Tíminn - 29.03.1995, Síða 17

Tíminn - 29.03.1995, Síða 17
Mibvikudagur 29. mars 1995 mminm 17 Göng und- ir Suöur- landsveg Reiöleiðir og abstaða hesta- manna til útreiða í nágrenni við hesthúsahverfi var mikið í umræðu á síöasta ári. Þessum málum þokar hægt áfram og framlag ríkisins til reiðvega er enn mjög lítið. Það er hins vegar skylt að geta þess sem gerist í þeim málum. í haust voru gerð göng undir Suður- landsveg móts við Rauðhóla. Þetta var talsverð framkvæmd, en mjög brýn, því ríöandi um- ferð yfir Suðurlandsveg var hættuleg og mikil slysagildra. í Fjárborgunum, sem eru þarna í grenndinni, er orðið mikið hestahald. Þeir, sem þar hafa hross, þurftu leið til að komast á veginn upp í Heið- mörk og yfir á almennar út- reiðarleiðir Fáksmanna. Fáks- menn úr Víðidal og Faxabóli ríða mikið svonefndan Rauð- hólahring, þ.e. upp með Rauðavatni og yfir í Rauðhóla og síðan áfram í átt að Fáks- svæðinu. Á góðviðrisdögum er þarna mikil umferð hrossa og bíla. Þessi framkvæmd eykur mjög á öryggi vegfarenda, hvort heldur þeir eru ríðandi HEJTA- MOT KARI ARNORS- SON haust, dróst að byggja brú yfir Hólmsá, en yfir hana liggur vegurinn frá göngunum. Nú hefur sú framkvæmd séö dags- ins ljós og hestamenn geta því riðið þarna um án þess að vera í verulegri hættu vegna bíl- anna, og ökumenn þurfa ekki að vera hræddir um að hestar séu á fleygiferö yfir Suður- landsveg. Góður áfangi það. Það er nauðsynlegt að halda því verki áfram hvar sem er á landinu að aðskilja akandi og ríðandi umferð sem mest. Nú er sá tími að menn eru farnir að hugsa til sumarferða. En menn þurfa líka að koma hrossum sínum í sumarbeitina og þá gjarnan ríðandi þangað. Þeir þurfa því að eiga greiðan aðgang frá hesthúsahverfun- um. Sumarferðirnar hefjast oft frá þeim stað þar sem hrossin eru í sumarhögum. Þá er gott að hafa það í huga að velja sér leiðir sem liggja utan akvega, þó því verði ekki alltaf við komið. Það er vonandi að ferðamenn sjái í einhverjum stab framkvæmdir og lagfær- ingar á reiðleiðum og gjarnan mættu þeir láta frá sér heyra um það, sem þeim finnst mest þörf á að bæta í sínu nágrenni, eða þar sem þeir verða á ferð í sumar. Við þurfum öll að herba róðurinn fyrir betri ab- stöðu til ferðalaga á hestum og fyrir bættri umferðarmenn- ingu ríðandi fólks. Vetraruppákoma hjá Fáki 25. mars Úrslit Bamaflokkur, 9 þátttakendur 1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir 2. Viöar Ingólfsson 3. Þórdís Erla Gunnarsdóttir 4. Árni B. Pálsson 5. Halldór Sturluson Unglingar, 15 þátttakendur 1. Ævar Pálmason 2. Hulda Jónsdóttir 3. Davíö Matthíasson 4. Svanheiöur L. Rafnsdóttir 5. Lilja Jónsdóttir Ungmenni, 13 þátttakendur 1. Edda Rún Ragnársdóttir 2. Saga Steinþórsdóttir 3. Hanna Stína Claessen 4. Sigurður V. Matthíasson 5. Alma Ólsen Sýningarflokkur, 9 þátttakendur 1. Heimir Bragason 2. Hafliði Halldórsson 3. Sigurður Marínusson 4. Magnús Nordal 5. Alexander Hrafnkelsson Karlar, 18 þátttakendur 