Tíminn - 27.10.1994, Síða 6

Tíminn - 27.10.1994, Síða 6
 Fimmtudagur 27. október 1994 að útvarpið gegndi miklu hlut- verki við að tengja saman byggðarlög og bæta samskipti þeirra á milli og þar með mann- lífið. Óskaði hann starfseminni allra heilla. Þá var boðið upp á kaffi og pönnukökur. Finnbogi Hermannsson, for- stöðumaður svæöisútvarpsins, stjórnaði svo útsendingu að af- loknu ávarpi útvarpsstjóra til hlustenda. Ræddi Finnbogi við fólk frá Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði. Þá var bein útsend- ing á viðræðuþætti Finnboga við þrjá fulltrúa úr sveitarstjórn- um á svæöinu. Útsendingar svæðisútvarpsins verða þrjá daga vikunnar — miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga — frá kl. 18.35 til 19.00. Reykjavíkurborg: Auglýst eftir fimm hönnuðum ........ ....-------------------------------------■;---1' "3..........i........"l,M '•"'"•VV",".................. Borgarráö hefur samþykkt að auglýsa eftir hönnuðum til að hanna innréttingar í leigu- íbúöir í eigu Reykjavíkurborg- ar. Fimm hönnuðir úr hópi umsækjenda verða valdir til aö gera tillögur um innrétt- ingalínu og einn þeirra síðan valinn til að þróa og full- hanna sína hugmynd. Eftir smíði frumgerðar veröur smíöin boðin út á almennum markaði. Samþykktin var gerð að tillögu samstarfshóps á vegum Sam- taka iðnaðarins, borgarverk- fræðings og Félagsmálastofnun- ar. Markmið verkefnisins er að þróa og prófa nýtt verklag við hönnun, útboð og smíði inn- réttinga fyrir Reykjavíkurborg. Litið er á verkefnið sem tilraun, sem geti í senn stuðlað aö inn- lendri atvinnusköpun og hag- kvæmum rekstri borgarinnar. Gert er ráð fyrir að hver hönn- uöanna fimm fái kr. 150 þús- und fyrir sína tillögu og ber þeim að skila henni innan fjög- urra vikna frá vali hönnuöa. Til- lögurnar eiga að felast í innrétt- ingum í eldhús og baðherbergi, auk fataskápa í svefnherbergi og hol. Trésmiðja Reykjavíkur ann- ast smíði á frumgerðum innrétt- inga þess hönnuðar, sem verður fyrir valinu, og eftir það verður smíðin boðin út á almennum markaði. Reykjavíkurborg mun síðan semja við lægstbjóðanda um smíði tiltekins fjölda inn- réttinga. Reiknað er með aö verkefnið kosti fimm milljónir króna og er inni í þeirri tölu kostnaður við verkefnisstjórnun, launaða til- lögugerð, hönnunarlaun, smíöi frumgerðar, útboðsgögn og aug- lýsingar. Olíuleki á Akureyri Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara á Akureyri: Nokkur olía lak í fiskihöfnina á Akureyri um síðustu helgi. Veittu starfsmenn hafnarinnar olíubrákinni eftirtekt, þegar þeir komu til vinnu á mánudags- morgun. í fyrstu var ekki vitað um hvaöan olían hefði komið, en nú er ljóst að mistök um borð í fiskibát, sem lá í höfn- inni, urðu olíulekans valdandi. Engum var gert viðvart um óhappið og því var ekki unnt að bregðast fyrr við og hefja hreinsun, en að sögn ívars Bald- urssonar hafnarvarðar gekk greiðlega að hreinsa olíuna úr höfninni, þegar hafist var handa, og ekki er talið aö neinar verulegar skemmdir hafi orðib af hennar völdum. Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar á Akureyri, sem fékk málib til meðferðar, var verið að dæla olíu á milli tanka í fiskiskipi, sem lá í um höfninni um helgina. Annar tankurinn yfirfylltist við það verk, þannig að nokkurt magn af olíu fór í sjóinn. Hópur fulltrúa, sem sóttu abalfund Samtaka bœjar- og hérabsfréttablaba á Neskaupstab um síbustu helgi. Abalfundur Samtaka bœjar- og héraösfréttablaöa var haldinn á Nes- kaupstaö um síöustu helgi. Ómar Caröarsson: Mörg blöð eiga und- ir högg ab sækia Blaðamenn af öllu landinu sóttu aðalfund Samtaka