Tíminn - 03.09.1994, Side 10

Tíminn - 03.09.1994, Side 10
10 ■^rr- QDfHiH Laugardagur 3. september 1994 Bændur stunda skóg- rækt í vaxandi mæli jón Loftsson skógrœktarstjóri. S trúlega stórstígar fram- farir og breytingar hafa orbib í skógrækt hér á landi síöustu fimm árin. Má þar nefna að plöntuframleiðsla hef- ur vaxið stórlega, farið úr einni og hálfri milljón á ári í sex milljón plöntur sl. ár. Land- græðsluskógaátakið, sem hófst fyrir þrem árum, er orðið að þjóðarvakningu. Á vegum Hér- aösskóga eru gróðursettar ár- lega um milljón plöntur og áð- ur en margir áratugir líða verð- ur Upphérað að miklu leyti vaxið samfelldum skógi. Bænd- ur víða um land vinna að skóg- rækt í stórum stíl. Félög, fyrir- tæki og einstaklingar í þús- undatali leggja skógrækt lið með fjárframlögum og vinnu. Það er því ekki úr vegi að taka þann mann tali, sem mesta yf- irsýn hefur um framkvæmdir í skógrækt nú og í næstu fram- tíð. Jón Loftsson skógræktar- stjóri svarar nokkrum spurn- ingum fyrir Tímann. ■ Hvab er framundan hjá Skógrækt ríkisins á allra næstu árum? „Meginverkefnin eru að sjálf- sögðu að halda áfram því, sem viö erum að gera, og gera að- eins betur. Það eru miklar breytingar að eiga sér stað ein- mitt núna. Ein er sú að bændur eru í mjög vaxandi mæli farnir að taka þátt í skógrækt, og ég held að sú þróun haldi áfram og er líklega lengst komin hér á Héraði í sambandi við verkefni Héraösskóga. Nú er unnið aö því að koma á svipaðri áætlun annars staöar og nú þegar er stunduð nytjaskógrækt á bú- jörðum víða um land, þó það sé ekki í jafn stórum stíl og ekki á nákvæmlega sömu for- sendum og Héraðsskógaáætl- unin er. Þetta þýðir um leið breytingar fyrir Skógrækt ríkis- ins. Henni er lögð sú skylda á herðar að sjá um áætlanagerð, eftirlit og fræöslu varðandi þessar framkvæmdir, eða þaö sem ég hef kallað skógarþjón- ustu Skógræktar ríkisins. Það kemur til með að veröa miklu víðtækara verkefni hjá Skóg- ræktinni í framtíðinni, þó ég hafi þá trú að enn um langt skeiö verði Skógrækt ríkisins líka að vera öflugur fram- kvæmdaaðili. Við höfum yfir ab rába mörgum af helstu skóglendum landsins. Við höf- um fagfólk, við höfum þekk- ingu og eigum að baki 90 ára sögu í skógrækt, þannig ab auðvitað verða skógræktar- menn að leita í smibju til Skóg- ræktarinnar um framkvæmdir og þar viljum við vera reiðu- búnir til aðstoðar. Ég skipti gjarnan starfsemi okkar í þrjá geira. Það er í fyrsta lagi það sem ég kalla fram- kvæmdadeildir, sem eru skógar- varðaumdæmin sem sjá um skóglendin og gróbrarstöðvar og sinna framkvæmdum. Þar með talið er móttaka ferba- manna. Þaö hefur orbib mikil áherslubreyting á síbustu árum í því að opna skógana. Þaö verö- ur annaö hlutverk ríkisskóganna, sem eru jú eign okkar allra, að sjá til þess aö allir hafi aö þeim Viötal vib \ón Loftsson skóg- rœktarstjóra greiðan aögang og geti dvaliö þar aö vild. Annar hluti okkar starfs er skógarþjónustan, sem er hugs- uð þannig að í hverjum lands- fjórðungi verði starfandi skóg- ræktarrábunautur. Þeir eru nú þegar hér á aðalskrifstofu á Eg- ilsstöðum, á Mógilsá og ég vona ab á þessu ári taki einn til starfa fyrir Norburland og strax á næsta ári einn fyrir Suður- land. Þeir sinna fyrst og fremst áætlanagerð og eftirliti meb rík- isstyrktri nytjaskógrækt á bú- jöröum, meðfram því að vinna fyrir skógarverði Skógræktar- innar. Þetta álít ég mjög mikils- verðan þátt. Ég sé þessa skóg- ræktarráðunauta í nánu sam- starfi vib búnaðarsamböndin, en samstarf Skógræktar ríkisins og búnabarsamtakanna hefur verib með ágætum. Skógræktar- ráðunautar sinna fræbslu og leibbeiningum fyrir almenning í