Tíminn - 11.11.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 11.11.1994, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 11. nóvember 1994 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Svíþjób: Já-istar orbnir fleiri og spennan eykst 52% ætluðu að greiða ESB-aðild atkvæði en 48% voru á móti, skv. niöurstöðum skoðana- könnunar sem birtust í sænska blaðinu Dagens industri í dag. Þótt þannig sé ljóst að þeim, sem munu segja já í þjóðarat- kvæðagreiðslunni sem fram fer á sunnudaginn, hafi fjölgað eft- ir því sem nær dregur, er bent á að hér sé aðeins um vísbend- ingu aö ræða þar sem fyrir liggi aö þeir sem enn séu óákveðnir hafi fremur tilhneigingu til að segja nei. Spennan eykst nú dag frá degi og er ljóst að mjög mjótt verður á mununum. Segi Svíar nei á sunnudaginn munu líða tíu ár þangað til þeir eiga þess kost að ganga í Evr- ópusambandið. Þetta segir Klaus Hansch, forseti Evrópu- þingsins í viðtali við Dagens ny- heter. Ummæli hans vekja at- hygli, ekk síst með tilliti til þess aö Evrópuþingið hefur neitun- arvald þegar ný ríki ganga í Evr- ópusambandib, en þegar þingib gaf grænt ljós á aðild Svía í maí- mánuöi sl. var allnokkur and- staða gegn því á meöal Evrópu- þingmanna. ■ Þessar lotlegu konur sem sœti eiga á þingi í Berlín geröu tilraun til þess ígœr oð lífga upp á vistina meö sólblómum. Morö framið eftir handriti Stuttbuxurnar kostubu hann stöbvarleyfib Lundúnum - Reuter Leigubílstjóri á eynni Wight missti stöðvarleyfiö í gær vegna þess að hann fékkst ekki til að hætta að ganga í stuttbuxum í vinnunni. Ekki höfbu borist kvartanir vegna þessa klæða- burðar en stjórnvöld segja að leigubílstjórar séu þeir sem flestir hitti fyrst fyrir er þeir koma á staðinn sem er fjölsótt- ur af ferðamönnum, og því sé mikilvægt að þeir komi vel fyrir og séu þokkalega til fara. „Þaö er allt í lagi með stutt- buxurnar mínar," segir Phil Truckel, fyrrverandi leigubíl- stjóri, sem nú íhugar að vísa máli sínu til Evrópudómstóls- ins. ■ Lundúnum - Reuter Bretar velta því nú alvarlega fyrir sér hvort bækur geti komið fólki til ab drepa náungann, ekki síöur en sjónvarpib. Tveir 19 ára piltar, sem komnir eru af efnafólki, hafa veriö sakfelldir fyrir að skera mann á háls fyrir þá sök eina ab veröa á vegi þeirra. Piltarnir heita Richard Elsey og Jamie Petrolini en hugmyndina að moröinu segjast þeir hafa fengiö í bók sem segir frá fífldjörfum SAS- manni sem fer að baki víglínu ír- aka í Persaflóastríöinu og sker þar á háls íraskan hermann. í bókinni er ódæðinu lýst í smáatriöum, en Neil Denison dómari sem hefur mál þetta til meöferðar, segir ab sakborningarnir hafi fengið það á heilann að drepa bláókunnugan mann, að því er viröist til þess aö verða sér úti um einhvers konar annarlega manndómsvígslu. Geö- læknar sem einnig hafa komið ná- lægt málinu telja að piltarnir hafi orbið fyrir áhrifum af því sem þeir lásu af ofbeldislýsingum, ekki síð- ur en kvikmyndum á hvíta tjald- inu og í sjónvarpinu. Fyrir réttinum í gær var lesinn kafli úr umræddri bók, sem skrifuð er undir dulnefninu Andy McNab, en