Tíminn - 04.03.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.03.1995, Blaðsíða 1
79. árgangur Laugardagur 4. mars 1995 44. tölublaö 1995 Brautarholti 1 SIMI 631600 iMÉMII STOFNAÐUR 1917 Nýjung í nœturlífi Reykjavíkurborgar: Hugmyndir um „nætursund" í Sundhöllinni Hugmyndir eru uppi um ab starfrækja svokallab „nætur- sund" í Sundhöllinni og hefur tillaga íþróttafulltrúa Reykja- víkurborgar, sem gerb var í samrábi vib forstöbumann Sundhallarinnar, verib sam- þykkt í stjórn íþrótta- og tóm- stundarábs. Um er að ræða að Sundhöll Reykjavíkur verði opin á föstu- dagskvöldum frá mibnætti til kl. 03.00. Enn á þó eftir að fá tilskil- in leyfi, en ætlunin er ab gera til- raun með þetta næstu þrjú föstu- dagskvöld. Þetta er hugmynd tveggja háskólanema og er ráb- gert að þessi nýjung sé fyrir ungt fólk á aldrinum 16-23 ára og að þetta verði einn möguleiki á af- þreyingu fyrir fólk, sem ekki er á „skemmtistaðaaldrinum". Eins og gefur að skilja verða settar strangar reglur um starfsemina og samkvæmt upplýsingum Tím- ans verður „nætursundinu" hætt strax ef ekki verður farið eftir þeim reglum. ■ Ríkisendurskoöun á kvótaerföum. LÍÚ: Heilsdagsskólinn í Reykjavík S ekki í verkfalli. KraKkarnir í Melaskóla voru hress oq kat eins oq sjá má á í fótbolta. Allt er enn fast í kennaradeilunni. og Kat ems og sja , SJá frétt á bls. 3 Tímamynd CS starfar víbast hvar þrátt fyrir verkfall kennara, enda starfsfólk þar myndinni, þrátt fyrir kennsluleysib í vikunni, enda alltafgaman Viröist túlka vilja Alþingis Kristján Ragnarsson formabur LÍÚ segir ab þar sem Ríkisend- urskobun starfar í umbobi Al- þingis og sé óháb framkvæmd- arvaldinu, megi ætla ab vilji löggjafans endurspeglist í því áliti stofnunarinnar ab greiba beri erfbafjárskatt af kvóta. Formabur LÍÚ segist jafnframt ekki átta sig á stöðu Ríkisendur- skoðunar til að gefa umsögn um málið að ósk embættis sýslu- manns í Reykjavík. Fljótt á litið mætti ætla að slíkt verkefni væri á verksviöi Yfirskattanefndar fremur en Ríkisendurskoðunar. „Þarna virðist því hafa komið fram vilji Alþingis því Ríkisend- urskoöun starfar í umboði þess," segir formaður LÍÚ. ■ Um 7.450 húsnœöislántakendur í vanskilum um áramót og fjölgaöi um tœp 50% frá árinu á undan: Greitt of seint af helmingi húsbréfa og 20% í vanskilum Vanskil húnsæbislána eru mjög mikil og vaxandi, sér- staklega hjá Byggingarsjóbi verkamanna (BV) og á hús- bréfum. Nærri þribjungur lán- takenda, eba 17.400 manns, átti gjaldfallnar greibslur ógreiddar um áramót, samtals nærri 3,1 milljarð króna. Af þessum hópi voru 7.450 lántakendur sem ekki höfðu borgab af lánum sínum í 3 mán- uði eða lengur og voru því tald- ir í vanskilum. í þeim hópi hafbi fjölgaö um 48% á síðsta ári. Vanskil þessa hóps námu 2 milljörðum króna (270.000 að meðaltali hjá hverjum) og hafði sú upphæð hækkab um 56% frá upphafi ársiris. Þessar tölur koma fram í sam- antekt frá Húsnæðisstofnun rík- isins. Sérstaka athygli vekur, að þeim sem eru í vanskilum með Ahjifnir 34 loönuskipa skrifa forsœtisráöherra: Ofremdarástand í verömyndun loönu Áhafnir 34 lobnuskipa, sem er obbinn af lobnuflotanum, hafa sent Davíb Oddssyni forsætisráb- herra