Tíminn - 12.04.1995, Page 4
4
Mi&vikudagur 12. apríl 1995
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: jón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1,105 Reykjavík
Sími: 5631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Mána&aráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð f lausasölu 150 kr. m/vsk.
Stjórnarmyndun-
arviöræður
Nú er ljóst að alþýðuflokksmenn og sjálfstæðis-
menn munu freista þess að endurnýja stjórnar-
samstarf sitt að kosningum loknum. Líkur eru
nokkrar til þess að það takist, því ljóst er að tregðu-
lögmál gildir þegar ráðherrar geta setið í stólunum
sínum, jafnvel þótt með naumum meirihluta sé.
Það er hins vegar ekki ljóst hvort þetta verður
raunin. Ef flokkarnir eru trúir því sem þeir settu
fram í kosningunum ættu að verða langar og
strangar umræður um málefnasamning. Flokkana
greinir á í sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmál-
um og utanríkismálum. Sjávarútvegsráðherra orö-
aði það svo að gjárnar væru dýpstar milli sam-
starfsflokkanna í ríkisstjórn. Allt eins er þó líklegt
að þessi málefnaágreiningur verði þynntur út og
lagt upp í nýja vegferð.
Átök um ráðuneyti og fjölda ráðherra geta þó
sett strik í reikninginn því ljóst er að vilji er hjá
sjálfstæöismönnum til þess að fá utanríkisráðu-
neytið til sín fyrir Björn Bjarnason, sem hefur ver-
ið ósammála Jóni Baldvin um margt. Þessi ágrein-
ingur gæti orðið Davíð Oddssyni erfiður því vand-
séð er sú skiptimynt sem gæti komið í stað utan-
ríkisráðuneytisins yfir til Alþýðuflokksins.
Krafa Vestfirðinga um breytingar á sjávarútvegs-
stefnunni gæti orðið erfiður þröskuldur. Ef látið
verður undan þeim eða Alþýðuflokknum sem
einnig hefur sett fram stefnu um breytingar getur
það valdið illvígum deilum innan Sjálfstæðis-
flokksins, sem Davíð Oddsson á áreiðanlega í erf-
iðleikum með að leysa.
Það getur því gengið á ýmsu í viðræðum stjórn-
arflokkanna og forsætisráðherra hefur nóg að sýsla
þann tíma sem hann ætlar sér til þess að leiða þá
spurningu til lykta hvort Alþýðuflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur leggja upp í áframhaldandi vegferð
saman.
Páskahátíbin framundan
Páskahátíðin, þessi önnur mesta stórhátíð kirkj-
unnar, er nú framundan. Mörgum er hvíldin kær-
komin yfir hátíðina, aðrir leita til fjalla eða leggja
land undir fót heima og heiman. Páskarnir eru
orðnir hátíð ferðalaga í vaxandi mæli. Ekki síst
nýtir fólk sér hina frábæru skíðaaðstöðu sem risið
hefur um land allt.
Páskahátíðin er hátíð upprisu og gleði, og á að
minna fólk á gildi kirkjunnar og kristindómsins í
daglegu lífi. Kennningar hans um frið og kærleika
ættu að vera sem flestum til eftirbreytni.
Tíminn óskar landsmönnum öllum gleðilegrar
páskahátíðar, og óskar þess að hver megi með ein-
um hætti njóta hennar sem best.
Stjórn gegn Steina?
Jón Baldvin Hannibalsson lýsir
því yfir í Alþýöublaöinu í gær að
sjávarútvegsmál verði aðalmál
stjórnarmyndunarviðræðnanna
sem nú eru hafnar milli stjórn-
arflokkanna. Bendir formaður
Alþýðuflokksins á að Alþýðu-
flokkurinn komi til þings með
mjög ákveðnar skoðanir á þess-
um málum og vilji kvótakerfið
feigt. Sama megi segja um Vest-
fjarðaþingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, þeir hafi lýst því yfir
ab fyrra bragði að þeir styðji
ekki ríkisstjórn nema hún tæki
upp sóknarstýringu í stað afla-
markskerfis.
Þessa athugasemd Jóns Bald-
'vins ber að skoða í Ijósi þess að
núverandi sjávarútvegsráð-
herra, með fulltingi forsætisráð-
herrans sjálfs, hefur talab um
nauðsyn þess að festa í sessi
kvótakerfi sem byggist á afla-
marki, þ.e. að viðhalda í abalat-
riðum því kerfi sem hér er til
staðar.
