Tíminn - 03.09.1994, Síða 9

Tíminn - 03.09.1994, Síða 9
Laugardagúr 3. septémber 1994 ftímiim 9 Starfsfólk Þjóbleikhússins samankomib á abalsvibi í upphafi ieikárs. Leikhúsin í Reykjavík kynna vetrardagskrána / Borgarleikhúsinu hófst leikárib meb „opnu húsi" á laugardaginn fyrir viku og var myndin tekin vib þab tœkifœri. Stofnanaleikhúsin í höfuð- borginni hafa kynnt vetrar- dagskrár sínar og veröa fyrstu frumsýningar leikársins í þessum mánuöi í þeim báð- um. Borgarleikhúsið ríður á vaöið meö frumsýningu á Galdra Lofti 10. september en óperan Vald örlaganna verð- ur frumsýnd í Þjóðleikhúsinu 17. september. Tvær frumsýningar verða síðan 22. september. Þá sýnir Borgar- leikhúsið gamanleikinn Leyni- mel 13 eftir Emil Thoroddsen, Harald Á. Sigurðsson og Indriða Waage, en í Þjóðleikhúsinu verður sýnt leikrit Guðbergs Bergssonar, Sannar sögur af sál- arlífi systra. Það verk var reynd- ar sýnt tvisvar sinnum á Lista- hátíð í sumar. Hvað um Leónardó? heitir nýr slóvenskur gamanleikur sem Borgarleikhúsið hefur sýningar á í október. Leikstjóri er Hall- mar Sigurðsson en meöal leik- enda eru Bessi Bjarnason, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Ari Matthíasson og Magnús Ól- afsson. Söngleikurinn Kabarett er viðamesta sýning Borgarleik- hússins á þessum vetri. Sýning- ar hefjast í janúar. Leikstjóri er Guðjón Pedersen, en með aðal- hlutverk fara Edda Heiðrún Backmann og Ingvar E. Sigurðs- son. Nýtt finnskt leikrit um sekt og skyldu, ást í meinum og grimmd velferðarríkisins, eins og segir í kynningu, veröur frumsýnt í Borgarleikhúsinu í mars. Heimur svörtu fiðrild- anna er titill verksins en það er gert eftir sögu eftir Leenu Land- er sem tilnefnd var til bók- menntaverðlauna Norður- landaráðs á liðnum vetri. Borgarleikhúsið sýnir tvö ný ís- lenzk leikrit á leikárinu. í nóv- ember hefjast sýningar á Ófælnu stúlkunni eftir Anton Helga Jónsson. Þetta er leikrit fyrir börn og unglinga, eldri en 12 ára, segir í kynningu. Leik- stjóri er Hlín Agnarsdóttir en meðal leikenda eru Árni Pétur Guðjónsson og Sigrún Edda Björnsdóttir. Frumsýning á Framtíðardraug- um eftir Þór Tulinius verður í mars. Höfundur er leikstjóri en leikurinn gerist í Reykjavík árið 2009 og fjallar um atvinnuleys- ingja sem gefast upp á því að stunda glæpi og bregða á það ráð að opna miðilsstofu. Meöal leikenda eru Jóhanna Jónas, Björn Ingi Hilmarsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Árni Pétur Gubjónsson og Ellert A. Ingi- mundarson. Vald örlaganna er stærsta verk- efni Þjóðleikhússins á leikárinu, en gildi leikverka fer ekki alltaf eftir umfanginu. Dóttir Lúsifers heitir einleikur þar sem Bríet Héðinsdóttir fer með hlutverk dönsku skáldkonunnar’Karenar Blixen, en leikurinn gerist á lokaskeiði ævi hennar. Leik- stjóri er Hávar Sigurjónsson. Barnaleikrit Þjóðleikhússins á þessu leikári er Snædrottningin, sem gert er eftir samnefndu æv- intýri eftir