Tíminn - 27.10.1994, Side 8
8
Fimmtudagur 27. október 1994
■
DNA-rannsóknir
hafa endanlega
leitt í Ijós ab
Anna Anderson
getur ekki hafa
veriö rússneska
prinsessan An-
astasía
Nú herma fjölmiðlar ab
loksins sé kominn á dag-
inn allur sannleikurinn
um Önnu Anderson, konu sem
varöi meirihluta ævinnar til ab
reyna að sanna ab hún væri An-
astasía, ein af dætrum Nikulásar
2., síðasta Rússakeisarans. Eins og
kunnugt er tóku bolsévíkar hann
og fjölskyldu hans af lífi í Jekater-
ínbúrg í júlí 1918.
Mörgum þóttu fullyrbingar
Önnu Anderson (sem lést í
Bandaríkjunum 1984) um aö hún
væri keisaradóttirin myrta
ósennilegar, en margir uröu til aö
leggja trúnab á þær og sagnfræð-
ingum gekk illa aö sanna að þær
væru uppspuni. En nú á ab hafa
verib sannaö endanlega með
DNA-rannsóknum aö Anna And-
erson hafi ekki getab verið sama
manneskja og Anastasía prinsessa
og stórhertogaynja.
„Dapurleg og
andstyggileg sagay/
Þetta gerðist þannig ab rannsök-
uð voru blóösýni úr Filippusi her-
toga af Edinborg og fjölskyldu
þýskrar bóndakonu, Margarete
Ellerik, sem var náfrænka Önnu,
auk sýna úr líkama og hári henn-
ar sjálfrar. Niöurstöbur þeirra
rannsókna uröu m.a. aö þau
Anna og Filippus hafi ekki getað
veriö skyld. En amma Anastasíu
var langamma hertogans.
Áriö 1920 var Anna dregin upp
úr síki í Berlín, þar sem hún hafði
reynt aö svipta sig lífi. Til skamms
tíma var ekkert meö vissu vitaö
um ævi hennar fram til þess at-
burðar. Nú hafa víötækar rann-
sóknir bætt úr þeim vitneskju-
skorti og þar með afhjúpað
„mesta skröksöguhöfund aldar-
innar", eins og þaö er orðab í
grein um þetta í Sunday Times.
Hin raunverulega saga á bak við
skröksöguna er „dapurleg og þeg-
ar allt kemur til alls andstyggi-
leg", stendur í sömu heimild.
Áminnstar rannsóknir voru
einkum verk MPR, sjónvarps-
stöövar í Múnchen, og var maður
að nafni Maurice Philip Remy
oddviti hóps þess er aö rannsókn-
inni vann. Hin raunverulega saga
Önnu Anderson er samkvæmt
niöurstöbum rannsóknahóps
þessa sem hér segir:
Anna, sem upphaflega hét
Franzisca Schanzkowska, fæddist
1896 í Borrek, smáþorpi norðar-
lega á svæbi því, sem meðan þab
var hluti af prússneska konungs-
ríkinu og síban síöara þýska keis-
aradæminu hét Vestur-Prússland,
en var kallab Pólska hlibið á árun-
um milli heimsstyrjalda, er þaö
hafbi verib innlimað í endurreist
pólskt ríki. Aö Franziscu stóð
efnalítiö bændafólk. Áhöld
kunna ab hafa verib um hvort
þab fólk taldist þýskt eöa pólskt
aö þjóðerni, eins og algengt var á
því svæbi, og mætti vera aö þaö
heföi ekki haft ákvebnar hug-
myndir um þaö sjálft. Kennarar
Franziscu í bemsku þóttust
merkja hjá henni „óvenjulega
greind". 1914 var hún orbin
vinnukona í Berlín.
Skröksaga
aldarinnar
Rússneskir
flóttamenn
„Hana langaöi til aö veröa leik-
kona, eitthvab sérstakt," segir
Waltraud von Czenskovski,
frænka hennar sem býr í Ham-
borg. „Hún ætlabi sér aö vinna sér
inn nógu mikið af peningum í
Berlín til þess að hún gæti komist
til Englands."
í staöinn varb Franzisca ástfang-
in og trúlofaðist. Unnusti hennar
féll á vesturvígstöðvunum 1916.
Hún var þá í vinnu í skotfæra-
verksmiðju og varð skömmu síöar
verkstjóra þar óvart aö bana, meb
því að missa handsprengju. Hún
tók þaö svo nærri sér að hún var
lögö inn á geðsjúkrahús.
