Tíminn - 08.12.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.12.1994, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 8. desember 1994 Htnfrmt 9 UTLÖND UTLÖND UTLÖND UTLÖND UTLÖND UTLÖND UTLÖND UTLÖND Gorbatsjev bý&ur sig fram gegn Jeltsín 1996 Dúbaí - Reuter Michael Gorbatsjev, fyrrum Sovétleiðtogi, tók af öll tvímæli um þaö að hann hygöi á fram- boð gegn Borís Jeltsín í næstu forsetakosningum sem efnt er til í Rússlandi 1996. „Ég gef því máli mikinn gaum og ég get ekki útilokað það," svaraði Gor- batsjev orðrétt þeirri spurningu á fréttamannafundi í Dúbaí í gær, hvort hann yröi í fram- boði. Sú var tíðin að þeir Jeltsín voru samherjar, en eftir að Gor- batsjev lét af völdum árið 1991 Skaut börnin, konuna og sjálfan sig Prittriching - Reuter 39 ára verkfræðingur skaut börnin sín fjögur til bana þar sem þau lágu í rúmum sínum, á aðfararnótt þriðjudagsins. Móð- ur þeirra skaut hann í kjallara hússins og loks sjálfan sig. Atburður þessi átti sér stað í litlu þorpi sem heitir Winkl og er miðja vegu milli Múnchen og Augsburg í Bæjaralandi. í bréfi sem lá við hlið byssunnar getur heimilisfaðirinn þess að orsakir verknaðarins séu fjöl- skyldu- og fjárhagsvandræði sem óieysanleg hafi verið með öðrum hætti. Það var á þriðjudagskvöld að nágrannar gerðu lögreglunni viðvart um að ekki væri allt með felldu hjá fjölskyldunni þar sem hlerar hefðu ekki verið teknir frá gluggum allan dag- inn. Grannarnir segja að fjöl- skylda þessi hafi lifað mjög ein- angruðu lífi síöan hún settist að í þorpinu fyrir tólf árum, en þó hafi þaö verið vitað mál að for- eldrarnir ættu oft í höröum deilum og m.a. hefði húsmóðir- in, sem var 33ja ára, hótað að sækja um skilnað ef faðirinn léti ekki af því að berja börnin. Börnin voru þriggja, fimm, átta og níu ára. ■ Jacques Delors: Michael Gorbatsjev hefur hann í vaxandi mæli gagnrýnt Jeltsín. Gorbatsjev segir nú aö stefna Jeltsíns komi ekki í framhaldi af þeirri umbótastefnu sem þeir fylgdu sameiginlega á sínum tíma. Forsetinn fyrrverandi seg- ir að nýjar lýöræðislegar endur- bætur verði uppistaðan í nýrri stefnuskrá haris, enda abhyllist hann enn þau grunngildi sem hann hafi haldið fram sem Sov- étleiötogi, þ.e. blandað hagkerfi og einstaklingsfrelsi. ■ ESB færara en NATO um að efla lýðræöið „Maðurinn er hættulegur vinstri- sinnum," segir á þessu vegg- spjaldi sem unglibasamtök kommúnískra byltingarsinna dreifa nú í Frakklandi, en samtökin beita sér gegn því ab Jacques Delors, sem hættir sem forseti framkvæmdastjórnar bEvrópusambandsins um ára- mót, verði tilnefndur sem fram- bjóðandi vinstri aflanna í forsetakosningum sem fram fara í Frakklandi á næsta ári. Delors vann sér þaö annars til frægðar í gær að móðga hálft Atl- antshafsbandalagib, er hann lýsti því yfir á fréttamannafundi að það hefbi veriö frumhlaup að leggja upp meb tiliögur að stækk- un bandalagsins til austurs á þessu stigi málsins. Hann segir þab hafa verib ótímabært ab blása til stækkunar nú, eins og sjá megi af því að umræður um stækkun undanfarna viku hefðu ekki leitt til neins annars en klofnings innan NATO og harka- legra viðbragða af hálfu Rússa. Þar ab auki urðu þessar ótíma- bæru og misheppnuðu umræður til þess ab veikja öryggið, segir Delors, sem heldur því fram að Evrópusambandib sé mun betur í stakk búib en Atlantshafsbanda- lagið til að styrkja lýðræðið í ríkj- um Evrópu austanverðrar. ■ Karl og Díana: Litlar líkur á lögskilnabi Lundúnum - Reuter Á morgun rennur upp sá dagur að Díana prinsessa og Karl ríkis- arfi geta fengið skilnað að lög- um, ef þau kæra sig um. Þá eru tvö ár liðin síðan þau skildu að borði og sæng, en þrátt fyrir að margir séu þeirrar skoðunar ab lögskilnaður sé óumflýjanlegur er fátt sem bendir til þess að af honum verbi á næstunni. Drottningarfjölskyldan má ein- faldlega ekki við því ab fá yfir sig enn eina holskefluna eða það uppnám sem slík ákvörðun mundi kosta. Ríkisarfinn hefur látið svo um mælt að hann hafi ekki hug á lögskilnaði en Díana hefur kos- Karl Díana ið að tjá sig alls ekki um þab mál og hefði henni þó verið