetta er og hefur veriö deilumál, en félagsmála- ráöherra hefur þarna boðað mjög veigamikla breytingu í frjálsræðisátt fyrir sveitarfélögin, og hann hefur þá um leið í raun lýst því yfir að aö- gerð ríkisstjórnarinnar í vor aö setja löggjöf um 8.4% lágmarksútsvar hafi verið óþörf. í samskiptum ríkis og sveitarfélaga er nauðsyn aö trúnaður ríki. Misbrestur hefur verið á slíku, og nú virðist enn eitt deilumáliö vera upp komið milli ríkisvaldsins og sveitarfélaganna. Gert var ráð fyr- ir aö 600 milljóna króna greiðsla sveitarfélaga í At- vinnuleysistryggingasjóö, sem var framhald af svokölluðum „löggukskatti", yrði ekki innheimt á næsta ári. Félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra skrifuðu undir samning um þetta mál fyrir síöustu áramót. Ekki hafa komið afdráttarlaus svör um þaö frá ríkisstjórninni hvort efna eigi samninginn, og látiö hefur veriö aö því liggja að innheimta eigi einhvers konar gjald áfram. Sveitarstjórnarmenn sáu ástæöu til þess aö samþykkja um þetta sérstaka ályktun á þingi sínu á Akureyri, þar sem sagt er aö ekki komi til greina aö framlengja greiðsluna. Þaö kann auövitaö ekki góöri lukku aö stýra aö sí- fellt sé verið aö efna til nýrra árekstra milli ríkisins og sveitarfélaganna. Af því leiðir vont andrúmsloft í samskiptum, en þaö er aldrei nauðsynlegra en nú aö þau séu meö skikkanlegum hætti. Fram undan eru veigamiklir samningar við ríkið um flutning grunnskólans, tilraunasveitarfélög og um áfram- haldandi verkefnatilfærslu. Þaö skiptir afar miklu máli aö vel takist til og allar þessar breytingar verði til farsældar. Sífelldir árekstrar í tengslum viö gerö fjárlaga mega ekki setja þær í voða. WlHÍIHI Laugarda'gUt 3‘. septéitibeH994 Birgir Cuömundsson, skrifar: Svart/hvítar hetjur Talsverð umræða hefur í vik- unni spunnist um rekstur ríkis- útvarpsins í kjölfar samantektar sem ungir sjálfstæðismenn kynntu og afhentu fjármálaráð- herra og kölluöu „svart/ hvítan" lista yfir vel og illa rekin ríkis- fyrirtæki. Hér verður ekki lagður dómur á þau vinnubrögð sem ungir sjálfstæðismenn viðhöfðu við gerö þessa lista enda hefur undirritaður ekki kynnt sér það aö neinu gagni. Hins vegar vakna óneitanlega ýmsar spurn- ingar þegar menn fara að velta fyrir sér tilganginum með svona reikniæfingum og sú sem fyrst vaknar er að sjálfsögöu sú hvort ungir sjálfstæbismenn séu ekki meb þessa uppákomu eingöngu til ab vekja athygli á sér. For- maðurinn vilji fyrst og síðast slá pólitískar keilur í innanflokks- framapoti og jafnvel í leiöinni vekja athygli á einhverjum fundum sem framundan eru. Fyrir okkur sem vinnum hér á Tímanum, blaði sem orðað hef- ur veriö við félagshyggju, komu fréttir af svart-hvíta listanum nokkub á óvart þrátt fyrir ab flestir fjölmiðlar aörir en Tím- inn (nema e.t.v. ríkisfjölmiðl- arnir) virðist hafa verið boðaðir til kynningarfundar um málið þar sem ráðherra var afhentur listinn. Óhjákvæmilega fær maður það á tilfinninguna að nærveru Tímans hafi ekki verib óskað þegar fagnaðarerindi sjálfstæðisdrengjanna var boð- ab. Það er þá svipab og hjá Benny Hinn sem bannaði öðr- um en réttrúuðum fjölmiðlum aögang að trúarsamkomunni í Hafnarfirði á dögunum enda efasemdarmenn til þess eins fallnir að varpa skugga á dýrð málstaðarins. Bobskpurinn opinberabur Morgunblaðið og Stöö 2 sáu hins vegar um að upplýsingarn- ar streymdu frá pólitískri trúar- vakningu SUS til landsmanna og satt ab segja hljóta menn að setja spurningamerki við þá umfjöllun sem Stöð 2 hafði af þessu máli. Enginn velktist í vafa um að þessir tveir miðlar voru í hlutverki Omega fyrir ungliðatrúbobið, enda tengsl SUS við Moggan vel þekkt og formaður SUS gegnir trúnabar- störfum í Menningarsjóði út- varpsstöbva fyrir Stöð 2. Þessi augljósu tengsl SUS inn á Stöb 2 gefa ein og sér tilefni til þess að menn tortryggi niburstöður SUS um ab Ríkisútvarpið sé óal- andi og óferjandi fjölmiðill hvað reksturinn varðar. Slíkum efasemdum var þó ekki fyrir aö fara í fréttum Stöðvarinnar af málinu og sú stabreynd að fréttastofan marg tuggði sömu hlutina úr þessum svart/hvíta lista í fréttatímum sínum án allra fyrirvara veldur óneitan- lega vonbrigðum. Vonbrigðin verba sínu meiri vegna þess að þessi fréttastofa