Tíminn - 04.03.1995, Qupperneq 19
Laugardagur 4. mars 1995
19
Grímurjónsson
Fæddur 25. ágúst 1925
Dáinn 25. febrúar 1995
í dag er til grafar borinn Grímur
Jónsson, héraösrábunautur á
Ærlækjarseli í Axarfiröi, en
hann lést aö Heilsuhælinu á
Kristnesi þann 25. þ.m. Þótt
andlát Gríms kæmi ekki á óvart,
er þaö ávallt svo aö brotthvarf
samferöamanns og góös vinar
kemur hreyfingu á huga manns.
Aö sækja gamlar minningar um
horfnar samverustundir og góö
kjmni.
Fundum okkar' Gríms bar
fyrst saman haustiö 1947, er viö
hófum nám við Framhalds-
deildina á Hvanneyri (síðar Bú-
vísindadeild), sem þá var að
hefja starfsemi sína. Viö vorum
átta Norðlendingar, sem stund-
uöum nám viö deildina á þess-
um tveimur fyrstu starfsárum
hennar. Samstarf okkar skóla-
bræðranna og félagsskapur var
náinn og góður þau misseri sem
viö dvöldum saman á Hvann-
eyri. Þótt námiö væri stundað af
samviskusemi, áttum við marg-
ar glaðar og góðar samveru-
stundir, sem enn er gott aö rifja
upp.
Grímur Jónsson féll vel inn í
þennan hóp. Skaplyndi hans
var meb þeim hætti aö allir
kunnu því vel aö dvelja í návist
hans. Glaöværð hans og
græskulaus gamansemi, ásamt
hlýju hjartalagi, öfluðu honum
hvarvetna vina og vinsemdar.
Eftir aö skólavist á Hvanneyri
lauk flutti Grímur til Akureyrar,
þar sem hann stofnaði heimili
meö unnustu sinni og síðar
konu, Erlu Bernharðsdóttur frá
Akureyri. Þar geröist hann
starfsmaður Tilraunastöðvar-
innar (Gróörarstöövarinnar). Á
meðan þau Grímur og Erla
dvöldu á Akureyri bar fundum
okkar oft saman, en alltaf var
t MINNING
jafn gaman aö blanda geöi viö
Grím og eiga með honum glaða
stund. Eftir að Grímur settist aö
á Ærlækjarseli uröu fundir okk-
ar strjálli, sem von var til, þar
sem viö vorum búsettir hvor á
sínu landshorni. Um fjölda ára
var það þó fastur liöur á dagskrá
okkar, er viö sóttum árlegan
fund búnabarráöunauta í
Reykjavík, aö heimsækja sam-
eiginlegan vin okkar og eyöa
meö honum kvöldstund við spil
og létt spjall.
Dvöl þeirra Gríms og Erlu
varö ekki löng á Akureyri, því aö
voriö 1950 fluttu þau austur í
Axarfjörð aö Ærlækjarseli, en
þar var Grímur fæddur og upp
alinn og þar bjuggu móöir hans
og systkini. Þau byggöu nýbýlið
Ærlækjarsel II á hluta jarðarinn-
ar og komu sér þar upp dálitlu
snotru fjárbúi. Jafnframt gerðist
Grímur héraösráðunautur Bún-
aðarsambands Norður-Þingey-
inga, og því starfi gegndi hann á
meðan honum entist heilsa. Frá
1953 annaðist hann einnig
framkvæmdastjórn Ræktunar-
sambands Norður-Þingeyinga
vestan heiöar.
Grímur reyndist farsæll í starfi
sínu. Góö greind, trúmenriska
og prúömannleg framkoma,
ásamt vakandi áhuga fyrir að
veröa öörum að liði, öfluðu
honum alls staöar trausts og
virðingár. Honum voru falin
ýmis trúnaöarstörf í heimahér-
aði sínu, meðal annars var hann
lengi fulltrúi Norður-Þingey-
inga á fundum Stéttarsambands
bænda. Grímur hafði mikinn
áhuga á sauðfjárrækt og kyn-
bótum sauðfjár og skrifaöi
nokkuð um þau mál. Þetta féll
vel að starfi hans og staðsetn-
ingu í því héraði landsins, sem
veriö hefur í fararbroddi í sauð-
fjárrækt marga síðustu áratugi.
Grímur var enn á miðjum
aldri, er hann fór aö kenna
ólæknandi hrörnunarsjúkdóms.
Fór svo aö hann varb aö láta af
störfum langt fyrir aldur fram
áriö 1985. Síöustu árin dvaldi
hann lengst af á sjúkrahúsum.
Þau Grímur og Erna eignuö-
ust sex syni, myndarmenn í
sjón og raun. Hafa þeir allir
stofnab eigiö heimili.
