Tíminn - 04.03.1995, Page 13

Tíminn - 04.03.1995, Page 13
Laugardagur 4. mars 1995 mt£—í----- aKaji IjTj æiwj 13 hyglisverð niburstaða og óvænt að viöfangsefnið skuli taka þessa stefnu. Þá horfir maðurinn á mig og segir: „Hvað? Kannt þú að lesa úr þessu?" Þessi maður var með háskólapróf. Það vildi bara svo til að ég var alvön því að lesa úr svona plöggum, enda þótt ég væri ekki með há- skólapróf. Ég varð þessa viðhorfs líka vör í sambandi við félagsmál og þab var ein af ástæbunum fyrir því að þegar ég átti þess kost ab fara í háskólanám fannst mér sjálfsagt ab grípa tækifærið. Þér hefur ekki dottið í hug að fara hina hefðbundnu íslensku leið, í öldungadeild og síðan í Háskóla íslands eftir stúdents- próf? Nei, mér fannst hún nokk- uð löng, sú leið, og svo kom þab líka til að mér líkaði alltaf vel sú vinna sem ég var í. Það má eiginlega segja að ég hafi verið í mínum „karríer" og hvorki reiðubúin að gera hlé á honum né víkja af þeirri braut sem ég var á, eins og ég hefbi þurft að gera með því ab taka fyrst stúdentspróf og fara síðan í viðskiptafræði í há- skólanum hér. Þegar fyrir lá að ég gæti sótt mér þá menntun sem ég vildi í háskóla í Bandaríkjunum, án þess að það raskabi starfi mínu hér heima að ráði, var ég ekki sein að grípa tækifær- ib. Það var Jón Þór Þórhails- son, yfirmaður minn, sem benti mér á þessa leið og hann studdi mig með ráðum og dáð allan tímann. Það byrjaöi með því ab hann rak augun í auglýsingu um þenn- an háskóla sem hafði sérhæft sig í fjarkennslu og hafði skipulagt nám, sérstaklega ætlab stjórnendum sem voru í starfi. Ég lét senda mér pappíra og innritabi mig í skólann. Ég þurfti að leggja fram mjög nákvæma og yfirgripsmikla skýrslu um allt það nám sem ég hafði stundað frá upp- hafi. Það var bebið um yfirlit um leikskólaferil, hvað þá annað. Mér brá nú nokkuð við þetta og hélt að ég fengi ekki inngöngu þar sem ég er alin upp í sveit, á Jaöri í Hruna- mannahreppi, og lærði ein- göngu heima til tíu ára ald- urs. Þá fór ég fyrst í skóla. Þegar ég var búin að hug- leiöa þetta dálitla stund áttabi ég mig á því að ég hafði ein- mitt verið í afskaplega góðum einkaskóla sem stæði öðrum skólum tæpast að baki. Heima í sveitinni hafði ég aðgang að yngra og eldra fólki meb ágæta menntun. Ég var læs fimm ára og lærbi ab skrifa fljótlega upp úr því. Á meöan verið var ab mjólka kýrnar kenndu þeir mér margföldunartöfluna, móður- bræöur mínir, og Arkimedes- ar-lögmálið lærði maður á því ab fylgjast með því hvernig vatnib færðist til í kælinum þegar brúsunum var sökkt of- an í kerið, og annað eftir þessu. Þessir móðurbræður mínir voru búfræðingar, ung- ir menn og skemmtilega áhugasamir um að fræða mig um allt sem þeir vissu. Amma kenndi mér kvæbi og leiðbeindi mér í bók- menntum. Hún lét mig lesa Njálu þegar ég var níu ára og sagöi aö ekki væri nokkur maður með viti nema hafa lesið Njálu, sem ég gerði nú reyndar eins og páfagaukur. Maður var líka látinn læra utanbókar heilu kvæðabálk- ana, Gunnarshólma og ég veit ekki hvað. Afi var heimspek- ingur í eðli sínu og velti mörgu fyrir sér, og yfirleitt gekk ekki á öðru en því að fræða mann. Ég hafbi eiginlega ekki gert mér grein fyrir því fyrr en ég var ab ganga frá þessari um- sókn um skólavist í Bandaríkj- unum, að ég hafði fengið prýðismenntun, ekki síst þeg- ar ég var barn. Svarið var á þá leið að um- sóknin hefbi veriö tekin til greina og ég væri búin að fá skólavist. Ég fékk yfirlit um bækur og einnig um nám- skeið. Ég þurfti síöan að velja úr námskeiðunum og skrá mig á þau. Upplýsingar frá skólanum um tilhögun náms- ins voru mjög greinargóöar, og fólu annars vegar í sér leið- beiningar um verkefni og - Intemetið hefði breytt miklu hins vegar efni sem átti að lesa en taka síðan próf í þegar ég kæmi út. Þetta gekk síðan