Tíminn - 03.09.1994, Page 15

Tíminn - 03.09.1994, Page 15
Laugard&gúr 3. septértibér 1994 ©JUtfw* 15 Hermann Þorsteinsson frá Langholti, Hraungeröishreppi Fæddur 16. júní 1903 Dáinn 22. ágúst 1994 Daubinn gerir ekki boö á und- an sér, og þó aö von sé á hon- um, bregöur manni alltaf viö þegar hann bankar á dyr. Ég vissi alltaf innst inni aö hann afi minn, Hermann Þorsteins- son, myndi láta undan að lok- um og fara yfir í annan heim, hlutverk hans hér á jöröu yröi senn á enda. Þegar ég fékk hringinguna um aö afi væri dáinn, fannst mér þaö óréttlátt. Af hverju þurfti hann að vera næstur? spurði ég sjálfa mig og upp í huga mér komu allar þær samverustundir sem ég átti með afa. Efst í huga mér eru dagarnir sem ég átti uppi í Langholti á vorin, í þeim tilgangi aö hjálpa til viö sauðburðinn. Eflaust hef- ur afa þótt ég þvælast meira fyr- ir en að ég geröi eitthvað að gagni. Skemmtilegast fannst mér þeg- ar vib fórum í fjárhúsin aö gá aö nýbornum kindum. Því aldrei var afi ánægöari en þegar hann fann nýborna kind. Afi gekk alltaf meb staf. Þetta var enginn venjulegur stafur í augum 10 ára barns, þetta var stafur sem var boginn í annan endann. Eft- ir eina ferö í fjárhúsiö vissi ég til hvers hann var. Hann var til þess að afi gæti náö nýfæddum lömbunum. Hann notabi bogna endann til aö krækja um hálsinn á lömbunum og togaði þau varlega til sín, þar sem hann eyddi dágóöum tíma í aö bjóöa þau velkomin í þessa framandi veröld sem beiö þeirra. Afi haföi alltaf nóg aö gera og meðan heilsan leyfði sá hann um kindurnar sínar, sem voru honum allt; prjónabi sokka og vettlinga handa hinum og þess- um, og þegar hlé varö á prjóna- skapnum stytti hann sér stund- irnar og lagði kapal. Ég var t MINNING nokkuð stolt yfir því að eiga afa sem kunni aö prjóna! Afi lét aldrei fara mikið fyrir sér; sagöi fátt, en samt stafaði af honum einhver hlýja og öryggi, sem ekki er hægt að tjá meö oröum. Alltaf var stutt í brosið hjá afa, ég man í raun aldrei eft- ir honum öðruvísi en meö góöa skapiö meðferðis. Hann tók því, sem ab höndum bar, á þann hátt sem honum einum var lag- iö. Það brást aldrei aö þegar maö- ur kom blaðskellandi inn í Langholtib og tilkynnti komu sína meö tilheyrandi látum, þá heilsaöi afi bara brosandi. Sat hann þá oftast í stólnum sínum við gluggann, annað hvort prjónandi eöa leggjandi kapal. Jú, stundum svaf hann, en það var aldrei lengi! Og var hann þá vanur aö segja á sinn rólega hátt: „Nei, ert þú komin?" Þab veröur tómlegt aö koma aö Langholti í dag, vitandi þaö að þar verður enginn afi sitjandi við gluggann til aö heilsa og spjalla viö um allt og ekkert, eöa bara vera til staðar og hlusta. Þaö, sem ég sé mest eftir, er hversu sjaldan tími gafst til aö fara upp aö Langholti. Maður var alltaf á leiöinni eða færi bara um næstu helgi, spáöi ekkert í þaö aö einn daginn yrði afi ekki þar lengur. Manni fannst afi alltaf eins, og því var eins og maður ætlaöist til þess að hann yrði áfram á sínum stað. Og eft- ir situr maður og nagar sig í handarbökin. En ég hugga mig við þá hugsun aö afi hafi veriö hvíldinni feginn, hann var ekki maöur til aö liggja inni á spít- ala, háöur hjálp annarra. Var þá ekki betra aö leggja af staö yfir móöuna