Tíminn - 23.09.1994, Page 11
Föstudagur 23. september 1994
n
Benedikt F. Þórðarson
Benedikt Finnbogi Þórðarson
fœddist 18. september 1917 að
Klúku, Miðdal, Steingrímsfirði.
Hann lést 28. ágúst síðastliðinn í
Landakotsspítala. Foreldrar hans
voru Þórður Þórðarson bóndi á
Klúku og kona hans Guðrún Finn-
bogadóttir. Hann var annar í röð-
inni af sex systkinum. Elsfur var
Aðalbjöm Þórhallur, f. 28. júlí
1916, d. 7. desember 1950; þá
Benedikt; Valdís, f. 27. júní 1920;
Sigurrós Guðbjörg, f. 3. febrúar
1924; Sigríður, f. 9. desember
1930; og Guðrún Sesselja, f. 9.
desember 1930. Þann 1. desember
1946 kvœntist Benedikt eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Jónu Guð-
nýju Jónsdóttur frá Skálholtsvík,
Hrútafirði, f. 24. janúar 1923.
Þau eignuðust fimm böm: Jón Ág-
úst, f. 29. september 1947, d. 5.
mars 1948; Aðalheiður, f. 31.
janúar, maki Hörður Ámason; Jón
Ágúst, f. 18. september 1954,
maki Jónína Sigurðardóttir; Guð-
rún Þóra, f. 14. apríl 1957, maki
Hjörtur Erlendsson; og Þórður, f.
2.7. apríl 1961, maki Krístín Unn-
ur Þórarinsdóttir. Bamabömin em
sjö. Benedikt ólst upp á Klúku og
vann þar við almenn störf til sjós
og lands. Bamaskólamenntun
hlaut hann í Heydalsárskóla og
var síðar tvo vetur í Reykholts-
skóla. Benedikt og Guðný bjuggu
fyrst á Akranesi og fluttust síðan
til Reykjavíkur 1948 og hafa búið
þar síðan. Benedikt vann við ýmis
störf til 1956 og starfaöi síðan
sjálfstcett sem bifreiðastjóri á
Nýju sendibílastöðinni til ársins
1993. Útfór hans fór fram frá
Kóþavogskirkju 7. september sl.
t MINNING
Tengdafabir minn, Benedikt
Þóröarson, er látinn eftir erfiö
veikindi. Veikindunum tók
hann af miklu jafnabargeöi og
reyndi ab láta þau hafa eins lítil
áhrif á fjölskyldu sína og honum
var framast unnt. Er honum þar
rétt lýst aö setja ætíö hag ann-
arra ofar sínum eigin. Veikind-
um var hann ekki ókunnugur.
Ungur ab árum veiktist hann al-
varlega og þaö, auk annarra erf-
iðleika, hefur vafalítib mótaö af-
stööu hans til lífsins seinna
meir. Hann var mjög nægjusam-
ur og naut þess helst að sjá fólk-
iö sitt ánægt. Fjölskyldan sat æ-
tíö í fyrirrúmi hjá honum, enda
hefur hann, ásamt tengdamóbur
minni, komið upp stórri og sam-
hentri fjölskyldu, sem á sinn
fasta samastað í Álftamýrinni.
Benedikt var yfirvegaður og ró-
legur maður. Hann var glettinn
og haföi gaman af því að gantast
viö barnabörnin sín, og þeir
ótalmörgu, sem hann var sam-
tíða, muna eflaust eftir því hve
stutt var í brosið. Fátt gladdi
hann meir en að hjálpa öörum,
þegar þess var þörf, og var hann
ætíö reiðubúinn með stuttum
fyrirvara. Ófá brotin eöa biluð
leikföng hafa barnabörnin borið
til hans og beðið um viögerö og
lagfæringar og var hann ætíö
jafn ánægður að geta aðstoðað
þau. Þegar barnabörnin komust
á þann aldur ab geta leikið sér á
hjólum, brást það ekki að þeirra
beið nýuppgert hjól. Fyrst þrí-
hjól og síðar tvíhjól með hjálp-
ardekkjum.