H.C. Andersen. Fjöldi leikenda tekur þátt í sýn- ingunni, ma. Hilmir Snær Guðnason og Álfrún Örnólfs- dóttir, en leikstjóri er Andrés Sigurvinsson. Sýningar á Snæ- drottningunni hefjast í októ- ber. Jólaleikrit Þjóðleikhússins er Fávitinn eftir Dostojevskí. Þrír finnskir leikhúsfrömuðir starfa við uppsetninguna. Leikstjór- inn heitir Kaisa Korhonen en meöal leikara eru Helgi Skúla- son, Gunnar Eyjólfsson, Stein- unn Ólína, Halldóra Björns- dóttir og Baltasar Kormákur. Taktu lagið, Lóa! er gamanleik- ur eftir Jim Cartwright, höfund Strætisins. Leikendur eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Pálmi Gestsson, Hilmar Jónsson, Ragnheiður Steindórs- dóttir og Róbert Arnfinnsson, en leikstjóri er Hávar Sigurjóns- son. Af öðrum verkum sem Þjóð- leikhúsið setur á svib í vetur skal telja söngleikinn West Side Story, þar sem Marta Halldórs- dóttir fer með aðalhlutverk, og Stakkaskipti eftir Guðmund Steinsson. Þetta er nýtt verk, en persónurnar eru hinar sömu og voru á ferð í Stundarfribi fyrir fimmtán árum. Sögusviöið er nútímasamfélagib í skugga at- vinnuleysis og samdráttar, að því er segir í kynningu. Leik- stjóri verður Stefán Baldursson en sýningar á Stakkaskiptum eiga ab hefjast í apríl. Um sömu mundir verður frumsýnt nýtt þýskt verk, Ferando Krapp sendir mér bréf. Höfundur er Tankred Dorst. Leikstjóri verður María Kristjánsdóttir en Hall- dóra Björnsdóttir fer með aðal- hlutverk. ■ Bridqe UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Bikarkeppni BSÍ: Sveit S. Ármanns í úrslit Sveit S. Ármanns Magnússonar vann nauman sigur á sveit Landsbréfa um síbustu helgi og er því fyrst sveita komin í 4-sveita úrslit. Leikurinn fór 105-102 og eins og tölurnar bera meb sér var gríbarlega hart barist. Sveit S. Armanns skipa Jakob Kristinsson og Matthías Þorvaldsson og Sveinn R. Eiríksson og Hrannar Jónsson. Fimmti mabur er Ragnar Hermannsson. Þess má geta ab í síbustu umferb sló S. Ármann hina sterku sveit VÍB út og eru þeir því vel ab því komnir ab spila í úrslitunum. Sumarbridge 1994: Lárus stigahæstur Nú er óbum farið að styttast í Sumarbridge 1994 en þar hefur þátttaka farið vaxandi síðustu vikur og margir sterkir spilarar eru farnir að láta sjá sig. Gamla kempan Lárus Hermannsson er að heita má öruggur um að verða stigahæsti spilari sumars- ins en Páll Bergsson og Erlend- ur Jónsson koma honum næst. Talan 13 hefur löngum verið sveipub álögum í huiga hjátrú- arfullra og betra ab fara varlega þegar hún á í hlut. Þess hefði sagnhafi betur minnst í spili 13, miðvikudagskvöldið 25. ágúst: Norður gaf og allir voru á hættu. Þannig gengu sagnir: (sjá spilið t.h) Norbur Austur Subur Vestur pass lgrand pass 2V* pass 24 pass 2 grönd pass 3 grönd allir pass Útspil:*S (fjórba hæsta) Sagnhafi bab um lítib spil í borbi og suður setti áttuna. Sagnhafi var fljótur að setja ní- una en gleymdi að hann var að spila spil númer 13. Næst kom spaði á kóng sem norður