Tíminn - 27.10.1994, Blaðsíða 10

Tíminn - 27.10.1994, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 27. október 1994 I luktum heimi — skaldsaga eftir Friöu Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur, í luktum heimi. Á bókarkápu segir meðal annars: Hann heitir Tómas, er tæplega fimmtugur og áleitnar spurn- ingar sækja að honum: Hvað er þaö sem gefur lífinu gildi? Hvaöa stjórn hefur einstakling- urinn á örlögum sínum? Ást- inni? Hamingjunni? Eða eru ást og hamingja kannski bara orðin tóm; slitgjarnt haldreipi hins A. Siguröardóttur örvæntingarfulla manns sem kominn er af léttasta skeiöi? í luktum heimi er skáldsaga sem ekki bregst lesendum Fríöu; hér má glöggt þekkja höfundar- einkenni hennar um leið og hún sýnir á sér nýjar hliðar. Sag- an er í senn átakanleg og sorg- leg, en í stílnum býr jafnframt leiftrandi kímni og djúpur mannskilningur. Ný bók frá Fríðu Á. Sigurðar- dóttur er mikill viðburður á bókmenntasviðinu. Fríða er meðal fremstu rithöfunda á ís- landi. Hún hefur hlotið marg- víslegar viöurkenningar fyrir rit- störf sín og verk hennar hafa verið þýdd á fjölda tungumála. Síðasta skáldsaga Fríöu, Á með- an nóttin líður, sló með eftir- minnilegum hætti í gegn og hlaut bæði íslensku bók- menntaverölaunin og Bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs. í luktum heimi er 281 bls. að stærð og kostar 3.380,- kr. ■ Fríba Á. Sigurbardóttir Kvennaguðfræði Auðar Eir Fyrsta bókin um kvennaguö- fræði, sem skrifuð hefur verib á íslensku, er komin út. Höf- undur er séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir. Bókin heitir Vinátta Gubs. í henni er fjallað um kristna trú út frá sjónarmiði kvenna. Rætt er um mikilvægi þess að Guö er eins móðir okkar og faðir, hún er vinkona okkar sem vinnur með okkur í daglegum störfum. Fjallað er um rætur kvennaguðfræðinnar í Biblí- Fréttir af bókum unni og sögunni og spurt hvort karlmaöur geti verið frelsari kvenna eða hvort við þörfnumst yfirleitt frelsara. Áhersla er lögð á sjónarmið kvennaguðfræðinnar um sjálfsmyndina og hugmyndir hennar um syndina og frelsið, vináttuna og völdin. Einnig er fjallað um hvernig trúin mótar lífið og lífið trúna. í lokakafla bókarinnar er fjallað um ein- manaleika, ótta, sektarkennd og reiði og þá möguleika sem kristin trú gefur fólki til að stjórna eigin lífi. Séra Auður Eir Vilhjálmsdótt- ir hefur lagt stund á rannsókn- ir í kvennaguðfræöi í 15 ár. í bók sinni miðlar hún af sjón- armiðum erlendra kvennaguð- fræbinga og kemur fram með sína kven-naguðfræöi sem hún hefur mótað m.a. með samtöl- um í fjölmörgum kvennahóp- um og í prédikunum sínum. Bókin kemur út í tilefni þess að nú eru 20 ár síðan séra Áuð- ur Eir vígðist sem prestur, fyrst kvenna á íslandi. Kvennakirkj- an gefur bókina út með stuön- ingi frá Lúterska heimssam- bandinu og íslensku þjóðkirkj- unni. Bókin er 163 bls. og er prentuð í G.Ben./Eddu prent- stofu hf. Séra Aubur Eir Vilhjálmsdóttir. Ný skáldsaga eftir Gubberg Bergsson Komin er ut ný skáldsaga eftir Guðberg Bergson, Ævinlega. Á bókarkápu segir meðal annars um efni hennar: Vífill gullsmiöur er ókvæntur maður á miðjum aldri sem hef- ur ekki gengið í hjónaband af því aö hann þráir aö elska manneskju aðeins einu sinni, ævilangt á meðan lífið endist, en ekki fundið hana, eins og segir í sögunni. Dag einn þegar Vífill er á gangi á Laugaveginum birtist ljóslifandi konan sem hann hafði geymt í hjarta sínu í fjömtíu ár. Það virðist deginum ljósara að fundur þeirra tveggja er upphaf að hamingjuríkri sambúð og ævilöngu