bæj- ar- og hérabsfréttablaba, sem haldinn var á Neskaupstað um síbustu helgi. Voru þar reifub hagsmunamál þessara blaba, en að sögn Ómars Garð- arssonar í Vestmannaeyjum, formanns samtakanna, eiga þau mörg undir högg ab sækja. Ómar segir að tekjur hérabs- fréttablaða — rétt eins og tekjur annarra fjölmiöla — hafi farið minnkandi. Auglýsingar hafi dregist saman og mörg blöb hafi bmgðist við þeirri þróun með því að dreifa þeim ókeypis og selja þau þess í stab. Nokkur blöð hafi hætt starfsemi sinni, en farið þó af stað aftur, s.s. Skagablaðið á Akranesi og Fjarð- arpósturinn í Hafnarfirði. Segi þab hve miklu hlutverki blöð af Aö skipta um dekk, umfelgun og jafnvœgisstilling: Rúmlega 13% mismunur á verði Samkeppnisstofnun hefur kannað verb á vetrardekkjum og hvað það kostar að skipta um dekk. Athuguð voru verð hjá 17 fyrirtækjum á höfuö- borgarsvæöinu. í könnuninni var gert ráð fyrir skiptingu á dekkjum, umfelgun og jafn- vægisstillingu á fjórum hjól- börðum. I niðurstööum Samkeppnis- stofnunar kemur fram að lægsta verð á skiptingu, um- felgun og jafnvægisstillingu á fjórum dekkjum var 3.300 kr. Hæsta verð hins vegar var 3740 kr., þannig að mismunur á hæsta og lægsta verði var 13,3%. Ef um jeppa var að ræða, þá var þessi aðgerð öll mun dýrari. Lægsta verð var 4.300 og það hæsta 6.160, eða um 43% verðmunur. Það vekur hins vegar athygli ab mjög lítill verðmunur virð- ist vera milli staða á nýjum og sóluðum hjólbörbum milli staba. Þetta á við um flestar gerbir dekkja, og er minnsti verð- munur milli sambærilegra dekkja á nýjum, stórum Mich- elin- dekkjum, eða um 0,8% þar sem þeir voru dýrastir og þar sem þeir voru ódýrastir. Sólaðir hjólbarðar eru hins vegar miklu ódýrari en nýir og er verðmunur á sóluðum hjól- börðum mestur 7,8%. þessu tagi gegni í hverju samfé- lagi. Þrjú ný blöð hafa að undan- förnu gengið í Samtök bæjar- og hérabsfréttablaða. Þab eru Ey- firska fréttablaðiö, sem gefið er út á Dalvík, Dagskráin á Selfossi og loks hinn endurvakti Fjarðar- póstur í Hafnarfirði. Dr. Sigrún Stefánsdóttir, frétta- maður og fjölmiðlafræbingur, flutti á fundinum eystra erindi um efnistök í blaðamennsku og ekki síður útlit blaða. Sagöi Ómar menn hafa veriö ánægða með mál Sigrúnar og ekki síður góðan viburgjörning heima- manna þar eystra. Var einnig ákvebið að aðalfundur samtak- anna yrði á næsta ári haldinn á Selfossi, en þar eru gefin út Sunnlenska fréttablaðið og Dag- skráin. Stjórn samtakanna skipa Ómar Garðarsson, ritstjóri Frétta í Vestmannaeyjum, Kristín Gestsdóttir á Eystra-Horni, sem gefib er út á Höfn í Hornafirði, og loks Elma Gubmundsdóttir á Austurlandi á Neskaupstab. -SBS/Selfossi Stækkab útsendingarsvæbi RÚV á Vestfjörbum Frá Sigurbi Viggóssyni, fréttaritara Tímans á Patreksfirbi: Þann 19. október s.l. uröu tíma- mót í útvarpsmálum Vestfirb- inga, þegar fyrstu útsendingar frá svæðisútvarpinu á Vestfjörð- um nábust á suðvesturhluta Vestfjarða, þ.e. Vestur-Baröa- strandarsýslu. Um leið var minnst fimm ára afmælis RÚV á ísafirði. Svæbisútvarp RÚV bauö for- ráðaaðilum sveitarstjórna og at- vinnufyrirtækja á hinu nýja hlustunarsvæði að vera vib þeg- ar útsending hófst úr ráðhúsinu á Patreksfirði. Heimir Steinsson útvarpsstjóri ávarpaði gesti ábur og ræddi m.a. abdraganda þessa áfanga. Hann sagði ab stefna út- varpsins væri að ná enn frekar til áheyrenda sem víbast um landiö og að svæðisútvarp væri libur í þeirri stefnu. Taldi hann Utvarpsstjórí flytur ávarp í tilefni áfanga í útvarpssendingum á Vestfjörbum. Athöfnin fór fram í rábhúsinu á Pat- reksfirbi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.