dúkk- aði eölilega, þá tígull á ás og meiri spaði sem norbur drap. Norður spilaði síban laufi og drottning austurs fékk ab eiga slaginn. Austur reyndi nú í ör- væntingu ab spila upp á ab tí- Gubmundur Páll Arnarson, fyrr- verandi heimsmeistari og bridge- kennari, heldur síbasta námskeib sumarsins í Sigtúninu í dag. gullinn brotnaði 3-3 og tók tígulás og spilaði meiri tígli. NS áttu tvo laufslagi, tvo tígulslagi og einn hjartaslag vísan og spiliö fór tvo niður. Ef sagnhafi setur laufdrottn- inguna en ekki níuna í fyrsta slag nást 4 slagir á spaða, tveir á lauf, tveir efstu í tígli og ní- undi slagurinn kemur alltaf á hjarta eða tígul. í upphafi skyldi endinn skoða. Silfurstigamót BSÍ: Jón og Sævar öruggir Síðasta tvímenningsmóti BSÍ var spilað sl. laugardag og tóku 26 pör þátt í mótinu. Jón Bald- ursson og Sævar Þorbjörnsson unnu með nokkrum yfirburö- um en hart var barist um næstu sæti. Staða 5 efstu: 2. Gubm. Páll Arnarson- Þorlákur Jónsson 3. Sigurður Sverrisson-Jón Hjaltason 4. Jakob Kristinsson-Júlíus Sigurjónsson. 5. Kristín Giðbjörnsdóttir- Björn Arnórsson. Kennsla í Sigtúni: Eins dags námskeið fyrir keppnisspilara í dag, laugardaginn 3. septem- ber kl. 13.00, verður haldið í Sigtúni 9 eins dags námskeið fyrir keppnisspilara. Þesssi kennsla hefur staðið yfir reglu- lega í allt sumar og hafa þátt- takendur verib mjög ánægðir. í dag verður tekiö fyrir eftir- farandi: 1. Upprifjun á Lebensohl og Rubensohl með dæmum: 2. Grandinnákomur og svör við þeim (fjórar lykilstöður. 3. Skilgreining á doblum; sekt, úttekt eða lýsandi. 4. Útspil og útspilsdobl. Einnig veröa spiluð 12 æfinga- spil úr efninu. og ekki er skil- yrði ab mæta í pörum. Þátt- tökugjald er kr. 1.000 á spilara og sími skrifstofu BSÍ er 619360. Rétt tímasetning Suður gefur; allir 4 8642 V Á43 ♦ KDG 4 432 N S 4 ÁKS V KDG ♦ ÁT96 4 ÁKG Subur Vestur Norbur Austur 3 grönd pass 6 grönd pass pass pass Útspil: VT Eflaust myndu nútímaspilarar segja öbruvísi á spilin en fyrir tæpum 30 árum þegar spilið kom fyrir í Englandi. Niður- staðan er þó líkleg til aö verða sú sama, 6 grönd í suður eftir ab norður sér fram á a.m.k. 33- 35 hápunkta samlegu. Hvernig er best að spila? Það eru 11 toppslagir í spilinu og tveir möguleikar á þeim tólfta, annað hvort meö lauf- svíningu eða ef spaðinn er 3-3. Spurningin er hvor leiðin skuli hafa forgang. Til að mynda ef sagnhafi reynir laufsvíninguna fyrst og hún gengur ekki, fer samningurinn alltaf í sjóinn, þótt spaðinn brotni 3-3. Því er rétt að reyna spaðana fyrst meö því ab spila litlum spaða frá báðum höndum. Með þessi móti hefur sagnhafi vald á litnum. Seinna tekur hann ÁK í spaba og ef liturinn brotnar 3-3 eru 12 slagir í húsi. Ef ekki er alltaf hægt að prófa laufsvíninguna. Allt spilið: 4 DT7 V T987 ♦ 542 4 D96 4 8642 V Á43 ♦ KDG 4 432 N V A S 4 G93 V 652 ♦ 763 4 T875 4 ÁK5 V KDG ♦ ÁT96 4 ÁKG

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.