Tíminn - 27.10.1994, Qupperneq 5

Tíminn - 27.10.1994, Qupperneq 5
Fimmtudagur 27. október 1994 5 Stabreyndir um uppbyggingarstarf KSI Tíminn birti 18. október sl. viðtal viö þrjá unglingaþjálfara í knatt- spyrnu á íþróttasíöu undir yfir- skriftinni „Landsbyggöarpólitík ræöur vali í yngri landsliöin". í viðtalinu er réttu máli hallaö svo að ekki verður hjá því komist að svara því. Það er með öllu óskilj- anlegt aö gagnrýni þessara þjálf- ara skuli að hluta byggjast á rang- færslum. Auðvitað á gagnrýni rétt á sér, en slíkar rangfærslur gera ekki annað en að skaða knatt- spymuíþróttina og þá menn sem fara með rangt mál. í upphafi er rétt ab fram komi, að val á landsliðsmönnum hefur aldrei byggst á búsetu eða í hvaöa félagi leikmenn eru. Allt tal um kvótakerfi fær því ekki staöist. Það er hins vegar áhyggjuefni ef unglingaþjálfarar telja að slíku kerfi sé beitt við val á leikmönn- um. Getur verið að öll fræðsla og kynning KSÍ á þessum málum hafi farið framhjá þeim? KSÍ verð- ur að svara þessari spurningu. Við skulum gera ráb fyrir að svarið sé jákvætt. Að því gefnu verður nú reynt að bæta úr því hér með kynningu á uppbyggingarstarfi KSÍ. 1. Knattþrautir KSÍ hefur á hverju ári gengist fyr- ir knattþrautum fyrir yngstu iðk- endurna. í ár varð engin breyting á því. Hins vegar voru teknar upp nýjar þrautir skv. danskri fyrir- mynd. Öllum félögum voru send- ar upplýsingar um knattþrautirn- ar og skorað á þau ab leggja þær fyrir sína félagsmenn. Einnig var efnt til sérstaks knattþrautardags. Framkvæmdin var því á ábyrgð félaganna, en tólf krökkum sem höfðu bestu úrlausnirnar var boð- ið á landsleik íslands og Svíþjóðar í haust. Þar sýndu þau listir sínar. 2. Knattspyrnuskóli KSÍ Knattspyrnuskóli KSÍ var starf- ræktur á Laugarvatni í ár, eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Miklar breytingar voru gerðar á skólanum. Öllum félögum var boðið að senda í skólann einn leikmann, fæddan 1980 (á eldra ári í 4. flokki). Alfarib var falliö frá því að velja úrvalshóp í skólann, eins og áöur hafði verið gert. Þá voru á hverju ári um 30 drengir í skólanum sem skörubu fram úr í aldursflokknum. Nú var skólinn hugsaður sem þáttur í útbreiðslu- starfi KSÍ sem hefði ekki bein „Af framansögðu má Ijóst vera að starfsemi KSÍ, sem lýtur að uppbyggingu, er víðtœk og metnaðarfull. Á þessu ári hafa verið gerðar miklar breytingar á þessari starfsemi. Engu aðsíður er sífellt verið að vegaog meta starfið innan KSI og í hreyf- ingunni. Efbetri leiðir finn- ast eða efúrbóta er þörf, hika menn ekki við að gera nauðsynlegar ráðstafanir." VETTVANGUR tengsl við drengjalandsliðið. Alls voru 42 drengir í skólanum í sum- ar frá jafnmörgum félögum. í framtíðinni má hugsa sér að efla Knattspyrnuskóla KSÍ enn frekar. Hugsanlega þannig að fleiri geti mætt frá hverju félagi, jafnvel án takmarkana. Þá má velta fyrir sér skóla á veturna í tengslum við skólakerfiö. 