Tíminn - 18.07.1995, Page 3
Þribjudagur 18. júlí 1995
SMwi
3
Mikib álag og langur vinnutími hjá lœknum á slysadeildum breytist ekki:
Skortur á aðstoðarlæknum
Jóhannes Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri á Borgarspítala,
segir a& skortur á aösto&ar-
læknum komi í veg fyrir aö
hægt sé a& breyta vaktafyrir-
komulagi lækna, m.a. á
slysadeildum, en þar er al-
gengt a& unniö sé heila sól-
arhringa í senn. Einnig er
álag mjög mikiö á skuröstof-
um. Nýlega voru geröar
breytingar á vaktafyrir-
komulagi hjúkrunarfræö-
inga á Borgar- og Landsspít-
ala, m.a. til aö minnka lík-
urnar á löngum vöktum.
Þessar breytingar er ekki
hægt aö gera hjá a&sto&ar-
læknum, þaö er ekki til nóg
af þeim í landinu.
„Þaö eru reyndar nokkur ár
síðan það var farið í gegn um
þaö hvort þetta gæti gengið
upp. Það var sérstaklega slysa-
deildin sem var þá höfð til
hliðsjónar. Þaö þurfti að marg-
falda fjöldann til að þaö væri
hægt aö setja alla lækna á
vaktir. Það var og er alveg úti-
lokað, bara vegna þess að það
er ekki til mannskapur og
verður væntalega ekki," segir
Jóhannes Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri á Borgarspítalan-
um.
„Þetta fer náttúrulega svolít-
iö eftir því hvað það er mikið
vinnuálag á tímanum sem fólk
er í vinnu. Sumir hafa mögu-
leika á að fleygja sér, eða em
ekki alveg á útopnu allan tím-
ann."
Jóhannes segir að fleiri hóp-
ar innan heilbrigðisstéttarinn-
ar geti lent í mikilli vinnu og
nefnir t.d. meinatækna og
röntgentækna.
„Álagið er þó mest á aðstoð-
arlæknum, sem eru alltaf í víg-
línunni. Það er miklu sjaldnar
sem sérfræðingarnir eru með
svona langar samfellur eins og
krakkarnir á slysadeildinni.
Þeir eru í alveg fullan sólar-
hring," segir Jóhannes.
- TÞ
Kaupfélag Rangœinga:
Garðar Halldórs-
son rábinn
kaupfélagsstjóri
Garöar Halldórsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupféiags Langnes-
inga á Þórshöfn á Langanesi,
hefur verið ráöinn til sama
starfa hjá Kaupfélagi Rangæ-
inga á Hvolsvelli. Garöar var
valinn til starfans úr hópi 15
umsækjenda.
Ágúst Ingi Ólafsson, núver-
andi kaupfélagsstjóri, hefur ver-
ið ráðinn sveitarstjóri á Hvol-
svelli og tekur við því starfi
þann 15. ágúst næstkomandi.
Frá sama tíma tekur Garðar
Halldórsson til starfa á Hvol-
svelli. -SBS, Selfossi
Lundaveibimenn í Eyjum:
Sækja sem óöast
um vei&ikort
Umsóknir um veiðikort
streyma nú inn frá lunda-
veiöimönnum í Vestmanna-
eyjum, en hátt á annaö
hundraö iundaveiöimenn eru
búnir að leggja inn umsókn.
Að sögn lögreglunnar í Eyjum
voru aðgerðirnar fyrir helgina
gerðar í þeim tilgangi að ýta við
þeim sem ekki voru búnir að fá
sér veiöikort, en hald var lagt á
verður gert við þá.
Lögreglumaður sem Tíminn
ræddi við líkti viðhorfi manna
til veiðikorta við það þegar lög-
in um öryggisbelti tóku gildi á
sínum tíma:
„Það bara tekur sinn tíma fyr-
ir fólk að melta það að það séu
komin ný lög. Þetta eru lög sem
eru komin til að vera. Menn
verða bara aö gera sér grein fyrir
2.000 lunda. Ekki er ljóst hvað því og taka því."
