Tíminn - 08.12.1994, Side 11

Tíminn - 08.12.1994, Side 11
- TTVÍ-- Fimmtudagur 8. desember 1994 11 Líður ab jólum á af- mælisári lýbveldisins Sennilega eru allir sammála um að einhver besta útgáfa íslenska póstsins til þessa, hafi verið bók- in sem nefnd er Forsetamappan. Þar inni í er falið að hafa leyst forseta íslands frá þeirri skyldu að vera látinn forseti til að geta komið á frímerkjum. Forsetamappan kostar aðeins 1450 kr. Hún er í stærðinni A5, með úrvals myndefni víða af landinu, innbundin í fóðraða kápu. í henni eru stuttar frá- sagnir um stofnun lýðveldis á ís- landi og æviágrip allra forset- anna. Það, sem gefur henni sér- stakt gildi, eru forsetafrímerkin, sem gefin eru út í smáörkum 17. júní 1994. Tvær smáarkir eru í bókinni, önnur óstimpluð og hin stimpluð á Þingvöllum 17. júní 1994. Mappan er til í tveim- ur útgáfum. Önnur er á íslensku, ensku og frönsku. Hin er á ís- lensku, dönsku og þýsku. Því má sjá að þetta er eins og áður segir einn glæsilegasti gripur sem fá má til minja um Lýöveldisárið, eða til minja um 50 ára afmæli lýðveldisins. Þá hefir upplag forsetamöpp- unnar verib gefið upp, og eru það aðeins 12,700 eintök sem af henni voru prentuð. Þaö fer víst án vafa hver ab verða síðastur að tryggja sér eintak. Síðasti sölu- dagurinn er þann 31. desember í ár, ef upplagið verður þá ekki uppselt. Eins og venja er til um vand- aðar frímerkjabækur, má gera ■ '•‘-r 'Vr-Tfv-i ■',■.'■■■ 1 Forsetamappan. FRÍMERKI SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON ráð fyrir ab þegar sölu lýkur, byrji verðgildi þeirra að aukast. Fjöldi stofnana, fyrirtækja og einstaklinga hafa gefið Forseta- möppuna gestum, viðskipta- mönnum og vinum erlendis. Vegna þess hve vel þessi sér- stæða gjöf hefur mælst fyrir meðal þeirra mörgu, sem hana hafa þegið, vill Frímerkjasalan nota tækifærið og minna á hana nú fyrir jólin þegar fyrirtæki og einstaklingar huga að gjöfum til starfsfólks eða viðskiptavina heima og erlendis. Um er að ræða í senn verðmæta eign og fágæta landkynningu og nú eru síðustu forvöð að eignast hana. Forsetamappan var kynnt með sérstökum bæklingi í sum- ar, sem sendur var á hvert ein- asta heimili í landinu, svo allir ættu að vita hvað hér er á ferð. Fyrst ég er á annaö borð farinn að nefna hér jólagjafir, þá er ekki úr vegi að skoða aöeins eitt- hvað fleira. LINDNER sendi út eigi alls fyrir löngu verðlista yfir allar þær vörur, sem þeir hafa á boðstólum og selja hér á landi í gegnum umboðsmann sinn, Frí- merkjahúsið á horni Bókhlöðu- stígs og Laufásvegar. Þarna getur margt að líta. Byrjendapakkarnir hafa alltaf verib vinsælar gjafir, sem og albúmin þeirra. Þarna er til dæmis ísland í 3 bindum, eða blaðsettum, sem menn svo geta valib sér bindi utanum. Þá er líka hægt að setjá bindin í hlífð- arkassa, sem hindra ryk og óhreinindi. Þá er líka hægt ab velja sér „T"-blöð, sem svo eru kölluð, fyrir hverskonar upp- setningu frímerkja eða safna á síður, algerlega eftir eigin vali og hugmyndum. Þá má í raun segja að öll hjálpartæki frímerkjasafn- ara séu fáanleg frá Lindner, allt frá töng og takkamæli upp í hreinsitæki og pmfulampa, auk allra geymslubóka, þurrkbóka DAGBÓK Fimmtudaqur 8 desember 342. dagur ársins - 23 dagar eftir. 49. vika Sólris kl. 11.02 sólarlag kl. 15.37 Dagurinn styttist um 3 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni, tvímenningur, í Risinu kl. 13 í dag. Upplestur í Geysishúsinu Útgáfusýningin GÓÐ BÓK stendur nú yfir í Geysishús- inu. í tengslum við sýninguna lesa rithöfundar úr verkum sínum. í kvöld kl. 20.30 munu verða kynnt verk eftir Einar Kárason, Fríðu Á. Sigurðar- dóttur, Jónas Þorbjarnarson, Thor Vilhjálmsson og Vigdísi Grímsdóttur. Happdrætti Bókatíö- inda 1994 Happdrættisnúmer dagsins er: 13693 Menningarstofnun Bandaríkjanna: Ljósmyndasýning Rons Levitan Á morgun, föstudag, lýkur sýningu bandaríska áhugaljós- myndarans Rons Levitan í Menningarstofnun Bandaríkj- anna. Á sýningunni er mynda- röð 20 svart-hvítra mynda, sem listamaðurinn nefnir „Dialogue". Viðfangsefni