Tíminn - 29.03.1995, Síða 1

Tíminn - 29.03.1995, Síða 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Miövikudagur 29. mars 1995 61. tölublað 1995 Þjóöhagsstofnun metur kjaraáhrif sérkjarasamninga á alm. markaöi um 0,2%-0,3%. Félög opinberra starfsmanna horfa til samninga ríkisins viö kennara og aöra hópa: Verða hafbir til hliðsjónar vib gerb annarra samninga Kópavogur: Margir keyra of hratt Alls 26 ökumenn hafa verib teknir fyrir of hraban akstur í Kópavogi síbustu tvo sólar- hringa. Hafa þeir verib á bil- inu 70 til 90 km hraba. „Þab er kominn vorfiðringur í fólk," sagbi lögreglumabur í Kópavogi sem Tímnn ræddi við. Hann segir þó klakaveggi vera vib vegabrúnir og því sé óvarlegt ab fara of hratt fyrir ut- an að lögbundinn hámarks- hraði í þéttbýli sé 50 km nema annað sé tekið fram. ■ Tímamynd CS Sigríbur Kristinsdóttir, for- mabur Starfsmannafélags ríkisstofnana, sem er fjöl- mennasta abildarfélag BSRB, telur eblilegt ab kjarasamn- ingar ríkisins vib kennara og abra hópa sem ríkib hefur samib vib, verbi hafbir til hlibsjónar þegar kemur ab gerb samninga vib abra starfsmenn hins opinbera. Hinsvegar sé erfitt ab gera sér grein fyrir áhrifum kenn- arasamningsins fyrr en séb verbi nánar um innihald hans. Hún segir að í undangengn- um viðræðum félagsins um gerö nýs kjarasamnings hafi ríkið boðið þeim og öörum stéttarfé- lögum opinberra starfsmanna upp á sambærilegar launahækk- anir og samiö var um á almenna vinnumarkaðnum. Sigríður seg- ist því vænta þess aö kjarasamn- ingur ríkisins við kennara verði þá einnig hafður til hliðsjónar og því hljóti fjármálaráðherra að hafa gert sér grein fyrir. Það sem af er hafa viðræður ríkisins við SFR um nýjan kjara- samning verið á heldur rólegum nótum, m.a. vegna ónógrar vitneskju um hvað felst í sér- kjarasamningum á alm. vinnu- markaði. En deildar meiningar hafa verið um hvort þeir samn- ingar fela í sér aðeins 0,3 launa- hækkun eða allt að 3%-4% eins og haldið hefur verið fram af hálfu formanns Rafiðnaðarsam- bandsins. í gær var höggvið opinberlega á þann hnút þegar ríkissátta- semjari fékk umbeðið mat Þjóð- hagsstofnunar á kjaraáhrifum sérkjarasamninganna. Sam- kvæmt mati Þjóðhagsstofnunar eru kjaraáhrif þessara samninga aðeins um 0,2%-0,3%. Stofnun- in hefur hinsvegar marga fyrir- vara á þessari niðurstöðu sinni. í því sambandi er tekið fram að samningarnir séu ákaflega ólíkir innbyrðis og taki mið af aöstæð- um hverrar stéttar. En Þjóðhags- stofnun mat sérstaklega sér- kjarasamninga VMSÍ, Lands- sambands verslunarmanna, Landssambands iðnverkafólks, Samiðnar og Rafiðnaðarsam- bandsins, auk þess sem stofnun- in hafði óformlegt samráð við ýmsa sérfræðinga samtaka á vinnumarkaði. í fyrirvörum Þjóðhagsstofn- unar er m.a. tekið fram að í sumum samningum er lögð áhersla á vinnutíma og réttinda- mál og í öðrum á hlífðarföt og námskeið. Af þeim sökum telur Þjóðhagsstofnun það liggja í hlutarins eðli að kostnaðarauki sé mismikill frá einum samn- ingi til annars og sömuleiðis sé kostnaður mismikill eftir at- vinnugreinum og fyrirtækjum. Þá sé eðli kostnaðarhækkana mismunandi, því í sumum til- fellum tengist þær hagræðingu og framleiöniaukningu en í öðr- um ekki. Sjá einnig bls. 3 Ásdís Thoroddsen (l.t.v.) barsig fagmannlega ab vib leikstjórnina ígœr. Verkfallsbrjótar í störfum flugfreyja: ASÍ hótar Flugleiðum Heilsugæsla í Efstaleiti Akveöið var í borgarráði í gær að úthluta heilbrigöisráðu- neytinu rúmlega 3.000 fer- metra lóð við Efstaleiti í Reykjavík undir nýja heilsu- gæslustöð fyrir Fossvog. Sjálfstæðismenn vildu að leitaö yröi annarrar lóðar undir slíka stöð, þar sem þessi væri staðsett í vesturenda heilsu- gæslusvæöisins í Fossvogi og því langt aö fara fyrir íbúa í austurendanum. Sú tillaga fékk ekki hljóm- grunn og var vísað til þess aö búið væri að leita að annarri lóö í hverfinu en engin heppi- legri lóð fundist en þessi. ■ Ástrábur Haraldsson, lög- fræbingur ASÍ, telur einsýnt ab Flugleibir hafi rábib ófé- lagsbundna verkfallsbrjóta til ab vinna störf flugfreyja í yfirstandandi verkfalli. Hann segir ab verib sé ab skoba þab mebal abildarfé- laga og á vettvangi ASÍ hvernig hægt sé ab bregbast vib þessu. Hann segir fram- haldib rábast af þróun mála og hvab flugfreyjur ætli sér ab gera. Alþýðusamband íslands sendi frá sér greinargerð í gær vegna þessa máls. Þar kemur m.a. fram að ef forráðamenn Flugleiða setja aðra en beina yfirmenn flugfreyja til að vinna störf þeirra í yfirstand- andi verkfalli, þá sé það aðför að samnings- og verkfallsrétti launafólks sem verði ekki lið- ið. í greinargerðinni kemur einnig fram að það veröi að fara aftur nokkra áratugi til að finna sambærilegar aðferðir á íslenskum vinnumarkaði sem flestir hafi talið að heyrðu sög- unni til. Verði gerö tilraun til þess af hálfu Flugleiða aö ráða ófélagsbundna verkfallsbrjóta til að ganga í störf félags- manna sé ljóst að verkalýðs- hreyfingin verði að grípa til þeirra ráða sem tryggja að sú tilraun beri ekki árangur. Sjá einnig bls. 3 Draumadísir Hafnar eru tökur á nýrri ís- lenskri kvikmynd, Draumadísir, eftir Ásdísi Thoroddsen. Hér er á ferðinni gamansöm Reykja- víkursaga um tvær tvítugar vin- konur sem takast á við drauma sína í viðsjárverðu umhverfi ís- lensks hversdagslífs og nútíma- legra viðskiptahátta. Handritiö er eftir Ásdísi sem einnig leik- stýrir myndinni, en hún vakti athygli fyrir mynd sína Inguló í grænum sjó. í helstu hlutverkum eru þær Silja Hauksdóttir og Ragnheibur Eyjólfsdóttir en í aðalkarlhlut- verkinu er Baltasar Kormákur. Búsist er vib ab tökur muni standa yfir fram í lok apríl en stefnt er ab frumsýningu í október. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.