1. Magnús Arngrímsson 2. Ingólfur Jónsson 3. Leifur Arason 4. Gísli Geir Gylfason 5. Þorgrímur Ölafsson Konur, 6 þátttakendur 1. Ólöf Guðmundsdóttir 2. Hanna Bj. Siguröardóttir 3. Ragnhildur Matthíasdóttir 4. Þórunn Eyvindsdóttir 5. Kristbjörg Eyvindsdóttir 6. Maríanna Gunnarsdóttir 150 m skeið, 20 knapar 1. Bessi Hinrik Bragason 2. Hjalti Alexander Hrafnkelsson 3. Þytur Sveinn Ragnarsson Samtals 90 keppendur Glæsileg bók um hesta- nöfn ab fornu og nýju eða akandi. Nú er komin út fimmta bókin í En þó göngin væru gerb í bókaflokknum HESTAR í Hesturinn okkar og Eiðfaxi komnir út Tímaritið Hesturinn okkar, 1. tölublað 1995, er komið út. í blaðinu er að vanda margt for- vitnilegt efni. Má þar nefna við- töl við Sigurð Snæbjörnsson, hrossabónda á Höskuldsstöðum í Eyjafjarðarsveit, Kristin Huga- son, hrossaræktarráðunaut Bændasamtaka íslands, og Hrafnkel Alexandersson tamn- ingamann. ítarleg umfjöllun er um svonefnt Litháenmál. í DÓMI, sem er fastur þáttur í blaöinu, er að þessu sinni Berg- ur Pálsson, formaður Félags hrossabænda. Margt annað efni er í blaðinu. Ritstjóri Hestsins okkar er Hjalti Jón Sveinsson. Þá hefur 3. tölublab tímarits- ins Eiðfaxa séö dagsins ljós. Þar er fróðlegt viðtal við formann Fáks, Svein Fjeldsted. Þá fjalla þeir um kynbætur og dóma, ráðunautarnir Kristinn Huga- son og Jón Vilmundarson, en Jón er ráðunautur hjá Búnaðar- sambandi Suðurlands. Margt fleira er í blaðinu. Við fráfall Er- lings A. Jónssonar var Rafn Jónsson ráðinn ritstjóri tíma- bundið. Ráðningin stendur til 1. september á þessu ári. ■ NORÐRI. Það er bókaútgáfan á Hofi sem géfur þessar bækur út, en eigandi hennar er Gísli Pálsson á Hofi í Vatnsdal. Sú bók, sem nú lítur dagsins ljós, ber nafnið Hrímfaxi og innihéldur nöfn hesta gegnum tíðina og merking- ar þeirra. Sá, sem unnið hefur þetta verk, er Hermann Pálsson, háskólakennari í Edinborg, bróðir Gísla. Hermann er þekktur fyrir fræðistörf sín og ritverk, ekki síst fyrir bók sína um íslensk manna- nöfn. Þessi samvinna þeirra bræðra hefur nú leitt af sér þetta verk. Meginkostur verksins eru skýringar Hermanns á uppruna og merkingu hestanafnanna. Nöfnunum er skipt í tvo flokka, annars vegar nöfn á hryssum, hins vegar á hestum. Auðvitað er ekki um tæmandi nafnaskrá að ræða, enda myndi það æra óstöðugan að leita uppi hvert einasta hestsnafn. Þetta er hins vegar þarft verk til ab leið- beina mönnum um nöfn og hvetjandi til aö taka upp norræn nöfn, sem fallið hafa niður. Mörg nafnskrípi hafa því miður heyrst og sést á hrossum og full ástæða til þess að leggja þau niður. Bókin er gefin út bæði á þýsku og ensku og hlýtur að vera mjög mikill fengur fyrir útlendinga að geta lesið sér til um hvab einstök nöfn merkja. Dæmi munu vera um að erlendir eigendur íslenskra hesta hafi gefið hestum sínum nöfn, sem t.d. eru dregin af litar- einkennum, en hafa alls ekki passað vegna þess að eigandinn vissi ekki um merkinguna. Þannig munu