landshlutanum. Þriðji þátturinn er svo rann- sóknir. Þeirra hlutverk er að tengja þetta allt saman og þær eru sá grunnur sem allt starfið byggist á. Þar eigum við mjög öflugt lib við rannsóknarstöð- ina á Mógilsá. Þaban fara sér- fræðingar og stunda rannsóknir í tilraunareitum okkar, sem eru um allt land. Einmitt þessvegna eru þetta dýrar rannsóknir, því þeim fylgja mikil ferðalög og kostnabur. Þetta er ramminn sem við störfum eftir og ég álít að rannsóknir, skógarþjónustan og þab að gera skóglendin aö- gengileg fyrir alla verði stærra hlutverk í framtíðinni en verið hefur. Áherslan hefur lengst af verið á framkvæmdum og því eru til þessir ungskógar sem við eigum núna." ■ Hve stór eru þau svæbi sem talin eru vænleg til skógræktar og hvaba teg- undir henta best á hverju fyrir sig? „Áður en ég svara þessari spurningu vil ég ræða um þab hvernig viö skiptum gjarnan skógræktinni í þrjá mismun- andi þætti, þ.e. nytjaskógrækt, landgræðsluskógrækt og úti- vistarskógrækt. Þetta eru hug- tök sem hafa fest í hugum manna, en ég hef sjálfur verib að reyna ab koma því á aö þetta verði kallab einu nafni fjöl- nytjaskógrækt. Landgræðslu- skógur, sem upphaflega er ræktabur til að byggja upp og binda jarbveg, getur seinna orðib útivistarskógur og jafnvel enn síðar og jafnframt nytja- skógur. Hallormsstabarskógur er gott dæmi um þetta. Hann var í upphafi þessarar aldar ab- eins fáir hektarar, en síðar var hann friöaður og var náttúran lengi vel látin sjá um stækkun- ina. Þab tekur auðvitað lengri tíma. Hann var síðan og er not- aður til útivistar og nú er þetta orðinn nytjaskógur. Þar er unn- inn borðviður, arinviður og í skjóli birkiskógarins eru ræktuð jóíatré. En að því er varðar þetta með vænlegustu svæði fyrir skóg- rækt, þá hefur verið gerð úttekt sem liggur fyrir í skýrslu land- nýtingarnefndar. Hún byggir á gögnum sem Haukur Ragnars- son skógarvörður gerði, þar sem hann leggur fyrst og fremst veðurfarslega þætti til grund- vallar, hitastig og úrkomu. Þannig mat hann hversu stór svæði það væru þar sem við gætum ræktað mismunandi skóga. Og þaö liggur aiveg Ijóst fyrir aö við getum ræktaö skóg hvar sem er á ísiandi. En timbur- skóg ræktum við á miklu minni svæðum. Stærsta samfellda nytjaskóga- svæöið er á Suöurlandi. Fljóts- dalshérað er stórt svæði, svo og innsveitir í Eyjafiröi og inndalir á Norður- og Vesturlandi. Á Suburlandi höfum við miklu minni reynslu í skógrækt en t.d. á Héraöi. Þó að veðurfars- legar forsendur séu taldar heppilegar þar, þá er sú reynsla, sem við höfum, fengin undir hálendisbrúninni í Haukadal, Laugardal, Þjórsárdal. Þab eru vissulega allt önnur skilyrði þegar kemur niður á sléttuna, í Flóa og þar niður frá, þar sem vindur gnauðar. Vindálagið er kannski erfibasti þátturinn sem við er að berjast í upphafi. En það er líka bara upphafsþáttur. Þegar við höfum byggt upp skjól með skjólbeltum, á ég von á að draumurinn rætist um að stærsti samfelldi skógur lands- ins verði á Suðurlandsundir- lendinu. Svo er þetta alltaf spurning um landnytjar. Þab er verib að nýta þetta land á annan hátt í dag. Beitin er vissulega einn sterkasti landnýtingarþátturinn ennþá. Þab er líklegasta eitt- hvert það gleöilegasta, sem gerst hefur hér í tengslum við Héraðsskógaáætlunina, ab við erum að ná því markmiði að Fljótsdalshérað veröi friðað að mestu leyti frá fjöru til fjalls. Innan þessa friðaða svæðis hafa menn sinn búsmala, hver sem hann er, í girtum hólfum, en landinu er að stærstum hluta ráðstafab til skógræktar. Og þá er þab ab náttúran hjálpar okk- ur mikib. Hér eru stór svæbi þar sem er ab vaxa upp náttúrlegur birkiskógur, en víðikjarr kemur