hjóna- bandi. Guðbergur lýsir samskiptum og sambúð kynjanna. En ekki er allt sem sýnist og á bak við grín- ið og hábið leynist saga af leit manneskjunnar að ást og ham- Cubbergur Bergsson ingju. Gubbergur Bergsson hefur fyr- ir löngu tryggt sér sess sem einn frumlegasti og áhrifamesti rit- höfundur okkar. Verk hans marka tímamót í íslenskum bókmenntum og honum hefur tekist að halda ferskleika í skrif- um sínum í rúma þrjá áratugi. Guðbergur hefur þann hæfi- leika að koma lesandanum stöð- ugt á óvart með efniviði sínum og efnistökum og svo er einnig um þessa nýju bók. Þá má geta þess að skáldsaga Guðbergs, Svanurinn, hlaut Is- lensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmennta- verölauna Noröurlandarábs 1992, hefur fengið frábærar við- tökur erlendis, mebal annars í Danmörku, Svíþjóð og Tékk- landi, og nýlega hefur verið gengib frá útgáfusamningi um franska þýöingu Svansins hjá hinu virta franska útgáfufyrir- tæki Gallimard. Ævinlega er 153 bls. aö stærð og kostar 2.980,- kr. ■ jóhann Sigurjónsson. Ljóðabók Jóhanns Sigurjónssonar Frá Heimili og skóla, landssamtök- um foreldra grunnskólanemenda Landssamtök foreldra, Heimili og skóli, lýsa ánægju sinni með þá ákvörðun menntamálaráð- herra að taka mark á ábending- um foreldra og skólafólks í þá veru ab fjölga vikulegum kennslustundum grunnskóla- nemenda. Samtökin hafa ítrek- ab bent á nauðsyn þess að nýta skólaárið betur og einsetja skól- ana. Það að nemendum sé skilab aftur þeim kennslustundum sem skornar voru nibur í „band- orminum" er hinsvegar svo sjálfsagt að ekki er hægt að telja það sérstaklega þakkarvert. Þvert á móti hefði, í kjölfar vax- andi umræðu um stöðu grunn- skólans undanfarin misseri, mátt reikna með meiri fram- kvæmdagleði og stórhug af hálfu yfirvalda menntamála. Eitt eru orb og annað eru efnd- ir. Í nýframkomnu fjárlaga- frumvarpi er því mibur ekki að sjá að fylgja eigi eftir fögrum markmiðum um einsetningu skóla. Einsetinn skóli er ekki eingöngu húsnæðisvandamál sem sveitarfélög þurfa að leysa. Meginforsenda einsetningar byggist á nýjum samningum við kennara og fjölgun stöðu- gilda í kennslu og ekkert vottar fyrir slíku í fjárlagafrumvarpinu. Þab er verulegt áhyggjuefni ab þeir sem þjóðin hefur falið að fara meö forsjá skólamála skuli enn um sinn ætla að spara eyr- inn og kasta krónunni. Þetta lýsir sér meðal annars í því að áfram veröa of margir of stórir bekkir í grunnskólum og fram- lög til endurmenntunar kenn- ara eru skorin við nögl. Samtök- in Heimili og skóli halda því aft- ur af hrifningu sinni þar til rík- isstjórnin hefur á sannfærandi hátt sýnt að hún er tilbúin til að axla fjárhagslega ábyrgð á menntastefnu sinni. ■ Jóhann Sigurjónsson (1880-1919) hlaut alþjóðahylli fyrir skáldskap fyrstur Islendinga eftir höfunda fornsagnanna. Hann var leikrita- skáld en þau fáu ljóð sem hann orti urðu mörg hver dáðar perlur í ís- lenskri ljóðagerð og leiðarljós ann- arra skáida. Ljóbabók Jóhanns Sigur- jónssonar er heildarsafn þeirra ljóða sem Jóhann orti sem fullþroska skáld og inniheldur 68 ljóð. Eiríkur Hreinn Finnbogason sá um útgáf- una og ritar eftirmála um skáldið og verk hans. Bókin er í ritrööinni Sól- stöfum, en áður hafa komib út í sömu ritröð Hver er sinnar gœfu smiður eftir Epiktet í umsjá Brodda Jóhannessonar og Ferskeytlan í sam- antekt Kára Tryggvasonar. Bókin er innbundin og er 127 blaösíbur. Almenna bókafélagið gefur bókina út og Prentsmiðjan Oddi hf. sá um prentun. Verð bók- arinnar er 1.490 kr. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.