ljós- myndarans er sonur hans við ýmsar athafnir daglegs lífs. Ron Levitan er fertugur af- brotafræðingur, sem starfar að málefnum unglinga við emb- ætti ríkissaksóknara í Mary- land í Bandaríkjunum. Hann hefur haldið nokkrar einka- sýningar í Bandaríkjunum auk fjölda samsýninga sem hann hefur tekib þátt í. Akureyri: Heitir fimmtudagar í Deiglunni í kvöld, fimmtudag, verður bókakynning í Deiglunni á vegum Bókvals og Café Karól- ínu. Lesið verður úr eftirtöld- um bókum: Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, Grandavegur 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur, Kvikasilfur eftir Einar Kárason, Játningar land- nemadóttur eftir Laura Good- man og Saga Akureyrar eftir Jón Hjaltason. Nokkrir rithöfundanna munu leggja leið sína í Deigl- una og lesa sjálfir. Tónlist verður flutt á undan upplestri og í hléi. Um hana sjá þau Ingvi Vaclav Alfreðsson og Dorothea Dagný Tómasdóttir. Dagskráin hefst kl. 20.30 og aðgangur er ókeypis. 20 vinningsnúmer bæklingsins „Er þér sama um Island?" Vinningsnúmer 5.12.94: 9724, 19758, 22665, 29307, 53671, 55803, 59647, 63594, 63825, 65608, 67804, 70118, 76753, 79731, 81760, 82705, 85317, 94150, 95474, 99276. Nýherji hf. annaðist útdrátt- inn úr heildarupplagi bæk- lingsins, sem er 101.750 ein- tök er hefur verið dreift til allra landsmanna. Vinnings- hafar hljóta jólatré frá Land- græðslusjóði að verbmæti 3.000 krónur og er hinum heppnu bent á að hafa sam- band við Kristin Skæringsson, frkvstj. sjóbsins, í síma 44081 eða 40300 milli kl. 8-15 dag- lega. I næstu viku verða svo dreg- in út önnur 20 vinningsnúm- er, eða vikulega fram til jóla. Edda jónsdóttir sýnir í Gallerí Úmbrú Bleksprautu- og vatnslita- smámyndir eftir Eddu Jóns- dóttur verða til sýnis og sölu dagana 8.-16. desember í Gall- erí Úmbru, Amtmannsstíg 1 (Bernhöftstorfu). Verslunin Stíll flytur ab Skólavör&ustíg 4a Verslunin Stíll, sem verið hefur til húsa í Bankastræti 8, er nú flutt í glæsilegt húsnæði á Skólavörðustíg 4a. Hinn nýja Stíl hannaði Guðjón Bjarna- son arkitekt. Stíll flytur inn tískufatnab fyrir konur á öllum aldri, mest Forsíba „íslensk frímerki 7 994". og tæknilegra vatnsmerkjaleit- ara. Ég verð að viðurkenna, að það var gaman að skoða þessa verð- lista frá fyrirtækinu. Þá má einnig geta þess að uppi á Skólavörðustíg er svo Frí- merkjamiðstöðin með sitt VITA- umboð, en hverskonar vömr frá Vitanum — ef til vill helst al- búm og blöb — hafa verið not- aðar hér í áraraðir. En Vitinn er einnig með ýmsar hjálparvömr, þar á meðal innstungubækur og margt fleira. Þeir, sem svo ætla að gefa söfnurum „íslensk frímerki 1994", skyldu athuga að það er útgáfan frá í fýrrasumar, sem núna fæst í verslunum. Ekki er ný útgáfa væntanleg fyrr en á næsta sumri. Hjá Magna á Laugavegi 15 sel- ur svo vörur frá öllum þessum umboðum og auk þess mikið af spilum og gjafavörum, eins og raunar Frímerkjamiðstöbin gerir líka. Því þurfa þeir, sem ætla aö gefa frímerkjasöfnurum jólagjaf- ir, engu að kvíða. ■ frá þýsku fyrirtækjunum Comma, KS og Karl Lagerfeld. Stíll er í eigu Elínar Ágústu Sigurgeirsdóttur og Vigdísar Bjarnadóttur. Kristbergur Pétursson sýnir í Götugrillinu Kristbergur Pétursson myndlistarmabur opnar sýn- ingu á verkum sínum á veit- ingastaönum Götugrillinu, Ameríkumaður í París, laugar- daginn 10. des. kl. 14. Götu- grillið er til húsa í Borgar- kringlunni, Kringlunni 4-6. Kristbergur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tek- ið þátt í ýmsum samsýningum heima og erlendis, síðast í Beijing í Kína. Á þessari sýn- ingu verða til sýnis málverk, unnin á þessu ári. jólabjór Víking Brugg kominn á markab Víking Brugg h/f setur nú á markað sinn árlega jólabjór og er bjórinn einmitt um þetta leyti kominn í hillur verslana ÁTVR. Jólabjórinn er sérbrugg- að hátíðaröl, sem Víking Brugg kom með á markaðinn fyrir nokkrum árum. Ölið hef- ur verið um það bil 2 mánuði í vinnslu og hefur starfsfólk Víking Brugg á Akureyri, þar sem bjórinn er bruggaður, nostrab vib ölið á öllum stig- um framleiðslunnar. Bjórinn hefur 