3. Úrtökumót KSÍ Úrtökumót KSÍ var sett á laggirn- ar í fyrsta sinn nú í sumar. Mótib leysti Knattspyrnuskóla KSÍ af hólmi eins og hann var á ámm áður. Til mótsins voru boðaðir 80 drengir fæddir eftir 31. júlí 1979 og 1980. Valið fór þannig fram, ab trúnaðarmenn KSÍ völdu bestu leikmennina á sínu svæði á þess- um aldri. Á þennan hátt voru mynduð sex lið: Reykjavík 1, Reykjavík 2, Vesturland, Norður- land, Austurland og Suðurland. Til Reykjavíkur taldist nágrenni og Suðurnes voru með Suður- landi. Fylgst var með drengjun- um í leikjum mótsins og þeir vegnir og metnir. Úr þessum hópi veröur síban valinn undirbún- ingshópur að nýju drengjalands- libi sem hefur keppni í ágúst á næsta ári. Rétt er ab taka það fram aö góður leikmaður, sem var ekki á þessu úrtökumóti, getur auövit- að verið valinn í drengjalandslið- ið, ef landsliðsþjálfara sýnist svo. Þetta gildir auðvitað almennt. Leikmabur getur verið valinn í unglingalandsliö þrátt fyrir að hann hafi ekki leikið meb drengjalandslibinu o.s.frv. Ljóst er, að úrtökumótib tókst vel og mun festa sig í sessi. Mótiö fer fram í ágúst þegar aðstæður eru góðar og leikmenn í sínu besta formi. 4. Hæfileikamótun KSÍ Á síðasta ári setti KSÍ á laggirnar hæfileikamótun — átak í þjálfun efnilegustu leikmanna okkar. Meginmarkmiðiö með þessu átaki er ab efla A-landslið íslands í framtíðinni. Það á að gera með því að auka gæði allra þátta í knattspyrnuumhverfi bestu leik- manna okkar á aldrinum 14-19 ára, þannig aö þeir verði með tím- anum frambærilegir á alþjóða- vettvangi, þar sem miklar kröfur eru gerðar um leikskilning, tækni, líkamlegan styrk, einbeitingu og vilja. Eins og sést á þessu er verk- efnið stórt og vinnst ekki á einu eða tveimur árum, heldur yfir langt tímabil. Til þess að starfa við hæfileikamótunina voru ráðnir 5 þjálfarar víðs vegar um landið, sem eru trúnaðarmenn KSÍ hver á sínu svæði. Trúnaðar- menn bera ábyrgð á vali, eftirliti og hæfileikamótun leikmanna á svæðunum. Leikmenn komast inn í þessa áætlun þegar þeir eru valdir í úrtökumót KSÍ. Aðeins þeir bestu halda áfram á sínu svæði. Þeir geta auðvitab dottið úr hópnum og abrir komið í stað- inn hvenær sem er. í hæfileika- mótun KSÍ er því unnið með leik- menn óháö búsetu og félagi um allt land. Leikmenn í drengja- landsliðinu, unglingalandslibinu og leikmannahóp framtíðarinnar (16-19 ára) eru í þessu verkefni. Það er auðvitað von KSÍ að þeir styrkist við það og yngri landslið- in nái betri árangri í framtíöinni, en að gera ráð fyrir ab hæfileika- mótunin skili sér eba skili sér ekki í ár er með öllu óraunhæft. 5. Leikmannahópur framtíöar í tengslum við hæfileikamótun- ina hefur verið valinn úrvalshóp- ur, leikmannahópur framtíðar- innar. í þennan hóp voru valdir 22 leikmenn á aldrinum 16-21 árs. Valið byggðist á hæfileikum leikmannanna og árangri þeirra meb félags- og landsliðum. Hóp- urinn kemur saman tvisvar á ári, ab vori og hausti, og gengst m.a. undir mælingar á ýmsum líkam- legum þáttum. Þá er fylgst náið meb þessum leikmönnum í keppni. Markmibið með þessum hópi er að A-landsliðsmenn fram- tíðarinnar nái betri árangri á al- þjóðlegum vettvangi. Snar þáttur í því er að senda þessa leikmenn til erlendra félagsliba til æfinga og keppni. Þegar hafa 9 úr hópnum farið utan til æfinga hjá erlendum félagsliðum. 