Tíminn - 04.03.1995, Side 3

Tíminn - 04.03.1995, Side 3
Laugardagur 4. mars 1995 3 Vanskil Visakorthafa hafa aukist um 46% á tveim árum og 5.700 korthafar heltust úr lestinni í fyrra: Um 15. hver Visareikningur var í vanskilum um áramót Visakortum í vanskilum fjölg- aði um rúmlega 18% á síðasta ári. „Fjöldi korthafa í vanskil- um um áramót voru 5.146 eða 6,8% af reikningshöfum", seg- ir í frétt frá Visa ísland eftir aðalfund fyrirtækisins. Með öðmm orðum, um 1 af hverj- um 15 Visareikningshöfum hefur verið í vanskilum í lok síðasta árs (þ.e. áður en kom aö gjalddaga fyrri „jólareikn- ingsins", nóv/des). Vanskila- kortum fjölgaði um rúmlega 18% á árinu. Upphæö vanskil- anna var 436 milljónir króna, eöa tæplega 85.000 kr. að meðaltali á hverjum reikn- ingi. Ári áður vom vanskil 409 milljónir og tæplega 300 milljónir 1992. Vanskil hafa því aukist um 46% á aðeins tveim ámm. Um 5.700 sáu á bak Visakortunum sínum í fyrra, en í þeirra stað bættust 7.500 nýir korthafar í hópinn. Miðað við ab markaöshlut- deild Visa er 76% af innlenda kreditkortamarkaðnum má áætla að allt að 6.800 kredit- kortareikningar hafi alls verið í vanskilum um áramót og upp- hæðin allt að 570 milljónir kr. Ferðaviöskipti og skemmtanir jukust mest af einstökum sölu- eða þjónustuflokkum, eða um 12% milli ára. Ýmis viðskipti jukust um 10%, bensínviðskipti um 8%, en hlutdeild matvöru- verslana og stórmarkaða stóð nokkurn vegin í stað í krónum talið. Boögreibslur, eða sjálf- virkar greibslur fastagjalda, juk- ust um 10% á árinu og námu 4,6 milljörðum króna. Mikil aukning varb t.d. í iðgjalda- greiðslum tryggingafélaga og áskriftum fjölmiðla. Raðgreiðsl- ur jukust hins vegar ekki milli ára, en 3 milljarðar voru greidd- ir með þeim hætti. Heildarviðskiptavelta Visa ís- lands nam 44,2 milljörðum króna, sem svarar til 460.000 kr. á hvert Visakort að meðaltali. Þar af námu innlend kortavið- skipti um 38 milljöröum, sem var 3% aukning frá árinu áður. Erlendar úttektir jukust meira, eða 7,5%, milli ára og námu 6,2 milljörðum í 800.000 færslum. Þetta svarar til þess að greitt hafi Stjórnarformaöur SVR: Leitað lausna á deilum starfsmanna Arthur Morthens stjórnar- formaöur SVR mótmælir harölega framkomnum full- yrðingum vagnstjóra um að núverandi meirihluti hafi al- gjörlega gengiö framhjá þeim eftir að hann tók við völdum. Hinsvegar sé því ekki aö neita að deilur séu meöal starfsmanna og unnið sé aö því að finna lausn á þeim af hálfu yfirmanna fyr- irtæksins. Stjórnarformaður SVR bend- ir m.a. á að fulltrúi vagnstjóra eigi sæti í stjórn SVR og taki þar fullan þátt í stefnumótun fyrirtæksins sem er öndvert við þab sem var á valdatíma sjálfstæðismanna. Arthur heldur því einnig fram að stjórnin sé öll af vilja gerð til ab halda góðu sambandi við starfsmenn og m.a. sé unnið að skipulagsbreytingum hjá Strætó í samráði vib þá. Auk þess hafa verið haldnir fjöl- margir fundir með starfs- mönnum og trúnaðarmönn- um frá valdatöku núverandi meirihluta þar sem þeim hefur verið kynnt það sem efst er á baugi hverju sinni. Stjórnarformaður SVR segir að innan tíðar sé að vænta fyrstu tillagna um endurskipu- lagingu á leiðarkerfi SVR og tíðni ferða. ■ verið erlendis meira en 8 sinn- um með hverju einasta útgefnu Visakorti i fyrra, um 65.000 kr. með hverju korti að meöaltali. Visa kreditkort vom um 96.000 um áramót. Sérkortum hefur farið fjölgandi og em nú orðin 25.000. Almennum kort- um hefur aftur á móti fækkað á undanförnum árum og voru um 71.000 um áramót. Fjöldi færslna voru samtals 12,6 millj- ónir yfir árið, sem svarar til þess