þannig að ég fór út tvisvar á ári, í febrúar og ágúst, og var þá hálfan mánuð í skólanum. Þá var frí hjá reglulegum nemendum vib skólann og þab notað til að sinna þeim sem voru utan- skóla. Námið var skipulagt þannig að beinlínis var ætlast til að maður væri í vinnu sem tengdist því og með þeim hætti var þetta mjög abgengi- legt. Ég var með öðrum orð- um að „praktísera" það sem ég var að læra á meðan ég var aö læra það. Viltu kannski meina að það sé eðlilegri framvinda en hefð- bundið háskólanám? Ég álít að hún sé örugglega ekki síðri en slíkt nám. Að fara þarna út var eins og frísk- legt bab í hvert sinn. Eg var sífellt ab læra eitthvað sem ég var ab vinna ab og hafði sjálf reynslu af. Þetta sýndi mér nýjan flöt á þeim viðfangsefn- um sem ég var að fást við og ég mæli eindregið með því að þessu sé blandað saman á þennan hátt. Þú laukst BA-prófi í viðskipt- um, eða „Business Administr- ation". Kom til greina að þú baettir við þig meistaraprófi? Já, ég var reyndar búin að ætla mér það og langaöi mjög til þess fyrst eftir að ég lauk BA-prófinu. Þá voru hins vera komnar upp aðstæður hjá SKÝRR ab ég var komin þar í nýtt starf, var farin að vinna að endurskipulagningu fyrir- tækisins sem krafðist mikils tíma, þannig að ég átti lengi vel ekki heimangengt. Nú er ég komin í allt annað starf þar sem engin tök eru á slíku. Ertu metnaðargjöm? Ég hef einhvern veginn svo einkennilega framaþrá. Hún nær ekkert mjög langt, eigin- lega bara að því að ráða rosal- ega vel við það sem ég að gera hverju sinni. Ég hef svona malandi ánægju af að finna fyrir því að hlutirnir ganga upp, að það sé viðurkennt og þeim sem eru í kringum mig líki það vel og allir séu ánægðir. Viðtal: Áslaug Ragnars Mynd: K.E.E. Náttúruverndarár Evrópu 1995 Hvað er atvinnulífið að gera í umhverfismálum? Sjálfbær þróun í atvinnurekstri og góð sambúð við umhverfíð Ráðstefna á Hótel Sögu, 7. mars 1995 Dagskrá 11:30 Innritun. 12:00 Hádegisverður í Átthagasal. 13:00 Ávarp og setning, Össur Skarphéðinsson, umhverfisráðherra. 13:10 Góð umhverfisstefna er góð viðskiptastefna, Laurens J. Brinkhorst, þingmaður á Evrópuþinginu og fyrrverandi yfirmaður umhverfismála framkvæmdastjómar ESB í Brussel. / Arsalur 13:40 Atvinnulífið og umhverfismál - stefnumótun VSÍ, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. 13:55 Stefnumótun fyrirtœkja í umhverfismálum, Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Sólar hf. 14:10 Bætt nýting hráefnis; meðhöndlun fljótandi úrgangs frá fiskvinnslu, Hafsteinn Helgason, lektor við verkfræðideild Háskóla íslands. 14:25 Sambúð fyrirtækis og umhverfts, Tómas Möller, framkvæmdastjóri markaðssviðs Olíuverslunar íslands hf. s y 14:40 I sátt við umkverfið, Geir Þórðarson, formaður Umhverfisfélags Islandsbanka. 15:00 Kaffihlé. 15:20 Hreinni framleiðslutækni og nútíma stjórnunarhættir, Guðjón Jónsson, deildarstjóri umhverfisdeildar Iðntæknistofnunar íslands. 15:35 Frá orðum til athafna, Bjami Snæbjöm Jónsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Skeljungs hf. 15:50 Stefna ISAL í umhveiftsmálum, Rannveig Rist, steypuskálastjóri íslenska álfélagsins hf. 16:15 Yfirlit og lokaorð, Ámi Mathiesen, alþingismaður. 16:30 Móttaka í boði umhverfisráðherra í Skála. Ráðstefnustjöri Óskar Maríusson, efnaverkfræðingur, VSÍ. Ráðstefnugjald er krónur 2.500. Innifalið í verðinu er hádegisverður, kaffi og fundargögn.Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir kl. 12:00, mánudaginn 6. mars nk. til KOM hf. í síma 562 2411 eða með faxi 562 3411. Skipuleggjendur ráðstefnunnar áskilja sér rétt til að breyta dagskrá vegna ófyrirsjáanlegra atvika. Umhverfísráðuneytið l'SLANDSBANKI I tJ /\T7\ Skeljungur hf. Shell einkaumboö Umsjón og skipulag KOM hf.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.