6. Yngri landsliðin KSÍ starfrækir tvö landsliö fyrir yngri leikmennina, drengjalands- liðið (14-16 ára) og unglinga- landsliðib (16-18 ára). Á hverju ári eru valin ný liö sem hafa þessi verkefni: Drengjalandsliðið tekur þátt í Norðurlandamóti í ágúst, riðlakeppni Evrópumótsins að hausti, æfingamóti ab vori og síð- an úrslitakeppni Evrópumótsins ef sigur vinnst í riblakeppninni. Unglingalandsliðið tekur þátt í æfingamóti að vori eða hausti, riðlakeppni Evrópumótsins að hausti, æfingamóti ab vori og 16 liða úrslitum Evrópumótsins að vori ef liðið vinnur riðlakeppn- ina. Á þessu má sjá að verkefnin eru mikil, enda verða leikirnir um 30 á þessu almanaksári. Valið fer þannig fram aö trúnaöarmenn KSÍ fylgjast með leikjum í yngri flokkunum á sínum svæöum og mynda sér þannig skoðanir um leikmennina. Þeirra hlutverk er auövitað aö koma auga á bestu og hæfileikaríkustu einstaklingana. Væntanlega fá þeir ábendingar víða ab, frá þjálfurum og þeim sem starfa og fylgjast með ungum leikmönnum. Þá fylgjast lands- libsþjálfararnir auðvitað einnig með leikjum í yngri flokkunum og taka þátt í æfingum trúnaöar- manna á svæbunum. Síðan er val- inn undirbúningshópur (um 25 manna) í hvoru liði og kemur hann saman fyrstu helgina í júlí á Laugarvatni. Smám saman verður síðan til endanlegur landsliðs- hópur. Það er enn rétt að taka þaö fram ab þó að leikmaöur sé ekki í fyrsta undirbúningshóp, getur hann verið valinn í landslið. í flestum tilfellum eru notabir a.m.k. 20 leikmenn í hvoru liði á hverju ári. í kringum verkefnin eru undirbúningsæfingar, en fé- lögin bera eins og gefur að skilja mesta ábyrgð á þjálfun leikmann- anna. Hin miklu verkefni lands- libanna gefa þó þjálfurum þeirra meiri tíma með leikmönnum og tækifæri til að leiðbeina þeim. Leikmaður, sem fer í gegnum bæbi þessi landslið, fær dýrmæta reynslu í milliríkjaleikjum sem styrkir hann mikið og fær hann til að leggja æ harðar að sér við iðkun knattspyrnunnar. Ljóst er að það eflir íslenska knattspyrnu, en vitanlega verða þeir ekki allir A-landsliðsmenn, líkt og leik- menn í yngri flokkum komast ekki allir í meistaraflokk. Hins vegar er mikilvægt, að A-lands- liðsmenn hafi leikið meö yngri landsliðum, því að þau eru góöur skóli. Þab hefur sýnt sig að flestir A-leikmenn okkar hafa leikib með þeim og því má segja að mark- miöið með þessu starfi hafi náöst. Þetta veröur að hafa í huga þegar árangur liðanna er veginn og metinn. Þaö ár hefur ekki liðib að ekki sé deilt á val í þessi landslib, enda væri annað óeðlilegt. Margir þjálfarar í yngri flokkunum eiga það sameiginlegt að þeir telja sig eiga betri leikmenn en þá sem hafa verið valdir í hvert sinn. Viö því er ekkert að gera, en það hefur oft verið slæmt hve óraunhæfar hugmyndir margir þeirra hafa. Ljóst er að aðeins bestu leikmenn í félagsliði geta hugsanlega átt er- indi í landslið, en ekki nánast allt liðið. Góð samvinna milli þjálfara félagsliða, trúnabarmanna og landsliðsþjálfara er mikilvæg og forsenda þess að val á leikmönn- um takist vel. Af framansögöu má ljóst vera aö starfsemi KSÍ, sem lýtur að upp- byggingu, er víðtæk og metnaðar- full. Á þessu ári hafa verið gerðar miklar breytingar á þessari starf- semi. Engu að síöur er sífellt veriö aö vega og meta starfiö innan KSÍ og í hreyfingunni. Ef betri leibir finnast eða ef úrbóta er þörf, hika menn ekki við aö gera naubsyn- legar rábstafanir. Stöðugleiki hef- ur hins vegar einkennt starfsemi KSÍ og verður svo örugglega áfram. Höfundur er skrifstofustjóri