Sjálfstæðisflokknum. Eitt sinn
var talað um „stól fyrir Steina"
en nú er boðorðið „stjórn gegn
Steina". Boðleibir ættu líka að
vera greibar milli uppreisnarafl-
anna í Sjálfstæðisflokknum og
forustu Alþýðuflokksins, þar
sem þeir Ólafur Hannibalsson
varaþingmaður og Jón Baldvin
geta rætt málið í fjölskylduboð-
Uppbobsmarkaður
Augljóst er því að formaður
Alþýðuflokksins lítur á niður-
stööur kosninganna sem eitt
allsherjar tækifæri til að efna til
pólitísks uppboðsmarkabar á
fiskveiðistefnunni. í síðustu rík-
isstjórn voru ágreiningsmálin í
rauninni sett í frystigeymslur
tvíhöfðanefndarinnar og þegar
sá deilumálapakki var tekinn út
var hann beingaddaður. Hann
hefur verið að þiðna síðan og
ágreiningsmálin eru nú enn á
ný komin á hreyfingu - tilbúin á
uppbobsmarkab Jóns Baldvins.
Greinilegt er að kratarnir og
vestfirskir sjálstæðismenn sjá
sér leik á borði um að gera
bandalag gegn kvótaarminum í
GARRI
um. Enda skrifar Ólafur Hanni-
balsson mikla hvatningargrein í
Morgunblaðið í gær, þar sem
samstarfi Sjálfstæðisflokks við
Framsóknarflokk eöa Alþýðu-
bandalag, sérstaklega þó Fram-
sóknarflokk, er fundið allt til
foráttu en dásamað hugsanlegt
samstarf vib Alþýðuflokkinn.
Ólafur umskiptingur?
Þessi framganga Ólafs Hanni-
balssonar til stubnings sam-
starfi með litla bróður er athygl-
isverð í ljósi þess að nánast sam-
hljóba leiðari birtist í Moggan-
ym líka. Ónotin út í Fram-
' ' • » • *■ >
Húmorinn í bænum
Heitavatnsgeymarnir á Öskjuhlíð
voru endurnýjaðir fyrir nokkrum
árum með ærnum tilkostnaði.
Geymarnir sex tóku margfalt
meira vatnsmagn en þeir úr sér
gengnu sem fyrir voru. Endurnýj-
un geymanna þótti hið mesta
bruðl og kostaði jafnvel meira en
hin arðgefandi Vestfjarðagöng
sem breyta allri ásýnd íslenskra
byggba. Glerhjálmur var reistur
yfir geymana og inn í hann sett
veitingahús sem reikningsglöggir
menn halda ab þjóðinni að hafi
kostaö 3.5 milljaröa króna. Hita-
veitan hefur aldrei haft döngun í
sér til að mótmæla reiknings-
kúnstinni og skilja á milli kostn-
aðar við veitingaabstöðu og hita-
veitumannvirkja.
Fyrrverandi borgarstjórn sem
lét reisa Perluna vissi aldrei að
hún var byggð yfir gríðarlega
stóra vatnsgeyma til að tryggja
borgarbúum og öörum íbúum
Innnesja nægilegt heitt vatn í
vetrarhörkum, en mikill misbrest-
ur var orðinn á því þegar birgða-
rýmið annaði ekki þörfinni.
Leyndardómurinn
undir Perlunni
Þegar borgarbúar ruddu núver-
andi meirihluta leiðina inn í Ráð-
húsið var hann svo trúaður á eig-
in áróður að hann hafði enga
hugmynd um að heitavatns-
geymar leyndust undir Perlunni.
Þegar félagshyggjan komst loks
ab því að holrúm var inni í veggj-
um Perlunnar lagði hún saman
tvo og tvo og fékk út sjö. Þar sem
ekki hefur fundist samhengi milli
Hitaveitu Reykjavíkur (og ná-
grannabyggða) og Perlunar á
Oskjuhlíð er sjálfsagt að nýta
Perluna til gagnlegra hluta.
Eru nú uppi rábagerðir um að
innrétta firnastóran ráðstefnusal í
einum geymanna og í öðrum
snoturt gamanleikjahús á neðri
hæb og spilavíti á hinni efri.
Engum sögum fer af því hvort
haft hafi verið samband við Hita-
veituna um hvort geymslurými
fyrir heitt vatn er svo yfirfljótandi
að meiri nauðsyn sé á spilavítum
Á víbavangi
og viðbótarhúsnæbi fyrir fundar-
höld en einhver hin þörfustu
mannvirki í þágu íbúa Reykjavík-
ur og nágrannabyggða.