bréf þar sem vakin er at- hygli hans á því ófremdarástandi sem þeir telja ab ríki vegna verb- myndunar á lobnu uppúr sjó. Sjómennirnir skora á forsætisráð- herra ab beita öllum rábum til að koma í veg fyrir áframhaldandi ein- hliba verbákvörbun kaupenda á lobnu, þannig ab sjómenn og full- trúar þeirra fái eðlilega hlutdeild í ákvörðun loðnuverðs í framtíbinni. í áskorun sjómanna til ráðherra er fullyrt að ástandið í verðlagsmál- unum „einkennist af einhliða verö- ákvörðun og verbsamrábi milli kaupenda, sem hafa á undanförn- um árum stig af stigi lækkab hlut- fallslegt verð á loðnu miðað við verb á loðnuafurðum." Sjómennimir fullyrða að meb þessu háttalagi sínu misnoti kauf>- endur gróflega gildandi reglu um frjálsa verðmyndun á sjávarfangi og trobið sé á hagsmunum sjó- manna. Minnt er á ab laun sjó- manna séu að stærstum hluta háð því verði sem aflinn er seldur á. Sem dæmi um yfirgang kaupenda benda sjómennimir m.a. á að fyrir skömmu hafi fulltrúar þeirra í Verb- lagsrábi sjávarútvegsins hafnaö því aö verðleggja loðnu ab beiöni full- trúa sjómanna. ■ húsbréf (þ.e. 3ja mánaba van- skil eba lengri) hefur fjölgab úr 1.400 upp í 3.700 manns á einu ári eba úr 10% og upp í 20% allra lántakenda. Vanskilin eru meiri eftir því sem lánin eru eldri. Þannig voru 29% hús- bréfalána frá 1991 I vanskilum nú um áramót. Aðeins rúmlega helmingur lántakenda í hús- bréfakerfinu var í fullum skilum um áramót og þab hlutfall var óbreytt frá næstu áramótum á undan. Hlutfallslega flest van- skilafólk er þó að finna meðal lántakenda hjá Byggingarsjóbi verkamanna. Um 26% þeirra voru í vanskilum um áramótin borib saman viö 21% í ársbyrj- un. Hátt í helmingur þessa hóps hafði verið í vanskilum 1 ár eba lengur. Vanskil þessa hóps námu 530 milljónum, eba tæp- lega 380.000 kr. ab meðaltali á hvem lánþega í vanskilum. Þar af voru 105.000 kr. dráttarvextir og kostnabur. Svipab og í hús- bréfakerfinu er síban stór hópur meö ógreiddar afborganir sem hafa gjaldfallið síðustu 3 mán- ubina fyrir áramót, þannig að einungis 55% lántakenda BV vom meö sín lán í fullum skil- um. Hjá Byggingarsjóði ríkisins er hlutfall vanskilafólks um helm- ingi lægra. Um 21% lántakenda var meö gjaldfallnar greiðslur, en hlutfall lánataka í vanskilum (3 mán. eba lengur) var 8% um áramót. Athyglivert er að útistandandi lán í húsbréfakerfinu, sem raun- verulega hefur abeins starfaö í fimm ár, eru orbin nánast jafn mikil, eða 61,1 milljaröur króna, og hjá Byggingarsjóbi ríkisins. ■ Ingi Björn Albertsson: Geri ekki mun á JóniogséraJóni „Þab má segja ab þreifingar mínar séu á lokastigi. Ég ákveb þab á næstu dögum hvab ég geri," sagbi Ingi Björn Alberts- son, alþingismabur fyrir Sjálf- stæbisflokkinn í Reykjavík. Hann hugleibir enn sérfram- bob, trúlega í Reykjavík. Ingi Björn sagbi í samtali vib Tímann í gær ab hann hefbi rætt vib fjölmarga menn og konur um frambob. Þar á mebal em ýmsir huröarskellar frá frægum fundi Þjóbvaka, menn sem sættu sig illa við sjávarútvegsstefnu Ágústs Einarssonar prófessors. „Ég tala viö ýmsa. Ég hef aldrei gert mun á Jóni og séra Jóni," sagbi Ingi Björn Albertsson. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.