miklu? Sama hversu mörg ár eiga eftir að líða, þá mun ég aldrei gleyma þér, afi minn. Þú munt alltaf vera ofarlega í minning- um mínum, sami gamli, góöi af- inn sem tókst því sem aö hönd- um bar meö mikilli þrautseigju. Ég veit aö þér líður betur hvar sem þú ert á þessari stundu heldur en liggjandi inni á sjúkrahúsi, kannski með þá vissu í huga að þú kæmist aldrei aftur heim. Ég veit að þér verður vel tekiö hinum megin og megi góður guð styrkja ömmu í sorg sinni, því þab nær enginn að fylla tómiö sem þú skildir eftir. Guðbjörg Dagur er aö kvöldi kominn. Löngu ævistarfi hans afa er lok- ib og hvíldin er komin. Her- mann Þorsteinsson, eöa afi í Langholti eins og viö systurnar kölluðum hann, lést þann 22. ágúst sl. í hárri elli. Þaö er ótal margt sem kemur upp í hugann, þegar ég hugsa um þann tíma sem ég þekkti og var samferða afa. Hann lifbi tímana tvenna og ólst upp á þeim tímum þegar tæknin var hér óþekkt á íslandi, og þurfti því snemma aö byrja að vinna. Síöar breyttist þetta allt og bú- skapurinn varð meira og meira tæknivæddur. Afi fylgdist vel með og hann var alltaf meö á nótunum þegar rætt var um vél- ar og önnur tækniatriði. Þegar ég var að alast upp, var þaö alltaf fastur liöur í tilver- unni aö fara nokkra daga á hverju vori til afa og ömmu í Langholt og hjálpa til í sauð- burðinum, þó ég vilji nú ekki fullyrða hvort meira var gagniö eða ógagniö í krakkaorminum. Þrátt fyrir að ég hafi sjálf búið í sveit, voru þessar vikuferðir í Langholt nauðsynlegar og alltaf var viss stemmning yfir því aö vakna eldsnemma á morgnana, fara meö afa og sækja mjólkina og svo í fjárhúsin. Afi var mjög rólegur maður og hafði mjög gaman af sínu starfi. Alltaf gaf hann sér tíma til að taka upp litlu lömbin, tala viö þau og knúsa. Eitt atvik er mér sérstaklega minnisstætt, þegar ég rifja upp mínar dvalir í Langholti. Viö vorum á leiö í fjárhúsin og þurftum aö koma grasköggla- poka meb okkur. Þar sem hvor- ugt okkar kunni aö keyra trak- tor, þá dundabi afi sér íengi við aö binda reipi vel og vandlega um pokann, skellti honum svo á bakið og rölti á stað sínum ró- legu skrefum, sem einkenndu hann. Þrátt fyrir að þrír synir byggju þarna á bæjarhlaöinu, auk annarra sem heföu auðveld- lega flutt pokann fyrir hann, þá vildi hann „ekki vera ab ónáöa þá", eins og hann orðaði það. Aö bera hálfan pokann í einu, nei þab kom ekki til greina. Þannig var hann, bjargaði sér sjálfur og hugsaði sjálfur um sínar kindur, sem voru honum einkar hugleiknar, eins lengi og honum entist heilsan. Afi var framsóknarmabur í húð og hár og var ekkert aö leyna DACBOK IVAAAAAAAAAAAAJI Lauqardaqur 3 september 246. dagur ársins -119 dagar eftir. 35.vika Sólrís kl. 6.15 sólarlag kl. 20.37 Dagurinn styttist um 7 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni Á morgun, sunnudag, er brids- keppni, tvímenningur, kl. 13. Fé- lagsvist kl. 14. Dansab í Goðheimum, Sigtúni 3, kl. 20 á sunnudagskvöld. Ath. ekki dansaö í Risinu. Frá Kvenfélaginu Freyjunni Kvenfélagið Freyjan verður meö félagsvist mánudaginn 5. sept. kl. 20.30 að Digranesvegi 12. Allir velkomnir. Molakaffi. Lýöveldisganga Utivistar: Áriö 1974: ísland 1100 ára - Eld- fjallastöð - Hringvegurinn í Lýbveldisgöngunni