En hver veit nema borgarstjórn
og Hitaveitan nái saman og það
upplýsist hvab Perlan hefur að
geyma áður en farið verður að
kaupa rúllettur og innréttingar
inn í heitavatnsgeymana á Öskju-
hlíö.
Plokka, plokka
peninga
Tillögusmiður borgarstjórnar-
innar um spilavíti og ráðstefnu-
hald í innvibum Hitaveitunar
færir þau rök fyrir frumlegum
hugdettum sínum að sá gífurlegi
fjöldi ferðamenna sem leggur leið
sína í Perluna skoði útsýnið fyrir
sóknarflokkinn koma ekki á
óvart. Það er þó óneitanlega
hlálegt að sjá Ólaf Hannibals-
son skjalla formann sinn Davíð
Oddsson en augljóslega hefur
Ólafur skipt um skoðun frá því
fyrir noklaum misserum þegar
Davíð var gjörsamlega óalandi
og óferjandi vegna Ráðhúsmála
og Hrafnsmála.
Aðalatriðið í þeim uppboðs-
markaöi um sjávarútvegsstefnu
sem verib er að hrinda af stað
með stjórnarmyndunarviðræb-
um krata og íhalds, hefur hins
vegar ekkert með andstöðu við
Framsóknarflokkinn að gera,
þótt bæði Vestfjarðaþingmenn
og kratar séu að gefa slíkt í skyn.
Kjarni málsins er að vestfirskir
sjálfstæöismenn og Morgun-
blaðið eru í krossferð gegn Þor-
steinsarmi Sjálfstæðisflokksins
og kratarnir ætla að nýta sér þau
átök til að knýja fram breyting-
ar á sjávarútvegsstefnunni.
Samloðunarkraftarnir sem eru
að verki vib stjórnarmyndunar-
viðræður Sjálfstæöisflokksins og
Alþýðuflokksins eru því nei-
kvæðir og byggja á klofningi og
ágreiningi, frekar en því að heil-
steypt og uppbyggileg stefnu-
mib dragi flokkana saman. Það
sem heillar kratana er mögu-
leikinn á að kljúfa sjálfstæðis-
menn og það sem heillar sjálf-
stæðismenn er smæð og veik-
leiki krataflokks sem hægt er að
snúa út og suður og láta gelta
þegar honum er sigað. Forsend-
ur samvinnunnar eru því ekki
gæfulegri en þær forSendur sem
einkennt hafa samstarfið síð-
ustu misseri. Þar af leiðandi má
líka búast viö að þessi stjóm
verði skammlíf, nái hún að fæð-
ast.
Garri
ekki neitt. Hann vill reka túrist-
ana inn í spilavíti og rábstefnu
fyrir að stíga fæti inn í mannvirk-
ið.
Með það í huga er sjálfsagt að
innrétta þá fjóra geyma sem eftir
veröa með tilliti til hvernig
plokka eigi peninga af ferðamön-
um. Hugmyndaríkum borgarfull-
trúum verður ekki skotaskuld úr
því að komast aö hverjar séu
helstu tekjulindir í ferðamanna-
bransa og innrétta geymana með
tilliti til þess. Heimsmenn gætu
leitt borgina í allan sannleika um
hvaða fyrirtæki þrífast til dæmis
best í námunda vib spilavíti og
rábstefnusali.
Útsýni frá Perlunni er líklega
hiö tilkomumesta í nokkurri höf-
uðborg nema ef til vill ef jafnað er
við Sykurtoppinn í Ríó, sem raun-
ar er ekki lengur höfuðborg. Fjöl-
mennasti ferðamannastaður á ís-
landi er því Perlan. Þar eru upp-
lýsingar á mörgum tungumálum
um að þar standi ferðalangar ofan
á hitaveitugeymum. En sú vitn-
eskja hefur ekki komist í Ráðhús-
ið og ætti borgarstjórnin að fara í
útsýnisferð í Perluna til að frétta
af tilgangi mannvirkisins áöur en
því verður breytt í eitthvaö allt
annað en geymslu- og dreifingar-
miðstöð fyrir milljónir tonna af
sjóðheitu vatni. Þarna er mikils-
verður hluti af langstærsta orku-
veri landsins sem hvergi á sinn
líka á öðrum stöðum í veröldinni.
Þessu á að fara að breyta í lág-
kúrulegt spilavíti og enn einn ráð-
stefnusalinn sem heimurinn á
miklu meira en nóg af.
Maður getur sagt eins og Jón í
Hlíö þegar róninn reyndi að slá
hann um peninga: „Það vantar
ekki húmorinn í þennan bæ." OÓ