í mörg ár hefur fjölskyldan haft
þá góbu venju ab fara saman í
eina eba tvær vikur á hverju
sumri í sumarbústað og vom
þessar ferðir mjög ánægjulegar
og mikils viröi fyrir alla í fjöl-
skyldunni. Sérstaklega em
minnisstæð tvö sumur er vib
dvöldum í Hrísey. Þessar vikur
voru einstaklega ánægjulegar
fyrir margra hluta sakir. Húsið
var stórt og rúmgott og um-
hverfið einstakt. Þarna var sam-
ankomin öll fjölskyldan ásamt
mörgu tengdafólki og þegar
mest var gistu í húsinu rúmlega
20 manns. Þarna fannst honum
gott að vera í rólegheitum og
notaöi hann tímann til að iag-
færa ýmislegt sem betur mátti
fara.
Benedikt vann alla tíð langan
vinnudag og átti hann trausta
vibskiptavini, sem hann ók fyrir
árum saman. Það var honum
mikils virbi að geta unnib allt
fram á síðasta ár.
í frístundum naut hann þess ab
lesa og hlusta á tónlist. í mestu
uppáhaldi voru kórar og ein-
söngvarar.
Þrátt fyrir að vitað væri ab
hverju dró, þá andaðist hann
fyrirvaralítib en meö reisn í
faðmi fjölskyldunnar.
Ég biö æbri máttarvöld að
styrkja Guðnýju og fjölskylduna
alla í sorg þeirra og þakka jafn-
framt Benedikt þann hlýhug og
góbvild sem hann ætíð sýndi og
er öðrum til eftirbreytni.
Hjörtur Erlendsson
Ástkær tengdafaðir minn, Bene-
dikt F. Þórbarson, er látinn.
Undanfarna mánuði háði hann
harba baráttu vib óvæginn og
illskæðan sjúkdóm, en þann 28.
ágúst síðastlibinn lauk síðan
þeirri ójöfnu baráttu og Bene-
dikt fór til fundar við Drottin.
Þeir, sem þekktu Benedikt, vita
að þar fór einstakur maður,
hann var kærleiksríkur, ósérhlíf-
inn, lítillátur og umfram allt
sannur.
Það er margt sem kemur upp í
huga manns, þegar mabur kveð-
ur góban vin, og þá er erfitt að
koma því frá sér. Hann var sá
klettur sem ávallt var til stabar
og innan handar ef eitthvab
bjátaði á, alltaf reibubúinn að
hjálpa. Þó okkur unga fólkinu
finnist 76 ár löng ævi, fannst
manni Benedikt ekki gamall,
enda var alltaf stutt í kímnina og
léttleikann. Það er erfitt að
kveðja þá sem maður elskar mik-
ið, en öll kvebjum við ab lokum.
Ég þakka fyrir að hafa átt sam-
leið með svo stórkostlegum
manni sem tengdafaðir minn
var.
Ég lifi í Jesú nafhi,
í Jesú nafhi ég dey,
þó heilsa og líf mér hafhi,
hraeðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti ég segi:
kom þú scell þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson)
Elsku Guðný mín, Alla, Jón,
Gunna og Tóti.
Ég votta ykkur og fjölskyld-
unni allri mína innilegustu
samúð og bið Guð að styrkja
ykkur.
Þín tengdadóttir,
Jónína Sigurðardóttir
Hann elsku afi okkar í Álfta-
mýri er búinn að kveðja okkur.
Það er söknuður í hjörtum okk-
ar, en vib vitum að honum líður
betur núna.
Það er margs að minnast, þeg-
ar við hugsum til hans afa. Allt-
af var hann tilbúinn ab leika vib
okkur og ef þurfti að laga dótið
okkar eða hjólin, þá var hann
afi alltaf tilbúinn til þess.
