Tíminn - 03.11.1994, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.11.1994, Blaðsíða 2
2 ■BT111 T 11 i ii WWHUl Fimmtudagur 3. nóvember 1994 Tíminn spyr,.. Er fylgib sem Jóhanna Sigurbar- dóttir mælist meb samkvæmt skobanakönnunum varanlegt eba bóla sem á eftir ab hjabna? Anna Ólafsdóttir Björnsson, þingmabur Kvennalista „Meb hlibsjón af reynslu Kvennalistans af sveiflum sem mælast á kjörfylgi mundi ég ekki rábleggja henni ab treysta á þetta. Niburstaban fer náttúr- lega mikib eftir því fyrir hverju Jóhanna ætlar ab standa og hverjir koma til meb ab vinna meb henni. Vib höfum enn ekki fengib ab vita hvaba stefnu hún ætlar ab bjóba fram." Elín Líndal, varaþingmabur Framsóknarflokks „Þetta fylgi sem hún mælist meb núna er af þeim orsökum, ab fólk vonast til ab sjá ein- hverja lausn vandamála sinna í hennar bobskap. Jarbvegurinn er góbur, en fólk á eftir ab sjá ab Jóhanna býbur ekki upp á nein- ar nýjar töfralausnir. Fylgib hjabnar þegar frá líbur og kem- ur í ljós hverjir fara meb henni á lista." Lára Margrét Ragnarsdóttir, þingmabur Sjálfstæbisflokks „Þær tölur sem ab vib sjáum í dag held ég ab mæli ekki varan- legt fylgi. Eg vil ekki kalla þab bólu, en þetta er tímabundib fylgi sem ab mun dala töluvert þegar frá líbur. Svavar Gestsson segir hugmyndir um sameiginlegt frambob vinstri manna góöra gjalda verbar, ekki síst fyrir Alþýbubandalagib, samfylkingarsinnaban flokk „Hef rætt viö Jóhönnu" „Ég hef allt gott ab segja um sameiginlegt frambob. Þab hef- ur bara ekki verib kostur á því ennþá. Þab hefur legib fyrir lengi, raunar allt frá því ab borgarstjórnarkosningar fóru fram, ab þab er mikill áhugi á því ab setja upp hér einhvers- konar munstur í þá áttina," sagbi Svavar Gestsson, alþingis- mabur Alþýbubandalagsins, í samtali vib Tímann í gær. „Vandinn er aubvitab sá aö menn bjóöa ekki fram slíkt fram- boö í Reykjavík einni heldur yröi þab ab helst ab vera á landinu öllu," sagbi Svavar. Hann sagbi aö í ljós hefbi komib aö þab eru miklar líkur á aö flokk- arnir vilji bjóba fram hver fyrir sig. Hinsvegar hafi Alþýöubanda- lagiö haft áhuga á þessu. „Viö höfum viljab ræða viö Jó- hönnu Siguröardóttur, og höfum gert þab, ég hef til dæmis rætt ít- arlega viö hana. í raun og veru hefur ekkert sérstakt komið út úr því. Viö höfum farib yfir málin og áttað okkur á stöbunni. Síðan hef- ur stjórn kjördæmisrábsins hjá okkur fjallab um þetta mál, en ekkert sérstakt er um það ab segja," sagbi Svavar Gestsson. Afstaba Jóhönnu Sigurbardóttur hefur komib fram og hún hefur gert grein fyrir henni opinberlega Unnib ab sameiningu Borgarspítala og Landakots: Rykið dustað af gamalli hugmynd og talib ab ef ab hún ætti ab vera abili ab samstarfi þyrftu ab koma til .fleiri en einn samstarfsabili og helst fleiri en tveir. Eru flokkarnir daubhræddir vib frambob væntanlegs stjórnmála- flokks Jóhönnu í kjölfar skobana- kannana, sem benda til að Jó- hanna gangi næst Sjálfstæbis- flokknum í fylgi? „Þab veit ég nú bara ekki. Ég tel ab okkar staba sé í rauninni all- gób og ab vib stöndum best af flokkunum miðað vib þessa bylgju sem fer yfir. En þessi könn- un þar sem er spurst fyrir um fylgi við eina manneskju segir óskap- lega lítib. Þeir sem hafa verib í pólitík eins og ég, þeir muna nú bæbi eftir Bandalagi jafnabar- manna og Alberti Gubmundssyni og Borgaraflokki hans, sem sýndu svona tölur í skoðanakönnunum, en náttúrlega ekki í kosningum. Veruleikinn reyndist vera annar," sagði Svavar. „Ég held nú ab menn megi ekki láta þessar skobanakannanir setja sig út af sporinu. Okkar staba er alveg þokkaleg, en