Tíminn - 05.05.1995, Qupperneq 3
Föstudagur 5. maí 1995
Sísn&nii
3
lönlánasjóbur geröi þaö gott og bœtti sína stööu um 711 milljónir króna í fyrra. Viöskipti
sjóösins eru vandlega varöveitt leyndarmál. Bragi Hannesson:
Bankaleynd okkar
er lögum samkvæmt
Finnur Ingólfsson viöskipta-
og iönabarráöherra hefur lýst
yfir ab hann vilji sjá breyting-
ar á fjárfestingarlánasjóöun-
um í náinni framtíb. „Máliö
er þab aö ríkisbönkunum
veröur breytt í hlutafélög og
fjárfestingarlánasjóöunum
líka. Viö erum aö tala um
breytt rekstrarform. Þetta er
alveg í takt viö þaö sem vib
höfum séb fyrir okkur," sagöi
Bragi Hannesson, forstjóri
Iönlánasjóös. Þetta opinbera
fyrirtæki skilaöi á síbasta ári
145,8 milljón króna hagnaöi
eftir skatta og bætti stööu
sína frá 1993 um rúmlega 711
milljónir króna. Iönlánasjóö-
ur er hjúpaöur ieynd bank-
anna. En hvers vegna?
Bragi Hannesson sagöi í sam-
tali við Tímann aö bankaleynd
Iönlánasjóös væri lögum sam-
kvæmt. Þetta þykir mörgum
kynlegt, ekki síst þar sem
Byggðastofnun býr ekki viö
slíka bankaleynd og virðist þó
um margt sambærilegt fyrir-
tæki. Bragi sagði að hér yrði að
gera skarpan greinarmun á
milli aðila.
Tekjur Iðnlánasjóös eru mest
vaxtatekjur, eða 1,3 milljarðar
króna. Iðnlánasjóðsgjöldin,
sem greidd eru af iðnfyrirtækj-
um lögum samkvæmt og marg-
ir stynja undan, námu 155
milljónum króna í fyrra.
Á síöasta ári runnu 945 millj-
ónir króna inn á afskriftareikn-
ing útlána hjá Iðnlánasjóði, en
í fyrra var sú tala komin niður í
292 milljónir króna. Og þar
kom batinn í rekstrinum.
Iðnlánasjóður var með ýmsa
erfiða viðskiptavini, meðal
annars Steypustöðina Ós í
Garðabæ.
„Þetta fór allt á besta veg, við
seldum þær eignir þvers og
kruss. Við töpuðum auðvitað á
þessum viðskiptum, en hefðum
tapað enn meiru ef við hefðum
ekki stofnað fyrirtækið Hraun
hf. um þær eignir, það hefði
orðið skelfilegt dæmi," sagði
Bragi Hannesson.
Bragi kvaðst ekki geta nefnt
tölur um tapið á Óss-viðskipt-
unum. Enn væru óseldar eignir
úr búinu og fullsnemmt að full-
yrða hver niðurstaðan yrði.
Bragi sagði að þessi viðskipti
hefðu ekki veriö stærsti tjón-
valdurinn hjá Iðnlánasjóði. Það
munu hafa verið fyrirtæki Jó-
hanns Bergþórssonar, bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði, sem ollu mestum
usla.
Þorsteinn Pálsson rceöur
sér aöstoöarráöherra úr
sínu kjördœmi:
Þórhallur
aöstoðar
Þorsteinn Pálsson dóms- og
sjávarútvegsráöherra hefur
ráöiö Þórhall Ólafsson, for-
mann Umferöarráös og tækni-
fræöing hjá Vegagerö ríkisins
á Suöurlandi, sem pólitískan
aöstoöarmann sinn næsta
kjörtímabil. Þórhallur hefur
störf alveg á næstunni.
Þórhallur mun hafa aðstöðu í
dómsmálaráðuneyti en sinna
öllum þeim verkefnum sem ráð-
herrann þarf aðstoðar við, óháð
málaflokkum. Þorsteinn Páls-
son er einna fyrstur ráðherra til
að ráða sér aðstoðarmann. Ari
Edvald var á síðasta ári aðstoð-
armaður Þorsteinn í dómsmála-
ráðuneytinu, en flyst nú yfir í
sjávarútvegsráðuneytið. Þór-
hallur kemur nú í stað Ara.
í samtali við blaðið sagðist
Þórhallur þurfa að fá sig lausan
úr núverandi starfi en snúa sér
svo að störfum fyrir Þorstein.
- SBS, Selfossi
Nýjung í vatnslögnum:
Bönnuð í
Reykjavík
„Okkur hefur ekki þótt
ástæöa til ab hleypa þessu inn
á markaöinn óbeisluöu meö-
an þab vantar fræbsluþáttinn
og skoöun á þessum efnum
miöab viö íslenskar aöstæöur
°g byggingarhefbir," sagöi
Magnús Sædal, byggingafull-
trúi Reykjavíkurborgar, í
samtali viö Tímann í gær.
í síðustu viku var lagnaaö-
ferðin rör-í-rör rædd á nor-
rænni ráðstefnu í Reykjavík.
