Tíminn - 17.12.1994, Side 19
Laugardagur 17. desember 1994
19
Vönduð Mattheusar saga
Mattheus saga postula. Ólafur Halldórs-
son bjó til prentunar. Stofnun Arna
Magnússonar á íslandi 1994. cxlvii + 86
bls.
Mattheus saga postula er varð-
veitt heil í þrem handritum, en
óheil í mun fleiri. Sagan er ætt-
uð úr frönsku safni postula-
✓ sagna, sem talið er hafa verið
sett saman á 6. eða 7. öld, og er
það hald þeirra, sem fróbastir
eru um söguna og feril hennar,
að hún hafi verið meðal þeirra
rita, erlendra, sem einna fyrst
bámst til íslands. Það mun hafa
verið skömmu eftir kristnitöku
og mun Mattheus saga hafa ver-
ið meðal fyrstu erlendra rita,
sem snúib var á íslenska tungu.
Elstu handritabrotin, sem varð-
veita söguna, eru frá síðari hluta
12. aldar, en elsta heila handrit
BÆKUR
JÓN Þ. ÞÓR
hennar er frá fyrra helmingi 13.
aldar.
í þessari útgáfu er elsta heila
handritið, AM 645 4to, lagt til
grundvallar og er útgáfunni svo
háttað, að texti þessa handrits
er prentaður stafréttur á vinstri
síðu í opnu og lesbrigði neðan-
máls, en á hægri síðu eru sam-
ræmdir textar úr öðrum hand-
ritum og latínutexti. Meb þessu
móti sér lesandinn fljótt þann
mun, sem er á textum handrit-
anna, og áttar sig jafnframt á
frumgerð sögutextans.
Dr. Ólafur Halldórsson hefur
haft veg og vanda af því að búa
söguna til prentunar. Hann rit-
ar ítarlegan inngang, þar sem
hann gerir nákvæma grein fyrir
þeim handritum, sem geyma
Mattheus sögu, og fjallar um
varðveislu textans. í inngangs-
orðum Ólafs kemur fram, að til-
drög þessarar útgáfu má rekja til
námskeiðs í textafræði, sem
hann hafði umsjón með í Há-
skóla íslands veturinn 1990-91,
og tóku stúdentar þátt í undir-
búningi útgáfunnar.
Þessi útgáfa er öll afar vönduð
og frágangur ritsins með mikl-
um ágætum. Er ekki að efa að
þessi bók verður kærkomin öll-
um þeim, sem fást við rann-
sóknir á íslenskum mibalda-
fræðum.
Hugsað til framtíðar
Þegar maður flettir blöbunum,
ekki síst er kosningar til Alþing-
is eru framundan, og rekst á
grein sem gengur þvert á al-
menningsálitið og bendir á að
allir stjórnmálaflokkar séu á
rangri leið með því að stefna að
stöbugt meiri hagvexti og meiri
framleiðslu, þá verður tæplega
hjá því komist að menn nemi
staöar og hugleiði, hvað sé rétt í
þessari gagnrýni.
Ég á að sjálfsögöu við greinar
Harðar Bergmanns um stöðug-
an hagvöxt, sem stærstu stjórn-
málaflokkarnir hafa ab stefnu-
marki.
í grein, sem hann skrifar. í
LESENDUR
Tímann 1. des. s.l., segir hann
mebal annars:
„Keyrsla framleiöslu- og þjón-
ustumaskínunnar hjá okkur og í
hinum ríkari heimshluta yfir-
leitt er það áköf að allir markað-
ir eru yfirfullir og orku- og hrá-
efnaflæðið í gegnum efnahags-
kerfið er komið yfir mörk hins
hagkvæma og skynsamlega.
Þannig að auðlindaþurrb og
mengun grefur undan lífs-
grundvelli ríkra þjóða sem fá-
tækra."
DAGBÓK
Lauqardaqui*
M
desember
351. dagur ársins -14 dagar eftir.
50. vika
Sólris kl. 11.18
sólarlag kl. 15.30
Dagurinn styttist um
1 mínútu
anum, þær Birna Ragnarsdóttir
og Katla Björg Randversdóttir,
syngja einsöng og tvísöng og
Garðar Snæbjörnsson og Elsa
Herjólfsdóttir leika á fiðlu. Hall-
dóra Ingimarsdóttir og Ólöf Júlí-
usdóttir leika tvíleik á flautu og
gítartríö, sem skipab er Ómari
Erni Arnarsyni, Magnúsi Guð-
jónssyni og Þóri Sigurðssyni,
leikur nokkur lög. Minningar frá
bernskujólum flytur Elín Jóns-
dóttir. Nemendur í Dansskóla
Hermanns Ragnars sýna dans.
