Tíminn - 25.05.1995, Side 17

Tíminn - 25.05.1995, Side 17
Fimmtudagur 25. maí 1995 17 Gaui og Ölli voru eiginiega í megrun, en hver stenst kvenfélagskaffiö ÍMosó? Hljómsveit Aubuns Valdimarssonar þandi nikkurnar, gestum til óblandinn- ar ánægju. <------ Einstaklega vel fór um gesti í tjaldinu. Frá vinstri: Rúnar Sigurpálsson formabur hestamannafélagsins Harbar, Þröstur Karlsson forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, og jón Albert Sigurbjörnsson formabur HÍS. Hann er aö hlýna og hlána Kvenfélag Mosfellsbæjar er kraftmikil samtök með einstak- lega myndarlegum einstakling- um. Um síðustu helgi tjölduðu þær við nýtt félagsheimili sitt og auglýstu sitt fræga hlaðborð. Dreif að fjölda manna af höfuð- borgarsvæðinu og margir komu ríðandi. Af því tilefni rifjaðist upp vísa frægs hestamanns úr Borgarfirði, sem lenti í yfirhaln- ingu á versta stað á spítala. Þeg- ar hann vaknaði og horfði niður á sig allan reifaðan, með hjúkkuskarann stumrandi yfir sér, varð honum að orði: Sjúkrahúsmeyjunum síst muti ég gleyma, mig svolítið langaði með þeim í geim. Þœr tjóðruðu Grána í túninu heima Gubmundur á Reykjum og Birgir Rafn voru sérstaklega ánægbir meb braubterturnar. til þess hann fær' ekki í blettinn hjá þeim. Allt fór þó vel og því orti þjáning- arbróðir skáldsins: Hann er að hlýna og hlána, það hlakkar í mér og þér. Úr túninu taka þœr Grána og teym’ hann íblettinn hjá sér. ■ Sauðburbur hafinn Þeir, sem á unga aldri skund- uðu í sveitina sína snemma í maí til þess að vera klárir í sauðburðinn, fá alltaf fiðring um sig, þegar lömbin birtast á vorin. í þá daga þurfti að bólu- setja hvert lamb gegn blóð- kreppusótt og gátu því hlaup- in um túnin orðið mjög skemmtileg og svo þurfti nátt- úrlega að skila hverju lambi til réttrar móður. Sauðkindin nam land á íslandi með vík- ingunum og er hún ættuð úr Færeyjum (Fjáreyjum). Hún gekk sjálfala og hefur sjálfsagt átt sinn þátt í fyrstu sveitarfé- lagaskipan landsins vegna samstarfs um smalamennsku, auk þess sem sveitarfélögin voru nokkurskonar trygginga- félög. Á hinum köldu miðöld- um hrundi búfé landsmanna niður, en harka sauðkindar- innar hélt lífinu í þjóðinni. Þess vegna tók líf íslendinga og talsmáti mið af þörfum sauðkindarinnar, eins og segir í Innansveitarkróníku Hall- dórs Laxness. Myndin er af stoltum sauð- fjárbónda í Fjárborginni, Guð- mundi Valda Einarssyni, sem leggur sig sérstaklega eftir mis- litu fé, „þaö er svo fallegt í haganum". ■ Hjalti Pálsson og Katrín Briem voru mjög ánœgb meb veitingarnar. Alþjóbaskrifstofa H.l. flytur Alþjóbaskrifstofa Háskólans hefur nú fengib rúmgott húsnœbi ab Nes- haga 16, og sameinast þá Upplýsingaskrifstofu um nám erlendis. Mikib annríki er á skrífstofunni, en sjö manns starfa þar. Frá vinstri, sitjandi: Björg Eysteinsdóttir, Þóra Magnúsdóttir framkvœmdastjóri, og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Standandi frá vinstri: Droplaug Jóhannsdóttir, Grím- hildur Bragadóttir, Gunnhildur Manfrebsdóttir og Karítas Kvaran.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.