Tíminn - 25.11.1994, Blaðsíða 1
SIMI
631600
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
78. árgangur
Föstudagur 25.'nóvember 1994
223. tölublað 1994
Fólkib í fyrirrúmi á
flokksþingi Framsóknar-
flokksins:
Atvinnu- og
kjaramál í
brennidepli
Landsbókasafnib í gœr, allt á rúi og stúi vegna flutninga. Frá vinstri Sjöfn Kristjánsdóttir handritavörbur, Nanna Bjarnadóttir forstöbumabur Landsbóka-
safnsins til I. desember, Kári Bjarnason handritavörbur og Ögmundur Helgason forstöbumabur handritadeildar. A myndinni sýna þau þrjá helstu dýr-
gripi safnsins, sem getib er í fréttinni. Tímamynd cs
Öll embœtti ístjórn Framsóknarflokksins „á floti". Sigrún og Unnur
sterkar í ritara og gjaldkera:
Fimm konur berj-
ast um tvö sæti í
flokksstjórninni
„Fólk í fyrirrúmi" er yfirskrift 23.
flokksþings Framsóknarmanna
sem hefst í Reykjavík í dag.
Helstu mál þingsins eru atvinnu-,
efnahags-, og kjaramál. Lögí> er
áhersla á uppbyggingu atvinnu-
lífsins og bætt kjör heimilanna í
landinu. Á sunnudag verhur
gengih til kosninga um helstu
embætti flokksins og er þetta í
fyrsta sinn sem formaður er kos-
inn beint af flokksþingi.
Atvinnumálin eru forgangsverk-
efni á næsta kjörtímabili sam-
kvæmt drögum að stjórnmálaálykt-
un sem lögð verður fyrir flokks-
þingið. Þar er lögð áhersla á auknar
fjárfestingar i atvinnulífinu sem
lykiiinn að uppbyggingu atvinnu-
lífsins. Ýmsar tillögur um aðgerðir
eru taldar þar upp, svo sem að
breyta Byggðastofnun í atvinnu-
þróunarstofnun, auka samstarf
stofnlánasjóða og að markaðsstarf
sem nú fer fram á vegum hins opin-
bera verði sameinað Útflutnings-
ráði.
í drögunum kemur einnig fram
að til að koma í veg fyrir fjölda-
gjaldþrot heimila skuli ríkisvaldið
hafa forystu um aö ganga frá kjara-
samningum með lífskjarajöfnun að
markmiði í samstarfi við aðila
vinnumarkaðarins. Varið verði að
lágmarki þremur milljörðum af
hálfu ríkisvaldsins til að greiða fyrir
kjarasamningum.
Um skattamál segir í drögunum
að skattar skuli ekki hækkaðir, en
leggja beri áherslu á aukinn jöfnuð
og réttlæti í skattamálum. Taka
þurfi upp samninga viö aðila
vinnumarkaðarins um uppstokkun
á skattkerfinu með það að mark-
miði að lækka jaðarskatta, einfalda
skattkerfiö, breikka skattstofna,
fækka undanþágum og draga úr
skattsvikum. Þá er lögð áhersla á að
efla baráttuna gegn skattsvikum og
aö öllum viðbótartekjum ríkissjóðs
vegna árangurs í þeim efnum verði
varið til lífskjarajöfnunar og þess að
styrkja velferðakerfið.
Flokksþing Framsóknarflokksins
stendur fram á sunnudag. Á sunnu-
daginn veröur kosiö í helstu emb-
ætti flokksins, þ.e. formann, vara-
formann, ritara, gjaldkera, vararit-
ara og varagjaldkera. ■
„Mörgum kom þessi niðurstaða á
óvart og töldu jafnvel að haldiö
hefði verið of fast um budduna
(ekki ofsögum sagt af þeim hag-
sýnu!) og nær væri að verja meira
fé til dæmis til kynningarstarfa.
Aðrar minntu á að kosningabar-
áttan framundan mundi auðveld-
lega gleypa þennan varasjóð og
meira til", segir í fréttabréfi
Kvennalistans. Fram kemur í árs-
Passíusálmarnir sem séra Hall-
grímur qaf Ragnheibi biskups-
dóttur i Skálholti — mestir dýr-
gripa Landsbókasafns í Þjóbar-
bókhlöbu:
Dýrgripir í
flutningi
Mestu dýrgripir Landsbókasafns
eru nú að skipta um aðsetur. Ver-
iö er að flytja þá frá Hverfisgöt-
unni yfir á Birkimel í nýju Þjóð-
arbókhlöðuna. Ljóst er að farið er
mjúkum höndum um þessar
bækur og handrit, sem og annað
sem frá safninu fer vestur á Mela.