hefur gefið út ab hún líti hagsmunatengsl svo alvarlegum augum ab frétta- maður beinlínis var rekinn fyrir að taka sæti í stjórn fyrirtækis- ins fyrir hönd starfsmanna. Þá var talaö um — að hugsanlega gætu einhverntíma í framtíð- inni skapast hagsmunaárekstrar milli fréttamannsins og stjórnar fyrirtækisins. Að bera síðan á borð sem hinn endanlega sann- leik yfirlýsingar formanns SUS, sem reynist líka vera fulltrúi Kristján 55S i\ »•> V, ímorgun j : m J X augWs óðturi' bitV 1» Keflavikur strákar - siá bls. 26 Lánþegum fiölgaráný Ríl JSZ.5T 'rnr : P Veltafyrírsér í Stöbvar 2 í Menningarsjóði, um slæman rekstur hjá RÚV er auð- vitab ekkert annab en hjákát- legt. En þó fréttastofa Stöðvar 2, sem rekur fólk fyrir hugsanleg hagsmunatengsl, virki kindar- leg í þessu svart/hvíta SUS máli þá er ekki þar með sagt að ekkert geti verið athugavert við rekstur Ríkisútvarpsins og þá hug- myndafræði sem RUV byggir á. Hallæris viöbrögb RÚV Ríkisútvarpiö er vissulega gagnmerk stofnun sem lands- menn eru flestir mjög ánægðir með og þess vegna var þab ekki síður hallærislegt ab heyra hvernig sú stofnun brást við SUS skýrslunni. Að fá fjármála- stjóra RÚV í viðtal í RÚV til að spyrja hann hvort RÚV væri nokkuö illa rekið, eru full „sov- éskir" tilburðir til að hljóma sannfærandi á íslandi! Sannleik- urinn er auðvitað sá ab þaö er löngu tímabært ab hefja skyn- samar umræbur um hvar og hvernig Ríkisútvarpiö getur afl- að sér tekna. RÚV er í bullandi samkeppni á auglýsingamark- aðinum og það sem RÚV tekur til sín á þeim vettvangi fer ekki til annara fjölmiðla. Hlutverk ríkisútvarpsins er ab standa vörð um menningalega fjöl- miðlun og tryggja að lands- menn hafi abgang að góðu út- varps- og sjónvarpsefni á ís- lensku. Öryggishlutverk Rúv er auðvitað eitthvað en trúlega of- metið á seinni árum. Enginn dregur í efa að Ríkisútvarpið sinnir þessum skyldum sínum. Hins vegar er spurning hvort ekki sé hægt aö sinna þessu með ódýrari hætti og hvort sú stað- reynd að risastofnun eins og rík- isútvarpið hafi ekki á umliðnum árum sölsað til sín svo stóran hluta af tekjumöguleikum ann- ara fjölmiðla í krafti öflugs dreifingarkerfis og nefskatts að RÚV sé beinlínis að vinna menningarlega skemmdar- verkastarfsemi og vinni þar með gegn skilgreindu hlutverki sínu. Slík skemmdarverkastarfsemi fælist þá í því ab þessi ríkisfjöl- miðill tekur undir sig gríðar- stóra sneið af heildar auglýs- ingatekjum fjölmiðla sem þýöir ab minna er til skiptanna fyrir abra og fjölmiðlaflóran fátæk- legri og blaðamennskan veikari. Umræöan á rétt á sér Svart-hvítir listar frá ungum sjálfstæðismönnum eru þó tæp- lega sá grundvöllur sem hægt er að byggja á umræbu um hlut- verk og skyldur Ríkisútvarpsins. Frjálshyggjumenn undangeng- inna ára og markaðsséníin í SUS hafa haft það fyrir eftirlætisiðju lengi að sparka í RÚV. Þau spörk hafa hins vegar verið ungæð- ingsleg og mörkuð hugmynda- fræðilegum trúarsetningum, þannig að það eitt aö selja eða leggja niður ríkisútvarpið hefur orðið að eins konar lausnarorði í mannkynsfreslun ungra sjálf- stæðismanna. Umræðan um umgengni ríkis- fjölmiðla um auglýsingamark- aðinn á engu að síbur erindi, því hún er að öbrum þræði um- ræba um frjálsa fjölmiðlun og möguleika fjölmiðlunar í land- inu almennt. Þegar eru dæmi — átakanleg dæmi — um úrræði sem blöö, tímarit og útvarps- stöðvar grípa til í því skyni aö ná sér í auglýsingar. Eitt slíkt var til umfjöllunar í DV í gær þar sem pólitískir samningar viö Hafnarfjarðarkrata virðast hafa ráðið því að Alþýðublaðið gat klippt út auglýsingar úr öbrum blöðum frá Hafnarfjarðarbæ, og birt án þess að biðja sérstaklega um leyfi. Slík vinnubrögð eru sem betur fer einsdæmi og krat- arnir hafa enn einu sinni brotiö blað og að þessu sinni ljáð orð- inu „sjálftökulið" nýja merk- ingu. Samkvæmt einhæfum mælikvörðum markabshyggj- unnar á svart/hvítum SUS list- um myndi þessi sjálftaka vænt- anlega flokkast undir „góban rekstur" því verið er að ná fjármagni inn í fyrirtækið. Það skyldi þó aldrei vera ab Ámundi Ámundason, fram- kvæmdastjóri Alþýðublaðsins með meiru, verði á endanum svart/hvíta hetjan ungra sjálf- stæðismanna. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.