-TÞ
Tölvunefnd: Fjölmiblar mega skoba álagningarskrá
og skýra frá meban hún er til sýnis:
Lok lok og læs eftir aö
forvitninni er svalaö
Islandsmetib flaug
Ljósm.: C.T.K.
í tilefni af framlagningu
álagningarskrár á næstunni
hefur Töivunefnd kunngjört
þaö álit sitt aö a&gangur flöl-
miöla að skránum veröi
hvorki takmarka&ur né skorö-
ur reistar viö heimild þeirra til
birtingar efnis þær tvær vikur
sem skrárnar liggja frammi al-
menningi til sýnis, iögum
samkvæmt.
Eftir að þeirri sýningu lýkur
„fer hins vegar um aögang að
þeim og meðferð upplýsinga úr
þeim að öðru leyti samkvæmt
þeim almennu reglum sem
gilda um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga samkvæmt
lögum (nr.121/1989)", segir
Tölvunefnd. Samkvæmt al-
mennum reglum þeirra laga sé
óheimilt að skýra frá upplýsing-
um er varða einkamálefni ein-
staklinga nema með samþykki
viðkomandi og sérstakri heim-
ild Tölvunefndar.
Meðan þeim skilyrðum sé
ekki fullnægt sé Óheimilt að
skýra frá upplýsingum úr álagn-
ingarskrám nema á þeim tíma
sem aimenningur hefur aðgang
að þeim. ■
Bjarni Bjarnason, níu ára gamall
Grímsnesingur frá Þóroddsstöö-
um, gerði sér lítið fyrir og sló út
sólarhringsgamlt „Islandsmet" í
svokallaöri góðhestareið á Murn-
eyri á Skeiðum á sunnudaginn.
Sprettfæriö í þessari nýju keppn-
isgrein er 800 metrar og mega
knaparnir nota þann gang, sem
gæðingurinn er fljótastur á.
Bjarni sat Nara og tíminn var
1.43.7 mín. Skipta má um gang í
hlaupinu, en bannað er að fara á
stökk, þá verður viðkomandi að
bíða eftir öllum hópnum og
hefja aftur keppni aftastur. Hinn
kunni knapi og landsliösmaöur,
Einar Öder Magnússon, sem
hannaði þessar reglur, spáir
greininni mikilli framtíð. Þarna
geta allir tekið þátt, sem eiga yf-
irferðarmikla hesta, spenna
kappreiðanna til áhorfenda og
knapa skilar sér fullkomlega og
hæfiieikar hestanna njóta sín til
fullnustu.
Atvinnulausum fœkkabi ekkert frá maí til júní og ekki mikillar fœkkunar vcenst í júlí:
Um 7.000 manns án vinnu
Atvinnulausum fjölgaði frekar
en hitt milli maí og júní, þegar
þeir voru um 7.000 að jafnaöi,
eða um fjóröungi (25%) fleiri en
í júní í fyrra. Meginbreytingin
Aldarafmœli verslunar á Borgarfiröi eystri:
Hátíð um næstu helgi
Helgina 21.-23. júlí er því fagnað
á Borgarfirði eystri að staðurinn
fékk verslunarréttindi fyrir
hundrað árum. Aögangur að
tjaidstæði hreppsins verður
ókeypis og á föstudagskvöld er
boöið til grillveislu. Þar verður
varðeldur og mun Jón Arngríms-
son stjórna fjöldasöng.
Laugardaginn 22. júlí verður flutt
hátíöardagskrá í félagsheimilinu
Fjarðarborg. Þar býður Borgarfjarð-
arhreppur til kaffisamsætis.
Margt fleira gera Borgfirbingar til
hátíðarbrigða. í Bakkagerðiskirkju
verður hátíbarmessa. Þar messar
sóknarpresturinn, séra Þórey Gub-
mundsdóttir, og Snæfellskórinn
syngur. í Vinaminni verður opnuð
sýning á málverkum og handunn-
um munum eftir Borgfirðinga. Þá
verður sýning á gömlum verslunar-
munum og ljósmyndum í Fjarðar-
borg.
Saga Borgarfjarðar hefur verib
skráð í tilefni af afmælinu og er fyr-
irhugað að sú bók komi út 20. júlí.