Viö, sem þekktum Grím Jóns-
son, kveöjum hann með sökn-
uði. Þótt hann sé horfinn sjón-
um okkar, lifir meö okkur
minningin um góðan dreng,
sem gott var að eiga aö félaga og
vini.
Sárastur er missir eiginkonu
hans, en örlögin hafa lagt á
heröar hennar þunga byrði
mörg undangengin ár. Ég vil
ljúka þessum fátæklegu kveðju-
orbum með því aö votta henni
og öörum aðstandendum inni-
lega samúö.
Bjami Arason
DAGBÓK
Lauqardaqur
4
mars
63. dagur ársins - 302 dagar eftir.
9. vlka
Sólris kl. 8.26
sólarlag kl. 18.54
Dagurinn lengist um
7 mínútur
Félag eldrl borqara f
Reykjavík og nagrennl
Laugardagur: Snúöur og Snælda
- sýna í Risinu, Hverfisgötu 105, nýtt
íslenskt leikrit, Reimleika í Risinu,
eftir Iðunni og Kristínu Steinsdæt-
ur, á þribjudögum, fimmtudögum
og laugardögum kl. 16 og á sunnu-
dögum kl. 18. Mibar við inngang og
í s. 10730, 12203, 643336.
Sunnudagur: Bridskeppni, sveit-
arkeppni, kl. 13 og félagsvist kl. 14 í
Risinu. Dansab í Gobheimum kl.
20.,
Á mánudag 6. mars er Söngvaka
kl. 20.30 í Risinu. Stjómandi er Ei-
ríkur Sigfússon og undirleik annast
Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir.
Hana-nú, Kópavogl
Mánudaginn 6. mars er kráarferb á
Gauk á Stöng í Hafnarstræti. Léttur
kvöldverbur og dans. Rúta fer frá
Gjábakka kl. 18. Pantanir í síma
43400 og 45700.
Alþjóblegur kvennadagur 20 ára:
Hátíbarfundur í Rábhúsinu
Hátíbarfundur verður haldinn í
Tjarnarsal Rábhússins í Reykjavík 8.
mars n.k. kl. 20 í tilefni þess ab nú
eru 20 ár síðan Sameinubu þjóbirn-
ar staðfestu þennan dag sem alþjóð-
legan kvennadag.
Fjölbreytt dagskrá.
Aðstandendur fundarins eru ýmis
kvennasamtök, friðarsamtök, stétt-
arsamtök og samtök listafólks.
Kvenfélag Hátelgssóknar
heldur fund þribjudaginn 7. mars
kl. 20.30 á Kirkjuloftinu. Spilub
verður félagsvist. Kaffiveitingar og
gestir eru velkomnir.
S.S.H.
Stuðnings- og sjálfshjálparhópur
hálshnykkssjúklinga heldur fund í
Í.S.Í.-hótelinu, Laugardal, mánu-
daginn 6. mars kl. 20. Fyrirlesari á
fundinum verður Ágúst Jörgensson,
löggiltur sjúkraþjálfari, libfræbingur
og manual therapist.
Fyrirlestur í
Nýllstasafnlnu
A morgun, sunnudag, kl. 16 held-
ur Halldór Björn Runólfsson list-
fræbingur fyrirlestur í Nýlistasafn,-
inu, Vatnsstíg 3b. Fyrirlesturinn ber
heitib „Jabarinn og miðjan" og
tengist sýningunni SÓLGIN, sem
nú stendur yfir í Nýlistasafninu. Sú
sýning er libur í norrænu menning-
arhátíbinni Sólstöfum.
Kvennalistinn:
Oplnn fundur á Hótel Borg
í dag, laugardag, kl. 14 efnir
Kvennalistinn í Reykjavík til opins
fundar á Hótel Borg. Fundarefnið er:
„Kvenfrelsi, mannréttindi, sam-
ábyrgb".
Frummælendur: Dr. Gubný Gub-
björnsdóttir dósent, „Kvenfrelsi og
kjaramál"; Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri, „Með femínisma
í farteskinu"; Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir stjórnmálafræðingur, „At-
hafnir í staö orba".
Ab erindunum. loknum veröa
umræður og fyrirspurnir. Létt tón-
list að umræðum loknum. Fundar-
stýra er Ragnhildur Vigfúsdóttir.
Allir velkomnir.
Athafnadagar í Mibbæ,
Hafnarfirbl
í dag, laugardag, verbur ferba-
kynning á vegum Samvinnuferða-
Landsýnar og verður dreginn út
óvæntur ferbavinningur fyrir lokun
verslana. Tískusýning frá verslun-
um í Miðbæ og verður áhersla lögð
á fermingarfatnað og undirbúning
fermingarinnar. Karatedeild Hauka
verður með einstaka sýningu á efri
hæö hússins þar sem sýndar verða
jafnt æfingar sem föst tök.
