Tíminn - 27.10.1994, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.10.1994, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 27. október 1994 3 íbúöum borgarinnar vib Tjarnargötu hefur til þessa verib rábstafab af borgarstjóra: Félagsmála- stofnun afhentar íbúbirnár Borgarstjóri hefur afhent fé- lagsmálastofnun íbúbir í eigu borgarinnar viö Tjarnargötu, en þær hafa hingab til verib leigöar út á vegum skrifstofu borgarstjóra. Kristín A. Árna- dóttir, abstoöarmabur borgar- stjóra, segir ab leigusamning- ur um einbýlishús í Grasa- garöinum í Laugardal, sem Arni Sigfússon, fyrrverandi borgarstjóri, gekk frá daginn fyrir kosningarnar í vor, hafi verib tilefni þess ab borgar- stjóri lét skoba hvaba hús- næöi í eigu borgarinnar er leigt út framhjá kerfinu. Yfirlit borgarlögmanns sýnir að Reykjavíkurborg á 16 íbúbir í Tjarnargötu. Nokkrar þeirra eru þegar leigöar út á vegum félags- málastofnunar en flestum hinna íbúöanna hefur hingaö til veriö ráðstafaö af skrifstofu borgarstjóra. Borgin á einnig nokkur hús sem ekki falla undir félagslega kerfib. Mebal þeirra er húsiö í Laugardal, húsib Ár- tún í Elliðaárdal, hús við Leyni- mýri og húsnæöi vib Hallveig- arstíg. Borgarstjóri afhenti fé- lagsmálastofnun íbúbirnar viö Tjarnargötu til umsjónar í gær en ekki hefur verib tekin ákvörðun um hvab gert verði við annað húsnæði aö sögn Kristínar A. Árnadóttur. Hún segir að þaö hafi þótt eðlilegt ab félagsmálastofnun fengi íbúö- irnar til umsjónar enda séu langir biðlistar eftir húsnæöi á vegum hennar. Starfsfólki fé- lagsmálastofnunar verði falið ab meta hvort núverandi íbúar íbúðanna falli undir þau skil- yröi sem hún gerir til leigjenda sinna eba hvort þeim verði sagt upp leigusamningunum. ■ Húsib í Laugardal sem Árni Sigfússon endurnýjabi leigu á daginn fyrir kosningarnar í vor. Árni Sigfússon fyrrverandi borgarstjóri: Gekk frá fimm leigusamningum Tímamynd: CS Kristín A. Árnadóttir, ab- stobarmabur borgarstjóra, segir ýmislegt óeblilegt vib leigusamninginn sem Árni Sigfússon undirritabi, dag- inn fyrir kosningar, um hús- ib í Grasagarbinum í Laugar- dal. Árni Sigfússon er ósam- mála því og segir tilganginn meb umræbunni vera ab ata sig auri. Komib hefur í ljós ab Árni geröi fimm leigu- samninga í tíb sinni sem borgarstjóri. Samkvæmt samningnum, sem Árni Sigfúson framlengdi til tveggja ára, borga íbúar hússins í Grasagarði ekki húsaleigu en í staðinn hafa þeir umsjón og eft- irlit meö svæðinu á þeim tíma sem heföbundið eftirlit er ekki. „Okkur finnst út af fyrir sig óeblilegt að geröur sé skuld- bindandi samningur daginn fyrir kosningar. Sérstaklega í ljósi þess aö búið var að segja samningnum upp og garðyrkju- deildin haföi áhuga fyrir því aö fá húsiö til afnota. Þaö má vera ab þaö sé gott að hafa íbúa í húsinu sem hafi eftirlit með svæöinu en þaö ætti þá aö vera Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík: Kjöt flutt út á Banda- nkjamarkaö Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tímans á Akureyri. Nú í vikunni voru send um níu tonn af ærkjöti frá Húsavík til Bandaríkjanna og þessa dagana er unnið aö pökkun á nauta- kjöti fyrir Bandaríkjamarkað. Sláturhús Kaupfélags Þingey- inga hefur leyfi til útflutnings á kjöti og hafa bændur úr ná- grannahérubum Þingeyjarsýslu notfært sér það á liönu hausti og flutt fé til slátrunar á Húsa- vík. Páll Arnar, sláturhússtjóri á Húsavík, sagði í samtali vib Tímann aö nýverib hefbu um níu tonn af ærkjöti verið send á Bandaríkjamarkaö. Kjötskrokk- um væri pakkaö saman á ákveö- inn hátt og settir í kassa að ósk- um kaupenda. Um væri að ræba skrokka upp að 23 kílóum og væri þar mest um aö ræöa kjöt af tveggja til fjögurra vetra ám. Um kjöt af veturgömlu fé væri vart að ræöa því svo mikil eftir- spurn væri nú eftir því á innan- landsmarkaði að ekkert væri af- lögu hjá sláturhúsi KÞ til út- flutnings. Páll sagði nokkuð hafa veriö um að sláturhús KÞ hefði tekið fé til slátrunar úr öðrum héruðum en af félags- svæði Kaupfélags Þingeyinga þegar um væri aö ræða