Passíusálmarnir, gjöf Hallgríms
Péturssonar á dánarbeði til Ragn-
heiðar Brynjólfsdóttur biskupsdótt-
ur í Skálholti, dagsett 1659, er óum-
deilanlega mesti dýrgripur safnsins.
Kveisublað, sem fólk setti um
mitti sér í von um lækningu, er frá
því um 1600 og einnig í hópi ómet-
anlegra dýrgripa safnsins. Þá eru
Pistlar eftir Jón lærða frá 1596 ein-
stök og dýrmæt bók. ■
reikningum Kvennalistans, endur-
skoðuöum af löggiltum endur-
skoðendum, konum að sjálfsögðu,
að rekstrartekjur starfsársins voru
12,8 milljónir en rekstrargjöldin 9
milljónir. Auk þess vom fjármuna-
tekjur nokkru meiri en fjármagns-
gjöld. Heildarniðurstaðan varð sú
að hagnaður varð af starfsemi
Kvennalistans upp á 4.027.686
krónur. ■
Öll fjögur embætti stjórnar
Framsóknarflokksins eru „á
floti" á þingi flokksins á
Hótel Sögu um helgina.
Fimm konur berjast um
embætti ritara og gjaldkera.
Ekki er reiknaö með mót-
framboöi viö Halldór Ásgríms-
son og Guðmund Bjarnason á
flokksþingi Framsóknarflokks-
ins sem hefst í dag. Unnur
Stefánsdóttir gefur kost á sér
sem gjaldkeri og er talin sigur-
strangleg. Sigrún Magnúsdótt-
ir er samkvæmt heimildum
Tímans sterkasti kandídatinn í
ritaraembætti. Hún sagðist í
samtali við Tímann í gær-
kvöldi ekki vera ráðin í hvort
hún gæfi kost á sér, en í vegin-
um standa miklar annir í borg-
arstjórn. Á hana mun hinsveg-
ar lagður mikill þrýstingur að
taka við embættinu, einkum
af fólki í vinstri armi flokksins.
Þar sem Halldór og Guð-
mundur færast upp í formann
og varaformann er um ritara-
og gjaldkeraembættin að
ræða. Það er nokkuð athyglis-
vert að eingöngu konur koma
til greina í slagnum um þessi
embætti, en auk Sigrúnar og
Unnar hafa Ingibjörg Pálma-
dóttir þingmaður á Vestur-
landi, Valgerður Sverrisdóttir
þingmaður á Norðurlandi
eystra og Siv Friðleifsdóttir
þingmannskandídat í Reykja-
neskjördæmi verið orðaðar við
framboð í flokksstjórn.
Siv sagðist í samtali við Tím-
ann í gærkvöld fyrst og fremst
einbeita sér að prófkjörsbarátt-
unni, en hún sækist eftir 1.
sæti á lista flokksins í Reykja-
nesi. Hún útilokaði þó ekki
framboð í stjórn flokksins.
Valgerður Sverrisdóttir er talin
mjög frambærileg í flokks-
stjórn, en viðmælendur Tím-
ans í gær sögðu það helst
standa henni fyrir þrifum að
vera 2. þingmaöur Framsóknar
í Norðurlandskjördæmi eystra
á eftir Guðmundi Bjarnasyni.
Á sama hátt telst það Sig-
rúnu Magnúsdóttur til tekna
að hún er úr Reykjavíkurkjör-
dæmi og gefi hún kost á sér
myndi hún á vissan hátt koma
í staö Finns Ingólfssonar. Gefi
Sigrún ekki kost á sér er Ingi-
björg talin sigurstrangleg sem
ritari flokksins, en sumir við-
mælenda Tímans í gær bentu
á að nauðsynlegt væri að ritari
væri jafnframt þingmaður, þar
sem embættið felur í sér yfir-
umsjón með innra starfi
flokksins.
Breytingarnar á æðstu
stjórn Framsóknarflokksins
um helgina eru þær mestu í
mjög langan tíma. Steingrím-
ur Hermannsson hætti sem
kunnugt er formennsku er
hann tók við embætti seöla-
bankastjóra í vor. Þá hefur
Finnur Ingólfsson þingmaður
í Reykavík lýst því yfir að
hann gefi ekki kost á sér sem
gjaldkeri flokksins áfram, en
hann á sæti í framkvæmda-
stjórn og landsstjórn sem for-
maður þingflokks Framsókn-
arflokksins. ■
Hagsýnar húsmcebur:
Gróöi af starfsemi
Kvennalistans
m§
tSfl