titill hennar er „Bravo Two Zero." Elsey og Petrolini kynntust í há- skóladeild í Oxford sem ætluð er stúdentum sem þurfa að taka upp próf. Þeir gengu í fóstbræöralag á forna vísu og voru aö lesa verk eft- ir Plató og Aldous Huxley á meöan þeir lögðu á ráðin um aö „drepa með köldu blóði" einhvern sem þeir hefðu engin persónuleg tengsl viö. Upphaflega var ætlunin aö eiturlyfjasali eða vændismangari yrði fyrir valinu, en þegar það mis- tókst stökk Petrolini inn í leigubíl sem stóö vib umferöarljós, skipabi bílstjóranum að aka áfram, en skar hann síðan á háls. Þetta var í janú- armánuði sl. Bístjórinn var 44ra ára og hét Mohamed el-Sayed. Skömmu síðar sagöi hann félögum sínum frá málinu og hringdi síöan til föður síns og hvíslaði. „Pabbi, ég hef drepiö mann." Rannsóknarlögregluforingi sem hefur unniö aö því að upplýsa málið segir aö þar sem blint til- gangsleysi hefbi ráöiö feröinni þegar glæpurinn var framinn, heföi lögreglan varla haft mögu- leika á að rekja atvik málsins til að geta síöar upplýst þaö, ef ekki heföi viljað svo til að Petronlini hafi ekki getað stillt sig um að monta sig af „afrekinu." Hver vill drekka romm? Lundúnum - Reuter Dæmigerður rommdrykkjumaður á Bretlandseyjum er gamall, ein- hleypur Skoti, sem býr í leiguíbúð á vegum sveitarfélagsins. Ungir Lundúnabúar sem búa í eigin hús- næði og halla sér samt að flöskunni drekka fremur létt vín. Þetta kom fram í markaðskönn- un sem birt var í vikunni og fylgdi sögunni að romm ætti ekki upp á pallborðið miðað viö aðra brennda drykki. í könnuninni kom fram að gin væri sá brenndi drykkur sem fína fólkiö vildi helst. ■ Bætt tengsl milli Kína og Vatíkansins Vatíkaninu - Reuter Tilkynnt var í Vatíkaninu í dag að kardínálanum í Hong Kong hefbi verið boðiö í opinbera heimsókn til Beijing og hefði boðinu verið tekið, enda væri Vatíkaninu í mun að bæta tengslin viö Kína. í Kína er starfandi kaþólsk kirkja og samkvæmt opinberum tölum eru í henni þrjár milljónir manna. Fjöldi kaþólskra í land- inu er þó mun meiri, en talið er aö um fimm milljónir séu hallar undir Vatíkanið og iðki trú sína utan opinberu kirkjunnar. Stjórnvöldum í Kína er ami að tengslum Vatíkansins og Taiwans og segja það skilyrði fyrir eðlileg- um samskiptum viö Vatíkaniö ab þaö slíti stjórnmálatengslum viö Taiwan. Mörg önnur ljón eru þó í veginum fyrir því að kaþólska kirkjan í Kína tengist Vatíkaninu, sem með engu móti mun leggja blessun sína yfir þá stefnu stjórn- valda ab beita fóstureyöingum til að halda aftur af fólksfjölgun. ■ Á VESTURFARARNIR Eiríkur kom þar ab er hann kallabi Mibjökul. Hann fór subur meb strönd- ■pL;UUll Nú kynntust Islendingar , mikifleik þessa nýia lands. í birtu sumarsólar litu þeir hrikaleg fjöll, djúpa firbi, skribjökla og tignarleg^ ís- jaka. Krökkt var af lífi. Isbirni sáu sumir í fyrsta sinn. Þarna voru hahyrningar og stórhveli og mikib um sel. Fiskur í sjónum, svo sem þorskur, síld, skarkoli og lúba Þeir könnubu víba strönd og firbi. Fyrsta vetur voru þeir í Eiríksey fyrir mynni Eiríksfjarbar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.