Hún var útskrifuð þaban áriö eft-
ir, var um tíma vinnukona á
bóndabæ, en oftast niburdregin
og lá langtímum saman í rúminu.
Svo varö hún aftur ástfangin.
Hún var fljót til aö ímynda sér að
hún væri þaö, segir frændfólk
BAKSVIÐ
DACUR ÞORLEIFSSON
hennar, og gerði sér stööugt von-
ir um ab einhverjir karlmenn
freisuöu hana frá öllum áhyggj-
um og leiðindum. Líklegt er talið
ab ástarsorg hafi valdið því ab
hún kastabi sér í síkið í Berlín.
Hún neitaði aö segja til nafns, er
henni var bjargað, og var lögð inn
á gebsjúkrahús. Það var upp úr
því sem hún fór að nefnast Ánna
Anderson.
Eftir ab hún haföi verib útskrifuö
af sjúkrahúsinu bjó hún um tíma
meö Rússa, sem flúiö haföi land
sitt undan bolsévíkum. Hjá hon-
um fékk Anna aðgang að bókum
um rússnesku keisarafjölskyld-
una, sá mikib af myndum af
henni og auk þess var á þaö heim-
ili stöbugur straumur rússneskra
flóttamanna, kunningja sambýl-
ismannsins. Eitt af helstu um-
ræðuefnum þeirra voru keisara-
fjölskyldan og örlög hennar. Þaö
var á grundvelli þess fróðleiks
sem Franzisca-Anna breytti sér í
Anastasíu.
Ingrid Bergman,
Elsass-hundar
Það gekk upp og ofan fyrir henni
í því hlutverki næstu áratugi, en
drjúgan uppslátt fékk hún 1956
meö kvikmyndinni Anastasia, þar
sem Ingrid Bergman lék Önnu-
Anastasíu. Bíógestir grétu unn-
vörpum af hluttekningu. Mynd-
inni lauk aubvitaö meb því að
sannað var aö Anna væri Anastas-
ía; annaö hefði bíógestum varla
líkaö.
Þegar á þriöja áratugnum gerö-
ust ýmsar manneskjur, sumar rík-
ar, sem trúbu sögu Önnu, til þess
ab taka hana upp á sína arma og á
þesskonar hjálparhellum og trú-
girni þeirra lifbi hún síban til ævi-
loka. Hún misnotaði þab fólk
gróflega og lék þaö illa. 1959 bjó
hún í Svartaskógi í Þýskalandi hjá
Adele nokkurri von Heydebrand,
sem þá var 78 ára. Adele var veik
og þurfti oft aö fara á salernið,
sem var utan viö skógarhúsið,
sem þær bjuggu í, en Anna, sem
ásamt með öðru var ofsóknar-
brjáluö, læsti útidyrunum. Það
leiddi eitt sinn til þess aö Adele
varö aö gera þarfir sínar innan-
húss. Anna trylltist og sigaði á
hana þremur Elsass-hundum.
Mánuði síðar fannst Adele látin
úti í garöi.
1968 fluttist Anna alfarin til
Bandaríkjanna og giftist þarlend-
um sagnfræöingi, John Manahan
í Charlottesville í Virginíu. Gest-
um þeirra ofbauð sóbaskapurinn
á heimilinu, þar á mebal hunda-
saur út um allt. Anna, sem stöð-
ugt lék rússneska stórhertogaynju
(og trúöi því kannski sjálf aö hún
væri það), var yfirlætisleg og
hrokafull og hellti móögunum yf-
ir hvern þann sem ekki sýndi
henni næga viröingu, aö hennar
mati. Mann sinn umgekkst hún
af jafnvel enn meiri frekju og
ókurteisi en aðra, en hann tók því
öllu með þolinmæöi.
Sumir trúa sögu hennar enn. „Ég
virði vísindin, en ég trúi ekki niö-
urstöbum þeirra," segir Richard
Schweitzer, bandarískur lögfræö-
ingur. „Hún heföi ekki eytt
tveimur mínútum meö pólskum
verkamanni."
Líklegasta skýringin á slíkri trú-
girni er kannski þörf mannsins
fyrir ævintýri. ■
Anna Anderson
(í miöju), Filipp-
us hertogi (efst
til vinstri), Marg
arete Ellerik,
frænka Önnu
(efst til hægri),
og Anastasía
keisaradóttir
(neöst til hægri)