aubvitab vild- um vib hafa hana betri," sagbi Svavar. Er eining innan Alþýbubanda- Svavar Cestsson. lagsins um ab hyggja í alvöru ab sameiginlegu frambobi? „Þab er eining innan okkar flokks um ab kanna alla mögu- leika í þessu sambandi, og aubvit- ab hafa menn lengi verib ab velta þessu fyrir sér. Vib erum samfylk- ingarsinnabir í eðli okkar, Al- þýbubandalagsmenn, og höfum alltaf verib þab, þab er nú ekki neitt nýtt í því," sagbi Svavar Gestsson ab lokum. ■ Kristján Ragnarsson gagnrýnir hlutaskiptasamn- inga sjómanna: Hátt launahlutfall Hásetar á nýju Guggunni á ísa- firbi hafa 6 milljón króna árs- laun ábur en útgerbin hefur nokkurn hagnab, stabhæfir Kristján Ragnarsson, formabur Landssambands íslenskra út- vegsmanna, í vibtali vib Xím- ann. Hann telur ab sjómenn njóti hærra launahlutfalls en þekkist í nokkurri annarri at- vinnugrein. „Okkar hlutaskiptasamningar eiga sér auðvitab enga hlibstæbu í launakerfinu í landinu. Launa- hlutfall í útgerb er hærra en í nokkurri atvinnugrein annarri og þar meb hafa sjómenn meiri inn- tekt í hlutfalli af tekjum fyrirtæk- is en nokkurs stabar þekkist," sagbi Kristján Ragnarsson. I ræbu sinni á abalfundi LÍÚ á dögunum sagbi Kristján ab „þab sætti nokkurri furbu ab yfirmenn á fiskiskipum, sem eru meb allt ab tvöföld laun undirmanna, skuli gera ríkari kjarakröfur en þeir," eins og formaburinn sagbi orb- rétt. Sagbi Kristján þab dýrara fyr- ir útgerbina ab hafa færri menn en fleiri í vinnu og því væri þab eina úrræbib ab fjölga mönnum að nýju eins og gert hefbi verib í nokkrum tilfellum. ■ Cubni Jónsson, starfs- mannastjóri Varnarlibsins: Allt eftir bestu vitund „Þessi sameining Borgarspítala og Landakots er hib besta mál og hef ég alltaf hvatt til hennar. Samvinna milli okkar hefur verib talsverb á ýmsum svibum ab undanförnu, en nú er bara ab reka smibshöggib á verkib og þab er framundan," sagbi Jó- hannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, í samtali vib Tímann í gær. Jóhannes segir ab nú sé rykib du- stab af gamalli hugmynd um sameiningu spítalanna og vib- ræbur fari fram hjá stjórnvöldum um hvernig koma skal ab málinu. „Þab er margt í þessu sem er flók- ib, ekki hvab síst starfsmannamál, lífeyrisréttindi og fleira. Þetta er nú verib ab skoba og án efa verba vandamálin leyst ábur en langt um líbur," sagbi Jóhannes. Jóhannes sagbi ab stór skref í sameiningarátt hefbu átt sér stab. Nefndi hann þar mebal annars apótek og eldhúsmál sjúkrahús- anna sem dæmi þar sem hægt var ab ná hagræbingu og sparnabi meb samvinnu og samstarfi. Þá hefbu sjúkrahúsin tvö skipst á sjúklingum eftir því hvar hag- stæbast hefur verið talib ab vista þá. ■ „Ég hef lesib bréf Gubmundar Gunnarssonar til utanríkisráb- herra og geri ráb fyrir ab um bréf þetta verbi fjailab af þeim abila sem formaður Rafiönab- arsambandsins ritar bréfib til," sagbi Gubni Jónsson, starfs- mannastjóri Varnarlibsins, í gaerdag. I Tímanum í gær er greint frá kvörtunarbréfi Rafiðnabarsam- bands íslands til Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráb- herra. Þar er embættisfærsla Gubna harkalega gagnrýnd. „Ég hef ávallt leitast vib ab gefa kaupskrárnefnd sem ítarlegastar upplýsingar um þau málefni sem nefndin hefur sent til mín til um- sagnar," sagbi Gubni. „Ég hef einnig sett fram skobun mína á hinum ýmsu málefnum sem upp hafa komib, eftir bestu vitund og byggt á þeim gögnum sem fyrir hendi eru." Utanríkisrábherra hefur sent bréf Rafibnabarsambandsins Varnarmálaskrifstofu rábuneytis- ins til umfjöllunar og afgreibslu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.