Tíminn - 27.10.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 27.10.1994, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 27. október 1994 9 UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. Mozambique: Kosningar í dag og á morgun Búist er viö aö fyrstu fjölflokka- kosningarnar og forsetakosn- ingarnar sem haldnar eru í Afr- íkuríkinu Mozambique muni ganga eftir áætlun, en kosið veröur í dag og á morgun. Að sögn eftirlitsmanns Sameinuöu þjóðanna, Aldo Ajello, sem var einn helstu milligöngumanna Sþ þegar samiö var um friö í landinu, virðist ekkert óvænt hafa komiö upp og útlitið því nokkuð gott. Joaquim Chissano, sem verið hefur forseti í landinu, lýsti því yfir í gær að hann væri sann- færbur um ab vinna stóran sig- ur í forsetakosningunum, en mótframbjóbendur hans gáfu lítið fyrir slíkar yfirlýsingar. ■ Indland: Eldsvoði í lestar- vagni Að minnsta kosti 28 manns lét- ust þegar eldur kviknaði í lest- arvagni í austurhluta Indlands í gær. Upptök eldsins voru ekki ljós í gær og eldurinn náði ekki til annarra vagna í lestinni. ■ Vopnahlé rofið í Afganistan Sólarhringsgamalt vopnahlé milli stríðandi skæruliðasamtaka í Kabúl í Afganistan var rofið í gær þegar mikill skotbardagi meb stórskotaliðsvopnum braust út í höfuðborginni. Það voru íranir sem höfðu náð ab miðla málum og koma á vopnahléinu. Að sögn lækna höfbu að minnsta kosti 2 látist og 50 særst. ■ Flugrœningjar fá lausn- argjald í Kákasus: Sleppa gíslum smám saman Rússnenskur gagnnjósnaforingi upplýsti það síðdegis í gær að stjórnvöld hefðu greitt flug- ræningjum lausnargjald fyrir aö þeir frelsuðu gísla sem ræn- ingjarnir héldu um borb í far- þegaflugvél í norðurhluta Kák- asushéraðs. Þegar síðast fréttist var ekki ljóst hvort flugræn- ingjarnir voru búnir ab sleppa öllum gíslunum í vélinni en vitað var með vissu um 13 gísla sem leystir höfðu verið úr haldi. Lausnargjaldið sem ræn- ingjunum var greitt nam 2 milljónum dollara. ■ A meban Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, flytur ræbu sína vib undirritun fribarsamninga milli ísraels og jórdaníu ígœr, líta Rabin, forsœtisrábherra ísraels, og Hussein jórdaníukonungur hvor á annan þar sem þeir sitja hvor sínu megin vib auban stól bandaríkjaforseta. Friðarsamninffarnir voru undiritaöir 1 eyðimörkinni Arava, á landamærum Israels og Jórdaníu - Reuter. Mikið var um dýrðir á landa- mærunum þegar Jórdanir og ísra- elar sömdu um frib, en ríkin hafa ekki barist síðan í stríðinu 1967. Fallbyssudrunur léku um hátíðar- svæöið til að fagna friði en ekki sem merki um stríbsátök eins og jafnan áður þegar hleypt var af á þessum slóðum. Vib athöfnina sagði gamla stríðs- hetjan Rabin, forsætisráðherra ísraels, að ósk hans væri sú ab með samkomulaginu væri tryggt að afkomendur þeirra sem þarna voru mundu aldrei þurfa að upp- lifa stríð á milli þjóðanna og mæður þyrftu ekki að syrgja börn sín. Þúsundir ísraelskra og jórd- anskra hermanna vom í nágrenn- inu suöur af Dauðahafi sem tákn um að friður væri tryggbur. Jórd- anskur öryggisvörður hafbi húfu á höfði sem á stóö á hebresku: „Blessaðir séu friðflytjendur". Hann sagbi höfuðfatið gjöf frá ísraelskum hermanni. Kliður fór um mannfjöldann þegar Hillary Clinton birtist í kjól sem bar sama lit og klæðnaður Noor Jórdaníudrottningar. Þar meb var því slegib föstu aö túrkis- blátt væri litur fribarins. Einkennisklæddir hermenn úr herjum beggja þjóöanna stóöu hlið vib hlið og lúðrasveitir léku þjóðsöngvana sameiginlega. Tvær stúlkur, barnabörn her- manna beggja þjóbanna sem féllu 1967, afhentu heiðursgestinum Bill Clinton blómvendi. Lesið var upp úr versum Kóran- ins og úr Davíðssálmum. Fribarsamningana undirritubu jórdanski forsætisráðherrann, Ab- dul- Salam al-Majali, og Rabin, forsætisrábherra ísraels. Hjá þeim stób Clinton Bandaríkjaforseti sem vitni að undirskriftum. Yfirmenn herjanna skiptust á gjöfum og tíu þúsund blööum í litum þjóbfána ríkjanna var sleppt. ■ Hætt viö að olían berist út í Barentshafið Moskvu - Reuter Olía flæðir nú út í fljótið Pec- hora og er hætt við því að hún streymi síðan út í Barentshaf. Þetta fullyrðir Valentina nokkur Semyashkina, sem er formaður náttúruverndarsamtaka á svæð- inu, en hún segir jafnframt aö þetta sé ekki í fyrsta sinn sem slíkt eigi sér stab. Fregnir af olíu- lekanum stangast nokkuð á. Bandarískir sérfræðingar em æf- ir og segja að þetta umhverfis- slys geti haft geigvænlegar af- leiðingar á viðkvæmt náttúrufar norður vib heim- skaut. Orkumálaráðherra Bandaríkj- anna, Bill White, segir ab olíu- lekinn, sem á upptök sín þús- und kílómetrum norðaustur af Moskvu, sé átta sinnum meiri en Exxon-lekinn í Alaska fyrir fimm ámm, en rússneska sjón- varpið sagði frá því í gær að við hreinsunarstörf á hinu meng- aða landsvæði, sem er um 68 ferkílómetrar, séu nú 140 manns með skólpfötur og léttan dælubúnað. Nikolai Balin, sem er umhverf- ismálastjóri í Komi-héraði þar sem olíuleiðsla rofnaði og or- sakaði lekann, viðurkennir ab vanrækt hafi verið að gera vib leibsluna þótt hún sé orðin gömul og léleg. Talsmabur Greenpece heldur því fram að leiöslan sé eins og gatasigti, en hlutverk hennar er aö leiða olíu frá norðurhéruðunum til olíu- hreinsunarstöðva sem flestar eru inni í miðju landinu. Þessu þverneitar fyrirtækib Transneft, sem hefur umsjón með leiðsl- unni. Varaumhverfismálaráð- herra Rússlands, Viktor Kostin, viðurkennir að alvara sé á ferð- um en segir ab því fari fjarri ab hægt sé að tala um stórkostlegt umhverfisslys. Vestrænir olíusérfræðingar hafa lengi vitab að olíumengun- arvarnir í Rússlandi em í lama- sessi og ætla þeir að allt ab 10% af allri olíu þar fari til spillis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.