Tíminn - 11.11.1994, Qupperneq 8
8
Föstudagur 11. nóvember 1994
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
Svíþjób:
Já-istar orbnir fleiri
og spennan eykst
52% ætluðu að greiða ESB-aðild
atkvæði en 48% voru á móti,
skv. niöurstöðum skoðana-
könnunar sem birtust í sænska
blaðinu Dagens industri í dag.
Þótt þannig sé ljóst að þeim,
sem munu segja já í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni sem fram fer
á sunnudaginn, hafi fjölgað eft-
ir því sem nær dregur, er bent á
að hér sé aðeins um vísbend-
ingu aö ræða þar sem fyrir liggi
aö þeir sem enn séu óákveðnir
hafi fremur tilhneigingu til að
segja nei. Spennan eykst nú dag
frá degi og er ljóst að mjög
mjótt verður á mununum.
Segi Svíar nei á sunnudaginn
munu líða tíu ár þangað til þeir
eiga þess kost að ganga í Evr-
ópusambandið. Þetta segir
Klaus Hansch, forseti Evrópu-
þingsins í viðtali við Dagens ny-
heter. Ummæli hans vekja at-
hygli, ekk síst með tilliti til þess
aö Evrópuþingið hefur neitun-
arvald þegar ný ríki ganga í Evr-
ópusambandib, en þegar þingib
gaf grænt ljós á aðild Svía í maí-
mánuöi sl. var allnokkur and-
staða gegn því á meöal Evrópu-
þingmanna. ■
Þessar lotlegu konur sem sœti eiga á þingi í Berlín geröu tilraun
til þess ígœr oð lífga upp á vistina meö sólblómum.
Morö framið eftir handriti
Stuttbuxurnar
kostubu hann
stöbvarleyfib
Lundúnum - Reuter
Leigubílstjóri á eynni Wight
missti stöðvarleyfiö í gær vegna
þess að hann fékkst ekki til að
hætta að ganga í stuttbuxum í
vinnunni. Ekki höfbu borist
kvartanir vegna þessa klæða-
burðar en stjórnvöld segja að
leigubílstjórar séu þeir sem
flestir hitti fyrst fyrir er þeir
koma á staðinn sem er fjölsótt-
ur af ferðamönnum, og því sé
mikilvægt að þeir komi vel fyrir
og séu þokkalega til fara.
„Þaö er allt í lagi með stutt-
buxurnar mínar," segir Phil
Truckel, fyrrverandi leigubíl-
stjóri, sem nú íhugar að vísa
máli sínu til Evrópudómstóls-
ins. ■
Lundúnum - Reuter
Bretar velta því nú alvarlega fyrir
sér hvort bækur geti komið fólki
til ab drepa náungann, ekki síöur
en sjónvarpib. Tveir 19 ára piltar,
sem komnir eru af efnafólki, hafa
veriö sakfelldir fyrir að skera mann
á háls fyrir þá sök eina ab veröa á
vegi þeirra.
Piltarnir heita Richard Elsey og
Jamie Petrolini en hugmyndina að
moröinu segjast þeir hafa fengiö í
bók sem segir frá fífldjörfum SAS-
manni sem fer að baki víglínu ír-
aka í Persaflóastríöinu og sker þar
á háls íraskan hermann. í bókinni
er ódæðinu lýst í smáatriöum, en
Neil Denison dómari sem hefur
mál þetta til meöferðar, segir ab
sakborningarnir hafi fengið það á
heilann að drepa bláókunnugan
mann, að því er viröist til þess aö
verða sér úti um einhvers konar
annarlega manndómsvígslu. Geö-
læknar sem einnig hafa komið ná-
lægt málinu telja að piltarnir hafi
orbið fyrir áhrifum af því sem þeir
lásu af ofbeldislýsingum, ekki síð-
ur en kvikmyndum á hvíta tjald-
inu og í sjónvarpinu.
Fyrir réttinum í gær var lesinn
kafli úr umræddri bók, sem skrifuð
er undir dulnefninu Andy McNab,
en titill hennar er „Bravo Two
Zero."