Jólaljóð les Valdimar Lámsson
leikari. Dagskránni lýkur með
hugvekju sem Bára Friðriksdóttir
guöfræðinemi flytur.
Abventusamkoma
sjúkraliba í Kópavogs-
kirkju
Sjúkraliðar hafa í samrábi við
sóknarprest Kársnesprestakalls
ákveðib að koma saman við
messu á abventu, í Kópavogs-
kirkju á morgun kl 14.00..
Prestar við guðsþjónustuna
verba: Ægir Sigurgeirsson, sókn-
arprestur Kársnessóknar, og
Baldur Kristjánsson, sóknarprest-
ur Höfn, sem predikar.
Organisti er Örn Falkner.
Söngur: Kvartett Kópavogs-
kirkju. Einsöngvarar Björn
Björnsson og Gubrún Lóa Jóns-
dóttir sjúkraliði.
Guösþjónustan er öllum opin.
Allir velkomnir.
Happdrætti Bókatíb-
inda 1994
Happdrættisnúmer laugardags
er 72332, sunnudags 46092, og
mánudags 52266.
jóiahátíb á Eibistorgi
Á morgun, sunnudag, mun út-
gáfufyrirtækið Fróbi hf. standa
fyrir jólahátíð á Eibistorgi og
mun hátíðin hefjast kl. 14. Fram
koma ýmsir þekktir skemmti-
kraftar og má nefna þá Bubba
Morthens, Pálma Gunnarsson og
Ómar Ragnarsson. Einnig mun
Gáttaþefur líta við, syngja og
gefa krökkunum glaðning frá
Nóa-Síríus. í bókabúð Eymunds-
son munu sextán abilar, sem
senda frá sér bók á árinu, árita
bækur sínar.
Jólaglebi í Gjábakka
Mánudaginn 19. des. verður
jólagleði fyrir eldri borgara í
Kópavogi í Gjábakka. Dagskráin
hefst með borðhaldi kl. 12.30
þar sem snætt veröur af marg-
réttuðu jólahlaöborði frá Kaffi-
húsinu á Skemmuvegi.
Siguröur Geirdal bæjarstjóri
ávarpar samkomuna. Þá munu
nemendur úr Nýja tónlistarskól-
Mótettukórinn:
Abventutónleikar end-
urteknir
Mótettukór Hallgrímskirkju
hélt aðventutónleika sína
sunnudaginn 4. des. sl. undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Tón-
leikarnir hafa hlotiö einróma lof
gagnrýnenda og áheyrenda og
hefur nú verið ákveðið að þeir
Þab liggur í hlutarins eðli og í
samræmi við heilbrigða skyn-
semi aö vaxandi hagvöxtur á
sín takmörk, og þegar að þeim
takmörkum er komið, er gengið
á auðlindir jarðar, í hverju sem
þær felast, og gatan liggur inn í
öngstræti fátæktar og að efna-
hagslegu hruni.
I þessu sambandi skal það að
vísu viðurkennt að það er um-
deilanlegt hvar mörkin liggja á
hverjum tíma, en vegurinn til
baka verður erfiður og því erfið-
ari sem lengra er komið af réttri
leið.
G.Gr.
verði endurteknir annað kvöld,
sunnudag, vegna fjölda áskor-
ana. Á efnisskránni er gömul
kirkjuleg tónlist.
Tónleikarnir verba í Hallgríms-
kirkju annað kvöld og hefjast kl.
21. Aðgöngumiðar veröa seldir í
kirkjunni og kosta 1000 krónur.
Norræna húsið:
jól í höllinni
Eitt vinsælasta jóladagatal,
sem danska sjónvarpið hefur
framleitt, heitir Jól í höllinni.
Norræna húsið hefur fengið það
til sýningar og verða sýndir fjórir
þættir í einu og er fyrsta sýning-
in á morgun, sunnudag, kl. 16.
Þættirnir verba síðan sýndir á
sama tíma, eða kl. 16 á mánu-
dag, þriðjudag, miðvikudag,
fimmtudag og á föstudag, Þor-
láksmessu. Abgangur er ókeypis
fyrir börn og fullorðna.
Málþing í Odda
í tilefni af útkomu bókarinnar
Náttúrusýn, greinasafn um sið-
fræöi og náttúm, gengst Sið-
fræðistofnun Háskólans fyrir
málþingi í stofu 101 í Odda, í
dag, laugardag frá kl. 14- 17. Er-
indi flytja: Páll Imsland jarö-
fræbingur, Vilhjálmur Árnason
heimspekingur, Róbert H. Har-
aldsson heimspekingur, og Þor-
varður Árnason, líffræðingur og
kvikmyndagerðarmaður.