Vib viljum þakka afa allar góðu
stundirnar sem við áttum sam-
an.
Vib munum sakna hans sárt.
Blessuð sé minning hans.
Hvert örstutt spor var auðnuspor
með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá
mér
var sólskinsstund og sœludraumur
hár,
minn sáttmáli við Guð um
þúsund ár.
(Halldór Kiljan Laxness)
Elsku amma, megi Guö styrkja
þig í sorg þinni.
Bamaböm
Heimsmeistaramótiö í Albuquerque:
Undanrásum í opnum
flokki lýkur í dag
Nú stendur yfir heimsmeist-
aramót í Albuquerque í Banda-
ríkjunum og taka 16 íslenskir
spilarar þátt í mótinu. íslend-
ingarnir taka þátt í þremur
keppnum; paratvímenningi,
sveitakeppni í opnum flokki og
sveitakeppni kvenna. Paratví-
menningnum er lokið og kom-
ust 3 pör í 180 para úrslit en
þar náðu Bragi Hauksson og
Sigríður Sóley Kristjánsdóttir
bestum árangri, eða 71. sæti.
Glæsilegur árangur Þorláks
Jónssonar og eiginkonu hans,
Jaquie McGreal, vakti hins
vegar verðskuldaða athygli en
þau sigruðu undankeppnina
nokkuð örugglega. Þau náðu
hins vegar ekki að fylgja því
eftir í úrslitunum.
Enn er allt opið í opnum flokki
og kvennaflokki en ein sveit
frá íslandi berst í hvorum
flokki um að komast í úrslitin.
í karlaflokki veröur ljóst í dag
hvort Islendingarnir komast í
64-liða úrslitin en staðan í
kvennaflokknum skýrist ekki
fyrr en á morgun. Þeir sem
spila f)Tir íslands hönd í opna
floknum eru Björn Eysteinsson
og Aðalsteinn Jörgensen og
hins vegar Matthías Þorvalds-
son og Jakob Kristinsson. í
kvennaflokknum spila Hjördís
Eyþórsdóttir og Ljósbrá Bald-
ursdóttir og Anna ívarsdóttir
og Jaquie McGreal.
Meb heilladísirnar í
farteskinu
Bridgefélag kvenna stóð fyrir
silfurstigamóti um síðustu
helgi. Lítum á eitt skemmtilegt
spil úr þessu móti.
Röð tilviljana olli því að Sig-
urði Vilhjálmssyni og Hrólfi
Hjaltasyni tókst að segja -og
vinna þrjú grönd í spili dagsins
sem er úr ofangreindu móti:
Vestur gefur/allir
♦ T93
¥ ÁKD
♦ DT96S
+ KC
A ÁKG864
¥ 932
♦ 32
+ T8
N
V A
S
7
CT84
KG4
ÁD943
A D32
¥ 765
♦ Á87
* 7652
c
Þorlákur jónsson náöi glœsilegum
árangri í paratvímenningnum
meb konu sinni jaquie McGreal en
þau sigrubu undankeppnina í
Albuquerque.
Þannig gengu sagnir:
Vestur Norbur Austur Subur
24 dobl pass 2 grönd
pass 3 grönd allir pass
Útspil 48
Sagnir krefjast útskýringa!
Tveir spaðar vesturs voru veikir
tveir í spaða, dobl norðurs var
úttekt og 2 grönd Sigurðar
voru Lebensohl, þ.e. báðu um
betri láglit hjá Hrólfi. Hrólfur
var hins vegar nýbúinn að
horfa upp á makker sinn, Sig-
urð Vilhjálmsson, fara nibur á
50% 5 spöðum og ákvab að
„gambla" á geimið.