Elsey og Petrolini kynntust í há-
skóladeild í Oxford sem ætluð er
stúdentum sem þurfa að taka upp
próf. Þeir gengu í fóstbræöralag á
forna vísu og voru aö lesa verk eft-
ir Plató og Aldous Huxley á meöan
þeir lögðu á ráðin um aö „drepa
með köldu blóði" einhvern sem
þeir hefðu engin persónuleg tengsl
viö. Upphaflega var ætlunin aö
eiturlyfjasali eða vændismangari
yrði fyrir valinu, en þegar það mis-
tókst stökk Petrolini inn í leigubíl
sem stóö vib umferöarljós, skipabi
bílstjóranum að aka áfram, en skar
hann síðan á háls. Þetta var í janú-
armánuði sl. Bístjórinn var 44ra
ára og hét Mohamed el-Sayed.
Skömmu síðar sagöi hann félögum
sínum frá málinu og hringdi síöan
til föður síns og hvíslaði. „Pabbi,
ég hef drepiö mann."
Rannsóknarlögregluforingi sem
hefur unniö aö því að upplýsa
málið segir aö þar sem blint til-
gangsleysi hefbi ráöiö feröinni
þegar glæpurinn var framinn,
heföi lögreglan varla haft mögu-
leika á að rekja atvik málsins til að
geta síöar upplýst þaö, ef ekki
heföi viljað svo til að Petronlini
hafi ekki getað stillt sig um að
monta sig af „afrekinu."
Hver vill
drekka romm?
Lundúnum - Reuter
Dæmigerður rommdrykkjumaður
á Bretlandseyjum er gamall, ein-
hleypur Skoti, sem býr í leiguíbúð á
vegum sveitarfélagsins. Ungir
Lundúnabúar sem búa í eigin hús-
næði og halla sér samt að flöskunni
drekka fremur létt vín.
Þetta kom fram í markaðskönn-
un sem birt var í vikunni og fylgdi
sögunni að romm ætti ekki upp á
pallborðið miðað viö aðra brennda
drykki. í könnuninni kom fram að
gin væri sá brenndi drykkur sem
fína fólkiö vildi helst. ■
Bætt tengsl
milli Kína og
Vatíkansins
Vatíkaninu - Reuter
Tilkynnt var í Vatíkaninu í dag að
kardínálanum í Hong Kong hefbi
verið boðiö í opinbera heimsókn
til Beijing og hefði boðinu verið
tekið, enda væri Vatíkaninu í
mun að bæta tengslin viö Kína.
í Kína er starfandi kaþólsk
kirkja og samkvæmt opinberum
tölum eru í henni þrjár milljónir
manna. Fjöldi kaþólskra í land-
inu er þó mun meiri, en talið er
aö um fimm milljónir séu hallar
undir Vatíkanið og iðki trú sína
utan opinberu kirkjunnar.
Stjórnvöldum í Kína er ami að
tengslum Vatíkansins og Taiwans
og segja það skilyrði fyrir eðlileg-
um samskiptum viö Vatíkaniö ab
þaö slíti stjórnmálatengslum viö
Taiwan. Mörg önnur ljón eru þó í
veginum fyrir því að kaþólska
kirkjan í Kína tengist Vatíkaninu,
sem með engu móti mun leggja
blessun sína yfir þá stefnu stjórn-
valda ab beita fóstureyöingum til
að halda aftur af fólksfjölgun. ■
Á
VESTURFARARNIR
Eiríkur kom þar ab
er hann kallabi
Mibjökul. Hann fór
subur meb strönd-
■pL;UUll
Nú kynntust Islendingar ,
mikifleik þessa nýia lands. í
birtu sumarsólar litu þeir
hrikaleg fjöll, djúpa firbi,
skribjökla og tignarleg^ ís-
jaka. Krökkt var af lífi. Isbirni
sáu sumir í fyrsta sinn.
Þarna voru hahyrningar og
stórhveli og mikib um sel.
Fiskur í sjónum, svo sem
þorskur, síld, skarkoli og lúba
Þeir könnubu víba
strönd og firbi. Fyrsta
vetur voru þeir í Eiríksey
fyrir mynni Eiríksfjarbar