Tíminn - 23.09.1994, Síða 8
8
Föstudagur 23. september 1994
Olíufurstar Arabíu
vilja sem flestar
fcebingar, afótta
vib innflytjendur,
ent.d. Indónesía
og íran reyna ab
draga úr fólksfjölg-
un
Sheik Abd el-Aziz bin Baz,
æðsti trúarleiðtogi Saúdi-Ar-
abíu, komst svo að orði um
fólksfjöldaráöstefnuna í Kaíró,
sem nýlokið er, að hún væri „ill-
kvittin árás á íslam, tilraun til að
breyta samfélagi íslams í samsafn
öfughneigðra kynbrjálæðinga,
siðlausra með öllu og hrjáðra af
sjúkdómum." í Al-Ahram, eitt
þekktasta blað Egyptalands,
skrifaði nýlega Fahme Huwei-
deh, trúaöur múslími og at-
kvæðamaður um félagsmál: „Þar
sem vestrænn hugsunarháttur
ríkir, er látið eins og Guð sé ekki
til. Það gera líka skipuleggjendur
ráðstefnunnar í Kaíró ..."
Vera má að í Páfagarði hafi
menn hugsað eitthvað svipað
um ráðstefnu þessa og víst er um
það, að á henni var viss samstaða
með fulltrúum páfa og bókstafs-
sinnuðum og íhaldssömum
múslímum, enda þótt þessir aðil-
ar séu harðir keppinautar um sál-
ir mannkynsins. En í þessu sam-
bandi er ekki úr vegi að benda á,
aö því fer fjarri að íslamsheimur
sé allur í einum anda viðvíkjandi
fólksfjölgunarmáium og ráðstöf-
unum þeim viðvíkjandi.
Stefnubreyting viö
lát Khomeinis
Súdan, írak, Líbanon, hinn mik-
ilsvirti egypski háskóli Al-Azhar
og fleiri stofnanir tóku undir for-
dæmingu áðurnefnds saúdiarab-
ísks sjeiks og forsætisráðherra
hins veraldlega sinnaða (á ís-
lamskan mælikvarða) Tyrklands
hætti við að sækja fólksfjöldaráð-
stefnuna. Eigi að síður hafa ýmis
íslömsk ríki um nokkurt skeið
gert ráðstafanir til að draga úr
fólksfjölgun og sum þeirra hafa
þegar náð talsverðum árangri í
þeim efnum.
Þeirra á meðal er bókstafstrúar-
ríkið íran, og hefði einhver
kannski búist við öðru þaðan.
Islamskir bókstafssinnar (hér í Alsír) eru ekki á einu máli um rábstafanir í fólksfjöldamálum.
íslam ekki einsleitt
í fólksfj öldamálum
Ráðamenn þar virðast hafa tekið
upp nýja stefnu í þessum málum
þegar eftir lát Khomeinis aya-
tollah 1989. Stjórnin þar hvetur
nú foreldra til að eignast færri
börn, hefur séð til þess að al-
menningur á auðveldara en áður
með að ná í getnaðarvamir og
gert ráðstafanir til aukinnar
menntunar fyrir ljósmæður og
félagsráðgjafa. Aö sögn stjórnar-
innar var meðaltala barna á
konu í landinu 6,4 1988, en var
s.l. ár 4,3. Dregið hefur úr fólks-
fjölgun í íran, samkvæmt tölum
frá S.þ., og er hún nú 2,7% á ári.
Aðalástæðan til þessarar stefnu-
breytingar íransstjórnar em
vandræði í efnahagsmálum.
Samkvæmt fólksfjöldaspám
veröa íbúar írans, sem nú em 63
milljónir, orðnir helmingi fleiri
árið 2020. Landið er stórt, en til-
tölulega lítill hluti þess ræktan-
legur og því fer þegar víðs fjarri
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
að það sé sjálfu sér nógt um mat-
væli. Drjúgan meirihluta þess
matar, er landsfólk neytir, verður
að flytja inn.
Allir fylgjast meö
öllum
Langt er síðan Indónesía, sem er
fjölmennast allra íslamsríkja, hóf
ráðstafanir til að takmarka stærð
fjölskyldna. Það þarf kannski síð-
ur að koma á óvart en með íran,
því að indónesískt íslam er all-
langt frá Vestur-Asíu, ekki mjög
innilegt hjá allmörgum og mjög
blandið siðum og hugmyndum
frá trúarbrögðum er þar vom fyr-
ir, er íslam gekk í garð. Suharto
Indónesíuforseti hefur sjálfur
beitt sér mjög fyrir áminnstum
ráðstöfunum í fjölskyldu- og
fólksfjöldamálum. Á rúmum 20
ámm hefur meðaltala barna á
konu þar lækkab um næstum
helming, úr 5,6 1972 í 2,9 s.l. ár.