KSÍ. Brotalamir í brotamálum Beyg setti að mönnum, þegar sú fregn barst frá Noregi fyrir skömmu, að nokkrir sex ára drengir hefðu gengið svo í skrokk á stallsystur sinni ab ekki þurfti um sár ab binda. En það er ekki bara í útlandinu, sem ógnarat- burbir eiga sér stað. Samtímis hörmungunum í Noregi, voru tveir fullorðnir menn, bábir á þrí- tugsaldri, að dunda sér viö það, hér í henni Reykjavík, ab hleypa rafstraumi á brennivínsdauban drykkjufélaga sinn. Þótt ekki sé hægt aö líkja saman gerbum ómálga barna og fullorð- inna manna, þá leiða bæði þessi voðaverk óneitanlega hugann að því, hver skollinn gangi á í vel- megunarþjóðfélögum Vestur- landa. Hefur botnlaus efnis- hyggja, samfara veruleikaflótta fólks á vit sjónvarps og mynd- banda, leitt af sér þvílíkan tilfinn- ingadoða, aö manndráp og lim- lestingar séu komin innfyrir mörk eblilegs lífs hjá einhverjum hópi fólks? Ekki verður hjá því komist, að kanna hvort slíkar vangaveltur eigi við einhver rök að styðjast. Og séu þau rök haldbær, þá veröur ab bregðast vib á viðeigandi hátt. Frændur okkar annars staðar á Norðurlöndum hafa þegar gripiö í taumana. Þannig hefur sænska sjónvarpið t.d. tekið ofbeldisþátt nokkurn út af dagskrá. Vitanlega bera rafstraumsgarpamir í Reykja- vík fulla ábyrgð gerba sinna, séu þeir á annað borb sakhæfir. Eigi að síður væri ráð að sérfróðir menn freistubu þess að grafast fyr- ir um hugmyndaheim þeirra, SPJALL PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON mótun hans og þróun. Hver veit nema sú leit gæti vísab á einhverja þá brenglun í menningu okkar og samfélagsgerb, sem betra væri að kunna skil á en loka augum fyrir. Niburstöður slíkra rannsókna ætti svo ab birta almenningi og taka til umfjöllunar vítt og breitt um þjóðfélagib. Því veröur ekki í móti mælt, aö alvarlegum glæpum fer fjölgandi á íslandi. Refsingar í formi sekta eða tukthúsvistar viröast koma að litlu haldi til ab sporna við þessari þróun. Enda er það svo að meiri- hluti þeirra afbrotamanna, sem hljóta dóma, eru síbrotamenn og oftar en ekki brenglaðir af áfengis- sýki og eiturlyfjaneyslu. Vissulega þarf að taka þessa menn úr umferö, eins og lög gera ráð fyrir. En það er til lítils, ef þeir koma jafn vitlausir út og þeir voru, þegar rimlarnir luktust að baki þeim. Þótt einhverjum þessara manna sé vart viðbjargandi, þá er full ástæba til að kanna hvort ekki sé þörf grundvallarbreytinga varb- andi fangelsisafplánun síbrota- manna. Óneitanlega leiða þessar vanga- veltur um glæpi hugann að þeirri gerö þeirra, sem hvað mest er rædd meðal fólks nú um stundir. Hér er átt vib kynferbisglæpi, bæði nauðganir og kynferðisleg not á börnum. Sumir kalla það síðarnefnda raunar „kynferöislega misnotkun á börnum", rétt eins og til sé sú kynferðisnotkun á börnum sem ekki sé misnotkun. En þaö er önnur saga. Dómar þeir, sem hér á landi eru felldir yfir nauðgurum og kyn- ferðislegum barnaníðingum, em svo hörmulega vægir, þrátt fyrir að lög heimili annað, að efasemd- ir hljóta að vakna um dómgreind dómaranna. Og geta menn ekki verib nokkuð sammála um þaö, að dómgreindarlaus dómari ætti eiginlega að svipast um eftir ein- hverju því starfi, sem hann sé bet- ur fær um að gegna? ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.