að hvert kort sé notað 11 sinn- um á mánuði að meðaltali. Debetkort Visa voru orðin um 70.000 um áramót. Evrópskt tœknisamstarf: Kynningarmið- stöb Evrópu- rannsókna í gær var formlega opnuð svo- nefnd Kynningarmiðstöð Evrópu- rannsókna, KER, sem verður rekin af Rannsóknarráði íslands með abstoð Ibntæknistofnunar og Rannsóknaþjónustu Háskólans. A þessa staði geta allir leitað sem hafa hug á ab taka þátt í evrópsku tæknisamstarfi og m.a. í gegnum gagnabankann CORDIS. Miðstööinni er m.a. ætlaö að aöstoöa fyrirtæki og stofnanir við þátttöku í rannsókna- og tækni- þróunaráætlunum Evrópusam- bandsins sem íslendingar hafa nánast fullan aðgang ab. ■ Húsib Sunnuhvoll er nánast alveg á kafi í snjó og þab rétt gríllir í einn glugga. Börn og fullorbnir bjástra í snjónum ofan á húsinu og eru byrjub ab moka. Drangsnes: Týnda húsið Eins og við greindum frá í Tíman- um sl. fimmtudag hafa snjó- þyngsli verið með eindæmum á Drangsnesi á Ströndum að und- anförnu. Þá kom fram í samtali viö Einar Ólafsson skólastjóra aö eitt íbúðarhúsiö í bænum hafi hreinlega týnst í snjó, en það var húsiö Sunnuhvoll viö Aöalbraut 18. Enginn var heima þegar húsið „týndist" og var nokkuð verk aö finna það á ný og grafa upp. Okk- ’ ur hafa nú borist myndir frá Ein- ari af þessum fundi og birtast þær hér meb. ■ Kennaraverkfalliö: • / St órnmálamenn teknir á beinib Kennarafélögin stefna að því ab nota næstu viku til þess að kynnast vibhorfum stjórnmála- manna til menntamála al- mennt, auk þess sem kennarar munu ræba vib þá um stöbu samningavibræbna vib ríkis- valdib, hafi samningar ekki tek- ist fyrir þann tíma. Þessir fundir munu fara fram í Drangey, verk- fallsmibstöb kennarafélaganna. Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags, sagði í gær ab staban í samningamálum kennara væri nær óbreytt frá því sem verib hefur og því fátt sem benti til þess að lausn væri í sjón- máli. í byrjun vikunnar er ætlunin ab Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mæti til fundar vib kennara í verkfallsmiðstöðinni, en eins og kunnugt er þá munu sveit- arfélögin taka við grunnskólanum á næsta ári. Þá hafa kennarar hug á því aö fá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga, til fundar vib sig, Ögmund Jónasson formann BSRB og frambjóðendur sem flestra stjórnmálaafla sem bjóða fram til Alþingis. Auk þess er stefnt að úti- fundi á Ingólfstorgi í vikubyrjun. Hreiðar Sigtryggsson hjá Kenn- arasambandi íslands segir að ef- laust muni stjórnmálamennirnir hafa áhuga á að kynna stefnur sín- ar í menntamálum fyrir kennur- um og viðra skoðanir sínar á kjara- kröfum kennara. Sérstaklega þegar haft er í huga ab stutt er til kosn- inga til Alþingis, en ekki síbur vegna þess aö í atkvæðum talið getur kennarastéttin ásamt mök- um, bömum og aöstandendum numiö allt að 15-20 þúsund á landsvísu. Þá hefur hver kennari fengiö bréf frá fjármálarábuneytinu þar sem fram kemur hversu mikiö þeir hafa fengið ofgreitt í launum frá 17. febrúar til síðustu mánaba- móta. Mjög misjafnt er hvað þetta er mikið og fer það eftir stöðuhlut- falli hvers og eins. En föst kenn- aralaun em fyrirframgreidd en yf- irvinnan eftir á. Fyrir kennara í fullri stöðu er þarna um ræða laun í hálfan mánub sem hugsanlega geta numib 30-40 þúsund krón- um. Þannig ab gera má ráb fyrir því ab létt veröi í næsta launaum- slagi kennara, hvenær sem þab nú verður. ■ 46 afloknum mokstrí, húsib kemur í Ijós. Hverjum hefbi dottib í hug í fyrrasumar ab þetta hús œtti eftir ab týnast í snjó? Tímamyndin EinarÓ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.