5,4% alkóhólinnihald mibað við rúmmál og er boð- inn í 33 cl flöskum. Verð á jólabjór er kr. 860 kippan. Indverska barnahjálpin Að gefnu tilefni vill Ind- verska barnahjálpin koma á framfæri, að reikningsnúmer nefndarinnar er 72700 í Bún- aðarbankanum vib Hlemm. APÓTEK Kvöld-, nælur- og helgldagavarsla apóteka I Reykjavlk frá 2. desember tll 8. desember er I Árbæjar apótekl og Laugarnes apótekl. Það apótek sem tyrr er netnt annast eltt vörsluna trá kl. 22.00 aó kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I sfma 18888. Neyóarvakt Tannlæknafélags íslands er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Símsvari 681041. Hafnarfjðrður: Hafnarfjaróar apótek og Noróurbæjar apó- tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag kt. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600. Akureyrt: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin virka daga á opnunariima búóa. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00-12.00 og 20.00- 21.00. Á öórum timum er lyfjafræóingur á bakvakt. Upplýs- ingar eru gefnar i sima 22445. Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokaó i hádeginu milli kl. 12.30-14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opió til kl. 18.30. Opió er á laug- ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opió virka daga til kl. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00. Garðabær: Apótekið er opió rúmhelga daga kl. 9.00- 18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR HELSTU BÓTAFLOKKAR: l.desember 1994. Mánaóargrelðslur Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329 1/2 hjónalífeyrir.....................:.....11.096 Full tekjutrygging ellilífeyrisþega.........35,841 Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........36.846 Heimilisupffcót..............................12,183 Sérstök heimilisuppbót....................<..8,380 Bamalífeyrir v/1 barns ......................10.300 Meðlagv/1 barns.......................... 10.300 Mæðralaun/feðralaun v/1 bams..................1.000 Mæðralaun/feóralaun v/2ja bama................5.000 Mæðralaun/feóralaun v/3ja bama eóa fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12mánaða..............11.583 Fullur ekkjulifeyrir....................... 12.329 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)..................15.448 Fæðingarstyrkur..............................25.090 Vasapeningar vistmanna.......................10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170 Daggrelðslur Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00 Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20 Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings................665.70 Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80 í desember er greiddur 58% tekjutryggingarauki á tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilis- uppbót, 30% vegna desemberuppbótar og 28% vegna láglaunabóta. Tekjutryggingaraukinn er reikn- aður inn i tekjutrygginguna, heimilisuppbótina og sérstöku heimilisuppuppbótina og skerðist á sama hátt. GENGISSKRÁNING 7. desember 1994 kl. 10,51 Opinb. Kaup viðm.gengi Sala Gengl skr.fundar Bandarfkjadollar 68,55 68,73 68,64 Sterlingspund ....107,43 107,73 107,58 Kanadadollar 49,83 49,99 49,91 Dönsk króna 11,163 11,197 11,180 Norsk króna ....10,032 10,062 10,047 Sænsk króna 9,122 9,150 9,136 Finnsktmark ....14,085 14,127 14,106 Franskur frankl 12,724 12,762 12,743 Belgískur franki 2,1255 2,1323 2,1289 Svissneskur franki. 51,72 51,88 51,80 Hollenskt gyllinl 39,03 39,15 39,09 Þýsktmark 43,72 43,84 43,78 ítölsk Ifra ..0,04232 0,04246 6,227 0,04239 6,217 Austurrfskur sch 6,207 Portúg. escudo ....0,4272 0,4288 0,4280 Spánskur peseti ....0,5214 0,5232 0,5223 Japansktyen ....0,6862 0,6880 0,6871 ....105,13 105,47 105,30 99,87 Sérst. dráttarr 99>2 100^02 ECU-Evrópumynt.... 83,40 83,66 83,53 Grfsk drakma ....0,2832 0,2842 0,2837 BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ MUNIÐ ÓDÝRU HELGARPAKKNA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.