fram- leiðslu umfram greiðslumörk bænda sem ætluð væri til út- flutnings. Þannig hefði slátur- hús KÞ tekið fé frá Fjallalambi á Kópaskeri til slátrunar og einnig nokkuð af fé úr Eyjafirði. Þá hefði nýlega verið efnt til auka- sláturdags á Húsavík þar sem fullorðnu fé af Fljótsdalshéraöi var slátrað til útflutnings. Auk útflutnings á kindakjöti er í undirbúningi ab hefja útflutn- ing á nautakjöti frá Húsavík. Þessa dagana er unnið að því að pakka og merkja nautakjöt fyrir Bandaríkjamarkað og er gert ráð fyrir að um fimm tonna til- raunasending fari á markað þar fljótlega. Allt kjöt til útflutnings frá sláturhúsinu á Húsavík er nú meðhöndlað samkvæmt stöðl- um um náttúrlegar afurðir og kvað Páll Arnar sláturhússtjóri það nauösynlegt til að tryggja sem best viöskipti með kjötiö. ■ á vegum þeirra sem hafa um- sjón með garðinum ab öðru leyti," segir Kristín A. Árnadótt- ir. Árni Sigfússon, fyrrverandi borgarstjóri, er ósammála því að eitthvaö sé óeðlilegt við leigusamninginn. „Það er algert aukaatriði að leigusamningur- inn skyldi vera endurnýjabur rétt fyrir kosningar. Samkvæmt uppsagnarákvæbi áttu íbúarnir að fara úr húsinu fyrir lok maí- mánaöar. Þess vegna þurfti að ljúka málinu fyrir þann tíma. Eg ákvað að framlengja samn- ingnum vegna þess að ég mat hagsmuni þessarar barnmörgu fjölskyldu, sem hefur búið þarna um árabil, umfram hags- muni borgarinnar af því að nota húsiö fyrir vinnuskúr eða eitthvað slíkt. Það er mikill kostur að hafa íbúa í grasagarð- inum sem hafa umsjón og eftir- lit með svæðinu. Fólkið fær engin önnur laun fyrir þetta hlutverk sem það hefur gegnt í átta ár. Ég tel ekkert athugavert aö það sé samið á þennan hátt en það er greinilegt að það á að reyna að ata mig auri fyrir þessa ákvöröun," segir Árni Sigfús- son, fyrrverandi borgarstjóri. Kristín A. Árnadóttir segist ekki þekkja til aöstaeöna fjöl- skyldunnar í Laugardalnum. „Það kann vel að vera að hags- munir fjölskyldunnar hafi verið brýnni en borgarinnar, ég veit ekkert um það. Hins vegar er það á verksviði félagsmálastofn- unar að meta þörf fjölskyldna fyrir íbúðarhúsnæði á vegum borgarinnar og forgangsraða umsóknum um það. Málefni þessarar fjölskyldu kom aldrei til umfjöllunar þar." Árni segir sama gilda um aðra leigusamninga sem hann gekk frá í tíð sinni sem borgarstjóri. Ekkert sé óeðlilegt við þá. „Mér sýnast þetta vera fimm mál sem borgarstjóri er búinn aö finna ab ég hafi gengið frá. Eitt þeirra er varðandi hús vib Leynimýri, þar var framlengt samningi við aldraðan mann sem hefur búið þar frá 1986, það var líka endur- nýjaður samningur um lista- skemmu við Hallveigarstíg. Mér skilst reyndar að listamaburinn sé farinn úr því húsnæði og annar kominn í staðinn. Núver- andi borgarstjóri hlýtur að hafa gengiö frá samningi viö hann. Eg gekk líka frá samningi um Ártún við Elliöaár, í því húsi býr nú þriðji ættliður en þab hafði aldrei verið gengið frá leigu- samningi. Þetta eru einstaka mál sem koma félagsmálastofn- un ekki við og var ekki óeölilegt að borgarstjóri annaðist," segir Árni Sigfússon. Kirkjuþing: Kjör séra Döllu gilt Kjörbréfanefnd á kirkjuþingi tók ekki undir það sjónarmið séra Ágústs Sigurbssonar á Prestbakka að kjör séra Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem fulltrúa á kirkjuþing, væri ógilt. Kosningar til kirkjuþings fóm fram síðastliöib sumar. í Húna- vatns- og Skagafjarðarprófast- dæmi féllu atkvæði þannig að séra Dalla var kosin meb sjö at- kvæöum, séra Ágúst fékk sex at- kvæöi og séra Gísli Gunnarsson tvö. Ágúst Sigurbsson kærði kosn- inguna og krafðist þess að hún yrði gerð ógild og kosið að nýju. Ástæðan var sú aö hann taldi at- kvæði séra Jóns ísleifssonar á Ár- nesi á Ströndum vera ógilt þar sem sebillinn hefði veriö „útkrot- aður .í opnuðum og yfirlímdum umslögum" eins og fram kemur í bréfi Ágústs til kirkjumálaráð- herra. Kjörbréf allra fulltrúa á kirkjuþingi voru lögð fyrir kjör- bréfanefnd í gær en hún tók ekki undir sjónarmið séra Ágústs. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.