Ráðstafanir indónesískra stjórn-
valda til að takmarka fjölda fæð-
inga kunna sumar að koma Vest-
urlandamönnum spánskt fyrir
sjónir. Samkvæmt Udvikling,
blaði danska utanríkisráðuneyt-
isins, er algengt að stilla upp á
áberandi stað í indónesískum
þorpum spjaldi með nöfnum
allra heimila í þorpinu. Þar
stendur jafnframt hverskonar
getnaðarvarnir hver hjón í þorp-
inu noti og einnig er gefið upp á
spjaldinu hvaba hjón eiga barn í
vændum. Þannig em hver hjón
undir eftirliti heildarinnar, sem
leggur að þeim að gæta þess aö
eignast ekki mjög mörg börn.
DV fær viöurkenn-
ingu fyrir auglýs-
ingahönnun
DV hefur fengib viburkenningu
frá Newspaper Association of
America fyrir auglýsingahönn-
un, í annab sinn á tveimur ár-
um.
Auglýsing DV um bókina og
kvikmyndina Óttalaus var ein
þeirra 100 auglýsinga sem fengu
viðurkenningu NAA í ár. Auglýs-
ingin var að öllu leyti unnin hjá
útgáfufyrirtæki DV, Frjálsri fjöl-
miölun hf. Hönnun annaöist Ing-
ólfur P. Steinsson auglýsinga-
stjóri, en tölvuvinnsla var í hönd-
um Ingva Magnússonar og Guð-
mundar Þ. Egilssonar í Prent-
smiöju Frjálsrar fjölmiblunar hf.
í Newspaper Association of Am-
erica em um 1000 blöð í 27
löndum, en DV hefur verið í
þessum samtökum síban 1989.
Auk annarrar starfsemi heldur
NAA árlega ráðstefnu og auglýs-
ingasýningu, sem í ár var haldin
í San Francisco 17. til 20. júlí. Fé-
lögum í samtökunum er boðið
að senda auglýsingar á sýning-
una, einni úr hverjum flokki
auglýsinga eftir nánari skilgrein-
ingu. 100 bestu auglýsingarnar
fá síðan sérstaka viburkenningu.
Á 15. hundrab auglýsinga voru
sendar á sýninguna nú í sumar.
Ein þeirra 100 auglýsinga, sem
fengu sérstaka viöurkenningu,
var auglýsing úr DV, þar sem
auglýst er bók Frjálsrar fjölmiöl-
unar hf., Óttalaus eftir Rafael Yg-
lesias, og samnefnd kvikmynd
sem sýnd var í Sambíóunum í
mars á þessu ári. Auglýsingin
verður birt, ásamt öðmm sem
viburkenningar hlutu, í árlegri
Sales & Idea Book NAA, sem kem-
ur út með haustinu.
Þetta er í annað sinn sem DV
tekur þátt í þessari auglýsinga-
samkeppni. I fyrra skiptið var
Indónesískir ráðgjafar um fjöl-
skylduáætlanir og fólksfjöldamál
starfa nú í 73 þróunarlöndum.
Þrátt fyrir umræddar rábstafan-
ir er búist við að íbúar Indónesíu
verði 218 milljónir árið 2000,
eða helmingi fleiri en þeir vom
1960.
Meira að segja eitt íslamskt ríki,
Túnis, hefur frjálsar fóstureyð-
ingar.
Brúökaupsgjöf
Gagnstæba afstöbu í þessum efn-
um hafa m.a. olíuríkin á Arabíu-
skaga. Þau vilja ab fólk þeirra
fjölgi sér sem mest sem allra
fyrst. Það stafar af því að í Saúdi-
Árabíu, Bahrain, Sameinuðu ar-
abafurstadæmunum og Kúveit
em innfæddir víbast eða alstabar
færri en innflytjendur, sem
þangað hafa streymt vegna mik-
illar atvinnu, er í boði er vegna
efnahagsþenslunnar á gmndvelli
olíunnar. Ráðamenn ríkja þess-
ara líta á innflytjendafjöldann
mikla sem ógnun við öryggi ríkj-
anna.
í Kúveit fær hvert ungt par sem
svarar 900.000 ísl. krónum í gjöf
frá ríkinu, þegar það giftir sig, og
um 11.000 kr. í viðbót á mánuði
fyrir hvert barn. Sé annað hjóna
annarrar ættar en kúveitskrar, fá
þau hinsvegar enga slíka brúð-
kaupsgjöf og ekki heldur neitt
fyrir börnin.
Sumar þeirra íslömsku ríkis-
stjórna og þjóða, sem ekki hlusta
á tillögur um ab takmarka fjölda
fæðinga, kunna ab hafa tileinkað
sér þá afstöðu af þjóðernislegum
ástæðum fremur en trúarlegum.
Þannig hefur því verib haldib
fram að Palestínumenn á Vestur-
bakka og í Gaza heyi „lýðfræði-
legt stríb" gegn ísrael. Á fyrr-
nefnda svæðinu er fólksfjölgun-
in 4% á ári, á því síðarnefnda
5%. Heyrst hefur að svipuð við-
horf séu ofarlega meðal Kúrda,
sem losna vilja við yfirráð Tyrk-
lands, íraks, írans og Sýrlands.
Tölum um fjölda þeirra ber ekki
saman, en þær benda frekar til
þess ab þeim hafi fjölgað allmjög
á síðustu áratugum. ■