Tíminn - 30.12.1994, Blaðsíða 16

Tíminn - 30.12.1994, Blaðsíða 16
Föstudagur 30. desember 1994 Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburl., Faxafl., Subvesturmib og Faxaflóamib: Hæg na. átt í fyrstu, en n. gola eba kaldi síbdegis. Bjartvibri. • Breibafj. og Breibafjarbarmib: Hæg n. átt í fyrstu, en n. gola eba kaldi og skýjab meb köflum síbdegis. • Vestfirbir og Vestfjarbamib: N. gola eba kaldi og ab mestu úr- komulaust. • Strandirog Norburland vestra, Norburland eystra, Norbvestur- mib og Norbausturmib: Allhvass n. og na. og él fram eftir degi. Hægari norban og úrkomuminna síbdegis. • Austurl. ab Clettingi, Austf., Austurmib og Austfj.mib: N. hvass- vibri og snjókoma eba él í fyrstu. Hægari norban og él síbdegis. • Subausturland og Subausturmib: Norbaustan og siban norban stormur og él. Talib ab hlutabréfasala verbi allt ab 1.200 milljónir, sem er 45% aukning frá síbasta ári: Áætlaö aö 13-14 þúsund manns kaupi skattafslátt Áætlab er ab allt aö 13-14 þús- und manns, e&a kringum 7. hver tekjuskattsgreiöandi í landinu, muni kaupa sér allt ab 43.500 króna skattafslátt (end- urgreiðslu) næsta sumar með hlutabréfakaupum núna fyrir áramótin. Þetta er allt að fjórb- ungs fjölgun frá því í fyrra. Tal- ið er að hlutabréf verði seld fyr- ir allt að að 1,2 milljarða króna núna í áramótahrinunni, sem er nærri 45% hærri upphæð en í lok síðasta árs. Lítur því út fyrir að ríkissjóður geti þurft að endurgreiða kringum 550-600 milljónir á komandi sumri vegna hlutabréfakaupa þessa dagana. Tíminn spurbi Bjarna Ár- mannsson, forstöðúmann mark- aðssviðs Kaupþings hf., hvort mikil sala væri í skattafslætti þessa dagana. „Já, samkvæmt venju og raun- ar mun meiri sala heldur en áð- ur." Út frá fyrirliggjandi sölutölum segir Bjarni hafa verið áætlað að þaö veröi einhversstaðar á bilinu 13-14 þúsund manns sem komi til með að njóta skattfrádráttar 1995, vegna hlutafjárkaupa á þessu ári, borið saman við rúm- lega 11 þúsund sem nutu slíks af- sláttar s.l. sumar. Heildarsöluupphæð komi þó til með að hækka mun meira. Þar sem einungis 80% kaup- verðsins nýtist nú til frádráttar þurfi menn að kaupa hlutabréf fyrir 25% hærri upphæð til að njóta hámarks skattafsláttar. Bjarni sagði hlutabréfasölu hafa veriö rúmlega 830 milljónir fyrir síðustu áramót. „En við erum að gera ráð fyrir aö hún geti fariö í 1,2 milljarða í ár." Bæði hafi sala verið mjög góð dagana eftir jól, en hún hafi raunar einn- ig farið fyrr af stað en oft áður. „Hlutabréfaskammturinn", ef svo má orða það, er núna 129.900 krónur á mann (tvöföld sú upphæð fyrir hjón). Þar af nýtast 80%, eða 103.920 krónur, til lækkunar á tekjuskattstofni, sem þá aftur þýðir 43.480 króna lækkun eða endurgreiðslu á tekjuskatti við álagningu í sumar. Fyrir ýmsa getur lækkun skatt- stofnsins þó komið að enn frek- ari notum. Fyrir tekjuháa getur hún líka þýtt lækkun hátekju- skatts og fyrir námsmenn lægri afborganir af námslánum. Og á hinn bóginn hækkun á greidd- um vaxtabótum til íbúðarkaup- enda og hækkun á barnabóta- auka. Að þessu sinni segir Bjarni mun meira keypt af bréfum í hlutabréfasjóðunum heldur en í einstökum hlutafélögum. „Enda ráðleggjum við fólki, t.d. þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti, og fólki sem ekki fylgist regluiega með markaðnum, að dreifa áhættunni strax, með því að kaupa í sjóðunum frekar en í ein- stökum félögum." Hann segir hins vegar ekki mikið um að fólk nýti sér að kaupa með afborgunarkjörum. Og Kaupþing bjóöi einungis upp á slíkt vegna kaupa í hlutabréfa- sjóðnum Auðlind, en ekki al- mennt í hlutabréfaviðskiptum. Bjarni segir hlutabréfakaup nánast eina valkostinn sem fólk hefur til lækkunar á tekjuskatti, auk húsnæðissparnaðarreikninga sem nú séu að detta út úr kerfinu. En miðað við nýtt skattalaga- frumvarp, sem vonandi veröi samþykkt fyrir áramótin, sé áætl- að að viðhalda þessum skattfrá- drætti framvegis, en ekki fella hann niður í áföngum eins og áformað var. ■ Þyrlur Landhelgisgæslunnar og varnarlibsins björgubu í gær átta manns, þar af einu ungbarni, af hollensku vöru- flutningaskipi um 100 sjó- mílum suðaustur af Vest- mannaeyjum. Þegar síðast fréttist var varbskip á leib á slysstað en þegar björgunar- aðgerðum lauk var kominn fimmtán gráðu halli á skipið. Skipið fékk brotsjó á sig um þrjú- leytiö í fyrrinótt. Þetta er 2.300 tonna skip sem var á leið til Reykjavíkur með farm af fóðurbæti. Kom þá nokkur leki að skipinu, en þegar skipið var statt um 100 mílur suðaustur af Vestmannaeyjum í gærdag reið annað brot yfir skipið og laskaðist það þá verulega þannig að frammastrið brotn- aði, svo og rúður í vistarverum skipverja. Ágerðist lekinn svo mjög að leitað var aðstoðar Landhelgisgæslunnar sem þegar sendi þyrlu sína á vett- vang. Þyrla frá varnarliðinu var einnig send á slysstað, en þegar björgunarstarfið hófst voru þar níu vindstig, hauga- sjór og tíu metra ölduhæð. Kl. 15.35 var búið að bjarga sex manns um borð í þyrlu Gæslunnar en þar sem hún tók ekki fleiri urðu tveir menn eftir um borð. Þeim bjargaði þyrla varnarliðsins síðan kl. 16.02. Að sögn Berents Sveins- sonar í stjórnstöð Landhelgis- gæslunnar gekk björgunar- starfið eins og í sögu, þrátt fyr- ir erfiðar aðstæður, en þegar síðast fréttist var varðskip á leið á slysstað. ■ mundu! ~a ig sfafa simanúmer ÍJ'J iJ'iJsJ/j'iJ 2J Frá og með l.janúar 1995 breytist val til útlanda. í stað 90 hemur OO PÓSTIJR OG SÍMI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.