Spilið lítur hreint rosalega út
fyrir sagnhafa. T.d. fær vörnin
11 slagi með laufútspili og allt
annaö en spaði heldur sagn-
hafa í 4-5 slögum. En heilladís-
irnar voru meb NS þegar vestur
valdi einmitt lítinn spaða,
væntanlega í von um að mak-
ker ætti tvílit og gæti stungiö
honum inn síðar í spilinu. Sig-
urður drap á drottningu heima
og spilaði hjarta. Síðan kom lít-
ill tígull úr borði, lítið, sjöa lít-
ið. Wúpps. Þar með var komin
von í spilið og Sigurður var
vandanum vaxinn. Tók tígulás
og tvo efstu í hjarta og henti
síðan austri inn á tígulkóng-
inn. Endaspilið var því óum-
flýjanlegt og spilib vannst.
Eins og lesendur sjá væntan-
lega verður austur ab leggja
gosann á tígulinn sem spilað er
úr borði til ab hnekkja spilinu
eftir útspilið.
Vetrarmltchell BSÍ
Föstudaginn 16. sept. 1994
tóku 22 pör þátt í vetrarmitc-
hell BSÍ. Efstir urðu:
NS: 1. Þórbur Sigfússon-Dan Hansson
361
2. Vignir Hauksson-Haukur Harbarson
306
3. Magnús Torfason-Gubmundur Pét-
ursson 298
4. Sigrún Jónsdóttir-Ingólfur Lillienda-
hl 270
5. Maria Ásmundsdóttir-Steindór Ingi-
mundarson 268
AV: 1. Dagur Halldórsson-Björn Stef-
ánsson 312
2. Hjalti Bergmann-Stefán Ólafsson 301
3. Agnar Kristinsson-Cecil Haraldsson
286
4. Andrés Ásgeirsson-Ásgeir Sigurbsson
283
5. Gublaugur Sveinsson-Magnús Sverr-
isson 280
Firmakeppni BSÍ1994
Firmakeppni Bridgesambands
íslands verður haldin í Sigtúni
9, helgina 1.-2. október nk.
Spiluð er sveitakeppni, u.þ.b.
100 spil. Keppnin er opin öll-
um fyrirtækjum af öllu land-
inu sem sannarlega hafa kepp-
endur á launaskrá.
Þetta er létt og skemmtileg
keppni, keppnisgjald er 15.000
kr. á sveit og spilað er um gull-
stig í hverjum Ieik. Verðlauna-
bikarar verða veittir fyrir þrjú
efstu sætin en auk þess fá sigur-
vegararnir farandbikar til varð-
veislu næsta árið.
Byrjað verbur ab spila kl. 11
báða dagana. Skráning er hafin
á skrifstofu Bridgesambands ís-
lands í síma 91-619360.
íslandsmótib í
einmenningi
íslandsmótið í einmenningi
verbur haldið helgina 8.-9. okt.
nk. Mótið verður spilað eins og
undanfarin ár. Húsfyllir hefur
verið í þetta mót, þannig að
betra er að skrá sig tímanlega.
Kerfið verður sent til keppenda
þannig ab þeir hafi tíma til að
lesa það yfir. Keppnisgjald er
kr. 2500 á mann og er skráb á
skrifstofu BSÍ.
Frá Paraklúbbnum
Næsta þribjudagskvöld hefst
þriggja kvölda tvímenningur
hjá Paraklúbbnum og er spilað
í Sigtúni 9 kl. 19.30 á þriðju-
dagskvöldum. S.l. þriðjudag
var spilaður eins kvölds tví-
menningur. Lokastaða 4 efstu
paranna:
1. Gubný Gubjónsdóttír-Jón Hjaltason
203
2. Gubrún Jóhannsdóttir-Sigurbur B.
Þorsteinsson 194
3. Gunnlaug Einarsdóttir-Hrólfur
Hjaltason 194
4. Andrés Ásgeirsson-Jóna Jóns. 182.