sunnudag- inn 4. september er Útivist kom- ib aö atburðum ársins 1974. Á því ári var m.a. haldið upp á ell- efu hundruð ára afmæli íslands- byggöar, hringvegurinn opnaöur og Norræna eldfjallastöðin tók til starfa. Þessir þrír atburöir veröa aðal- þema göngunnar. Farið veröur að venju frá Ingólfstorgi kl. 10.30, þaðan gengiö um borö í skemmtiferðaskipiö Árnes og siglt út Kollafjöröinn og vestur fyrir Gróttu; síðan til baka inn á Reykjavíkina. Lagst verður aö Miðbakka og gengið upp Grófina suður ab bæjarstæðum Víkur. Á leiöinni segir Þorleifur Einars- son jaröfræöingur frá því hvernig umhorfs var á Reykjavíkursvæð- inu áriö 874 og á fyrstu árum ís- landsbyggðar. Úr Kvosinni verður gengið með Tjörninni og um Háskólahverfið suður í Skerjafjörö og með strönd Fossvogs upp á Veðurstofu. Þar mun Páll Halldórsson eðlisfræö- ingur sýna þátttakendum jarb- eölissviö Veðurstofunnar. Aö því loknu veröur gengið nib- ur Klambratún ab Vegagerö ríkisins. Einar Haukur Kristjáns- son skrifstofustjóri fjallar þar um gerö hringvegarins kringum landiö. Aö lokum veröur gengið meb ströndinni vestur á Ingólfstorg. Lýbveldisgöngunni lýkur þar á milli kl. 16 og 17. Þátttökugjald 1000 kr., siglingin innifalin. Állir velkomnir. Vetraropnun í Lista- safni Sigurjóns Ólafs- sonar Frá og meö 1. september breytast opnunartímar safnsins: Á tíma- bilinu 1.09. 1994 til 31.05. 1995 er safnið opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Kaffistofan opin á sama tíma. Tekib á móti hópum eftir samkomulagi utan opnunartímans. Hátíöarsýning í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins, „íslands- merki og súlur Sigurjóns", stend- ur til áramóta. Fræbsludeild kirkj- unnar: Leikmannaskólinn ab hefjast Eins og undanfarin ár veröur Leikmannaskóli þjóökirkjunnar starfræktur á vetri komanda. Skólinn starfar á vegum Fræbslu- deildar kirkjunnar í samvinnu viö Guöfræöideild Háskóla ís- lands. Leikmannaskólinn býður upp á fjölbreytta fræbslu fyrir almenn- ing um kristna trú. Meginnámskeib vetrarins verö- ur meö sama sniöi og undanfarin ár. Kennslugreinar veröa: Þjónusta leikmannsins í kirkj- unni, inngangsfræði Gamla testamentisins, inngangsfræöi Nýja testamentisins, trúfræöi, helgisiðir og táknmál kirkjunnar, kirkjusaga, siöfræöi og sálgæsla. Kennsla hefst 14. september næstkomandi og veröur á miö- vikudögum kl. 20-22 í Odda, kennsluhúsnæöi háskólans, stofu 101. Auk þessa samfellda námskeibs, sem tekur yfir haust- og vormiss- eri, veröur boðið upp á styttri námskeiö um kvennaguðfræði, hugmyndir um Jesú frá Nasaret í nútímanum, leiösögn viö lestur Biblíunnar og kirkjudeildafræöi — íslenskar kirkjur og trúfélög. Innritun og nánari upplýsingar á Biskupsstofu, Suöurgötu 22, s. 91-621500 og 91-12445. Kynningardagar í Gjábakka Senn er sólríkt sumar á enda og haustiö á leiðinni meö alla sína náttúrulegu litadýrð. Á haustin er jafnan tími til að huga aö starfi vetrarins — hvað er hægt aö gera sér til gagns og gleði. Dagana 6., 7. og 8. sept. verður kynning á vetrarstarfi sem eldri borgurum í Kópavogi gefst kostur á aö stunda á vegum Gjábakka, en Gjábakki er eins og flestir vita félagsheimili eldri borgara í Kópavogi. Kynningin hefst kl. 14 þ. 6. sept. meö