í votlendisjöðrum. Þetta verður til þess, ásamt hinum plantaða Hérabsskógi, ab gera heildar- myndina af Héraðinu miklu eðlilegri og vinalegri en gerist þar sem eingöngu er um að ræða ræktaðan skóg í beinum röðum. Þessi náttúrlega upp- græðsla verður vegna þess ab við erum búin ab ná tökum á beitarmálunum. Þannig munu verba til mjög skemmtileg skóglendi á Héraði." ■ Hverjar eru aðaltegundir trjáa fyrir hvern landsfjórb- ung? „Það er mismunandi eftir landsháttum. ísland er stórt land meb ólíkar aðstæður. Trjá- tegundir til ræktunar hér sækj- um vib víösvegar að af norð- lægum slóðum á hnettinum. Ég get nefnt hér abaltegundir fyrir hvert svæði. Hér á Hérabi hefur lerki frá Rússlandi verið aðal- tegundin fram ab þessu, en ler- kið er frumherji og inn í það viljum vib blanda öðrum teg- undum sem njóta þá skjóls af lerkinu. Á Suðurlandinu er sitkagreniö abaltegund. Þab þarf mikla úrkomu. Á Vestur- landi er þab stafafura sem hefur verið hvab vænlegust, hún er nægjusamari en grenið. Sem aðaltegund fyrir Norðurland væri það kannski það sem við köllum sitkabastarð, sem er blendingur af sitkagreni og hvítgreni. Hann þarf ekki eins mikinn raka og sitkagreni, en er nægjusamari hvað varðar jarð- veg. Það passar mjög vel um mörg svæði fyrir norðan. En auðvitab teljum við að þetta verði allt meira og minna blandaðir skógar, þegar tímar líða. Það er aðeins spurning um ab byrja með rétta tegund til að mynda skjól, en þegar það er komið er ekkert í veginum fyrir því ab aðrar og kröfuharbari tegundir komi á eftir." ■ Og þá er þessi spennandi spurning um hvort viö get- um átt von á ab sjá nýjar tegundir í ræktun hér í framtíbinni. „Nú eru komnar yfir hundrað tegundir, sem hafa verið reynd- ar hér í skógrækt. Af þeim eru kannski tíu sem hér eru not- hæfar sem raunveruleg skógar- tré og einhverjar tegundir bæt- ast sjálfsagt við. En fyrst og fremst erum við að leita aö heppilegri kvæmum af þeim tegundum sem eru efnilegastar hér, með því aö sækja fræ af öðrum svæðum en áður. Við getum tekið birkið okkar sem dæmi. Það er mjög ólíkt innbyrðis eftir því hvar það vex. Ékki þó þannig að við get- um ekki notað til dæmis Bæjar- staðabirkið fyrir norðan, en það hefur aðra eiginleika. Þó getum við grætt vissa hluti með því að sá fræi úr Bæjarstaðaskógi á Vöglum. Bæjarstababirkiö hefur lengri vaxtartíma, en það getur þó lent í því að hafa ekki búið sig undir vetur, þegar hann skellur þar á fyrirvaralaust, og heldur ab enn sé nóg sumar eft- ir. Þannig eru tegundir sífellt ab aðlaga sig staðbundnum að- stæbum." ■ Hérabsskógar, eigum vib kannski ab koma frekar ab þvf? „Já, það verkefni hefur gengið vonum framar. Ég er mjög ánægður að sjá það sem er ab gerast hér. Þetta var eins og draumsýn þegar við vorum að byrja á þessari vinnu. Það eru nú að verða tíu ár síðan þessari hugmynd var varpað fram, og þab tók nokkur ár ab koma þessu af stað. Og þaö sem mér finnst ánægjulegast er hvaö þátt- taka bænda í verkefninu er mikil og jákvæö. Maöur átti vissulega von á ab sumir myndu taka þessu sem fjarlægum skýja- borgum, en sú varö ekki raun- in. Það eru sífellt aö koma fleiri bændur inn í áætlunina og taka miklu meiri þátt í gróbursetningu en við bjuggr umst vib. Þab var reiknað með að það þyrftu ab vera starfandi vinnuflokkar sem sæju um alla gróbursetningu, en bændur meb sínu fólki hafa séð um hana sjálfir, hver á sinni jörð. Unglingar fá þarna vinnu tvo mánuði eba svo á sumri. Skemmtilega og mannbætandi vinnu. Þessar fimmtíu milljón- ir, sem koma inn í Héraðs- skóga árlega, skapa þannig mikla atvinnu. Ekki kannski

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.