Listaklúbbur
Lelkhúskjallarans
Mánudaginn 6. mars kl. 20.30
mun hljómsveitin Spabar leika í
Listaklúbbi Leikhúskjallarans.
Hljómsveitina skipa: Siguröur Val-
geirsson og Þorbjöm Magnússon
trorúmur, Gunnar Helgi Kristinsson
harinóníka, Eiríkur Stephensen sax-
!'ófí jnn og klarinett, Helgi Gub-
mundsson munnharpa og viskíd-
unkur, Abalgeir Arason mandólín,
Gubmundur Gubmundsson og
Magnús Haraldsson gítarar, Gub-
mundur Ingólfsson kontrabassi, og
Guðmundur Andri Thorsson sem
syngur og leikur á skeibar.
LJóbatónlelkar
frá Álandseyjum
Álandseyjar eiga sína fulltrúa á
Menningarhátíbinni Sólstöfum sem
nú stendur yfir í Reykjavík, á Akur-
eyri og á ísafirði. Tónlistarmennirn-
ir Björn Blomqvist bassasöngvari og
Marcus Boman píanóleikari halda
tónleika í næstu viku á Akureyri, í
Norræna húsinu í Reykjavík og á
ísafiröi.
Fyrstu tónleikarnirv verba í Safn-
abarheimili Akureyrarkirkju á
mánudag 6. mars kl. 20.30. Þann
dag heldur Björn Blomqvist einnig
námskeib á vegum Tónlistarskólans
á Akureyri.
Þriöjudaginn 7. mars kl. 20.30
verba tónleikar í Norræna húsinu
og fimmtudaginn 9. mars kl. 20.30
koma þeir fram í Sal frímúrara á ísa-
firði.
Á efnisskránni eru verk eftir Carl
Loewe, Hugo Wolf, Lars Karlsson,
Marcus Boman og Emil Sjogren.
Mibar á alla tónleikana verba
seldir vib innganginn.
Fréttir í vikulok
Jákvæbar niburstöbur mengunar-
mælinga vib strendur landsins
Niöurstööur mengunarmælinga í sjó viö ísland eru í stórum
dráttum þær að mengun mælist hverfandi lítil á íslandsmiöum
miðað við það sem gerist annars staðar á N-Atlantshafi. Þetta
kemur fram í lokaskýrslu starfshóps um mengunarmælingar í
sjó sem stóðu yfir í þrjú ár, eða frá 1989-1992.
Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra segir að niðurstöð-
urnar styrki ímynd landsins sem eins af hreinustu löndum
heims.
Þaulskipulagt rán
Mikla athygli vakti rán í vikunni, þegar þrír einstaklingar
rændu starfsmenn Skeljungs þar sem þeir voru að koma pen-
ingatöskum í íslandsbanka viö Lækjargötu. Fólkið var grímu-
klætt og var þess leitað í nokkra daga. Nú er par í haldi sem
grunað er um aðild að verknaöinum.
Lobnufrystingu lokib
Óvissa ríkir um loönufrystingu vegna mikillar átu í loðn-
unni. Hegðun loðnunnar varð til þess að menn gátu ekki farið
aö veiöa hana fyrr en mun seinna en áætlað var, og veröur af
þeim sökum ekki fryst nema hluti þess sem áætlað var.
Röskva vann stórt
Röskva vann stóran sigur á Vöku í stúdentakosningum Há-
skólans í vikunni. Röskva fékk rúm 60% atkvæða og fær því 17
fulltrúa í.stúdentaráði, en Vaka 12.
Nýtt blab um stjórnmál
Vikublaðið Þjóðvaki kom út í vikunni, en Ólína Þorvarðar-
dóttir ritstýrir því. Ritið er málgagn samnefnds stjómmálaafls,
sem Jóhanna Sigurðardóttir leiðir.
Vel heppnab
Norburlandaþing
Fjölmennt Norðurlandaþing var haldiö í vikunni á Hótel
Sögu. Án þess aö mikið væri um afgerandi ákvarðanir, voru
þingfulltrúar ánægöir með þingið. Á meöal atriða, sem sam-
þykkt voru, er að þingfulltrúar lýstu yfir vilja til að halda vega-
bréfsmálunum óbreyttum, þ.e.a.s. að ekki þurfi vegabréf til að
feröast á milli Norðurlandanna.
Kennaraverkfallib
í hörbum hnút
Enn miöar ekkert í verkfalli kennara. Mikil röskun hefur orb-
ið í þjóðfélaginu af völdum þess og hefur verkfallsstjórn legið
undir ámælum um að veita ekki nógu margar undanþágur fyr-
ir fötluö börn. Samkvæmt drögum sérkjarasamninga geta
kennarar vænst umtalsverðrar launahækkunar, en á móti kem-
ur, að þeirra mati, að þeir þurfa að auka vinnuskyldu. Þab sætta
þeir sig ekki við.