Þesssi aðferð er þannig að lagð-
ur er vatnsheldur barki og
plaströr innan í honum. Þetta á
að vera mikið öryggisatriði fyrir
húseigendur og tryggingafélög
sem árlega greiða upp undir
einn milljarð króna vegna
vatnstjóna, oftast vegna leka í
pípulögnum.
Daníel Hafsteinsson hjá Sam-
bandi íslenskra tryggingafélaga
segir að þetta kerfi sé eina leið-
in sem sé leyfileg í Noregi eigi
lagnir að vera í veggjum. Hann
telur að vatnstjónum mundi
fækka umtalsvert með notkun
þessara nýju lagna.
Vakaö yfir hreiöri. Hrafninn er fugla fyrstur til aö verpa, en hann velur sér gjarnan sama hreiburstœöi ár eftir ár. Krumma er aö
vonum illa viö mannaferöir nálœgt hreiöri, enda lét þessi ófriblega þegar blaöamaöur Tímans var í fjöruferö viö stublabergsklettana fyrir neöan Hofsós í
Skagafiröi á dögunum. Tímamynd: Ámi Gunnarsson
Rekstur þriggja sjávarútvegsfyrirtœkja sameinaöur. Sauöárkrókur:
Hagkvæmni stærðarinnar
Rekstur sjávarútvegsfyrirtækj-
anna Skagfiröings hf., Fiskiöju
Sauöárkróks og Djúphafs hf.
hefur verib sameinubur. Frá 1.
maí sl. heitir fyrirtækiö því
Fiskiöjan Skagfirðingur hf. og
merki fyrirtæksins veröur FISK.
Fyrirtækiö gerir út þrjá ísfisk-
togara, einn frystitogara, rekur
tvö frystihús og er með kvóta
uppá 6 þúsund þorskígildi í bol-
fiski og veltu uppá 2 miljarða
króna. Hjá fyrirtækinu vinna
hátt á þriðja hundraö manns, um
hundrað í útgerð og á annað
hundrað í vinnslunni. Stærstu
hluthafar em Kaupfélag Skagfirb-
inga, fyrirtæki þess og Sauðár-
króksbær. Aðalfundur fyrirtæks-
ins verður trúlega í seinnihluta
næsta mánaðar þar sem kosin
veröur ný stjórn.
Einar Svansson framkvæmda-
Einar Svansson.
stjóri fyrirtækisins segir að þessi
sameining sé búin aö vera í um-
ræðunni í mörg ár og þá einkum
út frá samkeppnishæfni og
sveiflujöfnun til sjós og lands.
Hann segir að kvótinn og rábstöf-
un hans sé orðinn stór þáttur í
rekstrinum og þab hafi eiginlega
ráðið úrslitum í þessu máli. En
síðast en ekki síst sé það mat
manna að sjávarútvegsfyrirtæki
þurfi að vera af ákveðinni stærð
til þess að eiga einhverja sam-
keppnismöguleika í atvinnu-
greininni.
Einar segir að sameining fyrir-
tækjanna sé endapunkturinn á
löngum ferli og minnir á að fyrir
15-10 ámm vom á svæðinu fjög-
ur fyrirtæki, þrjú frystihús og eitt
útgerbarfyrirtæki. Hann segir að
sameiningin eigi ekki að breyta
miklu í starfsmannahaldi fyrir-
tæksins og ekkert í bígerð í þeim
efnum, þótt menn viti ekki í
sjálfu sér hvað framtíöin ber í
skauti sér. ■
Nefnd um störf í einsetnum skólum:
Hefur 10 daga
til ljúka verki
Eiríki Jónssyni, formanni
Kennarasambánds íslands, var
í gærmorgun ókxmnugt um
fulltrúa ríkisins í nefnd sem
skipa átti til ab gera tillögur um
reglur sem eiga ab fela þaö í sér
ab kennurum í einsetnum skól-
um veiöi gefinn kostur á fullu
starfi viö kennslu og störf
tengdum kennarastarfinu.
Nefndin á ab skila af sér 15. maí
samkvæmt bókun sem gerö
var í tengslum viö kjarasamn-
ingana viö kennara í lok mars.
Síðdegis í gær fékk Tíminn þær
upplýsingar hjá Siguröi Hdga-
syni, deildarstjóra í menntamála-
ráðuneytinu, að fjármálaráðu-
neyti og menntamálaráöuneyti
hefbu skipað í nefndina og feng-
ið ritara til liðs vib hana. Nefndin
hefði þó enn ekki verið kölluð
saman.
Nefhdina skipa: Guðmundur
H. Guðmundsson dtíldarstjóri
starfsmannaskrifstofu fjármála-
ráðuneytis, Trausti Þorsteinsson
fræðslustjóri, Gubrún Ebba Ólafs-
dóttir og Hannes Þorsteinsson frá
Kennarasambandi íslands. Ritari
hefur verið ráðin Margrét Haröar-
dóttir, deildarsérfræðingur í
menntamálaráðuneyti.
„Það getur alveg gengib eftir ab
nefndin skili af sér á tilsettum
tíma. Það er heilmikið til um
þetta mál. Ég óttast ekki ab
nefndin ljúki ekki störfum á rétt-
um tíma," sagöi Siguröur Helga-
son. ■