í lófa lagið að höfða mál á hendur manni sínum fyrir hjúskapar- brot, sem hann hefur reyndar þegar viðurkennt opinberlega. Þetta yfirlýsta hjúskaparbrot ríkisarfans gerir þab að verkum að staða Díönu er sterk, og gæti sennilega tryggt henni skilnað- arsáttmála upp á jafnvirði 1,6 milljarða ísl. króna í peningum, lítt takmarkað forræði drengj- anna og sjálfstætt líf á opinber- um vettvangi, óháð þeirri fjöl- skyldu sem hún á að hafa kallað „holdsveikranýlendu." Staða þessa fólks í framtíðinni er óljós en þó sérstæð að mörgu leyti. Þannig gæti Díana nú orö- ið drottning ef til þess kæmi að Karl yrði allt í einu konungur. Ef hjónin skilja að lögum á meðan Karl er enn ríkisarfi heimila lög ekki að hann gangi í hjónaband að nýju, en eftir ab hann er oröinn konungur yrði Tóbaksbirgöir í Tyrklandi samsvara 1.000 ára innflutningi til Islands: Tyrkir: Brenna tóbaksfjallinu Tyrkir eru byrjaðir að brenna því 250.000 tonna óseljanlega „tóbaksfjalli" sem safnast hefur upp þar í landi á sl. áratug, m.a. vegna innflutningshafta í Bandaríkjunum. Verðmæti þessara 250.000 tonna er áætlað 10 trilljón tyrkneskar lírur, eða kringum 20 milljarðar króna. Benda má á, ab miðaö við nú- verandi sígarettusölu mundi þetta tóbaksfjall endast íslend- ingum í 500 ár. Tóbaksbirgbir í Tyrklandi eru nú ríflega tvöfalt meiri, eða 550 þúsund tonn. Síðasta árs framleiðsla nam 330 þúsund tonnum. Þrátt fyrir að næstum hver einasti Tyrki sé stórreykingamaður frá ung- lingsaldri kaupa sígarettufram- leiðendur í Tyrklandi abeins rúmlega 20% ársframleiðslunn- ar, eða 65—70 þúsund tonn á ári. „Ákvörðun okkar ab brenna allt þetta tóbak hefur þegar haft áhrif á erlenda tóbakskaupend- ur í Bandaríkjunum og víðar. Salan gengur nú betur en nokkru sinni fyrr. Við höfum þegar selt 100.000 tonn og höf- um góöar vonir um 30.000 tonn til viðbótar. Við sjáum fram á að vera laus við allar um- frambirgðir árið 1996. Þá geta tóbaksræktendur tekið gleði sína á ný," sagbi tyrkneski ráð- herrann, Nafiz Kurt, í viðtali við Turkish Daily News. Þar kemur m.a. fram ab fjöldi tóbaksfram- leiðslulanda hefur kvartað til GATT vegna innflutningskvóta sem Bandaríkjamenn settu á tóbak. Hjá GATT var úrskurðað ab kvótinn væri brot á ákvæð- um GATT-samkomulagsins. Verbi kvótinn afnuminn á ný eygja Tyrkir 30-40 þúsund tonna viðbótarsölu til Banda- ríkjanna. Tyrkir rækta tóbak af svokall- aðri „oriental" gerð, sem þykir mjög gott til sígaretturfram- leiðslu. Sama tóbakstegund hef- ur verið ræktuð í Grikklandi, Búlgaríu og Júgóslavíu, en í mun minna mæli. Frá 1986 hafa bandarísku fyr- irtækin Philip Morris og Reyn- olds framleitt Marlboro og Ca- mel sígarettur í Tyrklandi. Tveim árum síðar hófu Tyrkir að framleiða sígarettutegundina „2000" til að keppa við þær fyrr- nefndu, með þeim árangri ab 2000 eru nú mest seldu sígarett- ur í landinu. Pakkinn af framan- greindum tegundum kostar sem svarar 55-60 krónum í Tyrk- landi. En ýmsar aðrar tyrknesk- ar sígarettur fást á verði allt niö- ur undir 20 kr. pakkinn. ■ honum þó heimilt að kvænast aftur. Haft er eftir heimildarmönn- um viö hirðina ab Díönu sé mest í mun að tryggja sér um- gengni við syni sína, en lögum samkvæmt er það einvaldurinn sjálfur, Elísabet II., sem hefur forræði Vilhjálms litla sem gengur næstur föður sínum að ríkiserfðum. ■ Svona á bissness ab vera Lundúnum - Reuter Söngleikurinn Oliver verður frumsýndur í West End-leik- húsinu í Lundúnum í kvöld. Uppfærslan kostar 3,5 milljónir sterlingspunda (376 millj. ísl.), en þegar hafa verib seldir að- göngumiðar fyrir 11 milljónir punda. Það er Jonathan Pryce sem fer með hlutverk Fagins en leik- stjórinn er Cameron Mackint- osh. Lionel Bart sem samdi tón- listina í söngleikinn, sem bygg- ist á sögunni um Oliver Twist eftir Charles Dickens, segir að þetta sér stórbrotnasta upp- færsla leiksins hingað til. Bart segir að eyrun á áhorfendum hafi breyst síðan leikurinn var fyrst settur upp fyrir rúmum þrjátíu árum, og því sé tónlistin í þessari sýningu í nýjum bún- ingi. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.