vera dæmi um að albrúnn hestur hafi fengið nafnið Blesi, því eigandinn vissi það eitt ab það var íslenskt nafn. Þessi bók er því mjög þörf erlendis. Þab er til mik- ils að vinna að útlendingar haldi íslenskum nöfnum. Það vekur at- hygli á íslenska hestinum og upp- runa hans og er því bæði kynning og gegnir viðskiptalegu hlutverki. Þeir, sem stunda útflutning á ís- lenskum hrossum, ættu ab benda kaupendum sínum á þessa bók, auk þess sem bókin er naubsynleg handbók fyrir seljendur. Auk nafnanna eru myndir af litaafbrigðum hestsins. Þab er gott mál að láta það fylgja meö, bæði vegna þess að það skýrir bet- ur en margt annaö heiti sem dreg- in eru af litum, svo og vegna þess að fjölbreytnin í lit gerir íslenska hestinn verðmætari en ella. Dugnaður Gísla Pálssonar í út- gáfumálum er einstakur. Á tæpu ári hefur hann gefið út þrjár bæk- ur um hross og væri þó kannski réttara að segja níu bækur, því bækurnar eru allar þýddar á þýsku og ensku. Fyrir landsmótib kom út HESTAR í NORÐRI III o§ fyrir jólin síðustu HESTAR I NORÐRI IV og svo nú HESTAR í NORÐRI V, sem ber heitið Hrím- faxi eins og áður segir. Þeir bræður eiga þakkir skildar fyrir þetta myndarlega framtak. Hrossaræktar- sambönd V Hrossaræktarsamband Dalamanna var stofn- að 1977. Áður höfðu Dalamenn verið í Hrossaræktarsambandi Vesturlands. Sam- bandiö næi Girðingar si öoiur ytir mbc n sem er ógum í La> bessar nr lasýslu og er i einm deild. Isins eru á Svarfhóíi í Mið- í eigu sambandsins, og í um pessar mundir á sambandið hlut í tveimur hestum, þeim Baldri frá Bakka, sem sambandið á á móti Eyfirðingum og Þingey- ingum, og svo Kolgrím frá Kjarnholtum, sem er sameign með Austur-Húnvetningum. Baldur, sem er undan Náttfara frá Ytra- Daisgerði og Söndru frá Bakka, vérður í hús- notkun, en Kolgrímur, sem er undan Hrann- ari frá Sauðárkróki og Glókollu frá Kjarnholt- KYNBOTAHORNIÐ um, verður seinna tímabil hjá sambandinu. Auk þess hefur sambandið leigt Hjört frá Tjörn af Eyfirðingum og verður hann fyrra tímabil, Hjörtur er undan Dreyra frá Álfsnesi og Sneglu frá Tjörn í Svarfaðardal. Dreyri var lengi í eigu Dalamanna. Stóðhesturinn Otur frá Sauðárkróki verður í húsnotkun á Sámsstöðum. Þar er um einka- framtak Sigurjóns bónda Eyjólfssonar að ræða. Margt góðra hrossa hefur í gegnum tíðina komið úr Dölum og er skemmst að minnast sigurvegarans í A-flokki á landsmótinu, Dal- vars frá Hrappsstöðum. Formaður Hrossaræktarsambands Dala- manna er Svavar jensson, bóndi á Hrapps- stöðum. Ath. Nú er að muna eftir því að láta aðeins bestu^hryssurnar fá fyl. Kynbótahross á Landsmóti Tvœr nýjar myndbandsspólur. Myndirnar eru af hrossunum í hœfileikadómi og fylgir spólunum bœklingur meö endanlegum dómum hrossanna. Hvor spóla er þrjár klukkustundir að lengd og eru hryssur á annarri en stóðhestar á hinni. Hœgt er að kaupa spólurnar í sitt hvoru laai nCAYI Bne i ÁPMMI A REYKJAVÍK

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.