Jólasýning í Gallerí Fold
Mánudaginn 19. desember
verður opnuð í baksal Gallerís
Foldar, Laugavegi 118d (gengið
inn frá Rauðarárstíg), sölusýn-
ing á verkum fimmtán lista-
manna sem galleríið selur fyrir.
í kynningarhorninu hanga acr-
yl- og grafíkmyndir eftir
Tryggva Ólafsson. Gallerí Fold
er opið 19.-22. des. kl. 10-22, á
Þorláksmessu til kl. 23 og á að-
fangadag til kl. 12.
Fréttir í vikulok
Nýjar tillögur ríkisstjórnarinnar til
kjarajöfnunar
Ríkisstjómin hefur komið sér saman um leiðir sem eiga að
stuðla aö aukinni atvinnu, stöbugleika og kjarajöfnun. Það,
sem helsta athygli vekur, er að hætt verður við að afnema há-
tekjuskattinn, hækkun skattleysismarka, átak í vegamálum,
ekknaskattur verður felldur niður, lækkun húshitunarkostnað-
ar og hertar aðgerðir gegn skattsvikum.
Ekki eru allir á eitt sáttir um gæði þessarar yfirlýsingar og
þykir stjórnarandstöbunni sýnt að sumt, sem ríkisstjórnin lof-
ar, muni ekki koma fram fyrr en í tíð næstu ríkisstjórnar og því
séu slíkar staðhæfingar hæpnar. Þá er gagnrýnt ab ekkert sé
gert til að stemma stigu við því mikla atvinnuleysi sem orðið er
viðvarandi í þjóðfélaginu. Aðilar vinnumarkaðarins hafa þó
lýst yfir ánægju sinni með tillögurnar.
Siv vann á Reykjanesinu
Siv Friðleifsdóttir hlaut 1. sæti Framsóknarflokksins á Reykja-
nesi í prófkjöri þar um síðustu helgi. Hjálmar Árnason hlaut
annað sæti, en Drífa Sigfúsdóttir varb þriðja. Alls greiddu 3.560
manns atkvæði sitt í prófkjörinu.
5/V Friöleifsdóttur fagnaö sem sigurvegara íprófkjörinu um síöustu
helgi. Tímamynd:
Norburlandskjördcemi eystra:
Guömundur öruggur í fyrsta sætinu
Guömundur Bjarnason mun áfram leiða lista Framsóknar-
flokks í Norðurlandskjördæmi eystra. Valgerbur Sverrisdóttir
alþingismaður hélt einnig öðru sætinu, en Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson varð þriðji.
1000 manns misstu vinnuna í nóv-
ember
Atvinnulausum fjölgaði um rúmlega 1000 frá október til nóv-
ember, eöa um rúmlega 22%. Skráð atvinnuleysi jafngildir því
að 5600 manns hafi ab meðaltali verið án atvinnu í mánuöin-
um.
Nauösynlegt aö draga úr þorskveiö-
um
Samstarfsnefnd um bætta umgengni um auðlindir sjávar telur
ab beinar þorskveiðar verði að minnka og auka þannig svigrúm
þorsks sem meðafla. Þetta muni sporna vib útkasti fisks og
löndun framhjá vigt.
Metár í útflutningi fiskafuröa
Allt útlit er fyrir að yfirstandandi ár verði metár í útflutningi
sjávarafurða hjá Sölumibstöð hraöfrystihúsanna. Þab nemur
nú rúmum 25 milljörðum króna, en var 19 milljarðar á sama
tíma í fyrra.
8% veltuaukning í iönaöi
Bætta afkomu atvinnulífsins, ekki síst í almennum iðnabi og
matvælaiðnaði, má m.a. rekja til þess að almenningur leggur
meiri áherslu á að velja íslenskt. Á fyrstu átta mánuðum þessa
árs nam veltuaukningin 8 prósentum.
I ✓ "
Peningaþvottur á íslandi
Rannsóknir hafa leitt í ljós ab erlent fyrirtæki hefur notað ís-
lenska banka til ab þvo peninga sem tengjast umfangsmiklu
fjársvikamáli í Belgíu.
Aukin bjartsýni um sínkverksmiöju
Aukin bjartsýni ríkir um sínkverksmiðju eftir fund forráða-
manna Zinc Corporation of America. Ef af verður, mun ís-
lenska verksmiðjan hefja framleibslu árib 1998.