Pétur Örn Hjaltason, sem er
starfsmaður afmælisnefndar, hefur
haft veg og vanda af undirbúningi
hátíðarinnnar, en flest félagasam-
tök í hreppnum taka þátt í hátíðar-
höldunum. ■
var þó sú, að konum á atvinnu-
leysisskrá fjölgaði um 500 (upp í
4.100) á sama tíma og körlum
fækkaði um 400 (niður í 2.900).
Hlutfall atvinnulausra kvenna
(7,1%) varð því rúmiega tvöfalt
hærra en karla (3,5%) í júní,
sem er óvenjulega mikill mun-
ur.
Atvinnulausum fjölgaði alstað-
ar nema á höfuöborgarsvæbinu,
Vesturlandi og Vestfjöröum. Öll
fækkun á höfuðborgarsvæöinu
var í hópi karla og fjölgun at-
vinnulausra á landsbyggðinni öll
meðal kvenna. Atvinnulausum
fjölgabi langmest á Suðurlandi, úr
5,1% í maí í 7% í júní, sem er
hæsta hlutfaliö í mánuðinum.
Þessi mikla fjölgun hefur fyrst og
fremst orðiö meðal kvenna í
sjávarplássunum: úr 70 í 270 sam-
tals í Vestmannaeyjum, Þorláks-
höfn, Stokkseyri og Eyrarbakka.
Um 11,3% sunnlenskra kvenna
voru án vinnu í júní og sama
hlutfall kvenna á Suðurnesjum.
Rúmlega 6.600 manns voru enn
á atvinnuleysisskrá síöasta virkan
dag júnímánaöar. Vinnumála-
skrifstofan reiknar því ekki með
að atvinnulausum fækki að ráði í
júlí.
Ólympíukeppni í stœröfrceöi:
Fjórir keppendur frá íslandi
Fjórir íslenskir skólapiltar taka
þátt í alþjóðlegri ólympíukeppni
í stærðfræði. Keppnin er haldin í
Toronto í Kanada, en þátttak-
endur eru valdir á grundvelli
frammistöðu sinnar í Stærð-
fræöikeppni framhaldsskóla-
nema og Norðurlandakeppni í
stærðfræði sem efnt var til sl.
vetur. í fylgd meö keppendunum
veröa farastjóri og dómnefndar-
fulltrúi.
Tveir keppendanna koma frá
Menntaskólanum í Reykjavík, Ein-
ar Guðfinnsson sem var að ljúka
þriöja námsári við skólann og Ge-
org Lúðvíksson sem er nýstúdent,
en úr Flensborgarskóla í Hafnar-
firöi kemur Hannes Helgason og úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð
kemur Kári Ragnarsson. Hannes og
Kári vom báðir aö ljúka öðru
námsári sínu í framhaldsskóla.
Fararstjóri er Einar Arnalds Jónas-
son, kennari við Fjölbrautarskólann
,í Breibholti, en fulltrúi íslands í
dómnefnd keppninnar verður Lár-
us H. Bjarnason, kennari við
Menntaskólann í Hamrahlið.
Undirbúningur keppninnar fór
fram á vegum Háskóla íslands þar
sem keppendur hlutu þjálfun í
stærðfræði og dæmareikningi, en
slík þjálfun er nauðsynleg þar sem
viðfangsefni keppninnar eru að
sumu leyti frábrugbin venjulegu
námsefni í þessari grein hér á landi.
Keppnin fer fram dagana 19. og
20. júní. Um 400 keppendur frá 70
löndum taka þátt og glíma allir við
sömu verkefni, en hver þjób má
senda sex keppendur í mesta lagi.
Menntamálaráðuneytib greiðir
mikinn hluta ferbakostnaðar, auk
þess sem Seðlabankinn styrkir
keppnina, aö því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Ábyrgð hf. hefur
gefið ferðatryggingar, en piltarnir
njóta jafnframt persónulegra
styrkja frá ýmsum aðilum, en
vegna undirbúnings hafa þeir ekki
getað stundað launaða vinnu. ■