því ab gönguhópur, sem gengið hefur sér til glebi, gengur frá Gjábakka. Öllum er frjálst aö slást í hópinn. Um kl. 14.45 kynnir forstööumaöur Gjábakka, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, starf- semi Gjábakka í stórum dráttum. Aö því loknu kynnir Aöalbjörg Lúthersdóttir, yfirmaður öldrun- armála í Kópavogi, starfsemi því. Mikiö leið honum illa ef Mogginn var inni í hans húsi, og mikið var hann feginn þegar amma var búin aö lesa hann og henda. Hann var vel aö sér í stjórnmálum og þjóðmálum. Þrátt fyrir að hann sæti tímun- um saman og prjónaöi eba legði kapal og allir héldu aö hann væri alls ekkert að fylgjast meö umræðunum, þá átti hann til að hlæja sínum smitandi hlátri og koma meö hnyttnar athuga- semdir sem hittu beint í mark. Afi þurfti alltaf eitthvaö aö hafa fyrir stafni, leggja kapal eöa prjóna, en þaö fannst mér alltaf svo skrítið sem lítil stelpa, aö hann afi kynni aö prjóna. Á kvöldin sátu þau afi og amma oftast saman og prjón- uöu sokka og vettlinga. Þaö voru ófáar sendingarnar sem komu til okkar og þá iöulega á alla fjölskylduna, enginn var skilinn útundan. Afi hafði stórt hjarta og ung- viöi heillaði hann. Alltaf sagöi hann eitthvaö fallegt viö barna- og barnabarnabörnin, þegar þau trítluöu til hans þar sem hann sat við gluggann og fylgd- ist meö tilverunni. Gott dæmi um hjartahlýjuna var aö iðulega ávarpaöi hann ömmu meb orð- unum „góöa mín". Afi var stoltur og sjálfstæður, vildi alls ekki vera upp á abra kominn og vildi ekki sjá ab fara á einhverja stofnun. Því eyddi hann ævikvöldinu ásamt ömmu í gamla bænum í Lang- holti, utan síöustu mánuöina, en þá lá hann á Sjúkrahúsi Suð- urlands. Afi hefur lokið sínu ævistarfi og veriö kallaöur til annarra starfa. Ég þakka afa samfylgdina og óska honum alls hins besta á nýjum staö. Elsku amma, guö styrki þig á sorgarstundu. Hvíl í friði, Hrafnhildur öldrunardeildar bæjarins. Félag eldri borgara í Kópavogi mun síö- an kynna starfsemi félagsins, en félagið starfar nú af miklum krafti. Miövikudaginn 7. sept. veröur hægt aö fylgjast með sundleik- fimi kl. 9.30 fyrir eldri borgara í Sundlaug Kópavogs og síðan verður opib hús í Gjábakka ab venju frá kl. 13 til 17. Þar kynna hinir ýmsu hópar sína starfsemi og má þar nefna Frístundahóp- inn Hana-nú og Nafnlausa leik- hópinn. Fimmtudaginn 8. sept. frá kl. 14 til kl. 16 veröa kynnt námskeið á vegum Gjábakka. Innritað veröur á námskeibin aö kynningu lok- inni. Þess má geta að eldri borgarar geta haft mikil áhrif sjálfir á þá starfsemi sem er í boöi á vegum Félags- og tómstundastarfsins. í Gjábakka er hugmynda- og óska- banki, sem öllum er frjálst aö leggja í sínar hugmyndir og ósk- ir. Rétt er aö nota þetta tækifæri og þakka eldri borgurum fyrir góöar ábendingar sem varöa starfsemina í Gjábakka. Þaö er kærkomið fyrir starfsmenn í þess- ari þjónustu aö geta orðið vib óskum eldri borgara sjálfra. Hér má geta þess aö heitt er á könnunni og heimabakað meö- læti alla daga frá kl. 9 til kl. 17 í Gjábakka og eru veitingar seldar á vægu veröi. Nú þegar liggur frammi dagskrá fyrir hvern dag í Gjábakka og eru eldri borgarar hvattir til aö verba sér úti um eintak. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.